Framsóknarblaðið - 27.06.1963, Qupperneq 1
Útgefandi
Framsóknarfélag
Vestmannaevia.
Málgagn Framsóknar- og sam-
vinnumanna í Vestmannaeyjum
26. árgangur.
Vestmannaeyjum, 27. júní 1963
13. tölublað.
Glæsilegur kosningarsigur Fram-
sóknarflokksins
í Suðurlandskjördæmi
Ótvíræð íylgisaukning Framsóknarmanna í Vestmannaeyjum
Ágúst Þorvaldssoi
Björn Fr. Björnsson.
Til Framsóknarmanna
og annarra stuðningsmanno B-listans í
Vestmannaeyjum.
Beztu þakkir færum við Framsóknar-
mönnum hér og stuðningsmönnum B-list-
ans við nýafstaðnar kosningar- Sérstaklega
þökkum við starfsfólki öllu, er vann af
miklum óhuga og dugnaði ó kosningadag-
inn — og fyrir hann - ó skrifstofu flokksins.
Starf ykkar hefur borið góðan órangur,
með glæsilegum sigri Framsóknarflokksins
í Suðurlandskjördæmi. Megi það verða
okkur öllum hvöt til meiri sigra fyrir þjóð-
málabaróttu Framsóknarflokksins.
Fremsókrtairféíögín § Vestmannoeyjum.
Helgi Bergs
Þótt allir stjóramálatlokkarn-
ir reyni nú að loknum alþingis-
kosningum að túlka úrslitin sér
í vil, er ótvírætt, að Framsókn-
arflokkurinn bar sigur af liólmi.
Hann hélt öllum fyrri þingsæt-
um, og vann tvö ný, annað af
Sjálfstæðisflokknum í Reykja-
vík, hitt af Alþýðubandalaginu
hér í Suðurlandskjördæmi.
Framsóknarflokkurinn fékk nú
19 þinginenn en hafði 17 áður.
Sjálfstæðisflokkurinn vann upp-
bótarsæti frá Alþýðuflokknum
og lieldur sömu þingmannatölu
og áður, 24. Alþýðubandalagið
tapaði einu þingsæti og hefur nú
9 þingmenn. Alþýðuflokkurinn
missti líka einn mann og á 8
fulltrúa á Alþingi. Framsóknar-
flokkurinn hefur í heild bætt
við sig 3328 atkvæðum frá því
í síðustu Alþitrgiskosningum og
er það 15,7% fylgisaukning.
Hlutfallslega hefur flokkurinn
bætt aðstöðu sína, þar sem hann
fær nú 28,2% gildra atkvæða,
en hafði síðast 25,7%.
Að þessu sinni gengu 7099
fleiri kjósendur að kjörborðinu
en í haustkosningunum 1959.
Af þessum nýju kjósendum fær
Framsóknarflokkurinn fast að
helmingi eða 3328 atkvæði.
Hins vegar fá stjórnarflokkarnir
samanlagt aðeins 2891 atkvæði
af þessari aukningu. Alþýðu-
flokkurinn fékk eins og efni
stóðu til slæma útreið í
kosningunum. Hann missti alla
aukninguna og 226 atkvæði til
viðbótar. Alþýðubandalagið
gerði eins og kunnugt er banda
lag við Þjóðvarnarflokkinn, en
þeir flokkar höfðu samanlagt
atkvæðamagn í haustkosningun-
urn 1959 15904 atkvæði. Nú
fengu þeir aðeins 14275 atkvæði.
eða 654 atkvæði fram yfir það,
sem Alþýðubandalagið hlaut
1959- Sjálfstæðismenn bættu við
sig rúmlega'3000 atkvæðum mið
að við haustkosningarnar 1959,
en þá fengu þeir miklu lakari
útkomu en í vorkosningunum.
Séu kosningatölur frá 1956 og
frá vorkosningunum 1959 tekn-
ar til samanburðar kemur í ljós,
að kosningaúrslit Sjálfstæðis-
flokksins eru síður en svo hag-
stæð fyrir hann, þar sem hlut-
fallstalan hefur lækkað .
Eins og fram er komið misstu
stjórnarflokkarnir einn þing-
mann í kosningunum og má nú
ekki tæpara standa, að ríkistjórn
in haldi velli. Þrátt fyrir veikan
meirihluta mun ríkisstjórnin
sitja meðan sætt er, og senni-
lega halda áfram að varða leið-
ina „til hinna gömlu góðu
daga“. Hinsvegar mun aukinn
þingstyrkur og vaxandi gengi
Framsóknarflokksins verða afl-
vaki áframhaldandi baráttu um-
bótaaflanna í landinu.