Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.10.1965, Page 10

Skólablaðið - 01.10.1965, Page 10
10 - - Tóbak? - Aldrei. - Áhugamál? - Ja, helzt bækur. - Hvers konar bækur? - Ég hef áhuga á ýmsum tegundum bóka, en hrifnastur er óg af Tom Swift og þa helzt þeim eiginleika hans aÖ eld- ast aldrei. Svo les ég talsvert af fróð- leikskornum, svo sem um tilhugalíf bý- flugunnar. - Ef þu værir settur á eyðieyju og dæmdur til þess að vera þar í tíu ár, hvort tækir þú þá heldur með þór biblíúna eða James Bond? Helgi setur upp dreyminn svip, og okkur virðist helzt, að hann sé að gera sór sjálfan sig i hugarlund, staddan 1 sundskýlu á eyðieyju í Kyrrahafinu, um- kringdan lettklæddum meyjum. - Ja, segir hann þegar við höfum vakið athygli á nærveru okkar með ræskingum. Ja, í hvoru er meira lesmál. Jú, ætli það só ekki biblían. Og þýzkan er of erfið, ætli eg vildi ekki biblíúna á ensku. - Hvernig er með skólabókalestur ? - Hann hefur minnst varið 1 sjö mín- útur og mest 1 fjóra tíma í einu. - Gengur þór vel að einbeita þór að bókunum, langar þig t. d. aldrei ut 1 glaðan barnaleik? - Börnin, sem leika sér fyrir utan gluggann minn, eru svo hávær og leiðin- leg, að mig langar alls ekkert út til þeirra. - Ertu trúaður ? - Mer hefur aldrei birzt nein opinber- un, segir Helgi Skúli Kjartansson hugs- andi, - en ætli maður trúi ekki á æðri máttarvöld. - En svo við snúum okkur aftur að áhugamálunum, hefur þú ekki neina "dellu"? Kvensemi? Bodybuilding ? - Sko, kvensemi er engin "della", og heldur vildi óg eiga vel þjálfaðan líkama en gott ljósmyndasafn eftir sjálfan mig. - Og að lokum, Helgi, hvaða augum lítur þú til framtiðarinnar ? - Æ, ég veit það ekki. Ó. og Y. Teikninámskeið á mánudögum kl. 20. Leiðbeinandi : Sverrir Haraldsson. Lesflokkur á laugardögum kl. 16:30. Leiðbeinandi : Baldvin Halldórsson. Kóræfingar á föstudögum kl. 1:45. Stjórnandi: dr. Hallgrímur Helgason. Kvikmyndaklúbbur á fríúögum skólans. Sýningar kvikmyndaklúbbs : 1. Gamla báói laugardag 23. október kl. 14:30, Luis Bunuel : Brauðlaust land. Luis Bunuel : Róbínson Krúsó. 2. Laugarásbíoi fimmtudag 18. nóv. kl. 14:30. Walter Ruttmann : Opus I-III Erwin Leiser : Árið 1924. Friedrich Wilhelm Murnau: Seinastur manna. 3. Laugarásbfói sunnudag 28. nóvember kl. 13:30. Sergei Eisenstein: Beitiskipið Potemkín. 4. Laugarásbáói miðvikudag l.desember. Sergei Eisenstein: ívan grimmi 1. hluti ( kl. 10 ) 2. hluti ( k. 14:30) 5. Háskólabíói fimmtud. 16. des.kl. 13:30. Vi.ctor Sjöström : Fjalla- Eyvindur. 6. Kvikmyndasal Austurbæjarskóla mánudag 27. desember kl. 14:30. Lous Lumiere: Garðyrkjumaðurinn sem vökvaði sjálfan sig-og 33 aðrar Henri Chomette: Hrein kvikmyndalist í fimm mínutur. Renó Clair : Milliþáttur. Jean Renoir : Dagbók herbergisþernu. 7. Laugarásbfói miðvikud. 29. des.kl. 14:30 Maya Deren : Hugleiðing um ofbeldi. Akíra Kúrosava : Rashomon.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.