Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Sérfræðingar í málefnum Mið- Asíulandsins Kirgistans segja að glæpahópar hafi notfært sér valdatómarúm og þrálátar deilur Kirgisa og Úsbeka í sunnanverðu landinu til að kveikja ófriðarbál sem hófst í vikunni sem leið. Yfirvöld í Kirgistan sögðu í gær að minnst 124 manns hefðu beðið bana í átökunum og 1.685 særst en margir óttast að tala fallinna sé miklu hærri. Átökin blossuðu upp í Fergana- dal þar sem Kirgisar og Úsbekar hafa deilt um jarðir og húsnæði. Bráðabirgðastjórn, sem mynduð var í Kirgistan eftir byltingu í apríl, hef- ur ekki tekist að ná yfirráðum yfir svæðinu. Fréttaskýrendur segja að forsprakkar glæpasamtaka hafi not- fært sér valdatómarúmið í Fergana- dal eftir að Kúrmanbek Bakíjev var steypt af stóli forseta í byltingunni í apríl. Talin tengjast glæpasamtökum „Reynslan af tveimur síðustu bylt- ingum kennir okkur að pólitísk valdaskipti leiða óhjákvæmilega til breytinga á valdajafnvæginu í glæpaheiminum, sem er nátengdur heimi stjórnmálanna og við- skiptanna,“ sagði Sanobar Sherma- tova, fréttaskýrandi vefjarins Ferghana.ru, sem sérhæfir sig í fréttum frá svæðinu. Talið er að forsprakkar skipu- lagðra glæpasamtaka í sunnanverðu landinu hafi tengst ríkisstjórn Bakíjevs og skyldmenni forsetans fyrrverandi hafi stjórnað landshlut- anum með stuðningi glæpasamtak- anna. Shermatova og fleiri fréttaskýr- endur segja að hópar ungra glæpa- manna úr röðum Kirgisa hafi átt upptökin að ofbeldinu á fimmtudag- inn var og leiðtogar glæpasamtak- anna hafi skipulagt árásirnar. „Í fljótu bragði kann þetta að virð- ast vera átök milli þjóðflokka en þeir sem kveiktu ófriðarbálið vilja ein- mitt láta líta út fyrir að þannig sé það,“ hefur fréttastofan AFP eftir rússneska blaðamanninum Arkadí Dúbnov, sérfræðingi í málefnum Mið-Asíulanda. „Átökin hófust með árásum hópa ungra glæpamanna, sem voru skipu- lagðir og fengu greiðslur til að ráð- ast á fólk af handahófi til að kynda undir hatri milli þjóðflokkanna,“ sagði Dúbnov. Hann bætti við ungu glæpamennirnir kæmu frá öðrum bæjum og tengdust á engan hátt íbúum bæjanna sem ráðist var á. Hermenn sakaðir um að taka þátt í manndrápunum Sergej Masaulov, forstöðumaður rannsóknastofnunar í Kirgistan, sagði að þeir sem skipulögðu árás- irnar hefðu komið af stað til- hæfulausum orðrómi um að hópur Úsbeka hefði nauðgað kirgiskri stúlku. Markmiðið hefði verið að etja þjóðflokkunum saman. Áætlað var í gær að um 80.000- 100.000 manns hefðu flúið til grann- ríkisins Úsbekistans vegna blóðs- úthellinganna og margir flóttamann- anna segja að her- og lögreglumenn hafi tekið þátt í árásunum. Þrítugur hermaður úr röðum Úsbeka kvaðst hafa gerst liðhlaupi eftir að hafa orð- ið vitni að árásum hermanna á óvopnaða Úsbeka. „Varnarmálaráðuneyti Kirgistans gaf okkur fyrirmæli um að ráðast ekki á óbreytta borgara,“ sagði hann. „Her- og lögreglumenn virtu þó fyrirmælin að vettugi í Osh og hjálpuðu glæpahópunum að myrða Úsbeka.“ „Helber lygi“ Bakíjev er í útlegð í Hvíta- Rússlandi og neitar því að hann tengist hópunum sem hófu blóðs- úthellingarnar. Hann segir að ásak- anir um að hann sé á einhvern hátt viðriðinn átökin séu „helber lygi“. Bakíjev var annar forseti Kirgist- ans frá því að landið fékk sjálfstæði eftir hrun Sovétríkjanna árið 1991. Forvera hans í embættinu, Askar Akajev, var steypt af stóli í stjórnar- byltingu árið 2005 vegna ásakana um kosningasvik og spillingu. Bakíj- ev tók við af honum og var sak- aður um einræðistilburði. Valdatími Bakíjevs ein- kenndist af pólitískri ólgu og nær látlausri valdabaráttu milli for- setans og þingsins. Nokkrir sérfræðingar í málefnum landsins hafa látið í ljósi áhyggjur af því að blóðsúthellingarnar verði til þess að margir landsmenn verði af- huga lýðræðinu og þróunin í átt að ein- ræði haldi áfram. Glæpahópar kveiktu ófriðarbálið Reuters  Talið er að forsprakkar glæpasamtaka í Kirgistan hafi skipulagt blóðugar árásir til að etja Kirgisum og Úsbekum saman  Fyrrverandi forseti neitar ásökunum um að hann sé viðriðinn manndrápin Úfar með þjóðflokkum » Kirgisar eru 69,6% af 5,3 milljónum íbúa Kirgistans. Ús- bekar eru 14,5% landsmanna og Rússar 8,4%. » Flestir Úsbekanna búa í sunnanverðu landinu. Úsbekar eru um 40% af milljón íbúum Jalalabad-svæðisins og um helmingur íbúa Osh. » Hundruð manna féllu í átökum milli þjóðflokkanna í Osh árið 1990. Jalalabad og Osh voru höfuðvígi Kúrmanbeks Bak- ijevs sem var steypt af stóli forseta í apríl síðastliðnum. 100 km Heimild: Fréttir fjölmiðla BLÓÐSÚTHELLINGAR Í KIRGISTAN Yfirvöld í Kirgistan sögðu í gær að á annað hundrað manns lægju í valnum – flestir í borgunum Osh og Jalalabad – eftir átök sem hófust á fimmtudag Manas-herflugvöllurinn Bandaríkjaher notar hann til að flytja hermenn og birgðir til herstöðva sinna í Afganistan Kant-herflugvöllurinn Flugher Rússlands er þar með bækistöð Bishkek Tashkent ÚSBEK- ISTAN TADSJIKISTAN KASAKSTAN KÍNA KIRGISTAN Osh – Mannskæð átök hófust þar á fimmtudag og breiddust út til Jalalabad Jalalabad-svæðið Ekkert lát var á átökunum þar í gær Kúrmanbek Bakíjev STJÓRNVÖLD í Afganistan staðfestu í gær frétt í The New York Times um að fundist hefðu gríðarlegar náttúruauðlindir í landinu, steinefnalög sem væru með miklu meira af verðmætum málmum en talið hefur verið. Blaðið sagði að bandarískir jarðvísindamenn hefðu meðal annars fundið merki um að hægt yrði að vinna járn, kopar, kóbalt og gull í miklum mæli í Afganist- an. Vísindamennirnir eru einnig sagðir hafa fundið li- þín, sem notað er í rafhlöður fyrir farsíma og fartölv- ur og er talið verða mjög mikilvægt fyrir framleiðslu rafbíla þegar fram líða stundir. Talsmaður Hamids Karzais, forseta Afganistans, staðfesti fréttina og sagði að auðlindirnar væru metn- ar á um 1.000 milljarða Bandaríkjadala, eða sem svar- ar tæpum 130.000 milljörðum króna. The New York Times sagði að þessar náttúru- auðlindir væru svo miklar, að mati bandarískra emb- ættismanna, að Afganistan yrði ein mikilvægasta mið- stöð námuvinnslu í heiminum þegar fram liðu stundir. Í minnisblaði frá embættismanni í bandaríska varn- armálaráðuneytinu kæmi fram að Afganistan gæti orðið að „Sádi-Arabíu liþín-framleiðslunnar“ í heim- inum. Fréttaskýrandi breska ríkisútvarpsins, BBC, sagði að spurningar hefðu vaknað um hvers vegna skýrt væri frá þessum upplýsingum nú þegar mörg ríki eru treg til að taka þátt í hernaðaraðgerðunum í Afganist- an. Fréttir um að Afganistan kynni að reynast mikil gullnáma gætu orðið til þess að ríkin féllust á að leggja meira af mörkum. The New York Times segir að gróðavonin sé svo mikil að embættismenn og frammámenn í málmiðnaði telji að fyrirtæki verði tilbúin til mikilla fjárfestinga í Afganistan, þótt langur tími líði þar til hægt verði að hefja vinnsluna. Bætt lífskjör vegna málmvinnslu auki einnig líkurnar á því að hægt verði að koma á var- anlegum friði í landinu. Bandarísku embættismenn- irnir viðurkenna þó að náttúruauðlindirnar geti reynst tvíeggjaðar og orðið til þess að talibanar herði upp- reisn sína til að ná landinu á sitt vald að nýju. Segjast hafa fundið gríðar- legar auðlindir í Afganistan  Telja að landið geti orðið að einni mikilvægustu mið- stöð málmvinnslu í heiminum Reuters Gullnáma? Talið er að gríðarlegar auðlindir leynist í fjöllum Afganistans, að sögn The New York Times. Fjöldaflótti Úsbekar, sem flúðu ofbeldisverkin í Kirgistan, bíða við landa- mærin að Úsbekistan. Stjórn Úsbekistans lokaði landamærunum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.