Morgunblaðið - 29.06.2010, Side 7
Íþróttir 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2010
Stærsta sundmóti ársins, Aldurs-
flokkameistaramóti Íslands (AMÍ),
lauk síðdegis á sunnudag í Ásvalla-
laug í Hafnarfirði en það hafði þá
staðið yfir í fjóra daga.
Keppendur voru um 300 frá 16
félögum, víða að af landinu.
Mótið er fyrir keppendur 12 til 18
ára, en einnig taka 19-20 ára kepp-
endur þátt í mótinu en árangur
þeirra er ekki talinn með í stiga-
keppni mótsins.
Mótið er í senn einstaklings-
keppni og liðakeppni, krýndir eru
aldursflokkameistarar í hverjum
aldursflokki og félög safna stigum í
liðakeppninni.
Kristinn Þórarinsson, Fjölni,
setti níu met í drengjaflokki og
Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi, setti
þrjú stúlknamet og eitt Íslandsmet í
flokki fullorðinna, en sjaldan eru
slegin met í fullorðinsflokki á AMÍ.
Boðsundssveit Sundfélags Hafn-
arfjarðar setti piltamet í 200 metra
skriðsundi þegar sveitin synti á
tímanum 1.38,48 mín. Sveitina skip-
uðu þeir Njáll Þrastarson, Aron Ö.
Stefánsson, Kolbeinn Hrafnkelsson
og Sigurður Friðrik Kristjánsson.
Þá setti telpnasveit ÍRB met í
4x100 metra fjórsundi á tímanum
4.39,61. Sveitina skipuðu þær Íris
Dögg Ingvadóttir, Ólöf Edda Eð-
varðsdóttir, Jóhanna Júlíusdóttir
og Hólmfríður Rún Guðmunds-
dóttir.
Sundfélagið Ægir hlaut flest stig
á mótinu, ÍRB varð í öðru sæti og
SH í því þriðja.
Kristinn Ingvarsson ljósmyndari
Morgunblaðsins leit við í Ásvalla-
laug og tók meðfylgjandi myndir.
iben@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Líf og fjör á AMÍ
í Ásvallalaug