Morgunblaðið - 03.05.2010, Síða 7

Morgunblaðið - 03.05.2010, Síða 7
Íþróttir 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010 MANCHESTER City og Tottenham Hotspur unnu bæði sigra í ensku úrvalsdeildinni um helgina og með tapi Liverpool í gær er ljóst að City og Spurs mætast í nokkurs konar úrslita- leik um fjórða og síðasta „Meistaradeild- arsætið“ á miðvikudaginn í næstsíðasta leik sínum á tímabilinu. Tottenham hefur yfirhöndina í baráttunni, er með stigi meira en tveimur mörkum lakari markatölu. Vinni liðið í Manchester er 4. sætið tryggt og jafntefli gæti dugað því vel en Tott- enham mætir föllnu liði Burnley í lokaumferð- inni. City sækir þá West Ham heim. Tom Huddlestone gerði sigurmark Totten- ham gegn Bolton um helgina með glæsilegum hætti, 1:0. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu mínútur leiksins en Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir Bolton. City lagði hins vegar Aston Villa að velli, 3:1, og gerði endanlega út um von- ir Villa-manna um Meist- aradeildarsæti. Að honum loknum var knatt- spyrnustjórinn Roberto Mancini þegar farinn að huga að leiknum við Tottenham: „Það er mikilvægasti leikur ársins og við verðum að vinna.“ sindris@mbl.is City og Spurs stilltu upp úrslitaleik Tom Huddlestone BLAÐAMAÐUR bandaríska blaðsins Phila- delphia Inquirer er óspar á hrósið í garð Hólmfríðar Magnúsdóttur eftir frammistöðu hennar í 1:0 sigri Philadelphia Independence á Atlanta Beat í bandarísku atvinnu- mannadeildinni um helgina. Þar segir hann Hólmfríði hafa sýnt allar sínar bestu hliðar í sókn og vörn en hún hefur fengið nýtt hlutverk sem bakvörður á þessari leiktíð. Hólmfríður lagði upp eina mark leiksins fyrir Lori Lindsey sem einnig hrósaði ís- lensku landsliðskonunni. „Þetta var frábær sending frá Fríðu,“ sagði Lindsey sem gerði sigurmarkið á 25. mínútu leiksins. Paul Riley þjálfari liðsins var að sama skapi hæstánægður með sóknartilburði Hólmfríðar en segir það taka á taug- arnar hve dugleg hún sé að fara fram á við, jafnvel þó liðið sé að vinna. „Hún er frábær í að sækja fram á við en hún á það til að gleyma sér að- eins í því. Þegar forskotið er bara eitt mark og hún þýtur fram við hvert tækifæri fækkar kollhárunum enn hjá manni,“ sagði Riley. sindris@mbl.is Hólmfríði hrósað í hástert Hólmfríður Magnúsdóttir Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is EIN umferð er eftir af deildinni og hefur Chelsea eins stigs forskot á United. Eina von rauðu djöflanna nú felst því í að hið óútreiknanlega lið Wigan geri þeim bláklæddu skrá- veifu á Stamford Bridge næstkom- andi sunnudag. Wigan vann reyndar 3:1 sigur á Chelsea þegar liðin mætt- ust í september og ljóst er að Sir Alex Ferguson og lærisveinar hans halda enn í vonina, enda er reyndar löngu sannað að allt getur gerst í fót- bolta. „Þetta er geggjuð íþrótt“ „Það eina sem við getum gert er að vinna okkar leik. Úrslit leiks Chelsea og Wigan eru ekki ráðin fyr- ir fram og það er alveg ljóst að þar er á ferð lið sem mun reyna sitt besta. Það er aldrei að vita hvað ger- ist. Þetta er geggjuð íþrótt,“ sagði Ferguson eftir 1:0 sigur á Sunder- land í gær þar sem Portúgalinn Nani gerði sigurmarkið. Lokaleikur Unit- ed er á heimavelli gegn Stoke. „Kannski er þetta bara óskhyggja hjá okkur en það er alla vega mik- ilvægt að við vinnum síðasta leikinn með sannfærandi hætti fyrir framan okkar stuðningsmenn. Ef við næðum titlinum væri það gríðarlegt afrek en okkur hefur alla vega tekist að teygja á titilbaráttunni,“ bætti Ferguson við. Veik von Liverpool um Meist- aradeildarsæti fauk endanlega út í buskann með tapinu gegn Chelsea á Anfield í gær. Ljóst er að tímabilið er mikil vonbrigði fyrir rauða herinn sem getur í mesta lagi náð 6. sæti og er fallinn úr leik í öllum bik- arkeppnum. „Lykilleikur í titilbaráttunni“ Didier Drogba og Frank Lampard sáu um að tryggja Chelsea sigurinn en Drogba fékk reyndar væna að- stoð frá Steven Gerrard sem hrein- lega lagði upp markið fyrir Fíla- beinsstrendinginn. Þar með jafnaði Drogba metin við Wayne Rooney í keppninni um markakóngstitilinn en báðir hafa þeir gert 26 mörk í deild- inni. Það verður því barist um fleira en meistaratitil á sunnudaginn en Darren Bent leikmaður Sunderland, sem sækir Wolves heim, á enn möguleika með sín 24 mörk. Carlo Ancelotti, hinn ítalski stjóri Chelsea, var hæstánægður með sig- urinn á Liverpool en hann er nú hársbreidd frá því að landa meist- aratitli á fyrsta ári sínu í Englandi. Chelsea landaði Englandsmeist- aratitlinum síðast árið 2006 undir stjórn José Mourinho en liðið hefur þrívegis orðið Englandsmeistari. „Ég er ánægður því þetta var lyk- illeikur í baráttunni um titilinn. Við spiluðum afar vel og verðskulduðum fyllilega sigur þrátt fyrir erfiðleika í fyrri hálfleiknum,“ sagði Ancelotti. „Við erum í skýjunum yfir þessu en við verðum að bíða eftir síðasta leiknum og það er mikilvægt að halda fullri einbeitingu. Við njótum þess samt í kvöld að hafa landað sigri því þetta var erfiður hjalli að komast yfir,“ bætti Ítalinn við en hann var að koma á Anfield í fyrsta sinn á ferlinum. Kampavínið komið í kæli  Eina von Man. Utd felst í því að Wigan stöðvi Chelsea  Rooney og Drogba jafnir í markakóngsbaráttunni  Vonbrigðatímabil Liverpool fullkomnað Reuters Sterkir Frank Lampard sækir hér að Alberto Aquilani, leikmanni Liverpool, í viðureign félaganna í gær. Í HNOTSKURN »Manchester United hefurunnið Englandsmeist- aratitilinn síðustu þrjú ár en Chelsea vann árin tvö þar á undan. » Í lokaumferð deildarinnarsem leikin verður næst- komandi sunnudag mætir Chelsea Wigan á „Brúnni“ og United fær Stoke í heimsókn. Ætla má að kampavínið sé komið í kæli á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea, eftir gríðarlega þýðing- armikinn 2:0 sigur á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Englandsmeistaratitillinn blasir við þeim bláklæddu eftir þriggja ára einokun Manchester United-manna sem þó hafa ekki gefist upp. Twente varð ígær hol- lenskur meistari í knattspyrnu í fyrsta sinn en lið- ið endaði með stigi meira en Ajax. Bæði lið unnu sinn leik í gær og því tekur Twente við meistaranafnbótinni af AZ sem vann sinn fyrsta titil í fyrra. Steve McClaren sem áður stjórnaði enska landsliðinu er knatt- spyrnustjóri Twente. Skammt er síðan bræðurnir Bjarni Þór og Arn- ar Þór Viðarssynir voru á mála hjá félaginu.    Gleðilegt var fyrir stuðningsmennManchester United að sjá í gær enska landsliðsmanninn Owen Har- greaves snúa aftur til leiks í sínum fyrsta úrvalsdeildarleik frá því í september 2008 en hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða. Á þess- um 20 mánuðum hefur Hargreaves misst af 113 leikjum en hann lék reyndar ekki nema í um hálfa mín- útu í gær, í sigrinum á Sunderland.    Hannes Þ.Sigurðsson knattspyrnumað- ur hjá Sundsvall gerði tvö mörk fyrir liðið í 4:2 sigri á Väsby í sænsku 1. deild- inni í knattspyrnu á laugardag eftir að hafa komið inná sem varamaður á 59. mínútu. Segja má að Hannes hafi tryggt Sundsvall sigurinn en staðan var jöfn áður en hann lét til skarar skríða.    Kraftaverk þarf til að BayernMünchen verði ekki þýskur meistari í knattspyrnu í 22. sinn um næstu helgi þegar deildakeppninni í Þýskalandi lýkur. Bayern vann 3:1 sigur á Bochum um helgina þar sem Thomas Müller gerði þrennu og hef- ur liðið þriggja stiga forskot á Schalke fyrir lokaumferðina en auk þess heilum 17 mörkum betri marka- tölu.    LærisveinarKristjáns Guðmundssonar hjá færeyska lið- inu HB eru á góðu róli í upphafi leik- tíðar en þeir eru nú komnir á topp færeysku deild- arinnar með 11 stig líkt og B36. HB vann 1:0 útisigur á EB/Streymi í gær þar sem færeyski landsliðsmaðurinn Rógvi Poulsen gerði sigurmarkið.    Portúgalinn Cristiano Ronaldokom Real Madrid enn á ný til bjargar í 3:2 sigri á Osasuna í gær þar sem hann skoraði fyrsta mark Real og svo sigurmarkið á 89. mín- útu. Madridingar eru því enn stigi á eftir Barcelona sem vann Villarreal 4:1 um helgina. Fólk sport@mbl.is „ÞETTA er frábær viðurkenning. Það eru stuðn- ingsmennirnir sem sjá um að kjósa og það er mjög gott að vita til þess að þeim líki það sem maður er að gera,“ sagði knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið í gær en þá var hann útnefndur besti leikmaður tímabilsins hjá liði sínu Reading sem leikur í ensku 1. deild- inni. „Þetta er auðvitað fyrsta almennilega tímabilið mitt hjá félaginu þannig að ég bjóst alls ekki við þessu. En þetta hefur gengið sérstaklega vel, bæði hjá mér og liðinu, eftir áramót,“ sagði Gylfi sem hélt upp á tilnefninguna með því að skora 20. mark sitt á leiktíðinni í 4:1 sigri á Preston í loka- umferð 1. deildarinnar og end- aði Reading í 9. sæti. „Ég hef alltaf reynt að skora mörk og spila frekar fram- arlega á miðjunni þannig að það er mitt hlutverk. Ég bjóst kannski ekki við alveg svona mörgum en þetta hefur gengið frábærlega eftir áramót og maður skorar nánast í hverri viku. Síðan núverandi þjálfari tók við hefur þetta gengið frábærlega og ég held að við séum í 2. eða 3. sæti yfir flest stig í þeim 20 leikjum sem hann hefur stýrt okkur. Ef við höld- um leikmönnum tel ég þess vegna góðan séns á að við komumst upp í úrvalsdeildina á næstu leiktíð,“ sagði Gylfi. Ánægður með að vera áfram hjá Reading Hann hefur fullan hug á að halda áfram í her- búðum Reading en tíðar fréttir hafa borist af áhuga úrvalsdeildarfélaga upp á síðkastið. „Það eru engin tilboð komin í mig og ég er bara nokkuð sáttur hérna hjá Reading, spila í hverri viku og gengur vel. Mér líst betur á það en að fara til annars félags og eiga á hættu að sitja á vara- mannabekknum,“ sagði Gylfi. sindris@mbl.is „Þetta er frábær viðurkenning“  Gylfi Þór bestur hjá Reading  Fagnaði því með 20. markinu á leiktíðinni Gylfi Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.