Austri


Austri - 21.01.1977, Síða 1

Austri - 21.01.1977, Síða 1
K^mstri 22. árgangur. Egilsstöðum, 21. janúar 1977. 3. tölublað. Vegurinn um Oddsskarð Á Austurlandi er akfært að kalla fimmtán fjallvegi, heiðar, skörð og hálsa. Telja má eina tuttugu firði í Múlaþingi, sem tengst hafa vega- kerfinu með einhverjum hætti. 1 Skaftafellssýslu eru yfir fimmtíu brýr, samtals á fjórða km að lengd. Og aðalvegurinn um endilangt Aust- urlandskjördæmi er ámóta langur og leiðin frá Egilsstöðum til Reykja- víkur eða 740 km. Það þótti í mikið ráðist, þegar Jakob glímdi við Guð, enda gerði hann það í draumi. Það nálgast líka fífldirfsku að fáeinar hi-æður takast á hendur að vega allt Island. I óska- draumum okkar er vegur vegur og þar þykir mörgum gaman. En í vöku verða þeir ekki viðskila vegirnir og peningarnir. Og fyrir alþingismenn heyrir það til munaðar að hugsa um vegagerð frá öðru sjónarhorni. Haustið 1973 sást hilla undir lok brúarsmiðar á Skeiðará. Þá tók ég saman frásögu - þátt af brúargerð í Skaftafellssýslu og birti í jólablaði Austra. Nú nálgast sá tími, að not- hæf verði jarðgöngin í Oddsskarði ef allt fer samkvæmt áætlun. Það verður næststærsta og jafnframt ný- stárlegasta vegaframkvæmd á Aust- urlandi. Þetta verður nokkuð dýr vegur. Og val vegarstæðisins — leið- arinnar — átti sér töluverðan að- draganda. Sýnist vel ómaks vert að rifja upp nokkra þætti þeirrar sögu, og verður m.a. stuðst við heimildir frá vegamálaskrifstofunni, blaðavið- tal við Einar sáluga Jónsson verk- stjóra og frásagnir heimamanna. Upprifjun þessi verður á engan hátt tæmandi. En hún minnir á merka sögu og svo á hitt hver nauð- syn er að skrá frásagnir af atburð- um meðan þeir enn eru í fersku minni og heimildir handbærar. En á hvort tveggja sýndist mér nokkuð skorta, þegar ég tók að rifja upp þessa atburði. Það er örðugt fyrir þá, sem um alllangt skeið hafa vanist jarðýtum og áþekkum vinnuvélum öðrum, að setja sig í spor þeirra, sem unnu að vegagerð áður en þessi tæki komu til sögu. Bíllinn kom nokkru fyrr. Og sannleikurinn var sá, að vega- gerðarmenn á íslandi voru óstöðv- andi strax í byrjun — þótt þeir að sjálfsögðu færu sínar eigin leiðir! Fyrsta meiri háttar vegarlagning á Austurlandi átti sér raunar stað áður en bíll kom á austurslóðir. Vegurinn um Fagradal var lagður á árunum 1903 til 1909. Hann var Snjómokstur í Oddsskarði. gerður fyrir hestvagna eins og kunn- ugt er, en reyndist bílfær að mestu þegar fyrsti bíllinn fór um Fagradal árið 1917. Fagradalsbraut var tilkomumikið nafn og stóð eitt sér um áraskeið. — Ég held það geti ekki flokkast undir áróður þó sagt sé, að á stjórn- arárum Tryggva Þórhallssonar og Jónasar Jónssonar 1927 - 1931 hófst nýr kapituli í framfarasögu íslend- inga. Vegagerð á íslandi fékk þá slíka vítamínsprautu að úr skar. Hvarvetna var hafist handa, leitað leiða og leiðir ruddar með hökum og skóflum. Val vegastæða var vitan- lega mjög háð þeirri ”tækni“ sem þá var fyrir hendi. Að vegurinn nýtt- ist sem flestum byggðum bólum var og mikils vert. Norðanverðir Austfirðir voru sér- staklega erfiðir, fjöll há og brött og náðu í sjó fram á nesoddum. Á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar voru ýmsar leiðir skoðaðar: Oddsskarð, sem var fjölfarið gangandi og ríð- andi mönnum. Hrafnaskörð, sem liggja út og upp frá Helgustöðum, en síðan mátti fara um Hnúka og komið niður á Skuggahlíðarbjörg eða neðanvert í Oddsdal. Út Helgustaða- hrepp um Víkurheiði, Dys, Viðfjörð, Glámuskriður, Hellisfjörð og Hellis- fjarðarskriður til Norðfjarðar. Árið 1930 skoðar Jón ísleifsson verkstjóri leiðir til Norðfjarðar frá Eskifirði, annars vegar um Krossa- nes, hins vegar um ”Vaðlaheiði“, eins og það er orðað í skýrslu hans, sem dagsett er á Eskifirði 6. maí 1930. Vegurinn um Víkurheiði og Dys hefir þá nýlega verið tekinn í tölu sýsluvega. Næst athugar leiðir Jón Jónsson ”frá Flatey“ síðlasumars 1931. Hann er á Oddsskarði 7. - 8. september og hefir þá áður farið Víkurheiði og Dys og með sjó til Norðfjarðar. At- hugun hans er allnákvæm og sund- urliðuð. Dómur Jóns Jónssonar er afdráttarlaus: ”Þrátt fyrir þá annmarka sem á þessari leið (Viðfj.) eru, er ekki álitamál að velja hana heldur til þess að gera bílveg en um Oddsskarð. Það liggur svo hátt að snjó leysir þar ekki fyrr en kemur langt fram á sumar." Sveinn Ólafsson í Firði. Á sumarþingi 1931 flytur Sveinn Ólafsson í Firði tillögu um að taka í tölu þjóðvega: ”a. Norðfjarðarveg- ur, frá Eskifirði um Norðfjöi'ð að Nesi.“ Ennfremur Mjóaf jarðarveg og Fáskrúðsfjarðarveg. Voru þessar tillögur allar samþykktar óbreyttar 1933. Hannes Arnórsson skilar frumá- Auglýsinga- og áskriftasími AUSTRA er 97-1335 ætlun um kostnað við vegagerð um Víkurheiði til Norðfjarðar 19. jan- úar 1933, 85 þús. kr. Engum þessara manna líst á Odds- skarð. Og Kristján Jóhannsson verk- stjóri telur að Geir Zoega vegamála- stjóri hafi einkum sett fyrir sig hina miklu hæð, 660 m yfir sjávarmál. Ingvar Pálmason. Guðjón í Skuggahlíð telur, að árið áður hafi þeir Ólafur Sveinsson bankagjaldkeri á Eskifirði og Ólaf- ur Helgason bóndi á Helgustöðum komið að Skuggahlíð þeirra erinda að fá vörubíl, sem Ármann Her- mannsson átti og kanna, hvort hægt væri að koma honum yfir Hnúka og Hrafnaskörð. Bíllinn var að sjálf- sögðu aðeins með drif á afturhjól- um og komst ekki nema inn í Sneið- ingarnar innan við Skuggahlíð. Nú hefir verið farið með jeppa hluta af þessari leið en það er önnur saga. Vegagerð út frá Eskifirði mun hafa byrjað um 1934. En áður höfðu verið gerðir vegbútar á byggðinni. Árið 1938 er vegur kominn að svo- kölluðu Klifi nokkuð innan við bæinn Viðfjörð. Þá var staldrað við og enn hugað að nýju vegarstæði til Hellis- fjarðar yfir og um Hnúka niður í Oddsdal. En á árunum 1941 og 1942 var lokið við veginn niður að sjó. Þar var gerð bryggja og teknar upp fastar ferjuferðir að sumrinu. Munu þær raunar hafa byrjað strax 1941. En Kaupfélag Héraðsbúa tók upp áætlunarferðir milli Akureyrar og Viðfjarðar árið 1943. Bílar voru fluttir með bátnum og ekið um borð og frá borði. Aðeins einn bíll varð tekinn í senn og eingöngu litlir bílar. Fastar ferðir munu hafa verið tvær á viku yfir sumartímann, (ca 2 mán.) og aukaferðir eftir þörfum. Þessar framhald á bls. 3

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.