Nýr Stormur


Nýr Stormur - 01.04.1966, Blaðsíða 12

Nýr Stormur - 01.04.1966, Blaðsíða 12
12 FOSTUDAGUR 25. marz 1966 rm TT a oi 4 Í í L—+ 3 UL ii Fyrir nokkru síðan var sagt frá braski lögfræðings nokk- urs við að ná sér í meiri inn- heimtulaun en honum bar. Lagði hann sig niður við að reyna að fá úrskurð Hæsta- réttar til að halda tvö þús- und krónum, sem hann hafði ranglega, að því er stéttarfé- lag hans taldi, haft af ein- stæðings ekkju. Við lestur Hæstaréttardóma kemur í ljós að sami lögfræð- ingur hefir komizt í heldur betur feitt, í sambandi við h j ónaskilnaðarmál. Hér var um umfangsmikið mál að ræða og hefir lögfræð íngurinn vafalaust lagt mikla vinnu I það enda fékk hann i það greitt með næstum þrenn um ráðherralaunum. Þetta gekk þó ekki hljóðalaust, því umbjóðandi hans, sem tapaði máli því er hann sótti fyrir hana, þótti reikningur hans fullhár, en hann var kr. 799.589,50 en þetta var lag- legur skildingur árið 1960. Að vísu hafði hann aðstoðað við búskipti og orðið að mæta all- oft í sambandi við þau. Gamall fjármálamaður Sig urður heitinn Berndsen, sem margar sögur kunni af lög- fræðingum og hafði einkan- ir um þá á reiðum höndum, sagðist aldrei setja svo mál í hendur lögfræðingi, að hann semdi ekki fyrirfram um þóknun og innheimtulaun, ef um verulegar upphæðir væri að ræða. Hér hefir ekki virtzt vera vanþörf á að semja fyr- irfram um þóknunina, því að hún var svo óhófleg að neitað var greiðslu. Bar skjólstæðingur lögfræð ingsins, sem nú var ekkl leng ur skjólstæðingur hans, líeld- ur andstæðingur, þetta mál undir stjórn Lögmannafélags Islands. Lögmannafélagið hafði ým- islegt við reikninginn að at- huga. Meðal annars að gjald var reiknað samkvæmt taxta, sem settur var eftir að verk- ið var unnið. Er það sama eðlis og verkamaður sendi vinnuveitanda sínum reikn- ing fyrir vinnulaun aftur í tímann, eftir að kauphækk- un hefði verið gerð. Slík dæma laus ósvífni mun óviða höfð í frammi, en sumir lögfræð- ingar halda að þeir geti leyft sér hvað sem er. Stéttarfélag lögmannsins hafði sitthvað fleira við reikn inginn að athuga, meðal ann ars að hagsmunir fyrrverandi umbjóðanda I málinu voru tvöfaldaðir og málflutnings- launin reiknuð samkvæmt því. Lögfræðingurinn hringlar fram og aftur með launakröfu sínar og er greinilega að reyna að komast eins hátt með reikn inginn, eins og mögulegt er. Hin upphaflega krafa hans var þó lækkuð ofan í kr. 506 þús. og virðist það hafa verið all sæmilegur peningur á þeim tima. Margir lögfræðingar eða all flestir menn með sæmilega sómatilfinningu, sem eru margir enn innan lögfræð- ingastéttarinnar, fara eins lágt og þeir geta í málflutn- ingslaunakröfum á hendur þeim skjólstæðingum sinum, sem tapa málum í þeirra hönd um. Að sjálfsögðu þarf mála- flutningsmaðurinn að fá sín laun, þótt hann tapi máli, en flestir munu reyna að vera Venjulegir launþegar myndu hafa fengið að finna til fæ- vatnsins með slíkar árstekj- ur, sem væntanlega hafa auk izt mjög verulega við aðra vinnu lögfræðingsins. asgsins: Eru kommúnistar á hrööu undan- haldi undan hersveitum Hannibals? sanngjarnir. Þessi höfðingi er ekki einn úr þeirra hópi. Þau dæmi sem af honum hafa verið nefnd sanna það. í öðru tilfellinu er auðug kona og hann hefir enga sam vizku af að reikna henni ó- hæfilega háan kostnað og brjóta í fégræðgi sinni gegn reglum stéttarfélags síns. Hin konan er félaus, en samt sem áður er hún féflett. Lögfræðingur þessi er mjög ötull og vinnusamur maður og hefir mikið að gera og má því vænta þess að laun hans séu samkvæmt því, þar sem einnig er sannað að hann gef ur ekki störf sín. Við skulum því gera ráð fyr ir að hann verði að gjalda all' mikil opin ber gjöld en svo er þó ekki. Maðurinn virðist að vísu eiga þak yfir höfuðið, en tekjur hans eru annað hvort mjög litlar, eða skuldir miklar. Til dæmis er tekju- skattur hans síðastliðið ár að eins kr. 2863,00 og útsvar 14.100. Það er tekjulítill verka maður, sem ekki verður að greiða meira en þetta í skatta. Ef til vill er þarna komin skýringin á aðgangshörku málaflutningsmannsins, hann virðist vera svona skattpínd- ur!! Við skulum nú athuga hvað málafærzlumaðurinn hafði í skatta árið 1963, en þá greiddi hann skatta af tekj- um ársins 1962. í útsvar hef- ir hann greitt kr. 18.400 en í tekjuskatt kr. 7.750. Á þessu ári ætti hann að hafa greitt skatta af hinni umræddu 507 þúsund króna greiðslu frá fyrrverandi skjólstæðingi sín um. Við skulum samt gera ráð fyrir að þessar greiðslur hafi dregist, enn þá koma skattar hans árið 1964 og þeir eru: Útsvar 43.000 og tekjuskattur 20.128. Samtals gera þessar skattagreiðslur lögfræðingsins kr. 102.847 eða 1/5 af þessari einu greiðslu til handa lög- fræðingnum. Ekki getur blaðið dróttað skattsvikum að lögfræðingn- um því að ekki er kunnugt um kostnað hans, en hann hlýtyr að vera gifurlegur. Gera verð- ur ráð fyrir að hinn önnum kafni lögfræðingur fái greitt fyrir störf sín ekki síður en aðrir lögfræðingar ef dæma má eftir vinnubrögðum þeim er hér hefir verið lýst. En eins og kunnugt er, eru tekjur reiknaðar til skatts á því ári, er þær koma inn. Hér er dæmi um að lögfræð ingar eru ekki lakari en aðr- ir borgarar þjóðfélagsins að koma ár sinni fyrir borð. STORMUR y/HSOM ATTUM !i:ii:!HHisisÍ£3«HíiKiiifisi::S5nt5iitiiSSíSU Þeir sem sáu Chaplin-myndina „Nútíminn“, í gamla daga skemmtu sér vel og er hún flestum vel minnisstæð. Hver man ekki eftir Chaplin, þar sem hann er að vinna f verksmiðju nokkri og forstjórinn fylgist með hverri hreyf- ingu hans í einkasjónvarpi fyrirtækisins. Hann þorði varla að anda af ótta við að verða rekinn. Nú hefur eitt glæsilegasta fyrirtæki borgarinnar, tekið þetta atriði úr Chaplin-myndinni í sína þjónustu og alveg eins og þar var — er nú einkasjónvarp komið upp hjá fyrirtækinu og fylgist yfirvaldið þar með öllu sem þar gerist. Það er annars ótrúlegt hvað íslenzkur „snobbismi“ get- ur látið draga sig á asnaeyrunum — og ekki síður það, að starfsfólk fyrirtækisins skuli láta bjóða sér upp á hvað sem er. Ef vinstri öflin í Reykjavík hefðu manndóm í sér til þess að standa saman um framboðslista við borgarstjórnarkosn- ingarnar í vor, væru miklar líkur á að íhaldsmeirihlutinn félli. Það væri stór dagur fyrir vinstri-menn, — en hvort borgin okkar þyldi svo kollóttar rollur, sem leiðtoga henn- er önnur saga — líklega sorgarsaga. ar Felix Ólafsson, sóknarprestur í Grensássókn, ávinnur sér síauknar vinsældir í sókn sinni. Sem dæmi má nefna Sunnu- dagaskóla, sem hann stjórnar og er vel metin hjá unga fólkinu þar. — Til marks um það má segja að 10 ára snáði yar að því spurður, hvort hann vildi heldur fara í bíó eða í Sunnudagaskólann. — Hann svaraði án umhugsunar: „í Sunnudagaskólann auðvitað!“ Það hefði þótt tíðindum sæta hér áður fyrr, að eini starf- andi verkamaðurinn, sem hefði möguleika á að komast í borgarstjórn, væri á lista Framsóknarflokksins. Óneitanlega hefur Óðinn Rögnvaldsson, prentari, möguleika á setu í borgarstjórn — í það minnsta sem varamaður, en hann er 4. maður á lista Framsóknarflokksins. Hann vissi hvað hann var að gera, maðurinn sá, sem gaf Sogaveginum nafn forðum daga. Þegar frostleysur eru og rigningar, er aurinn þar svo óskaplegur, að hann bókstaf- lega „SOGAR“ mann niður. — Þeir sem hafa séð bílana þar í forinni taka á öllu sínu vélarafli til að sökkva ekki og vegfarendur, sem stikla á tánum á milli pollana og reyna að verjast aurslettum frá bílum sem framhjá fara, gleyma því seint. — Það er slæmt að ekkert af „fína fólkinu“ skuli búa þar í nágrenni, því þá væri auðvitað búið að malbika Sogaveginn! Það er kominn heldur betur fjörkippur í bílainnflutning- inn hjá okkur. — Jón Loftsson og Vökull bjóðast til að taka gamla bílinn upp í afborgun á nýjum bíl. Það sama má segja um Fiat-umboðið. — Og stóra spurninginn er: Hvað gerir Albert Guðmundsson, þegar hann fer að bjóða okkur Renautinn. — Albert er kunnur sem „snjall bissnes- maður“, og óhræddur að fara nýjar leiðir. Margt er skrítið í.... Úr skýrslum lögreglunnar í Reykjavík: Eitt sinn sem oftar handtók lögreglan mann nokkur, sem hafði brotið af sér, og færði hann niður á lög- reglustöð. Á leiðinni urðu orðaskipti á milli þeirra. í skýrslu sem lögreglumaðurinn gaf um atburðinn, segir m. a.: Sá handteknl sagði að ég væri fífl, en ég tjáði honum að svo væri ekki.“

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.