Morgunblaðið - 29.06.2010, Page 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2010
Erla SteinaArnardóttir
átti stórleik í
vörn Kristians-
tad þegar liðið
gerði jafntefli við
Kopparbergs/
Göteborg, 1:1, í
sænsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu á sunnu-
daginn. Henni var sérstaklega
hrósað í umfjöllun damfotboll.com
um leikinn en eins og áður kom
fram var það Katrín Ómarsdóttir
sem skoraði mark Kristianstad úr
vítaspyrnu, og hélt þar með upp á
23 ára afmælið sitt sama dag. Erla
Steina hefur ekki gefið kost á sér í
íslenska landsliðið á þessu ári en
hún á 40 landsleiki að baki, alla
sem miðjumaður. Í ár hefur hún
hins vegar leikið stöðu miðvarðar
með Kristianstad með góðum ár-
angri.
Erla Steina þakkaði ElísabetuGunnarsdóttur þjálfara góða
frammistöðu liðsins í viðtali við
damfootball.com. „Við leikmenn-
irnir viljum þakka Betu sérstaklega
en hún tók þá djörfu ákvörðun að
breyta um leikaðferð fyrir leikinn,“
sagði Erla sem stjórnaði vörn
Kristianstad í leikaðferðinni 3-5-2.
Arnór Smára-son, lands-
liðsmaður í
knattspyrnu,
gerði sér lítið
fyrir og skoraði
eftir aðeins 33
mínútur í bún-
ingi síns nýja fé-
lags, Esbjerg frá
Danmörku, þeg-
ar liðið tapaði 5:2 fyrir Viking frá
Noregi í æfingaleik í fyrradag.
Arnór lék aðeins fyrri hálfleikinn
en eftir hann var staðan 2:1 Viking
í vil. Jafnaldri Arnórs, Birkir
Bjarnason, skoraði einnig í leikn-
um, fyrir Viking, eins og áður hefur
komið fram.
Fílabeinsstrendingurinn YayaTouré mun ganga í raðir
Manchester City á næstu dögum að
sögn umboðsmanns leikmannsins.
Touré hefur leikið með Barcelona
undanfarin ár en hjá Manchester-
liðinu mun hann hitta fyrir bróður
sinn, Kolo Touré. Yaya Touré er 27
ára gamall miðjumaður sem gekk
til liðs við Barcelona frá Mónakó
árið 2007. Hann hefur verið fasta-
maður í landsliði Fílabeinsstrand-
arinnar frá árinu 2004 og leikið 49
landsleiki.
Jean-PierreEscalettes,
forseti franska
knattspyrnu-
sambandsins, til-
kynnti í gær-
morgun að hann
hefði ákveðið að
segja embætti
sínu lausu. Þannig segist hann axla
ábyrgð á slökum árangri franska
landsliðsins á heimsmeistaramótinu
í knattspyrnu. Nicolas Sarkozy,
forseti Frakklands, sagði á dög-
unum að Escalettes ætti að axla
sína ábyrgð á hrakförum franska
landsliðsins og segja af sér. Tals-
maður FIFA sagði að það kæmi
Frakklandsforseta ekki við hver
sæti í stól forseta franska knatt-
spyrnusambandsins. Það væri ekki
hans hlutverk að blanda sér í
stjórnun þess. FIFA lítur afskipti
stjórnmálamanna af innanbúð-
armálum einstakra knattspyrnu-
sambanda mjög alvarlegum augum.
Talsmaður FIFA sagði á dögunum
að ekki væri hægt að útiloka að
franskri knattspyrnu yrði á ein-
hvern hátt meinuð þátttaka í móta-
haldi á vegum FIFA sönnuðust
pólitísk afskipti af stjórn knatt-
spyrnusambandsins.
Fólk sport@mbl.is
Ekki kemur til greina af hálfu Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins að
dómarar geti litið á sjónvarps-
upptökur af kappleikjum til þess
að dæma eftir. Ekki verður settur
upp sérstakur búnaður í mörkum
til upptöku sem dómararnir geta
skoðað né verða skynjarar settir í
keppnisbolta. Jerome Valcke,
framkvæmdastjóri FIFA, segir að
engar hugmyndir af þessu tagi
hafi verið til umræðu innan sam-
bandsins.
„Það kemur hins vegar fyllilega
til greina að fjölga aðstoðardóm-
urum um tvo og hafa þá fyrir aft-
an mörkin, eins og gerðar hafa
verið tilraunir með. Slíkt gæti
hjálpað dómurum verulega við að
skera úr um vafaatriði. Lengra
hefur FIFA ekki hugsað sér að
ganga. Ekki kemur til greina að
dómarar fái að skoða upptökur af
atvikum til að skera úr um vafaat-
riði,“ segir Valcke.
FIFA hefur algjörlega neitað
að tjá sig um þau mistök dómara
sem gerð voru í viðureign Eng-
lendinga og Þjóðverja þegar lög-
legt mark Englendinga var ekki
dæmt og eins þegar rang-
stöðumark Argentínumanna gegn
Mexíkó fékk að standa.
iben@mbl.is
Engin aðstoð myndavéla
Reuters
Mark Manuel Neuer, markvörður Þýskalands, horfir á eftir
boltanum sem hafnaði innan marklínunnar.
í umsjón mótsstjórnar
umanna og því gæti
nnað gert en óskað eft-
ýningum verði hætt á
llanna.
mótsstjórnar, Jer-
sagði leikina vera
m leikvallanna sem
ngdir við sjónvarps-
sem færu um allan
gt væri að hætta end-
á atvikum. „Þetta
vegar svo hratt að
kki komið í veg fyrir
endursýnt. Kannski
tök,“ sagði Craig.
aðar?
Fimmfaldir heimsmeistarar í knatt-
spyrnu karla, Brasilía, stormuðu í 8-
liða úrslit keppninnar í Suður-Afríku
í gærkvöldi. Brasilía skellti nágrönn-
um sínum frá Chile, 3:0, sem eru með
skemmtilegt lið og töldu ýmsir spark-
spekingar að þeir myndu veita Bras-
ilíumönnum verðuga keppni. Hol-
lendingar bíða Brasilíumanna í átta
liða úrslitum keppnninnar.
Brasilíumenn gerðu nánast út um
leikinn á þriggja mínútna kafla í fyrri
hálfleik. Miðvörðurinn Juan skoraði
með hörkuskalla eftir hornspyrnu á
35. mínútu og aðeins þremur mín-
útum síðar skoraði Luis Fabiano eftir
vel útfærða skyndisókn þar sem hann
komst einn gegn markverði Chile.
Robinho innsiglaði sigurinn á 59. mín-
útu með viðstöðulausu skoti frá víta-
teigslínu.
„Gefur okkur sjálfstraust að
vinna með sannfærandi hætti“
Maicon bakvörður Inter Milan hef-
ur vakið mikla athygli fyrir leik sinn
með Brasilíu í keppninni. „Það er allt-
af mikilvægt að vinna. Það gefur okk-
ur sjálfstraust að vinna með svo sann-
færandi hætti í jafn mikilvægum leik
og þessum í 16-liða úrslitum HM,“
sagði Maicon á blaðamannafundi í
gærkvöldi. Hann sagðist reikna með
mjög erfiðum leik gegn Hollandi.
„Holland er með afar sterka vörn.
Það verður erfiður leikur. Við munum
kortleggja leik þeirra til þess að ekk-
ert komi okkur á óvart og til þess að
við getum átt góðan leik. Það þekkja
allir hollenska landsliðið og þeirra
frábæru leikmenn. Við þurfum að
eiga góðan leik til þess að komast
áfram í keppninni,“ bætti Maicon við.
Leyndi ekki vonbrigðum sínum
Marcelo Bielsa, þjálfari Chile, við-
urkenndi að nokkuð hefði vantað upp
á hjá hans mönnum til þess að eiga
möguleika á því að slá Brasilíu út úr
keppninni. „Við vonuðumst til þess að
geta haldið betur í við Brasilíumenn-
ina. Þetta var ekki jafn mikil ein-
stefna og úrslitin gefa til kynna. Við
sköpuðum okkur nokkur góð mark-
tækifæri með því að sækja upp hægri
kantinn. Okkur skorti hins vegar
meiri áræðni til þess að breyta hættu-
legum sóknum í mörk. Við vorum
ekki nógu hungraðir í sókninni. Við
reyndum að skora og komumst ná-
lægt því en dauðafærin voru ekki
mörg,“ sagði Bielsa við blaðamenn að
leiknum loknum en hann er frá Arg-
entínu.
Honum tókst að koma Chile í loka-
keppni HM í fyrsta skipti síðan 1998
en var engu að síður vonsvikinn með
niðurstöðuna. „Það er ekki hægt að
yfirgefa svona keppni án þess að vera
vonsvikinn. Maður myndi gefa hvað
sem er til þess að fá að halda áfram.
Ég er bæði hryggur og vonsvikinn,“
sagði Bielsa ennfremur og hann var
spurður af hollenskum blaðamanni
hvort hann sæi einhverja veikleika á
liði Brasilíumanna sem Hollendingar
gætu nýtt sér. „Ég hef svo sem ekki
kynnt mér hollenska liðið neitt sér-
staklega vel en hvernig get ég talað
um veikleika hjá Brasilíu eftir að hafa
tapað 0:3 fyrir þeim?“ var svarið hjá
Bielsa.
Gott jafnvægi í liðinu
Miðjumaðurinn Gilberto da Silva
segir mikið og gott jafnvægi vera á
milli varnar og sóknar hjá Brasilíu.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að vera
áfram eins þéttir og við höfum verið.
Það er einnig mikilvægt fyrir okkur
að verjast vel, því það gefur sókn-
armönnum okkar tækifæri til þess að
vinna sína vinnu frammi á vellinum.
Þetta er það jafnvægi sem við þurfum
ef við ætlum okkur að komast
alla leið í keppninni,“ sagði Gil-
berto þegar niðurstaðan lá fyrir í
gærkvöldi. kris@mbl.is
Brasilíumenn stormuðu
fram hjá góðu liði Chile
Næsta hindrun verður erfiðari en Hollendingar bíða þeirra í átta liða úrslitum
Reuters
Mark Brasilíumenn fagna marki gegn Chile í gærkvöldi en markvörðurinn
Bravo er ekki upplitsdjarfur enda fékk hann á sig þrjú mörk.
Grannþjóðirnar Spánn og Portúgal
eigast við í kvöld í fyrsta skipti á
HM þar sem sæti í 8-liða úrslit-
unum er í húfi. Miðað við FIFA-
listann er þetta stórleikur keppn-
innar til þessa því þar sitja þessi lið
í öðru og þriðja sæti, á eftir Bras-
ilíu.
Portúgal hefur aðeins náð að
sigra Spán fimm sinnum í 32 lands-
leikjum þjóðanna en hafði þó betur
þegar þær mættust í Evrópukeppn-
inni í Portúgal fyrir sex árum, 1:0.
„Portúgal er frábært lið og meira
en bara Cristiano Ronaldo. Vissu-
lega er hann einn þeirra bestu
manna en gleymum því ekki að
Portúgal er eina liðið sem ekki hef-
ur fengið á sig mark í keppninni,“
sagði Vicente del Bosque, þjálfari
Spánverja, um grannaslaginn.
„Við erum tilbúnir í allt og í þess-
um leik er allt undir. Markmiðið er
aðeins eitt, að halda áfram í keppn-
inni. Portúgal á enn eftir að sýna
sínar bestu hliðar,“ sagði þjálfari
liðsins, Carlos Queiroz.
Paragvæ og Japan eigast við í
fyrri leik dagsins en þar eru á ferð
tvö lið sem hafa vakið athygli í
keppninni. Paragvæ vann sinn riðil
og Japan lagði bæði Danmörku og
Kamerún að velli.
„Það er erfitt að spila gegn Jap-
önum sem eru fljótir og beittir og
eru með leikmenn sem geta gjör-
breytt leikjum,“ sagði Roque Santa
Cruz, sóknarmaður Paragvæja.
Japanir hafa hiklaust stefnt að
því að komast í undanúrslitin á HM
en þjálfarinn Takeshi Okada lýsti
því yfir strax og lið hans var búið
að tryggja sér þátttökuréttinn á
síðasta ári. Yasuhito Endo, leik-
maður ársins í Asíu sem skoraði
glæsimark úr aukaspyrnu gegn
Danmörku, segir að það markmið
hafi ekkert breyst.
„Ég er bjartsýnn á að við náum
markmiði okkar og vonast eftir
góðum úrslitum í næstu leikjum.
Paragvæ verður erfiður andstæð-
ingur. Lið þeirra er ekki ósvipað
okkar, leikmenn sem leggja hart að
sér og skapa margt,“ sagði Endo
um viðureignina í dag. vs@mbl.is
„Portúgal er meira en Cristiano Ronaldo“