Austri


Austri - 21.01.1977, Qupperneq 7

Austri - 21.01.1977, Qupperneq 7
Egilsstöðum, 21. janúar 1977. AUSTRI 7 £ojóf(óðovariyir í Neskoupstoð Snjóflóðanefnd Neskaupstaðar skil- aði áliti í október síðastliðnum. Nefndin var skipuð í september 1975 og vann að athugunum á snjóflóða- vörnum í samvinnu við erlenda sér- fræðinga. Nefndina skipuðu: Hjör- leifur Guttormsson formaður, Hauk- ur Ólafsson, Ólafur Gunnarsson, Stefán Pálmason og Stefán Þor- leifsson. Starfsmaður hefndarinnar var Þórarinn Magnússon bæjarverk- fræðingur. Álit nefndarinnar fer hér á eftir, ásamt samþykkt bæjarstjórn- ar Neskaupstaðar því viðvíkjandi. 1. Nefndin mælir eindregið með því, að starf athugunarmanns snjóflóða í Neskaupstað verði til frambúðax og unnið samkvæmt erindisbréfi sem mótað hefur verið um starfið. Eðlilegt er að starfsrammi athugun- annanns verði endurskoðaður frá ári til árs af almannavarnanefnd eftir því sem þurfa þykir í ljósi fenginnar reynslu. 2. Almannavarnanefnd hafi á hverj- um tíma tilbúna rýmingaráætlun og aðrar skipulegar varúðarráðstafanir og björgunaraðgerðir með tilliti til snjóflóða. Vísar snjóflóðanefnd til framkominnar tillögu NGI um rým- ingu og ábendinga um veðurfars- aðstæður, er leitt geta til snjóflóða. Hefur almannavarnanefnd fengið drög að viðmiðunarreglum fyrir at- hugunarmann snjóflóða og nefndina til að styðjast við í þessu sambandi, en þær reglur þarf að þróa með aukinni vitneskju. Ákvörðun um rýmingu tekur al- mannavarnanefnd eftir eigin mati hverju sinni, en nefnd okkar telur óhjákvæmilegt að beita rýmingu í varúðarskyni við tilteknar aðstæður, sem stöðugt má endurmeta í ljósi nýrra upplýsinga og að fenginni reynslu. 3! Við skipulag byggðar gildi sú meginregla að byggja ekki hús til íbúðar eða atvinnureksturs á svæð- um, sem talið er af sérfróðum aðil- um að snjóflóð geti náð til. Verði allt land kaupstaðarins neðan við eðlileg byggðarmörk flokkað og kortlagt með tilliti til snjóflóðahættu eftir sama kerfi (rauð, blá, gul og hvít svæði) og tekið hefur verið upp víða erlendis í þessu skyni (Sviss, Noregur)1. Komi til álita að reisa hús á áður óbyggðum svæðum, sem snjóflóð gætu fallið á, verði það aðeins gert að vandlega athuguðu máli og að fengnum tiilögum sérfróðra aðila um varnarvirki og hönnun mann- virkja. Alls ekki verði byrjað að byggja á slíkum svæðum fyrr en skipulag þeirra með tilliti til snjó- flóðavarna hefur verið fullmótað og staðfest af réttum aðilum og afstaða tekin til byggingar varnarmann- virkja og fjármagn tryggt í því skyni. 4. Snjóflóðanefnd hefur fengið sér- fræðilegt mat á snjóflóðahættu gagn- vart núverandi byggð í kaupstaðn- um og tillögur um varnarvirki. Nefndin telur brýnt að fá hið fyrsta mótaðar reglur eða sett lög eftir því sem rétt þykir um það, hver bera skuli kostnað og taka ákvarðanir um gerð hugsanlegra varnai'virkja. Að mati nefndarinnar er tilgangs- laust að tala um slík varnai'virki nema fyrir liggi að ríkið eða hlið- stæður aðili (viðlagatrygging) greiði kostnað við byggingu þeirra að mestu eða öllu leyti. Að þeim for- sendum gefnum telur nefndin mjög æskilegt, að komið verði í áföngum upp varnarvirkjum ofan byggðar þar sem mest er í húfi. Vísar nefnd- in til tillagna NGI um forgangs- röðun varðandi varnarvirki og gerir ekki athugasemdir við þær hug- myndir. Hins vegar þarf nánari at- hugun að fara fram á tæknilegum forsendum slíkra varnarvirkja, m.a. jarðtæknilegar kannanir. í vissum tilfellum getur komið til álita að kaupa upp eignir á hættusvæðunum í stað þess að reisa þar varnarvirki, en slíkt má ekki verða til þess að öðru jöfnu að seinka varnaraðgerðum og tryggt þarf að vera að slíkt húsnæði yrði ekki áfram notað til íveru. Eftir að varnarvirki hafa verið reist, er eðlilegt að endurmeta fyrri reglur um rýmingu viðkomandi svæðis. Þó ber að hafa í huga, að þrátt fyrir varnarvirki fæst ekki full- komið öryggi, en mjög yrði undir umfangi þeirra komið, hversu á þau má treysta. Tillögur NGI gera ráð fyrir þeim möguleika, að slík virki yrðu reist í áföngum á hverj- um stað einkum þegar um jarð- vegshauga er að ræða. 5. Vegna snjóflóðasvæða, þar sem þegar er komin byggð, telur nefndin að taka beri mið af eftirfarandi: 5. 1. Ekki verði bætt við byggð á slíkum svæðum frá því sem nú e.r, nema reist verði varnar- virki sem réttlæta endurmat á flokkun slíkra svæða. 5. 2. Heimilað verði viðhald nú- verandi mannvirkj a, íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, að því tilskyldu að slíkt leiði ekki til að fleiri dvelji að jafnaði á viðkomandi svæði. Jafn- framt verði eigendum fast- eigna á snjóflóðasvæðum veitt ráð um æskilega styrkingu mannvirkja og breytingar, er veitt gætu aukið öryggi gagn- vart snjóflóðum. Þegar atvinnufyrirtæki á snjó- flóðasvæðum eiga í hlut, er sérstök nauðsyn að réttir aðil- ar (skipulags- og bygginga- nefnd) horfist í augu við vaxt- arþörf þeirra í fyrirsjáanlegri framtíð, áður en meiriháttar viðhald eða viðbyggingar eru héimilaðar. Kemur þá til álita að stuðla að flutningi slíkra fyrirtækja eða reisa varnar- virki, er réttlætti áframhald- andi uppbyggingu þeirra á sama stað. 6. Nefndin telur þörf á að sem fyrst verði könnuð réttarstaða aðila í sambandi við þær reglur og aðgerð- ir til varnar gegn snjóflóðum, sem hér er mælt með, svo og vegna annarra aðgerða, er bæjaryfirvöld kunna að ákveða. 7. ■ Snjóflóðanefnd telur rétt að bæj- arbúum verði veittar hlutlægar upp- lýsingar og fræðsla um snjóflóð og hættu af þeim og þær meginreglur, er lagðar verða til grundvallar ör- yggisráðstöfunum af hálfu almanna- varna vegna snjóflóðahættu. Telur nefndin, að aðeins með slíkri vitneskju almennings um forsendur varúðarráðstafana, sé líklegt að þær beri þann árangur, sem að er stefnt. Jafnframt ber að leggja áherslu á að kenna almenningi að nýta kosti snævarins til útilífs, enda sé þá jafnframt tekið eðlilegt tillit til snjóflóðahættu, m.a. við staðsetn- ingu og rekstur skíðatogbrauta. 8. Snjóflóðanefnd hefur þegar gert tillögur til almannavarnanefndar Neskaupstaðar um samstarf al- mannavarna á Austurlandi við öfl- un og dreifingu upplýsinga um snjó- flóð og æskilegar varúðarráðstaf- anir, svo og um aðild ýmissa aðila að því starfi, sbr. bréf snjóflóða- nefndar frá 11. des. 1975 Á sama hátt hvetur nefndin bæjaryfirvöld og almannavarnir í Neskaupstað til að leita samvinnu og hafa frumkvæði um aðgerðir til eflingar snjóflóðavarna á lands- mælikvarða. Neskaupstaður býr á þessu sviði við svipaðar aðstæður og mörg önnur byggðarlög í land- inu, en sú dýrkeypta reynsla sem hér hefur fengist leggur okkur nokkrar skyldur á herðar um for- ystu til að koma í veg fyrir, að slík- ir atburðir komi mönnum aftur í opna skjöldu. 9. Snjóflóðanefnd vekur athygli bæj- arstjórnar á þeirri hættu, sem byggð getur stafað af skriðuföllum og aur- flóðum og tillit þarf að taka til við skipulag byggðar. Bendir ýmislegt til, að slík hætta sé oft á sömu svæðum og snjóflóð falla yfir. Þarf þetta sérstakrar úttektar við að mati nefndarinnar, einnig með hliðsjón af hugsanlegum varnarvirkjum gegn snjóflóðum. 10. Snjóflóðanefnd er ljóst, að marg- háttaður vandi fylgii' þeim aðstæð- um, sem ljósar hafa orðið í fram- haldi af snjóflóðunum í desember 1974. Við honum ber mönnum að bregðast af raunsæi og með mark- vissum aðgerðum er tryggi sem mest öryggi fyrir íbúa byggðarlags- ins í bráð og lengd. Bæj aryf irvöld og almannavarnir verða því að framkvæma þær fyrir- byggjandi aðgerðir, sem tök eru á og vitneskja leyfir hverju sinni, og- gera kröfur sem réttmætt er um stuðning ríkisins og annarra aðila við þær aðgerðir. SAMÞYKKT BÆJARSTJÓRNAR NESKAUPSTAÐAR I samræmi við álit snjóflóða- nefndar samþykkti bæjarstjórn að tillögu bæjarráðs á fundi sínum 10. des. 1976: a) Að athugunarmaður snjóflóða í Neskaupstað starfi áfram þar til annað verði ákveðið. b) J Að skipulegar varúðarráðstafan- ir verði í höndum almannavarna- nefndar og mælist bæjarstjórn til við almannavarnanefnd Nes- kaupstaðar, að eflt verði sam- starf við almannavarnanefndir á Austurlandi. c) Að bæjarstjóra verði falið að láta gera tillögu að eðlilegum byggð- armörkum innan núverandi lög- sagnarumdæmis. Ennfremur, að svæði innan byggðarmarka verði flokkað með tilliti til snjóflóðahættu og gerðar verði tillögur um reglur varðandi byggingar á áður ó- byggðum svæðum og snjóflóða- svæðum, þar sem þegar er kom- in byggð. d) Að fela bæjarverkfræðingi gerð frumáætlunar fyrir jarðtækni- lega könnun ofan byggðar í Nes- kaupstað. Að lokum þakkar bæjarstjórn Neskaupstaðar snjóflóðanefndinni og sérfræðingum NGI fyrir mikil og vel unnin störf. TIL SÖLU Rafmagnsritvél, Brother, lítið notuð (nýyfir- farin), skrifstofuvél. Verð kr. 50.000.00 Einnig gömul Remington ritvél, stór vals, ekki rafmagn, æfingavél. Verð kr. 5.000.00 Reiknivél, Olivetti, 7ára. strimill, lítið notuð. Verð kr. 20.000.00 Tveir armstólar. Verð kr. 10.000.00 stk. Sími 1280. kl. 9.00 - 17.00

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.