Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 25

Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 hjá Unnari sem voru undirbúningur fyrir Sjallann. Unnar tók það gjarn- an að sér að raka okkur félagana í partíinu með forláta Wilkinson- sverði og við treystum honum full- komlega við þessar erfiðu aðstæður. Ekki þurfti meiri raksturs við þar til kom að næstu helgi, en hormónin virkuðu samt á önnur líffæri en húð- ina á þessum árum. Unnar var oft einn heima á menntaskólaárunum og þó að allir væru velkomnir í hans hús minnist ég þess aldrei að einn einasti gleð- skapur hafi nokkurn tímann farið úr böndunum. Stundum var móðir hans heima og partíin voru alveg eins fjörug þá og hún hló að vitleysunni í okkur félögunum. Ég hef stundum rifjað það upp hversu þolinmóð hún var við okkur og kann ég henni góðar þakkir fyrir þessi mjög svo ánægjulegu kynni. Hún og aðrir úr fjölskyldunni gátu líka verð stolt af Unnari. Fleiri minningar hrannast upp og meðal annars ferðin um verslunar- mannahelgina 1977 þegar við fé- lagarnir Unnar, Skúli og Steinar fórum í Ásbyrgi og síðan á ball í Skúlagarði. Þvílíkt frelsi, taumlaus gleði og mikil og góð vinátta sem aldrei fennir yfir. Fríða og Unnar heimsóttu und- irritaðan til Gautaborgar fyrir nokkrum árum og er það ógleym- anlegt hversu lítið hafði breyst, enn sami smitandi hláturinn og jákvæðn- in. Ekki síst var líka gaman að hitt- ast á stúdentaafmælunum og fara í óvissuferðir, fjallgöngur og syngja og gleðjast saman. Þó að sorgin sé ótrúlega mikil þegar maður eins og Unnar er kall- aður burtu í miðju lífinu og mjög erfitt að sætta sig við þá staðreynd þá lifir eftir minning um góðan fé- laga svo lengi sem við eigum ólifað. Ég veit að við vinir hans erum sam- mála um hversu lánsamir við vorum að fá að kynnast þessum öðlingi. Ég votta Fríðu og dætrunum, ásamt foreldum hans og öðrum ást- vinum mína dýpstu samúð. Einar S. Björnsson. Mann setur hljóðan og sorg og söknuður nær tökum á manni. Um stund sér maður ekki ljóma sólar og fegurðina í náttúrunni í kringum sig. Þannig er eðlilegt að bregðast við þegar andlátsfregn kærs vinar berst, jafnvel þótt hún hafi ekki ver- ið óvænt. Eftir stutta en hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm varðst þú að játa þig sigraðan kæri vinur. Það var erfið stund, en afar mikilvæg fyrir okkur hjónin að fá að heim- sækja þig og fjölskyldu þína tveimur dögum fyrir andlátið. Við dáumst að kærleikanum og styrknum sem við fundum fyrir hjá ykkur öllum á þessum erfiðu tímum. Það eru svo margar góðar minn- ingar sem tengjast þér Unnar, að hugurinn lyftist og maður fer fljót- lega aftur að veita fegurðinni í nátt- úrinni og mannlífinu athygli á þess- um fallegu júnídögum en júní mun hafa verið þinn uppáhaldsmánuður. Allt frá því að dætur okkar voru litl- ar fyrir 20 árum og tengdust sterk- um vinaböndum, sem vonandi aldrei rofna, höfum við og fjölskylda þín átt samleið á mörgum leiðum þjóð- lífsins. Við höfum samglaðst á gleði- stundum í lífi dætra okkar, nú síðast í brúðkaupi Eyrúnar og Lalla og skírn Ásthildar litlu og erum afskap- lega þakklát fyrir að eiga þessar minningaar. Minnisstæðastur verð- ur okkur þó þinn frábæri þáttur í starfi Kórs Akureyrarkirkju. Þú spilaðir á píanó en sagðist lengi hafa verið að hugsa um hvort þú gætir sungið í kór. Það voru for- réttindi að fá að sitja við hlið þér er þú byrjaðir í kórnum og finna að fljótlega virtist þér þetta í blóð bor- ið. Í kórnum sýndir þú að þér var gefin mikil tónlistargáfa. Þú varst tilbúinn að gefa þig allan í kórstarf- ið. Það er ekki á neinn hallað þegar sagt er að þú hafir verið einn besti raddformaður sem bassarnir hafa haft í þessum kór. Það þökkum við fyrir og minnumst. Þá er ekki hægt að gleyma þínum þætti í félagslífinu. Þú varst svo sannarlega hrókur alls fagnaðar á hinum mörgu ógleyman- legu skemmtunum og ferðum kórs- ins Hláturinn lengir lífið er sagt. Á þessari stundu vitum við ekki hvort við eigum að trúa því, en hláturinn þinn gleymist ekki og lengir e.t.v. líf samferðamanna þinna. Hann hefur alla vega glatt alla í kringum þig og gætt þá lífi og rifið upp stemningu. Skyldum við nokkurn tíma eiga eftir að hlusta á Dýrin í Hálsaskógi án þess að minnast þín eftir ógleym- anlega rútuferð milli Akureyrar og Reykjavíkur? Við kveðjum frábæran vin með miklum söknuði, en yljum okkur við minningarnar. Enn meiri er þó söknuður fjölskyldunnar og undar- legt hversu gleði- og sorgarstundir eru stundum samtvinnaðar í lífinu, þar sem yngsta dóttirin útskrifast sem stúdent frá MA 17. júní. Elsku Fríða, Lára, Eyrún og Ást- hildur, Margrét, makar, foreldrar og ástvinir, góður Guð styrki ykkur öll á þessum erfiðu tímum. Blessun oss ljær hin bjarta júnínótt! Bætir og nærir, eflir lífsins þrótt. Kvöldsólin skæra lífgar þjáða lund. Lognblíðan færir frið á sorgarstund. Góðvini væra gefin hvíldin er. Guðlegum kærleik umvafinn hann fer! Haraldur og Sigrún. Kæri vinur. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Mér finnst eins og ég hafi kynnst þér í gær. Hvenær ætli það hafi verið sem við urðum svona góðir vinir? Ætli það hafi verið þegar við áttuðum okkur á því að við áttum sameig- inlegt áhugamál, þú þessi harði Liv- erpool áhangandi, ég Leedsari, en hélt svona aðeins upp á liðið þitt, að- allega vegna þess að ég nennti ekki að rökræða við þig né son minn um knattspyrnu, báðir jafn þrjóskir, einnig var gott að vera með þér í liði. Eða urðum við svona nánir vegna þess að við náðum svo vel saman í talsmáta, já stundum var Fríða þín bara hneyksluð á þér og skammaði þig, þú hlóst þínum dásamlega hlátri, sem allir eiga eftir að sakna, kæri vinur, ég hló líka, vegna þess að þú og ég náðum saman, skildum hvorn annan. Heyrðu, nú veit ég, þetta byrjaði allt þegar við hittumst fyrst, á fyrstu æfingunni okkar með Kór Akureyrarkirkju. Mikið var oft gaman á æfingum. Sátum fyrir aftan altinn fyrstu árin, jú oftast syngj- andi, en líka gjammandi, segandi sögur, eða hvíslandi, átti að vera hvísl, en þú veist bassar að hvísla, það var ekki alltaf að virka, jafnvel hlátur á eftir! Altinn snéri sér mjög oft við til að sussa á okkur, hvert einasta “hvísl“ var þess virði, við nutum þess að hittast. Síðar varðstu formaður bassans, það hlutverk tókstu mjög alvarlega, ef maður gleymdi að hringja vegna forfalls, hafðir þú samband og gerðir manni það ljóst að láta vita. Það var ekki ósjaldan sem við fengum okkur bauk, eins og þú kallaðir það, að fá sér einn var yndislegt með þér, kæri vinur. Manstu eina æfingarhelgina niður í kirkju, þú bauðst mér heim í há- deginu, enginn mátti vita, fengum okkur einn. Mikið erum við búnir að ræða um Kórinn okkar. Þú orðinn gjaldkeri, þú blómstraðir þar, enda kórinn, já Kórinn með stóru k-i í þínum augum. Þér þótti mjög vænt um Kór Akureyrarkirkju. Allt sem þú gerðir með kórnum, fyrir kórinn, gerðir þú með það að leiðarljósi að meðlimum kórsins liði vel. Þú ætl- aðir meira að segja vera búinn að kaupa nýja palla fyrir kórinn áður en þú færir í þessa löngu ferð, vannst að því hörðum höndum, elsku vinur, allt fyrir kórinn. Kæri vinur ég ætla að kveðja núna en við hittumst aftur. Elsku Fríða og dætur við Heiða sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur, hans verður sárt saknað en vonum við að minning- arnar um góðan dreng ylji ykkur um ókomna tíð. Lúðvík Áskelsson. Hláturrokurnar voru einstakar og heyrðust langar leiðir. Það var jafn- an ríkjandi gleði og góður andi þar sem Unnar Þór var. Hann var þann- ig maður. Gleðimaður. Ég man eftir Unnari í MA forðum daga. Hann var þremur árum á und- an mér í skólanum og við þekktumst því ekki á þeim árum. Leiðir okkar lágu saman mörgum árum síðar. Í Kór Akureyrarkirkju. Frá fyrsta degi naut Unnar sín vel í þessum góða félagsskap og var virtur og vin- sæll félagi, enda oftar en ekki með bros á vör. Glettinn og gerði grin að sjálfum sér jafnt sem öðrum. Hann var tónelskur og naut þess mjög að syngja. Sem raddformaður í bassanum var hann óspar á að upphefja bassa- röddina, fyrst og fremst á kostnað tenóranna. Eins og venja er til í kór- um. Það ganga jafnan föst skot milli þessara radda – í léttum dúr að sjálfsögðu. Hverjum þykir sinn fugl fagur. Auk þess að vera raddformaður bassanna var Unnar Þór gjaldkeri kórsins til dauðadags og vann það starf af nákvæmni og trúmennsku. Seint verður þakkað allt hans mikla starf í þágu okkar hinna í Kór Ak- ureyrarkirkju. Kær félagi er nú kvaddur. En minningarnar verða ekki frá okkur teknar. Þær munum við varðveita og brosa í gegnum tárin. Það væri í anda Unnars Þórs. Fríðu, dætrum og öðrum ástvin- um sendi ég einlægar samúðar- kveðjur. Óskar Þór Halldórsson Okkar kæri félagi og vinur Unnar Þór er nú fallinn frá eftir harða bar- áttu við þann illvíga sjúkdóm sem felldi hann að lokum. Eftir stöndum við hnípin, sorgmædd yfir örlögum þessa góða drengs sem var okkur svo kær. Við leitum huggunar í ótal góðum minningum um Unnar sem við varðveitum í hugum okkar. Unn- ar var sannur bassi, svolítið óstýri- látur og skvaldurgjarn á æfingum en léttur og bráðskemmtilegur. Eins og aðrir bassar hefur Unnar alltaf skipað sérstakan sess hjá okkur í altinum kannski vegna þess að við eigum það sameiginlegt að vera dimmu raddirnar í kórnum og bass- inn er okkar bakhjarl, þ.e. stendur fyrir aftan okkur. Oftar en ekki mátti heyra hláturroku að aftan eftir eitthvert skvaldrið og allir fóru að hlæja með. Það var þá Unnar sem með sínum góða húmor og léttleika leysti úr læðingi hlátur sem breiddi úr sér um allan kórinn. Þetta var lýsandi fyrir persónu Unnars. Hann bjó yfir þeim hæfileika að virkja fólk og fá það með sér, alltaf á jákvæðum nótum. Það er vandfundinn annar eins persónuleiki. Við vorum svo lánssöm að fá Unnar í embætti gjaldkera Kórs Akureyrarkirkju haustið 2007. Því starfi sinnti hann af mikilli kostgæfni og alúð og lét sér hagsmuni kórsins miklu varða enda mátti sjá að þar fór sannur fag- maður. Við Unnar og stjórnin öll átt- um frábært samstarf og hefði ekki verið hægt að hugsa sér betri gjald- kera og samstarfsfélaga en hann. Fyrir þetta allt erum við ákaflega þakklát. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Fríða, Lára, Eyrún, Mar- grét og ástvinir allir, ykkar missir er mikill og sár. Megi algóður Guð styrkja ykkur og leiða áfram um lífs- ins veg. Blessuð sé minning Unnars Þórs Lárussonar. Fyrir hönd Kórs Akureyrar- kirkju, Anna Jóna Guðmundsdóttir, formaður. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Neshaga 19, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 29. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýju. Alúðarþakkir til starfsfólks Sóltúns fyrir frábæra umönnun. Olga Þórdís Beck, Konráð Beck, Helga Hallgrímsdóttir, Elísabet Kristinsdóttir, Sigmundur Stefánsson, Kristinn Ómar Kristinsson, Inga Anna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn ✝ Ástkær móðir okkar, GYÐA JÓNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, Hlíðarhúsum 7, áður Jökulgrunn 26, Reykjavík, lést laugardaginn 5. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 16. júní kl. 13.00. Jón K. Þórðarson, Úndína Gísladóttir, Fanney M. Þórðardóttir, Magnús Björnsson, Þóranna Þórðardóttir, Þórður Þórðarson, Kristín Sæmundsdóttir, Ágúst Þórðarson, Edda Ólafsdóttir, Ingi Gunnar Þórðarson, Hafdís Helgadóttir, börn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JAKOBSDÓTTIR frá Reykjarfirði, Reykjahlíð 1, Mývatnssveit, lést á heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn 8. júní. Útförin fer fram frá Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 19. júní kl. 14.00. Kristjana Ólöf Valgeirsdóttir, Mark Kr. Brink, Matthildur Herborg Valgeirsdóttir, Jóna Valgerður Valgeirsdóttir, Guðmundur St. Sigurðsson, Guðrún María Valgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR SVEINBJÖRNSSON, Krummahólum 6, Reykjavík, áður Grundafirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi sunnudaginn 13. júní. Kristín V. Þórðardóttir, Björn Karl Þórðarson, Jón Örn Þórðarson, Sigríður Svansdóttir, Erna Hlín Þórðardóttir, Rúnar Þrúðmarsson, barnabörn og barnabarnabörn.                         

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.