Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 Atvinnuauglýsingar Starfsmaður óskast Starfsmaður óskast á bílaleigu, starfið felst í þrifum á bílum, afgreiðslu og öðru tilfallandi. Enskukunnátta skilyrði. Upplýsingar gefur Anton í síma 777 3770. Hótel á Norðurlandi óskar að ráða starfsmann í sal. Góð laun fyrir hæfan starfskraft. Nánari uppl. í síma 895 6721. Raðauglýsingar Þjónusta Aðlögungreiðslu Aðstoð við nauðasamninga umsókn um greiðsluaðlögun og ábendingar um önnur úrræði sem gætu komið að gagni 615 1522 adlogun@adlogun.is www.adlogun.is Er bankinn erfiður? hamraborg 10 // 200 kópavogur Tilkynningar Aðalskipulag Strandabyggðar 2010-2022 Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 2. júní 2010 að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022. Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athuga- semdum við aðalskipulagstillöguna. Skipulagsuppdrættir, greinagerð, forsendur og umhverfisskýrsla liggja frammi á skrifstofu Strandabyggðar og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 15. júní til 13. júlí 2010. Enn fremur verða gögnin aðgengileg á heima- síðu sveitarfélagsins www.strandabyggd.is. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Strandabyggðar að Hafnarbraut 19 eða á net- fangið holmavik@holmavik.is merkt „aðalskipulag” fyrir 28. júlí 2010. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Hólmavík, 11. júní 2010. Sveitarstjóri Strandabyggðar. Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31, s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Ragnhildur Filippusdóttir, Garðar Björg- vinsson, Michael-miðill, Símon Bacon, Guðríður Hannesdóttir kristalsheilari og auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félags- mönnum og öðrum upp á einka- tíma. Upplýsingar um félagið, starfsemi þess, rannsóknir og útgáfur, einkatíma og tíma- pantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR Smáauglýsingar 569 1100 Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI – Spámiðill Spái í spil og kristalskúlu Heilunartímar Fyrirbænir Algjör trúnaður Sími 618 3525 www.engill.is Dýrahald Óska eftir Husky, Schafer eða Rottweiler gefins eða á góðum greiðslukjörum. Má vera fullorðinn hundur eða hvolpur. Upplýsingar á hundavinur@live.com Dísarpáfagaukur týndur Alhvítur dísarpáfagaukur flaug burt í Krókslandi í Grafningi sunnudaginn 6. júní. Gæfur fugl. Ef einhver hefur séð hann þá er síminn okkar 897 7770. Húsnæði í boði Til leigu Glæsilegar 2ja og 4ja herbergja íbúðir miðsvæðis. Gott verð og traust þjónusta. Nánari upplýsingar á www.leiguibudir.is Sumarhús Rotþrær frá 2300 l, siturlagnir, leiðbeiningar, heildarlausnir. Vatnsgeymar staðlaðar stærðir. Jarðgerðarílát/moltukassar. www.borgarplast.is Mosfellsbæ, s. 561 2211. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og rannsóknarvinnu ýmiskonar. Hafið samband í síma 893 7733. Þjónusta Tek að mér ýmis smærri verk Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com Hellulagnir, Drenlagnir, Jarðvegsskipti. Leiga á traktorsgröfu, minigröfu og minivagni. Símar 6981710 og 6161170. Ýmislegt Heitir pottar Sími 565 8899 GSM 863 9742 www.normx.is normx@normx.is Nýkomnir flottir dömuskór úr leðri í miklu úrvali. Stærðir 36 - 40. Verð: 13.885,- 14.785,- og 16.885,- Sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Veiði Laxveiðileyfi Til sölu veiðileyfi í Álftá á Mýrum í júlí. Upplýsingar gefur Dagur Garðarsson í síma 893 5337 alla virka daga milli 8-18. Bátar Strandveiðimenn Fiskiker gerðir 300,350,450 og 460 l Línubalar 70 og 80 l. Allt íslensk framleiðsla í hæsta gæðaflokki. www.borgarplast.is, Mosfellsbæ, s. 561 2211. Sendibílar Stór sendibíll til leigu. án ökumanns. Tilvalinn til lang- flutninga. Sanngjörn leiga . Sími 845 0454. Bílaþjónusta Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR. Hvert sem er hvenær sem er. 16 manna. 9 manna. Með eða án ökumanns. Fast verð eða tilboð. CC bílaleigan sími 861-2319. Hjólhýsi Til sölu Hobby Prestige 650KFU kojuhús. Hobby Prestige 650KFU kojuhús, skráð 05/2007, mjög vel með farið, einstaklega gott skipulag, gólfhiti, bakaraofn, markísa, sjónvarpsloftnet, 12V tengi. Uppl. í s. 860 9255. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Félagslíf Guðjón Yngvi Þorsteinsson ✝ Guðjón YngviÞorsteinsson húsasmíðameistari fæddist í Drangshlíð- ardal 18. maí 1935. Hann lést á Landspít- alanum, að morgni föstudagsins langa, 2. apríl 2010. Útför Yngva var gerð frá Áskirkju í Reykjavík 16. apríl 2010. Hinn 18. maí hefði vinur minn og frændi, hann Yngvi Þorsteinsson frá Drangshlíðardal, orðið sjötíu og fimm ára hefði honum orð- ið lengri lífdaga auð- ið. Einn vinur hans orðaði það svo að Yngvi hefði fallið frá langt um aldur fram. Vafalítið geta þeir sem þekktu Yngva tekið undir það. Þrátt fyrir erfið og langvarandi veikindi var Yngvi ætíð ungur í anda og vildi helst aldrei um veikindi sín tala. Yngvi tók mikinn þátt í félagsstörfum og lét sig hvergi vanta á samkomum, bæði í gömlu sveitinni sinni og svo síðar á Hellu, en þar var heimili þeirra hjóna til margra ára. Að- alstarf Yngva á seinni árum á Hellu var kranaútgerð, gerði hann út vírakrana í nokkur ár, svo eftir það Scania-vörubifreið með vök- vakrana. Yngvi sinnti þessu starfi af mikilli alúð og fórnfýsi, þar fór saman mikil reynsla og hæfni hans að stjórna erfiðum tækjum, sem voru ómissandi fyrir nær allt atvinnulíf í héraðinu. Ósjaldan hífði Yngvi gler fyrir okkur í Sam- verk og reyndist okkur æði oft erfitt að leysa úr þeim vanda, sem skapaðist þá sjaldan hann var vant við látinn. Yngvi var mikill húmoristi, gat reytt af sér brandara og farið með vísur í tugatali án þess að líta á blað. Það voru sannkölluð skemmtikvöld þegar við hjónin heimsóttum Yngva og Gullu, ætíð barst talið að kynlegum kvistum, sem við kynntumst á lífsleiðinni, og kunni Yngvi ótal sögur og vís- ur bæði af þeim og svo ekki síður af ættingjum og vinum. En allt var þetta í góðu og alls ekki illa meint, því enginn getur sagt ann- að um Yngva en þar færi hjarta- hlýr maður sem þótti vænt bæði um menn og málleysingja. Sam- verustundirnar með Yngva og Gullu eru okkur hjónum ógleym- anlegar og minnumst við þeirra stunda með miklu þakklæti í huga. Sagt er að maður komi í manns stað, en erfitt verður að fylla það skarð sem Yngvi skilur eftir, ekki síst hjá fjöldskyldunni sem var og er svo samhent í einu og öllu að eftir er tekið. Mikið tómarúm hef- ur einnig myndast hjá Litla veiði- hópnum, sem fór „til veiða“ á hverju hausti um áratuga skeið. Þar var Yngvi hrókur alls fagn- aðar og hélt æði oft uppi kvöld- vökum, með þeirri frásagnargáfu sem honum var einum lagið. Far þú í friði kæri vinur. Innilegar samúðarkveðjur með virðingu og þakklæti fyrir allt. Ólafur og Krist- ín, Kristnibraut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.