Nýr Stormur - 16.09.1966, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 16. sept. 1966
'jieRMim
5
NÝR
ÍTORNUR |
| Útgefandi: Samtök óháöra horgara
= Ritstjórar: Gunnar Hall, sími -15104 og Páll Pinnbogason, ábm. I
Ritstj. og afgr. Laugav. 30. Sími 11658
A-uglýsinga- og áskriftarsími: 22929
VikublaS — Útgáfudagur: föstudagur
Lausasöluverö kr. 10.00. Áskriftarverð kr. 450.00.
Prentsmiðjan Edda h.f. I
*4iniiiiiiiiliíiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiitiiiiiiiiiiiimimiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimii!iiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiimiiiitv:
Heimsókn forsætisráðherra
Norðmanna og konu hans
Allir íslendingar fagna komu norsku forsætisráðherra-
hjónanna hingað til lands. Hér var ekki aðeins um að ræða
opinbera heimsókn valdamans eins ríkis, sem stendur
teinréttur og biður þess einungis sem næst er á dagskránni
og er teymdur úr einum stað í annan og að næsta veizlu-
borði. Hér var á feröinni fólk, sem naut þess að kynnast
flestu sem mest og bezt á þeim stutta tínla, sem heimsókn-
in stóð. Þeim hjónunum virtist henta bezt að fá að vera
sem frjálsust og njóta ferðarinnar í samfylgd hinna ís-
lenzku fylgdarmanna sinna á sem eðlilegastan hátt óg fá
þannig sem mest út úr ferðinni.
Fyrir okkur hina sem heima sitjum og fylgjumst með
ferðalagi norsku forsætisráðherrahjónanna upplifum við
ýmislegt í fari þeirra sem vekur virðingu okkar til þeirra
og þjóðar þeirra. Ber þar fyrst að nefna hina frjálsmann-
legu og óþvinguöu framkomu þeirra við hvern og einn sem
þau umgangast, og hinn ódrepandi áhuga á því að kynn-
ast sjálf sem flestum atvinnuháttum okkar.
Heppnin var með á ferðalaginu'um Borgarfjörð því kvöld
inu áður hafði veiðst 40 tonna' búrhveli sem var í Hval-
stöðinni og gafst gestunum tækifæri til að sjá þaö dregið
upp og skorið. Spurði ráðherrann margs og ræddi af þekk-
ingu um hvalveðiar við Loft Bjarnason, framkvæmdastjóra
og er slíkri veiði kunnugur, enda er gömul hvalstöð í hans
heimafylki. *
Á Varmalandi tóku Ásgeir Pétursson og frú hans á móti
gestunum og var snæddur þar hádegisverður. Að því loknu
átti að skoða gróöurhúsin á Laugalandi, en forsætisráð-
herrann kvaö þess ekki þörf, því hann hefði notáð tím-
ann áður en borðað var til þess að skjótast þangað sjálf-
ur og var búinn að skoða þau og ræða við norskan garð-
yrkjumann sem starfar þar. Á leið sinni út tók hann tali
stúlku, sem gekk þar um beina og vildi þá svo til, að næsta
vetur er hún innrituð við nám í „arkitektur“ í skóla i
Þrándheimi og mun honum hafa brugðið við, því hann
hrópaði til konu sinnar, að segja henni fréttirnar.
Dvaldist forsætisráðherrahjónunum mikið lengur í
Reykholti en til var ætlast, því þar var margt að skoða og
fræðast um úr sögu íslands og Noregs. Allar „planlagðar“
áætlanir ruku að sjálfsögðu út i veöur og vind og nutu
allir heimsóknarinnar eins og bezt var á kosið.
Sama var að segja um norðurlandsförina. Þar þurfti
einnig allt að sjá og öllu að kynnast. Flogið var yfir há-
lendið í mjög góðu skyggni og var jöklasýn því mjög fögur.
Er komið var til Akureyrar tóku á móti gestunum bæjar-
fógeti og bæjarstjóri ásamt norska konsúlnum. Var stigið
upp í bíla og ekið austur í Mývatnssveit. Er ekið var.upp
í Vaðlaheiði sá ráðherrann bónda við heyskap ásamt búa-
liði sínu og lét strax stöðva bifreiðina og gaf sig á tal við
hann. Var það Eiríkur Geirsson á Veigastöðum og fræddi
hann ráðherrann með aðstoð fjármálaráðherra okkar um
búskapinn, hvernig hann gengi, hvenær göngur yrðu og
hvenær búist væri við, að fé yrði komið af fjalli. Var greini-
legt að ráðherrann var vel heima í þessu öllu, enda gamall
bóndi.
Hér er aöeins um stutta frásögn að ræða úr ferðalagi for-
sætisráðherrahjónanna til íslands sem lýsir öðru en því
hefðbundna sem slíkum heimsóknum fylgir með tilheyr-
andi veizlum og skáladrykkjum.
Við þökkum forsætisráðherrahjónunum fyrir komu
þeirra uih leið og við sendum bræðraþjóð okkar Norðmönn-
um húgheilar kveðjur.
"n ~X' i
Yfyrilitsmyml við fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir við Búrfell.
Trunt, trunt
Framhald af bls. 2.
á vinnustöðum.
Þetta verður ekki réttlætt á
þann hátt að hér hafi verið
um þekkingarskort að ræða,
heldur viljaleysi til að kynn-
ast aðstæðum. T. d. var lengi
vel einn meðalstór heimilis-
sjúkrakassi til á staðnum og
oft var hann í vanhirðu. Þá
fyrst var úr þessu bætt, er alv
arlegri slys bar að höhdum.
Engin viðvörunarmerki voru
sett við opna skurði á vinnu-
svæðinu eða lausa vegar-
kanta.
Þá voru réttindalausir ungl
ingar látnir aka þungavinnu
vélum um þetta svæði, hvíld-
arlaust í 14—15 tíma og það
oft í svartasta myrkri, sprengi
efni og hvellhettur geymdar
í ólæstum skúr við jarðgöng-
in. Þó er þetta ennþá ógirt
og opið svæði og umferð þó
nokkuð mikil af utanaðkom-
andi fólki.
Varningur sem flyzt inn á
þetta svæði, erlendis frá, er
tollfrjáls, Þó er engin toll-
gæzla eða löggæzla á staðn-
um. Hið síðasttalda efni verð
ur þó ekki reiknað hinum er-
lendu stjórnendum til syndar
eingöngu, heldur einnig ís-
lenzkum lögregluyfirvöldum.
• Hr. Fogleklo
Eins og fyrr er sagt stjórn-
,aði, Svíi: nokkur að nafni hr.
Fogleklo daglegum rekstri
vinnustaðarins. Maður þessi
sem var hinn gervilegasti að
vallarsýn, virðist vera ákaf-
lega smámunalegur og tor-
trygginn í allri sinni fram-
komu og allt hans fas" líktist
helzt þýzkum stormsveitarfor
ingja frá Hitlerstímabilinu.
Honúm virðist lítið um það
gefið að ná hylli sinna starfs
manna eða auka starfsgleði
þeirra. Þeir, sem ekki höfðu
misst sinn húmoristiska sans
hlógu og gerðu góðlátlegt grín
af hans framkomu. Flestir
okkar erum þannig gerðir, að
starfsgleði og starfsáhugi verð
ur bezt vakinn með gagn-
kvæmu trausti. Enda hafa
gamalreyndir verkstjórar
einnig skýrt mér þannig frá
sinni reynslu.
Sem lítið dæmi um hr.
Fogleklo vár það, að bannað
var að flytja dagblöð eða ann
að lestrarefni til staðarins,
einnig var mönnum meinuð
símaafnot utan vijhgutíma. —
Vinnutíma okkar var þannig
háttað, að sjaldan var hægt
að hlusta á útvarp. Urðum
viö því oftast afskiptir frétt-
um og daglegum viðburðum.
Þær átta vikur er ég var
við Búrfell, fóru fleiri menn
en komu. Algengur starfstími
manna var 1—2 vikur, unz
þeir gáfust upp og hættu. Oft
kom einnig til lítilsháttar á-
rekstra og voru menn þá
reknir tafarlaust.
Þess mun heldur ekki langt
að bíða að íslendingar segi
skilið við trunt, trunt og tröll
in í f jöllunum.
tilraunir. Eflir nokkra
uti í geimnum var hanr
vega^Wjj 11n svo þrew
11 udNSffi Sfeh' u 11 vnn'i
Kennedyhöfða, 33. sept.
(AP-N'Bfck - v
s’ D Ai n f a r a r n i r
'na: (i
Gordon þreytíist
a geimgongunni
Að öðru leyti gengur Gemini
11 vel
Ttl