Morgunblaðið - 29.06.2010, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2010
íþróttir
Börn og unglingar Fótboltastrákar voru á fullri ferð á Akranesi og í Vestmannaeyjum. Sund-
krakkarnir í Ásvallalauginni og frjálsíþróttaæskan fjölmennti á Kópavogsvöllinn. 2, 3, 6, 7
Íþróttir
mbl.is
Reuters
Skæðir Robinho fagnar marki sínu og þriðja marki Brasilíu gegn nágrönnum sínum í Chile á HM í gærkvöldi. Luis Fabiano var einnig á skotskónum og
skoraði þriðja mark sitt í keppninni. Brasilíumenn mæta Hollendingum í átta liða úrslitum eftir 3:0 sigur á Chile en Holland sló út Slóvakíu.
Landsliðs-
markvörðurinn
Gunnleifur
Gunnleifsson var
rekinn af leik-
velli í síðasta leik
FH í Pepsí-
deildinni í knatt-
spyrnu þegar FH
tapaði 1:2 fyrir
Stjörnunni. Þeg-
ar leikmenn fá
rauða spjaldið fá þeir sjálfkrafa
einn leik í bann og svo er undir aga-
nefnd KSÍ komið hvort leikbannið
verður lengra eða ekki. Gunnleifur
mun hins vegar ekki taka út leik-
bannið í næsta deildarleik sem verð-
ur gegn Keflavík. Þess í stað verður
Gunnleifur í banni þegar FH mætir
1. deildarliði KA í Visa bikarkeppn-
inni. Það er næsti leikur FH-liðsins
en í gær breytti KSÍ leikdegi á leik
FH og KA. Hann átti að fara fram
11. júlí en mun þess í stað fara fram
1. júlí. Var það gert vegna leiks FH
gegn BATE Borisvo í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu sem fram
fer 14. júlí. Erkifjendurnir KA og
Þór áttu einnig að mætast 1. júlí en
munu leika 8. júlí. Vefsíðan fótbolt-
i.net greindi frá. kris@mbl.is
Gunnleifur í
banni gegn KA
Gunnleifur
Gunnleifsson
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Brasilía og Holland mætast í 8-liða úrslitum á HM
í knattspyrnu í Suður-Afríku og fer leikurinn
fram á föstudaginn. Eins og svo oft áður í knatt-
spyrnu endurtekur sagan sig en þessi lið mættust
einnig í 8-liða úrslitum á HM í Bandaríkjunum ár-
ið 1994. Sá leikur var eftirminnilegur enda litu
fimm mörk dagsins ljós. Brasilíumenn höfðu bet-
ur, 3:2, og fóru alla leið og sigruðu. Núverandi
þjálfari liðsins, Dunga, bar þá fyrirliðabandið hjá
Brasilíu.
Leikurinn gegn Hollandi var líklega sá
skemmtilegasti hjá Brasilíu í þeirri keppni því lið-
ið skoraði bara tvö mörk í hinum þremur leikj-
unum að lokinni riðlakeppninni; vann Bandaríkin
og Svíþjóð 1:0 en vann Ítali í vítaspyrnukeppni
eftir markalaust jafntefli í úrslitaleiknum. Von-
andi verður leikurinn á föstudaginn eins og fjör-
ugur og leikur liðanna var fyrir sextán árum.
Brasilíumenn hafa verið afar sannfærandi í
keppninni og þeir skoruðu þrjú mörk gegn Chile í
16-liða úrslitunum í gærkvöldi. Þar af skoraði
Luis Fabiano eitt og hann virðist ætla að blanda
sér í baráttuna um markakóngstitilinn. Robinho
var einnig á skotskónum og það verða að teljast
góð tíðindi fyrir Brasilíu en hann náði ekki að
blómstra í riðlakeppninni.
Robben snöggur að láta til sín taka
Það tók Arjen Robben ekki nema 18 mínútur að
skora fyrir Hollendinga gegn Slóvökum í 16-liða
úrslitum í Suður-Afríku í gær þar sem Hollend-
ingar sigruðu, 2:1. Robben átti frábæru gengi að
fagna með Bayern München í vetur en meiddist
sex dögum fyrir HM. Hann var í aukahlutverki í
riðlakeppninni en hafði mjög góð áhrif á leik Hol-
lendinga í gær. Hann er þó varkár í yfirlýsingum
á blaðamannafundi að leiknum loknum.
„Ef maður skoðar markið út frá meiðslunum þá
var það stórt skref fyrir mig. Þetta var langur
sprettur og við slíkar kringumstæður þarf maður
að hafa sprengikraftinn í lagi. Heilt yfir fékk ég
talsvert frelsi í leiknum en ég veit að ég er ekki
kominn í mitt besta form. Þetta var erfiður leikur
og við spiluðum ekki eins og við getum best en
þetta snýst um að vinna leikina. Vonandi sýnum
við okkar allra bestu hliðar þegar við þurfum á því
að halda,“ sagði Robben sem fékk tækifæri í byrj-
unarliðinu þar sem Rafael van der Vaart var ekki
leikfær vegna meiðsla. „Það var frábær reynsla
að fá að vera inná frá byrjun og ná að leggja eitt-
hvað af mörkum fyrir liðið. Það er frábær tilfinn-
ing,“ sagði Robben ennfremur en fjölmiðlar fóru í
gærkvöldi mörgum orðum um hversu mikil og góð
áhrif Robben hefði haft á hollenska liðið.
Sagan endurtekur sig
Verður leikur Brasilíu og Hollands jafnfjörugur og árið 1994? Hollendingar
fá annað tækifæri gegn Dunga Robben kom með nýja vídd inn í leik Hollands
Tómas Holton
hefur verið ráð-
inn nýr þjálfari
meistaraflokks
karla hjá Fjölni í
körfuknattleik í
stað Bárðar Ey-
þórssonar sem
hætti af persónu-
legum ástæðum.
„Þetta kom
bara upp á föstu-
daginn, þegar ég frétti að Bárður
væri hættur. Ég bað um umhugs-
unarfrest fram yfir helgi en var bú-
inn að ákveða mig strax á laug-
ardag,“ sagði Tómas sem hefur
áður þjálfað yngri flokka Fjölnis og
þekkir því vel hve efnilegum mann-
skap liðið hefur yfir að ráða.
„Þetta eru strákar sem ég hef
þjálfað í yngri flokkunum og eru
mjög spennandi hópur, og þeir voru
aðalástæðan fyrir því að ég ákvað
að taka við. Það er gaman þegar lið
byggist svona á heimamönnum og
þeir stóðu sig vel á síðustu leiktíð,“
sagði Tómas en Fjölnir varð í 9.
sæti á síðustu leiktíð í Iceland Ex-
press-deildinni.
Tómas var spilandi þjálfari hjá
Val og Skallagrími í mörg ár í lok
síðustu aldar en er að verða 46 ára
og mun því líklega lítið spila sjálfur
að þessu sinni.
„Þetta verður nýtt fyrir mér. Nú
get ég ekki sett sjálfan mig inn á
lengur,“ sagði Tómas léttur.
sindris@mbl.is
Tómas tekur
við af Bárði
hjá Fjölni
Bárður
Eyþórsson