Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Spá Veðurstofunnar fyrir vikuna á Egilsstöðum er
óvenju góð en spáð er 19°C hita á þjóðhátíðardaginn og
upp í 24°C á föstudag. Samkvæmt vefsíðu Veðurstof-
unnar á hádegishiti á Egilsstöðum að fara í 27°C á laug-
ardag. Sibylle von Löwis, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, segir að taka megi tölunum með fyrirvara
þar sem þetta sé sjálfvirk spá og vanti þar inn í út-
reikninga og önnur áhrif. Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur segir að loftið verði ekki afbrigði-
lega hlýtt en þó nóg til að koma hitastigi yfir 25°C
um austanvert landið svo lengi sem sólin nái að
skína og hafgolu verði haldið frá. Einar segir að
ef menn leiti sér að áningarstað fyrir ferðalagið
sé ekki vafamál að austanvert landið sé besti
staðurinn, frá Eyjafirði og austur úr.
Spáð allt að 27 gráða hita á
Austurlandi í lok vikunnar
Skilur lítinn
stuðning
við ESB
„Það er auðvelt að
skilja hvers vegna
þróunin er í þessa
átt,“ segir Stein-
grímur J. Sigfús-
son fjármála-
ráðherra um
könnun á stuðn-
ingi við inngöngu í
Evrópusam-
bandið sem Morg-
unblaðið sagði frá í gær. Samkvæmt
henni vill meirihluti landsmanna
draga umsóknina til baka. „Fólk fylg-
ist með fréttum af erfiðleikum víða í
Evrópu, stöðu evrunnar og fjárhags-
vanda margra ríkja. [Aukin Evrópu-
samvinna] virðist ekkert sérstaklega
spennandi við þær aðstæður,“ segir
Steingrímur og bendir á svipaða þró-
un í viðhorfi almennings í löndunum í
kringum okkar.
Minnkandi stuðningur almennings
hefur þó að sögn Steingríms ekki
áhrif á inngönguferli Íslands í sam-
bandið, enda þyrfti þá fyrst að breyta
þeirri ákvörðun Alþingis sem stjórn-
völd vinna eftir. Einnig bendir hann á
að um framtíðarmál sé að ræða sem
ekki geti sveiflast með skoðanakönn-
unum. „Við höfum séð sveiflu í hina
áttina þannig að við þurfum bara að
sjá til hvernig þetta þróast.“
hlynurorri@mbl.is
Steingrímur J.
Sigfússon
Hefur ekki áhrif á
umsóknarferlið
Frumvarp um bann við afnotum
ungmenna af sólarlömpum var af-
greitt sem lög frá Alþingi í gær.
Eru ljósabekkir því komnir í sama
flokk og tóbak, sem óhollusta sem
halda ber frá börnum. Frumvarpið,
sem Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
kallaði „stóra ljósabekkjamálið“ við
atkvæðagreiðsluna, var samþykkt
með 40 atkvæðum gegn 10 atkvæð-
um sjálfstæðismanna og Birgittu
Jónsdóttur, Hreyfingunni. Sex sátu
hjá. Stjórnarþingmenn sögðu skýrt
að ljósið úr bekkjunum væri
krabbameinsvaldandi. Sjálfstæð-
ismenn rengdu það ekki en efuðust
um að bannið hefði tilætluð áhrif.
Einnig urðu að lögum í gær
frumvörp um breytingu á hafnalög-
um, um breytingu á lögum um
gjaldeyrismál og tollalögum til að
færa eftirlitshlutverk til Seðlabank-
ans.
Ljósabrúnka
unglinga þarf að
bíða betri tíma
Samkvæmt sjálfvirkri spá Veðurstofu Íslands kemur
fram að hádegishiti á Egilsstöðum muni fara upp í
27°C um helgina. Veðurstofa telur þetta heldur
ólíklegt en efar þó ekki að það verði talsverð hlý-
indi á næstu dögum. Í gær fór hiti upp í 21°C
inni í Eyjafjallasveit. Einar Sveinbjörnsson veð-
urfræðingur segir að ef sólin nái að skína
og hafgolunni verði haldið frá með V- eða
SV-átt geti hiti einhvers staðar um aust-
anvert landið farið yfir 25°C.
Sólin haldi hafgolu frá
SUMARBLÍÐA FYRIR AUSTAN
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
sagði í umræðum á Alþingi í gær að
Samfylkingin vildi leggja sérstakan
skatt á bankana. Hún benti á að á síð-
asta ári hefði hagnaður bankanna
þriggja verið samtals 51 milljarður
króna og arðsemi eiginfjár allt að
30%. Landsbankinn hefði á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs hagnast
um 90 milljónir á dag.
„Það kemur ekki til greina að Al-
þingi fari í sumarleyfi fyrr en vand-
aður og sómasamlegur frágangur á
vanda heimilanna hefur fengið hér
farsæla afgreiðslu. Það kemur heldur
ekki til greina að Alþingi fari í frí fyrr
en búið er að tryggja að vatnið verði
ekki einkavætt,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra í umræð-
unum.
Steingrímur sagði að staða efna-
hagsmála væri mun betri en spáð
hefði verið. Því hefði verið spáð að
landsframleiðsla á síðasta ári yrði um
1.400 milljarðar en nú væri ljóst að
hún hefði verið um 1.500 milljarðar.
Því hefði verið spáð að hagvöxtur
myndi dragast saman um 10%, en í
reynd hefði samdrátturinn orðið
6,5%. Fjárlög í fyrra gerðu ráð fyrir
halla upp á 12,6% en nú stefndi í að
hallinn yrði 9%. Spáð hefði verið 10%
atvinnuleysi í fyrra en það hefði orðið
8-9%.
Steingrímur sagði að minnka þyrfti
halla á ríkissjóði um 43 milljarða á
næsta ári. 11 milljarða yrði aflað með
sértækri tekjuöflun og skorið yrði
niður um 32 milljarða.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagðist efast um að
sú mynd sem fjármálaráðherra hefði
dregið upp væri í samræmi við veru-
leika almennings í landinu.
Heimilin fórnarlömb
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að rík-
isstjórn Samfylkingar og VG hefði
hvorki burði né getu til að takast á við
og leysa verkefnin sem lægju fyrir.
Innanmeinin og ágreiningurinn sem
hann sagði blasa við öllum gerðu
þetta að verkum. Fórnarlömb þessa
væru heimilin og fólkið í landinu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokks, sagði
að engin skjaldborg hefðiverið slegin
um heimilin heldur hefði ríkisstjórnin
stofnað til umsáturs um þau fyrir
hönd kröfuhafa. Slæm áhrif þessa
væru ljós en stjórnvöld virtust ekki
treysta sér til að snúa af þessari
braut. Hann sagði að nú stefndi í að
þingi yrði slitið án raunhæfra lausna
á skuldavanda heimilanna.
Margrét Tryggvadóttir, þing-
flokksformaður Hreyfingarinnar,
sagðist ekki vita til þess að nokkrum
manni þætti íslenskt samfélag rétt-
látt eða yfir höfuð í lagi. Þingmenn
tækju flokkshagsmuni og sína eigin
hagsmuni fram yfir almannahags-
muni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Auður stóll Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók ekki þátt í umræðunum á Alþingi í dag og var stóll hennar auður. Katrín og Össur ræðast við.
Vill leggja á bankaskatt
Ráðherra segir stefnt að 11 milljarða tekjuöflun og 34 milljarða niðurskurði
Innanmeinin og ágreiningurinn í stjórninni koma í veg fyrir árangur
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra vill að fyrstu umræðu um
breytingar á stjórnarráðinu verði
lokið áður en þingi verður frestað.
Á það vill stjórnarandstaðan ekki
fallast. Þetta er eitt af því sem
veldur því að ekki hefur náðst
samkomulag um þinglokin, en
samkvæmt starfsáætlun Alþingis
á þinginu að ljúka í dag. Formenn
flokkanna hittust á stuttum fundi
síðdegis til að ræða um þinglok en
hann var árangurslaus.
Félags- og trygginganefnd er að
ljúka umfjöllun um mál sem varða
heimilin í landinu, m.a. um frestun
veðkrafna og bílalán. Ekki er
ágreiningur um að þau verði að
lögum þótt einstakir þingmenn
hafi bent á að nauðsynlegt kunni
að vera að gefa þingnefndum meiri
tíma til að yfirfara málin. Sá
möguleiki hefur verið nefndur að
þingfundum verði frestað til mán-
aðamóta og frumvörpin verði af-
greidd þá á einum degi.
Ekki samstaða um þinglok
VILL KLÁRA 1. UMRÆÐU UM STJÓRNARRÁÐSFRUMVARPIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þing Forystumenn flokkanna munu í dag reyna að semja um þinglok.
Sjónvarpsstöðin Skjár 1 hefur tryggt
sér sýningarréttinn á helstu golf-
viðburðum erlendis. Reglulegar út-
sendingar hefjast í haust á nýrri sjón-
varpsstöð, Skjárgolf. Einn stærsti
íþróttaviðburður heims, Ryder-
keppnin í golfi, verður sýndur á
áskriftarstöðinni Skjárgolf. Opna
breska meistaramótið, sem fram fer á
St. Andrews-vellinum 15.-18. júlí,
verður sýnt í opinni dagskrá á Skjá 1.
Útsendingar frá bandarísku PGA-
mótaröðinni hefjast í janúar en sýnt
verður frá Evrópumótaröðinni í
haust. Hilmar Björnsson er yfirmað-
ur Skjárgolf. „Við munum alltaf sýna
beint frá öllum fjórum keppnisdög-
unum, frá fimmtudegi fram til sunnu-
dags. Alls verða 1000 klst. í beinni út-
sendingu á ári. Á öðrum dögum
verðum við með ýmsa áhugaverða
þætti þar sem fjallað er um golf frá
ýmsum hliðum,“ sagði Hilmar í gær
við Morgunblaðið. seth@mbl.is
Skjárgolf sýnir frá
Ryderkeppninni
Reuters
Þekktur Tiger Woods verður í eld-
línunni í Ryderkeppninni í október.