Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
✝ Guðný JóhannaHannesdóttir
fæddist í Hnífsdal 19.
september 1921. Hún
lést á Hrafnistu
Hafnarfirði 9. júní.
Foreldrar hennar
voru Valgerður
Björnsdóttir, f. 11.
júní 1895, d. 6. apríl
1989, og Hannes Óla-
son, f. 24. júlí 1884,
d. 16. apríl 1970.
Systkini Guðnýjar
eru: Guðrún Karól-
ína, f. 1915, d. 2000.
Björg Ásta, f. 1916, d. 1917. Sig-
munda, f. 1919, d. 1994. Björg
Ásta, f. 1920, d. 2002. Ólöf, f.
1922. Arndís, f. 1924, d. 2005. Jó-
hannes, f. 1925, d. 1992. Lilja Guð-
rún, f. 1926, d. 2007. Fjóla, f. 1928.
eru Sveinn Stefán, Arnar og Ein-
ar. Haraldur Hafsteinn, f. 22. jan-
úar 1947, kvæntur Guðrúnu Ing-
ólfsdóttur. Synir þeirra eru
Ragnar og Ingólfur. Gestur, f. 31.
maí 1948, kvæntur Huldu Krist-
jánsdóttur. Synir þeirra eru Krist-
ján, Jón Ásgeir og Árni Björn.
Hugrún, f. 24. mars 1950. Sigríður
Björg, f. 8. júlí 1951, gift Guð-
mundi B. Guðmundssyni. Börn
þeirra eru Snorri og Guðný Ása.
Guðmundur, f. 25. júlí 1955,
kvæntur Lilju Ólafsdóttur. Börn
þeirra eru Jón Gestur og Aðal-
björg. Guðný og Jón eiga 11
barnabarnabörn sem eru: Haf-
steinn Fannar og Birkir Orri
Ragnarssynir, Hildur og Sigrún
Sveinsdætur, Agnes Engilráð
Scheving, Embla María og Hrafn-
tinna Margrét Arnarsdætur,
Hannes Björn og Kristján Rúnar
Einarssynir, Birta Huld og Karl
Lúkas Kristjánsbörn, Hulda Rakel
Jónsdóttir.
Útför Guðnýjar verður gerð frá
Garðakirkju í dag, 15. júní 2010,
og hefst athöfnin kl. 13.
Hulda, f. 1929, d.
1970. Hrefna, f. 1930.
Beta Guðrún, f. 1931.
Óli Björn, f. 1932.
Garðar Svavar, f.
1934, og Ósk, f. 1941.
Guðný fluttist ung
til Reykjavíkur og
vann þar ýmis störf.
Í desember 1944
giftist Guðný Jóni
Ásgeiri Gestssyni, f. í
Arnardal 6. mars
1920, d. 20. febrúar
2001. Þau bjuggu all-
an sinn búskap í
Hafnarfirði. Börn þeirra eru: Jóna
Guðmunda, f. 7. júní 1944, giftist
James Wheeler, þau skildu. Dóttir
þeirra er Jennifer Lára. Hannes, f.
30. september 1945, kvæntur Sig-
rúnu Sveinsdóttur. Synir þeirra
Elskuleg tengdamóðir mín hefur
nú fengið kærkomna og langþráða
hvíld frá þjáningum þessa heims.
Kjarkur og æðruleysi eru þau orð
sem lýsa henni best. Fyrir 26 árum
fékk hún heilaáfall og lamaðist al-
gjörlega hægra megin og missti
málið um tíma, en fékk það að mestu
aftur. Með frábærum dugnaði, elju-
semi og margra mánaða endurhæf-
ingu á Grensásdeild komst hún aftur
á fætur og gat haldið heimili með
eiginmanni sínum, Jóni Á. Gestssyni
(d. 2001) í rúman áratug. Þau fengu
inni á Hrafnistu í Hafnarfirði árið
1996, og þar dvaldi hún eftir lát Jóns
og naut einstakrar umhyggju og al-
úðar starfsfólks, sem á miklar þakk-
ir skildar. Jón var leigu- og lang-
ferðabílstjóri, dugnaðar- og
athafnamaður sem oft var langdvöl-
um að heiman vegna starfs síns.
Umsjá og uppeldi sjö barna þeirra
var því nær alfarið í höndum Guð-
nýjar og er það mikið afrek að hafa
komið þeim öllum til góðs þroska og
manndóms með sínu ábyrgðarmikla
sívakandi móðurhlutverki. Þrátt fyr-
ir ómegð og fátæktarbasl á þeim ár-
um var til þess tekið hve börnin
voru alltaf hrein og vel til fara, kurt-
eis og mannvænleg. Guðný var
fimmta í röð 17 systkina í Hnífsdal.
Fimmtán þeirra komust á legg og
gefur augaleið að þau urðu snemma
að fara að vinna fyrir sér og ekki var
um annað en erfiðisvinnu að ræða.
Orðið barnaþrælkun var þá senni-
lega ekki til í íslenskri tungu. Hún
fór því ung úr foreldrahúsum og um
tvítugt réðst hún í vist til frændkonu
sinnar og velgerðarmanna, Sólveig-
ar Sveinbjarnardóttur og Lofts
Bjarnasonar, útgerðarmanns í
Hafnarfirði. Þar kynntist hún lífs-
förunaut sínum og bjó í Hafnarfirði
upp frá því. Þau hjón komust smám
saman í góðar álnir og við þeim
blasti áhyggjulaust ævikvöld eftir
farsæla starfsævi þegar blóðtappi í
heila Guðnýjar breytti lífi þeirra í
einu vetfangi. Það var þó ekki verið
að kvarta og kveina heldur örlög-
unum tekið með mikilli ró og yf-
irvegun, Seinustu ár Jóns var hann
illa haldinn af parkinsonsveiki og
var Guðný honum þá mikill styrkur
þrátt fyrir eigin fötlun. Undanfarin
ár hrakaði heilsu hennar smám sam-
an og var hún rúmföst frá sl. hausti
og síðustu vikurnar sárþjáð, nær al-
veg lömuð og mállaus. Hún var
löngu södd lífdaga og dauðinn líkn
við þraut. Hún skildi við hægt og
hljótt með þeirri reisn sem ein-
kenndi allt hennar líf.
Ég þakka Guðnýju Jóhönnu fyrir
þá hlýju og vinsemd sem hún sýndi
mér frá fyrstu kynnum okkar fyrir
34 árum þegar ég, ekkjumaður með
fjögur börn, kvæntist yngstu dóttur
hennar, og fyrir umhyggjusemi og
ástúð sem hún sýndi eldri dætrum
mínum eins og sínum eigin barna-
börnum á meðan hún gat. Þar skorti
aldrei kærleika og manngæsku. Það
var gæfa mín að kynnast henni og
hennar fjölskyldu á erfiðum tíma.
Friður sé með henni.
Guðmundur B. Guðmundsson.
Elsku amma.
Við munum eftir góðum stundum
að heimili þeirra á Smyrlahrauni,
sem amma hélt ávallt óaðfinnanlegu.
Í minningunni var hún amma um-
hyggjusöm, en hlédræg og lét lítið
fyrir sér fara. Jólaveislurnar, og
reyndar allar veislur, voru alltaf svo
glæsilegar hjá ykkur, maturinn góð-
ur og gott að vera hjá ykkur. Sér-
staklega var gaman að fara í feluleik
og fela sig í fataskápnum í svefn-
herberginu þeirra, leika sér í hraun-
inu í nágrenni heimilisins eða fara
niður að læknum. Eins munum við
eftir arninum á Smyrlahrauni, sem
var alltaf spennandi. Allt góðar
minningar.
Eftir að amma veiktist hittum við
hana sjaldnar og sjaldnar. Fyrstu
árin mætti hún í fjölskylduboð en
það hætti síðan að lokum. Við von-
um að ömmu hafi liðið vel síðustu ár-
in á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu,
en við vitum að þar var hugsað vel
um hana. Hún ljómaði alltaf upp
þegar við komum með barnabörnin í
heimsókn og augljóst að hún naut
þess að hafa þau í kringum sig. Sein-
ustu árin var amma að miklu leyti
rúmföst og átti erfitt með að tjá sig.
Hún þráði hvíld og nú hefur hún
fengið hana.
Takk kærlega fyrir allt, elsku
amma, og hvíldu í friði. Vona að þér
líði vel þar sem þú ert núna
Kveðjur frá strákunum á Mar-
bakkabraut,
Sveinn, Arnar
og Einar.
Guðný Jóhanna
Hannesdóttir
Sæl mamma mín.
Ég skrifa þér þess-
ar línur í tilefni dags-
ins, það hefði verið
gaman að geta fagnað
einu ári enn með þér. En tíminn
sem þér var ætlaður var ekki lengri
hér, en ég tel að þú sért komin í
fullt starf á nýjum stað og laus við
vanlíðan.
Þar með förum við ekki saman
fleiri ferðir á æskuslóðirnar en þá
sem farin var á síðasta ári, það var
gott að vera minnt á liðnar stundir
og ekki var erfitt að aka yfir hana
Skælu í þessari ferð, eins og þeirri
sem farin var fyrir mörgum árum
og nafnið á blessaðri ánni varð að
skælu, og var hún aldrei kölluð
annað eftir það okkar á milli, en við
áttum líka oft eftir að brosa saman
yfir þeim ósköpum sem á gengu í
bílnum í þeirri ferð, en þá vorum
við líka báðar mjög ungar, ég barn
Rakel Jónsdóttir
✝ Rakel Jónsdóttirfæddist á Djúpa-
vogi hinn 15. júní
1927. Hún lést á
Akranesi 17. maí
2010.
Útför Rakelar fór
fram frá Akra-
neskirkju 28. maí
2010.
og þú ung kona sem
áttir orðið stóra fjöl-
skyldu og þurftir að
hlúa að stórum
barnahópi bæði nótt
og dag og svo sann-
arlega var það gert.
Það var gott að vita af
því að það væri komið
og breidd vel yfir
mann hlý og góð
sæng áður en sofnað
var vært, þetta var
gert á hverju kvöldi
og alltaf nægur tími
þótt í mörg horn væri
að líta og margt eftir að gera hjá
þér. Það var munur á lífinu þá og
nú, ár ekki óbrúaðar og ekið í gegn-
um jarðgöng beint inn í Lónið sem
skartaði sínu fegursta eins og búast
mátti við.
Ég vil líka fá að þakka þér fyrir
árið 1978, það var ekki svona hefð-
bundið ár hjá mér, en mjög svo
ánægjulegt þegar stóra stundin
rann upp og eitt barnið bættist við
fjölskylduna. Það var líka gott að
koma aftur heim til ykkar af fæð-
ingardeildinni og eyða þar fyrstu
dögunum.
Fyndið var að heyra setninguna
hjá þér og pabba þegar var farið að
tala um að flytja „viltu ekki vera
hjá okkur eina viku enn?“ því þið
tölduð að það væri ekki ráðlegt að
láta unglinginn sem var orðinn 24
ára fara að heiman til að sjá einan
og óstuddan um barnið, en sá tími
kom og gekk bara vel eins og við
urðum báðar sammála um þegar að
þeim tíma kom.
En þetta var ómetanlegur tími
sem ég fékk með ykkur, þessar
fyrstu vikur eftir að ég varð móðir
og hefði ekki viljað fara degi fyrr
en ég fór og ekki lét ég á því bera
að ég var svolítið kvíðin.
Jæja, það er komið að leiðarlok-
um hjá okkur að sinni en við eigum
eftir að hittast aftur en trúlega ekki
alveg strax, en þegar sá tími kemur
höfum við um margt að spjalla sem
mun hafa drifið á daga okkar frá
síðustu samverustund.
Það var gott að geta verið hjá þér
þessa síðustu daga og stundir sem
ekki koma aftur, en eru vel varð-
veittar hjá mér.
Að lokum vil ég þakka starfsfólk-
inu á Dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi fyrir yndislega umönnun í
veikindum þínum.
Elsku pabbi, það er orðinn lang-
ur tími með maka, 66 ár, en sem
betur fer er líka margt sem eftir
situr eins og góðar minningar sem
við munum alltaf eiga eftir hjá okk-
ur og getum framkallað í huga okk-
ar þegar við viljum.
Mamma, þakka þér allar okkar
samverustundir.
Sakna þín.
Þín dóttir,
Sigrún.
✝
AAGE FOGED RASMUSSEN
kaupmaður og blómaskreytingamaður,
Hávallagötu 7,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 20. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur og vinir.
✝
Elskulegur faðir okkar,
EIRÍKUR K. EIRÍKSSON
fyrrum bóndi á Gafli í Flóa,
Sílatjörn 8,
Selfossi,
lést laugardaginn 12. júní.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn
19. júní kl. 11.00.
Jarðsett verður í Villingaholti.
Lilja Eiríksdóttir,
Björn H. Eiríksson.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN RAGNAR BJÖRGVINSSON
garðyrkjufræðingur,
Rjúpnasölum 8,
Kópavogi,
lést föstudaginn 11. júní á Landspítalanum
Fossvogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elsa Hildur Óskarsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Orrahólum 7,
sem lést föstudaginn 11. júní, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 21. júní kl. 11.00.
Þórður Sigurjónsson, Þórhildur Hinriksdóttir,
Auður Björg Sigurjónsdóttir, Kristinn H. Gíslason,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Okkar ástkæra,
EMMA ÁRNADÓTTIR
lést sunnudaginn 13. júní á dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi, umkringd ástvinum.
Ágústa G. Garðarsdóttir, Henry Stefánsson,
Árni Ingi Garðarsson, Ástríður S. Valbjörnsdóttir,
Edda K. Lystrup, Arne Lystrup,
Ásdís Þr. Garðarsdóttir, Björn Guðmundsson,
Hafdís Garðarsdóttir, Rúnar Ásgeirsson,
Hörður Garðarsson, Þóranna Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær frænka okkar,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Sléttuvegi 11,
Reykjavík,
lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi fimmtudaginn
10. júní.
Jón Jósefsson,
Anna Guðrún Jósefsdóttir,
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir,
Jón Ingvar Ragnarsson,
Guðmundur Ragnarsson,
og fjölskyldur.