Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1961, Page 24

Skólablaðið - 01.04.1961, Page 24
160 - A LLS staðar er fólk aö bíða ef tir einhverju. Folk, ósköp venjulegt; folk eins og ég og þu; og kannski, nei auðvitað bíðum við líka eftir ein- hverju. Mergurinn málsins er bara þessi : vitum við nokkuð eftir hverju við erum að bíða? Sumir ef til vill, en þeir eru áreið- anlega fáir. Allir þekkja biðina, biðina eftir ein- hverju, sem við vitum ekki hvað er, en vitum þó, að mundi breyta öllu lífi okkar, færa allt í betra horf, biðina eftir hinni svokölluðu hamingju. En hvað er þá þessi hamingja, sem all- ir þrá? Værum við nokkru bættari, ef hún birtist okkur einn góðan veðurdaj* og segði: Her er ég, hvað viltu að eg geri fyrir þig? Værum við í rauninni nokkuð betur sett, hefðum við í raun og veru gott af því, að vera fullkomlega hamingjusöm? Ég er hrædd um ekki. Líklega yrðu afleiðingarnar aðeins sjalfs- elska á hæsta stigi, ásamt öllum þeim ömurlegu leiðindum, sem fylgdu í kjöl- far hennar. Þá þyrfti enginn lengur á neinni hjálp að halda, svo að góðgerða- samar sálir vissu ekki, hvað þær ættu af sér að gera. Tökum ástina. Hvers virði væri hún, ef enginn þyrfti nokkru sinni að brjóta heilann um, hvernig bezt væri nú að leggja sem öruggastar snörur fyrir þá heittelskuðu? Það mundi hreinlega eyðileggja allt gamanið. ímyndið ykkur vesalings karlmennina. Hvað ættu þeir af sér að gera, ef þeir hefðu ekki leng- ur neina ástæðu til að elta kvenfólkið a röndum, til þess að reyna að sannfæra það um alla hina góðu kosti karlþjóðar- innar? Væri það ekki dálítið harðbrjósta af örlögunurr, ef þau sviþtu þá öllum tækifærum til þess að fullnægja veiðilöng- un og yfirráðakompLexi þeirra á friðsam- legan hátt? Og hvað um kvenfólkið? Ætli þeim brygði ekki ónotalega við, ef þær hefðu ekkert tækifæri lengur, til að lata karlmennina ganga á eftir sér með grasið í skónum, og nota töfravald sitt til þess að pína þá og plága á allan hátt, eins og við vitum að það gerir og hefur gaman af í þokkabót? Æi jú, ætli lífið yrði ekki altt of tilbreytingalaust og leið- inlegt. Ég er líka anzi hrædd um, að mann- fólkið sé ekki nógu þroskað, til þess að þola, að allt gengi því eftir vild. Mann- skepnan er nú einu sinni svoleiðis, að minnsta kosti enn þá, að hún vill helzt það, sem ómögulegt er að öðlast, en kærir sig svo aftur á móti ekkert um það, sem hún getur fengið. Allir vita nú, hvað alfullkomið fólk er leiðinlegt. Guð forði oss frá þeim tímum, þegar allt mannkynið væri það. Nei, gerum okkur ánægð með ástandið eins og það er í dag með öllum sínum kostum og göllum. Maður veit, hvað maður hefur, en ekki, hvað maður fær. Nei annars, höldum okkur við alvör- una. Margir hafa varið lífi sínu til að leita hamingjunnar, en fáir eru þeir, sem finna hana. Kannski er það heldur alls ekki hún, sem allir eru að bíða eftir. Kannski er það eitthvað allt annað? Sum- ir finna það, sem þeir leita, I fegurð- inni, aðrir við að sökkva sér niður I störf sín eða umhyggju fyrir öðrum. En nú vil ég spyrja: er ekki eitthvað æðra takmark en hamingjan? Eitthvað, sem felur I sér hamingjuna, en er þó ekki hún. Hvað er það, sem við erum öll að bíða eftir? Þetta hefur orðið yrkisefni skálda og rithöfunda um aldaraðir, en engum þeirra hefur tekizt að skilgreina það, þó að þeir séu annars allra manna færastir að lýsa tilfinningum sínum og kenndum. í Grikklandi, Romaborg, á miðöldum og allt fram til vorra daga hafa menn brot- ið heilann um þetta, en enginn hefur komizt að neinni algildri niðurstöðu, ne tekizt að brjóta það til mergjar. Enn eru menn að velta þessu fyrir sér. Frh. á bls 166.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.