Austri - 15.12.1972, Qupperneq 3

Austri - 15.12.1972, Qupperneq 3
Neskaupstað, jólin 1972. AUSTRI 3 Kirkjan á RerunesS. Nóttin var sú ágæt ein, í a,'!ri veröld ljcsið skein, það er nú heimsins þrautar mein að þekkja hann ei sem bæri. IVIeð vísnasöng ég vögguna þína hræri. Einar Sigurðsson. Þ. AÐ KOMU boð um að Skrá- setja alla heimsbyggðina. Þau boð komu frá valdstjórninni í Róm. Mörg slík boð hafa komið, vald- stjórnin skipað o,g 'þegnarnir hlítt. Þau boð eru nú gleymd öllum þoira manna, ef til vill aðeins til á gulnuðum blöðum, og þessi boð væru einnig gleymd, ef þau væru ekki umgjörð um annan boðskap, boðslkap ólían hinum að öllu eðli, boðskap um fæðingu lítils drengs. Er það ekki lítið tilefni til að minnast í tvö þúsund ár. Þeir eru ófáir sem ihafa fæðzt við glæsi- legri skilyrði og samt man þá eng- inn nú. Vér sjáum það, þegar vér lítum aftur, virðum fyrir oss ald- irnar, að það gerðist nokkuð sér- stætt þessa nótt. Verið ólhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögn- uð, sem veitast mun öllum lýðn- um; þvi að yður er í dag frelsari fæddur,, sem er Kristur Drottinn". Svo sögðu englarnir á jólanótt. Ve.rið óhræddir. Það var boðskap- ur þeirra og það er enn boðskapur jólanna. Verið óhræddir. Ekki vegna þess, *að ekki sé nóg að ótt- ast, iheldur vegna þess, að það gerðist undur á hinum fyrstu jól- um, Guð vitjaði eignar sinnar og hans eigin menn tóku ekki við honum, útlhýstur í gripahúsi fædd- isit ihann, sem sagði: Hjarta yðar skelfist ekki. Guð kom, Guð kem- ur, það segja jólin, 'hver sem um-, gerð þeirra er, þá er boðskapurinn um barnið í jötunni, boðskapur um frið á jörðu, frið í sál, í neyð þinni,, sorg þinni, í gleði þinni kemur hann. * „■— Jesú, barn, þú Ikemur nú í nótt, oig nálægð þína ég í fajarta finn. Þú ikemur enn, þú kemur undra hljótt, í kotin jafnt og faallir fer þú inn'1. I Einnig á þessum jólum mun hann vera þér nálægur, hver sem aldur þinn er, hvar sem þú ert, þá kemur hann. Megir þú finna nálægð faans í fajarta þínu. Megi komandi hátíð vera þér gleðileg jól. S. H. G. Gömul mynd Öðru hvoru erum við minnt á norðlæga legu fósturjarðarinnar með snjó, frosthörkum, vorkuld- um, hafís. Mynd þá, sem hér fylgir, tók Björn Björnsson frostaveturinn 1918. Hún er frá Norðfirði. Hafís- inn er að mola sundur Konráðs- 'bryggjuna. Maðurinn á jakanum er Páll G. Þormar. Ný hafnarmannvirki era sterk- ari en gömul. Vegir eru byggðir upp eða grafnir undir fjöll. Mörg úrræði eru tiltæk,, sem áður voru óþekkt. En ihnattstaða Islands er hin sama og áður.

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.