Nýr Stormur - 17.12.1965, Blaðsíða 22

Nýr Stormur - 17.12.1965, Blaðsíða 22
21 FÖSTUDAGUR 17. desember 1965 Bör Börsson júníór Teiknari: Jón Axel Egils Þeir Bör og Óli voru nú orðnir einir eftir í búðinni. Þá sagði Bör, strangur á svip. Ég er hræddur um að ég verði að Iáta sýslumanninn athuga þessa seðla, Óli. — Hvaða uppátæki er nú þetta? sagði Óli, hálfhræddur og reiður. Bör setti peningana í nýja seðlaveskið sitt og sagði svo: — Það er bezt fyrir þig, Óli, að meðganga strax. — Meðganga! Meðganga hvað? æpti Óli, náfölur. — Þessir peningar eru mínir peningar, sagði Bör. — Þú lýgur því, hrópaði Óli. — Jú, þetta eru mín- ir peningar, seðlarnir mínir voru merkt- ir, sem þú tókst, þegar þú fannst seðla veskið í Þórseyjarhlíðinni og þetta heyrir undir lagaformúluna um stór- þjófnað. Þú skalt meðganga strax áður en ég sæki sýslumanninn. Óli í Fitjakoti stóð og starði niður fyrir fætur sér. Ennþá einu sinni höfðu peningarnir orðið honum að falli. Tafl ið var tapað. Hefði hann ekki peninga, lá honum við dauða, ef hann hafði þá, urðu þeir honum að fótakefli. Hann hafði lifað þrjár vikur í dýrð og fögn- uði, en nú var úti um allt. Myndin af voðalega sýslumanninum leið nú fyrir hugskot hans. Og Óli baðst vægðar. Bör dró við sig fyrirgefninguna og lét Óla stikna á sinni eigin glóð. — Þú verður þá að skrifa undir! — Já, ég skal skrifa undir hvað sem er, bara ef þú sækir ekki sýslumanninn. Og Óli skrifaði undir viðurkenningu á því að hann hefði stolið peningunum og lofaði að greiða 5 krónur per. mánuð. Nú varð ÓIi að biðja um „krit“ sem hann fékk, en Bör naut þess að finna hver var herrann og hver þrællinn. í búðinni á Öldurstað sást varla leng ur peningar. Allt var skrifað. Meira að segja eldspýtur, sem ekki kostuðu meira en einn eyri, varð ,.að kríta í bráðina“. Bör Börsson spratt upp frá skrifborð- inu þegar Fraukenin á prestsetrinu kom inn. — Jæja, svo þér eruð úti að ganga og hlustið á næturgalana, sagði hann. Bör hafði verið viðbúinn að hún kæmi og ætlaði að hafa djúp og ógleymanleg áhrif á hana. Bör tók limonaðiflösku og tvö glös og setti á borðið og skenkti í bæði glösin. — Veskú, yður megið ekki afþakka eitt glas af límonaði frá „Niðaróss-gos- drykkja- og Iímonaðifabrikku-útibúi“. — Nei, þökk, ég er ekki þyrst. — Svona í öllu lítillæti, skál. — Skál, Börsson, sagði hún og hló og dreypti örlítið á glasinu. Bör Börsson júníór drakk í botn og skclti glasinu á borðið og þurrk aði sér á handarbakinu. — Nú drekk í botn. Hann benti á glasið. — Þakka yður fyrir, sagði hún, en hreyfði ekki glasið. Orrorrorr! Bör ropaði beint framan í fraukenina. — Þér eruð kannske bindindismanneskja? En hún hristi höfuðið og lét glasið ó- hreyft. — Nú þá verð ég víst að drekka það sjálfur. Hann drakk úr glasinu og ropaði. Orrorrorro! Nú fór Bör að spýta í allar áttir. Hann spýtti á vörukassana, ofninn og allstaðar. Hann hafði lært þessa Iist af sýsluskrifaranum á Vaðsey. Mynd- arstrákur það! Bör Börsson tók sykur- brauð og vóg í hendi sinni. — Viltu, nei, viljið þér ekki fá einn hveitisnúð með púðursykri? — Nei, takk, ég er ekki svöng. — En smakkaðu á fröken, við skulum bara éta. Hún hristi höfuðið og bað um eitt pund af osti. Það lá við að Bör firtist. Hvurn andsk. Hún skildi bara bíða! Hann skildi sýna henni hver kynni mannasiði. Þegar hann væri orðinn konsúll, bíddu bara! Hann bjó um þrjú pund af osti. — Þetta er of mikið, ég ætlaði bara að fá hálfpund. Bör Börsson júníór hló mannalega. — Allt í lagi, ég ætla ekki að telja þetta eftir. — Nei, nei, sagði fröken Finkel. — Takið ostinn og velbe- kommen! — Hvað kostar þetta þá? — Kostar? Ekkert! Börsson tók upp lyklakyppuna og pýrði í gegnum einn lykilinn. — Það er engin meining í þessu, Börsson. — Það er víst full meining í því, sagði Bör. — Nei — en — jája þá, þakka yður kærlega fyrir! Vonin kom yfir Börsson og hann rétti fram hendurnar eins og hann ætlaði að faðma fröken Finkel, en þá þurfti Anna gamla í Haga allt í einu að rekast inn í búðina. Hún gekk við staf og hélt á tómum olíu- brúsa í hendinni, Þeir vildu endast illa, aurarnir henn ar Önnu gömlu og ekki hafði það batn- að siðan búðin kom hér á Öldurstað. Hún þurfti að fá skrifað í dag og fór nú að skjalla Bör. — Þú ert nú meiri maðurinn, Bör litli, orðinn einn af þeim stóru! Fröken Finkel sveiflaði sér út úr dyrunum og Bör sýndist hún líta til sín, já ástaraugum. Hann yrði sjálf- sagt að Iíta t.il hennar á laugardags-

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.