Nýr Stormur - 26.11.1965, Blaðsíða 10

Nýr Stormur - 26.11.1965, Blaðsíða 10
10 'IfoRlflUR FÖSXUDAGUR 26. nóvember 1965 Bör Börsson júníór Teiknari: Jón Axel Egiis Þegar Bör Börsson yar búinn að loka búðinni þennan dag, át hann hveiti- brauð og drakk Iímonaði. Þetta gerðu þeir í Niðarósi; þeir fóru bara í Ráð- húskjallarann og fengu sér allskonar fínan og Iéttan mat. Eftir matinn fékk Bör sér rauðan brjóstsykurmola og saug. Síðan kveikti hann í fínum sígara á kr. 7,50 per kassa mínus 10 prósent per 30 daga. Oro-rrorroo, hann ropaði. Mikið fjári var annars góð Iykt af límonaðinu frá „Niðaróss Gosdrykkjafabrikku-útibú“ Prima ropi! orrorro. Hann skyldi svei mér drekka límonaði áður en hann fær' að biðja Jósefínu. Hann þyrfti ekki ann- að en að snúa að henni andlitinu og þá myndi hún finna að hennar útvaldi var príma! En þyrfti hann að fara upp í skóg og finna veskið. Bör Börsson náði í skóflu í hjallin- um og Iaumaðist upp í skóginn. Er þangað kom varð hann gagntekinn æskugleði og söng og ropaði. Hann dreymdi um hamingju og þá gleði að cignast peninga og hann fór að syngja, syngja um peninga. El^kert nema pen- ingar geta gert mann sælan og glað- ann. Hann vildi syngja um stórar summ ur — þúsundir og milljónir. Bara að hann yrði nú svo heppinn að finna veskið. Þegar hann kom uppeftir, byrjaði hann að moka. Svei hvað þetta var skítugt og blautt! Hann fékk lítið ann- að en gruggugt vatn á skófluna. — Skammt frá stóð annar maður bak við stórt furutré. Hann var með stórann hatt, sem hann lét slúta. Ilann bölvaði líka og hló. ÓIi í Fitja- koti hló svo að hann hristist allur. Aldrei á æfi sinni hafði honum verið eins skemmt. Að sjá kramarahelvítið! Heima í Þórsey stóð Andrés og Þór- dís út við glugga að gá að manna- ferðum. Þau voru nú sannfærð um að Furuvallastrákurinn væri að elta dótt- ur þeirra. Þau heituðust við hann og Þórdís eggjaði mann sirin. Jósefína var undrandi á hegðun foreldra sinna og er hún spurði hverju sætti, sögðu þau henni að skipta sér ekki af því og voru ekki hýr á svip. Á fimmtudagskvöldið kom Níels á Furuvöllum heim að Þórsey í mesta sakleysi. Andrés tók á móti honum með svo voðalegu augnaráði, að Níels varð dauðhræddur. — Nú ertu loksins kom- inn og tiú ska! ég sýna þér í tvo lieim- ana, og Andrés greiddi honum slíkt roknahögg að Níels steyptist til jarð- ar. Það surgaði í mölinni og hann sá bláar og rauðar stjömur dansa fyrir augum hans. Ar.drés hlaut að vera orðinn brjálað- ur og þegar hann leit upp, stóð Þórs- eyjarkerlingin yfir honum með lurk, sem hún reyddi til höggs og lét bylja á bakinu á honum. — O, þú skalt ekki æpa eða skrækja, kvikindið þitt, æpti hún en nú skaltu fá fyrir ferðina svo að þú þurfir ekki meir. Níels braust um og tókst að losa sig og nú urðu skjót umskipti. Hann var sterkur og harðsnúinn og auk þess fólskur í skapi. Og nú tók hann þau bæði og þeytti þeim á jörðina, þreif birkilurkinn úr hendi kcrlingar og lú- barði þau bæði. — Hjálp, hjálp. Morð! morð, æptu þau i skelfingu, en hann þeytti frá sér lurkinum og gekk leiðar sinnar. Níels á Furuvöllum fór beint til sýslu- mannsins og kærði Þórseyjarhjónin fyrir líkamsárás. Sýslumaðurinn tók honum fegins hendi því þeir Andrés í Þórsey voru Iitlir vinir. Þeir höfðu einu sinni lent í máli út af skógarspildu. , J Eg set rétt, og nú skal Andrés í Þórsey fá að, kenna á hegningarlögunum, og blekið frussaðist úr pcnna hans, er hann skrifaði í þykka doðrantinn. Hjónin í Þórsey lögðust í rúmið og smurðu sig hátt og lágt með joði. Þau voru eins og múlattar, öll holblá og marin og flekkótt af joði. Húsfreyjan fékk grátköst og réði sér ekki fyrir heyft, en húsbóndinn lá þögull og hugs- aði ráð sitt. Nú skyldi Furuvallastrák- urinn fá fyrir ferðina. Hann myndi Iáta taka hann fastann, þar sem hann væri „hættulegur fyrir almennt ör- yggi.“ Jósefína stóð við gluggann og hugs- aði um Bör. Hann var vafalaust orðinn of fínn fyrir sveita-almúga-stúlku. Og Jósefina var farin að andvarpa af hryggð og þrá. Skyndilega kallaði hún upp yfir sig: — Sýslumaðurinn kemur akandi og hann er eitthvað svo reiði- legur á svipinn. — Bara að ég væri svo hress að geta farið í veg fyrir hann, sagði Andrés. — Hann kemur, hingað kallaði Jósefína. Sýslumaðurinn æddi inn í stofuna eins og fellibylur. — Þið eruð kærð fyr- ir líkamsárás, kallaði hann og fleygði doðantinum á borðið, — og skammist þið ykkar, sagði hann æfur. — Ég ætti að tugthúsa ykkur bæði tvö. — Það var Furuvallastrákurinn, sem barði okk- ur til óbóta, við erum saklaus bæði tvö, veinaði Andrés. — Þegið þið, eftir viku verður réttur settur. Að svo mæltu skelti hann doðrantinum og þaut út um dyrnar. Fengitími okraranna — Framh. af 3. síðu ur í vasa samvizkulausra fanta, sem ekkert hugsa um afféiðing- arnar af glæpastarfsemi sinni. Almenningur verður ■ N greiða nkurvextina i dýrari vörum, dvrari hinnustu n- dvrtíði’n vex og þeir einir grn ‘ sem !;ki hafa til þess unnið í næstu Möðum verða birt nöfn ýmissa manna. sem stunda !'■' iðju að lána út fé og les- endum verður látið eftir að geta til um með hvaðn kjör- um þessir menn Iána. Væntan- lega verður fróðlegt fyrir fram- talsnefndina að kanna framtöí bessara manna og sjá hve sam- vizkusamlega talið verður fram.

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.