Austri - 15.12.1972, Síða 15
Neskaupstað, jólin 1972.
AUSTRI
15
Happdræili Háskóla íslands
greiffiir yfir fjögur hundruð milljónir króna í vinninga á ári,
sem er 70% af heildarveltunni, og er því glæsilegasta happ-
drætti landsins.
Hvernig á að spila?
Happdrætti Háskóla íslands er eina happdrættið hér á landi,
sem gefur viðskiptavinum fleiri en einn möguleika til spila-
mennsku. Með tilkomu au!kaflo'k.kanna E, F. G og H getur við-
skiptavinurinn aukið „breidd“ spilamennskunnar, eða tvöfald-
að, íþrefaldað eða fjórfaldað vinninginn. Þá spilamennsku nefn-
um við ,,ÞVERSUM“.
Aft.ur á móti ihafa einstaklingar og starfshópar ’haft mikla á-
nægju um áraraðir að spila á raðir af miðum, en sú spila-
mennska hefur verið nefnd „LANGSUM“.
Það er með spilamennsku í ihappdrættum eins og svo margt
annað í mannfélaginu, að fleira en eitt sjónarmið kemur til
greina. Sumir vilja hafa stóra vinninga, svo þá muni verulega
um það, þegar miðinn þeirra kemur upp. Aðrir telja það meiri
ánægju að fá oftar vinning, þótt vinningurinn sé ekki svo hár;
leggja á það höfuðáherzlu, að „spila frítt“.
Happdrætti Háskóla Islands fer bil beggja. Þeir, sem óska að fá
stóran vinning, þegar miðinn þeirra kemur upp, geta spilað
„ÞVERSUM" og átt tvo eða fleri miða af hverju númeri. En
þeir, sem kjósa heldur að verða otftar varir, ættu að spila
„LANGSUM" og eiga raðir af miðum.
SPILAFÉLÖG
I áratugi ihafa menn spilað á raðir af miðum. Hafa myndazt sam-
tök manna í þessum tilgangi, sem eiga saman mismunandi lang-
ar raðir af miðum. Mjög algengt er að þessi félög eigi 25—50
miða í röð. Þá er vitað um mörg stærri félög, sem eiga allt upp í
100 miða og dæmi eru til um allt að 200, og jafnvel 300 miða-
röðum í eigu sama sameignarfélagsins.
Ólíkustu sjónarmið bindá menn saman í þessum spilafélögum,
Bridgekiúbbar, saumaklúbbar, ferðaklúbbar, ifræindur og vinir„
starfsfélagar, skoðanabræður, nágrannar og s-ambýlisfóik og
svona mætti lengi telja.
Góffifúslega endurnýiffi tímanlega.
Sala á hlutamiffium og endumýjin til 1. flokks 1973 hefst 27.
desember. Viðskiptavinir happdrættisins eiga forkaupsrétt að
miðum sínum til 10. janúar. Góðfúslega endurnýið sem fyrst til
að forðast biðraðir seinustu dagana.
Verð miðanna 200 krónur á mánuði.
Gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
óskum vér viðskiptavinum vorum um land allt
TrYggingamiðslöðin hf.
REYKJAVlK