Nýr Stormur


Nýr Stormur - 01.04.1966, Blaðsíða 4

Nýr Stormur - 01.04.1966, Blaðsíða 4
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuniiiiiiiiiiiiiiiiiHiiniiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiniiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuuiiiMiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiH 4 Föstudagnr 1. aprfl 1966. Ódeigur skrifar pistilinn: ins — „MorgunblaSshöll- inni“. Gagnrýni á störfum op- inberra starfsmanna er jafn nauðsynleg í lýðfrjálsu landi, eins og það er sjálf sagt að gefa þurfandi fólki mat og drykk, svo það geti haldið lífinu í sér og á sama máta sem það er nauðsynlegt að kenna börn um að tala, lesa og skrifa, svo þau fái undirstöðu- fræðslu til að vinna ein- hver nytsöm störf á full- orðinsárum. Gagnrýni er þannig grundvöllur þess, að al- menningur fái bætta þjón- ustu í starfi þeirra, sem tekizt hafa á hendur að vinna að verkefnum þeim, sem alþýðu manna varða, hvert svo sem starfið er. Orðið GAGNRÝNI merk- ir ákveðnar aðfinnslur, at- hugasemdir, átölur eða ann að því um líkt, varðandi gerðir og starfsháttu þess eða þeirra, sem eigi þykja rækja verkefni sín á þann veg, sem siðferðilega eða lagalega er ætlast til að krafizt verður. Gagnrýninni eru mis- jafnar skorður settar, því henni verður að beita á ýmsa vegu, allt eftir at- vikum hverju sinni. — Ýmist getur hún verið eða hlýtur að vera væg eða hörð--------allt til sam- ræmis við ávirðingar, yf- irsjónir og hvers konar framkvæmdabrot hins gagnrýnda aðila. „Frjálsar skoðanir og gagnrýni óskylt rætni og rógi .“ Fari gagnrýnin fram úr því, sem telja má hverju sinni eðlilegar aðfinnslur, athugasemdir, átölur eða annað slíkt, getur svo far- ið, að hún missi gildi sitt og verði að öðru, sem ekk- ert á skylt við gagnrýnina sem slíka — heldur um- myndast í rætni, skammir eða nið og rógburð, og það an af verra. Þegar þannig er komið — þá er ekki lengur um neins konar gagnrýni að ræða, því slíkur verknaður á alls engan rétt á sér, í neinni mynd. Persónulegt álit og skoð- anir er hverjum og einum frjálst að hafa í lýðræðis- ríki og málfrelsi og rit- frelsi eru stjórnarskrárvar- in einstaklingsverðmæti — þó innan takmarka I á- kvæðum laga. Skilur þannig á milli gagnrýninnar annars veg- ar og skoðanafrelsis hins vegar, enda sitt hvað, en hvort tveggja á fullan rétt á sér, — sé öllu í hóf stiílt — og eftir efnum og at- vikum. „Rannsóknarlögreglu- maður viðundrar sig og sína.... “ í síðasta tölublaði Nýs Storms gerði ég að umtals- efni mjög alvarleg mistök, sem orðið höfðu hjá undir mönnum í starfsliði Saka- dóms Reykjavíkur. Lagði ég til grundvallar hógværa blaðagrein Guð- laugs E. Jónssonar. Ég dró af frásögn Guðlaugs eðlilegar skoðnir, jafnframt því sem ég gagnrýndi lög- lausar og fálmkenndar starfsaðferðir ýmissa und- irmanna við sakadómara- embættið. Ég átaldi van- hæfi rannsóknarlögreglu og ungra fulltrúa og leyfði mér að gera ákveðnar og réttmætar kröfur til dóms málastjórnarinnar um taf arlausar og nauðsynlegar lagfæringar af þessu gefna tilefni. Ég reit pistilinn einnig með hliðsjón af því, að ég þekki til starfsháttu þess- arra undirmanna yfirsaka dómara og mér er það fyrir löngu ljóst, að mikilla úr- bóta er þörf í þessum efn- um. Það var síður en svo, að ég segði meira en efni stóðu til og leyfi mér að árétta allt, sem ég áður hefi sagt. Mun ég síðar færa rök að því, að sízt hafi ég of- mælt. Ég átti ekki von á að nokkur rannsóknarlögreglu maður viðundraði sig og stéttarbræður sína, eins og Tómas Einarsson gerði í Morgunblaðinu s.l. sunnu- dag, auk þess sem hann bókstaflega staðfestir allt sem ég þegar hafði sagt. Þannig er málum samt komið. „Augljós táknmynd srerð að sök !“ í pistli mínum í síðasta blaði vék ég að því, hvað væri , táknrænt fyrir kunn áttuleysið sjálft og hæfi- leikaskortinn", með því að benda á frammistöðu ó- nafngreinds lögreglumanns í skemmtiþætti útvarpsins hiá Svavari Gests. Tómas Einarsson veitist að ritstjórum Nýs Storms með því að brigzla þeim um hefndarhug, jafnframt því sem þessi lögreglumað- ur gerist sekur um refsi- verða háttsemi og fremur trúnaðarbrot í starfi með vítaverðum aðdróttunum i garð ritstjóra Nýs Storms. Mér þykir rétt að geta þess, að hvorugur ritstjór- anna þekkir Njörð Snæ- hólm og annar ekki einu sinni í sjón, og hvorugur þeirra hefur nokkurn tima mætt frammi fyrir honum sem rannsóknarlögreglu- manni. Enda þótt svo hefði verið þá fæ ég ekki skilið, hvers vegna ritstjórar Nýs Storms ættu að bera hefndarhug til manns, sem hefur mér vitanlega ekkert af sér gert gagnvart einum eða öðr- um, hvorki i einkalífi né starfi sínu. Hér sýnist mér Tómas á ósmekklegan hátt hrein- lega bregða stéttarbróður sínum um þá framkomu 1 starfi, sem getað hefði skap að hefndarhug ritstjóranna til hans af einhverju til- efni?! Má ef til vill skilja þess- ar saknæmu ‘aðdróttanir Tómasar í garð ritstj. Nýs Storms þann veg, að rann- sóknarlögreglumenn hagi sér einmitt á þann veg 1 starfi sínu, að ástæða sé til að ætla, að þeir menn sem lögreglumenn yfir- heyra geti fyllst hefndar- hug í þeirra garð??! Hvað vakir annars fyrir þessum rannsóknarlögreglu manni, þegar hann vogar sér að bera slíkt slúður á torg? „Auvirðilegur hlutur Morgunblaðsins....“ Tveir af ritstjórum Morg- unblaðsins eru lögfræðing- ar að mennt og ættu að kunna að einhverju leyti skil á réttu og röngu a.m.k. á lagamáli. Ég hlýt að skrifa það á reikning þessara manna, hvernig Morgunblaðið mis- notar aðstöðu sina til að gera sér mat úr grunn- hyggni þessa rannsöknar- lögreglumanns. Mér er kunnugt um, að jafnvel minningargreinar um látna menn eru ritskoð- aðar og meira að segja strik að út úr þeim það sem eigi þykir ,heppilegt“ til frásaenar. Allt fer eftir því hvað ,litla einræðiskarlinum". sýnist ,.rétt“ í sérhvert sinn enda ræður hann öllu í þessu hreysi hnefaréttar- Hinum löglærðu ritstjór- um bar a. m. k. siðferðileg skylda til að leiðbeina Tómasi Einarssyni, þegar hann kom með „doktors- ritgerð" sína til birtingar, þar eð augljóst var, að efnislega var hún þannig úr garði gerð, að varðar við lög, að birta slíkar aðdrótt- anir, og ekki sízt þegar sjálf ur þjónn réttarins á í hlut. Hitt er svo annað mál, að ritstjórar Nýs Storms hafa ekki geö í sér að kæra hið refsiverða athæfi lög- reglumannsins. Þeir vor- kenna honum og skjólstæð ingi hans, Nirði Snæhólm, vegna þeirrar fátæktar, sem lýsir sér í grein Tóm- asar. „VIII verja rétt hins smáa “ Nýr Stormur hefur það markmið að verja rétt hins smáa, og mun ekki bregða út af þeirri braut. Eg þykist þess fullviss, að þessi grein Tómasar Einarssonar hafi verið skrifuð af góðum huga, þrátt fyrir klaufalegt og kauðalegt innihald henn- ar. Tómas þykist vafalaust vera að verja starfsbróður sinn, þó hann hafi gert það méð svo smámannleg- um hætti. Við þetta bæti ég því einu, að enginn tekur af þvl, sem hann ekki á til. Lögreglumaðurinn hefur bersýnilega ekki. skilið sið- asta pistil minn og fyrir bragðið gerir hann stéttar bróður sínum alveg óvart rangt til! Sem dæmi má nefna það, að Tómas tekur skýrt fram: „Þannig fór að Njörður svaraði engum spurning- um, og þegar kom að auka spurningum þeim sem Svavar lagði fyrir hann, DULDIST ekki, að Njörð- ur hafði EKKI ÁHUGA á að svara“. Þetta er ekki þægileg lýs- ing fyrir Njörð. Skv. þessu virðist Njörð- ur alls ekki hafa getað svarað neinum af spurn- ingum Svavars, nema auka ?yI“-rningunum, en þá hafði hann misst áhugann! Nú spyr ég — til hvers var Njörður staddur þarna? Hvers vegna eru menn að gefa sig fram til þátttöku i skemmtiþætti, ef þeir hvorki geta né hafa áhuga á að taka þátt i skemmtan- inni? „Otvaroiff tæki bagnar- 'nnar, aða !“ varpið sé tæki þagnarinnar 1 — a. m. k. er það alveg ný § kenning! Þetta fyrirbæri er hlið- | stætt því, að menn kæmu § fram í sjónvarpi.... til | þess einungis að fela sig i fyrir áhorfendum! Þá segir Tómas Einars- | son ennfremur: i „Hann (þ. e. Njörður) jgj hefur auk þess ritað bók 11 um kynni sín af styrjöld- § inni. Bera þessar stað- j§ reyndir vitni um heimsku s og hæfileikaskort?" Eg veit ekki hvað segja | skal við þessu----------en 1 einhvern veginn finnst | mér, að maður sem hefur | skrifað heila hók um heims | styrjöldina hefði átt að 1 muna eftir því, hver von i Ribhentrop var! Heyrt hefi ég það líka, s að skrifuð hafi verið bók = sem ekki hafi verið stút- §j full af snilld og gáfum! En eins og ég gat um hér § að ofan, þá vil ég ekki § kenna Tómasi eða Nirði 1 allt í sambandi við þennan I hringdans — heldur miklu 1 frekar ábyrgum ritstjórum 1 Morgunblaðsins. Og þá vaknar að sjálf- 1 sögðu spurningin: Hvers vegna er Morgun- 1 blaðið að óvirða lesendur | sína með því að hæða rann i sóknarlögregluna? Hafa ritstjórar Mbl. |j gleymt kjörorði Sjálfstæð- | isflokksins: ,Gjör rétt — § þol ei órétt!“ „Morgunblaðinu virðist Ijós umbótaþörfin hjá rannsóknarlögreglunni | Eg hlýt samt sem áður I að líta svo á, að Mbl. vilji | styðja mig í viðleitni minni | við að sanna það, að miklu 1 sé ábótavant hjá rannsókn 1 arlögreglunni-----------og I þá veit dómsmálaráðherr- I ann betur hvað að honum 1 snýr. I Aðalmálgagn hans hefur § brýnt rækilega raustina í I þessu máll. Hins vegar er framkoma 1 Mbl. vissulega til smánar, I það, hvernig þetta blað hag 1 ar sér gagnvart lögreglu- i mönnunum siðferðilega og i myndu ritstjórar þess ekki i fá háa einkunn á „lands- E prófi“, fyrir vikið. Það hátterni Mbl. minn- = ir á söguna um þjóðkunn- 1 an menntaskólakennara og 1 fræðimann, sem á náms- §j árum sinum hafði baga af § því, hve illa honum gekk § við náttúrufræðinám. Þessi þjóðkunnl maöur i var á skólaárum sínum her s bergisfélagi mikils lestrar i hests. i Eina nóttina sat lestrar- i hesturinn uppi og las hátt i Framh. á 7. síðu. Almenningur á bágt með að trúa því, að út- iiHiiiHiiiniiHiiiiiiiiiHiiiiniiniiiniiHiiiniiiiHiHiiiHHiiniiiiiHiiiiiiiiHmiiiiiHiiiniiiiHiiHHiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHHiiniiiiHiiiHiiHiiiHniiHiiiitiiiiiiiiiiitiiniiiniiiiHiiiiiiiiiiiiiHiHiiniiiiHiiiitiiiiiiiiiiiiiiHiiHiiiiiiiiiiiiiiiHHiiiiiHiiHiiiiiiiinfliiiHtmniiiminiiiHiiMiHinniiiiiiHiuimiiuiiiI

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.