Morgunblaðið - 17.08.2010, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2010
FRÉTTASKÝRING
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Þetta er ákvörðun sem liggur fyrir í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokk-
anna. Þetta er forgangsmál ríkis-
stjórnarinnar í náttúruverndar-
málum. Þar með talið erum við
auðvitað að slá af virkjanaáform á
svæðinu,“ segir Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra. Henni
þykir undarlegt ef nú á að gera deilu-
mál úr verndun Þjórsárvera, sem
stjórnmálamenn hafi verið sammála
um um árabil.
Svandís staðfestir einnig að fyrir-
hugað sé að taka Norðlingaölduveitu
út fyrir vinnu rammaáætlunar um
vernd og nýtingu náttúrusvæða. „Ef
það er ekki pólitískur vilji til að fara í
þessa virkjun og það er pólitískur
vilji til að forgangsraða þessu svæði í
þágu náttúruverndar, þá þarf það
ekki á yfirferð rammaáætlunar að
halda,“ segir hún.
Norðlingaölduveita fékk slæma út-
reið í 1. áfanga rammaáætlunar. Þar
fékk hún umhverfiseinkunnina D, en
aðeins Kárahnjúkavirkjun og Mark-
arfljótsvirkjanir fengu verri einkunn.
Áformin hafa verið minnkuð talsvert
frá því sem þá var. En væri þá ekki
gott að fá einfaldlega faglegt mat
rammaáætlunar á þessum kosti?
„Jú, í sjálfu sér, en við þurfum að
læra að horfa á svæði með það fyrir
augum að þau eigi fyrst og fremst er-
indi inn í friðlýsingu. Okkur ber
skylda gagnvart komandi kynslóðum,
framtíðinni og náttúrunni til að taka
sum svæði frá. Þetta er slíkt svæði.
Þá eigum við að anda með nefinu í
stað þess að líta á alla kosti sem
væntanlega orkuöflunarkosti,“ svar-
ar Svandís.
Glórulaus hugmynd
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, er á algerlega
öndverðum meiði. „Þetta eru glóru-
lausar hugmyndir,“ segir hann.
Landsvirkjun hafi kostað miklu til
undirbúningsins og ekki síst þess að
lágmarka umhverfisáhrifin. Áformin
í dag sé ekki hægt að bera saman við
það sem upphaflega var talað um.
„Þetta er hagkvæmasti orkukost-
urinn sem við höfum í stöðunni. En
allir kraftar ríkisstjórnarinnar fara í
að koma í veg fyrir uppbyggingar- og
framfaramál.“
Allt viðkvæmasta og verðmætasta
svæðið hafi verið
friðlýst og það
litla lón sem eftir
sé í áformunum
valdi því sem
næst engum um-
hverfisáhrifum.
„Það er ekkert
nema öfgastefna
að leggja á það
áherslu að slá
kost eins og þenn-
an út af borðinu,“ segir Bjarni.
Þingmenn Hreyfingarinnar eru
fylgjandi fyrirætlunum Svandísar og
segir Margrét Tryggvadóttir að nátt-
úran eigi að njóta vafans á þessum
stað. Hún sé fylgjandi því að frið-
landið verði stækkað til suðurs.
Birkir Jón Jónsson, varaformaður
Framsóknarflokksins, segir þetta
koma sér verulega á óvart, sér-
staklega það að taka framkvæmdina
alveg út úr rammaáætlun. Nú séu lið-
in allnokkur ár síðan Jón Kristjáns-
son, settur umhverfisráðherra, úr-
skurðaði að lónið skyldi ekki ná inn í
friðland.
„Almenn sátt var á sínum tíma um
það í samfélaginu. Síðan þá hefur
mikil nýliðun átt sér stað á Alþingi.
Ef Svandísi er alvara með að stunda
lýðræðisleg vinnubrögð er eðlilegt að
þetta sé inni í rammáætlun og allir al-
þingismenn komi að því að móta
stefnuna í þessu máli,“ segir Birkir
Jón.
Þetta muni þrengja til muna mögu-
leikana á því að efla atvinnulífið, sem
mikið sé kallað eftir núna. Hann
kveðst þurfa að kynna sér málið al-
mennilega áður en hann geti kveðið
upp úr um hvort núverandi áform séu
góð eða ekki.
Sátt hafði tekist árið 2007
Þegar tekist var á um þetta árið
2007 skipaði þáverandi umhverf-
isráðherra, Jónína Bjartmarz, starfs-
hóp um stækkun friðlandsins. Hóp-
urinn lagði til stórlega stækkað
friðland til austurs og vesturs en ekki
suðurs og skildi Eyvafen eftir utan
friðlandsins í sínum tillögum.
Á þeim tíma voru fulltrúar allra
flokka á Alþingi fylgjandi því að
Þjórsárver yrðu friðuð og vildi Jónína
að friðlandið yrði stækkað til suðurs.
Þá sagði Þorgerður K. Gunnars-
dóttir, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, að horfið væri frá því að
nota þetta svæði fyrir veitu. „Það eru
aðrir virkjunarkostir í umræðunni,
en ekki þetta svæði,“ sagði hún þá.
Óeining um friðlýsinguna
Svandís vill slá endanlega af áform Landsvirkjunar í neðri mörkum Þjórsárvera
Bjarni Benediktsson segir hugmyndina glórulausa tilraun til að stöðva framfarir
Norðlingaölduveita
Mynd: Landsvirkjun
Norðlingaöldustífla
Lónshæð: 567,5 m.y.s.
Flatarmál: 4,9 km2
Aðrennslisgöng
Yfirfall
Þjórsá
Svartá
Þ j ó r s á r v e r
Arnarfell hið mikla
Hofsjökull
Eyvafen
Hofsjökull
Kerlingar-
fjöll Friðland íÞjórsárverum
Kv
ísl
av
eit
a
Norðlinga-
öldulón
Grunnkort: LMÍ
Svandís
Svavarsdóttir
Með Norðlingaölduveitu yrði vatni dælt um göng (upp í
móti) yfir í Þórisvatn. Í stað þess að vatnið félli þannig
úr verunum eftir farvegi Þjórsár niður í Sultar-
tangalón, færi flaumurinn í gegnum Vatnsfells-, Sig-
öldu-, Hrauneyjafoss- og Búðarhálsvirkjanir, áður en
hann kæmi að Sultartanga. Þær virkjanir myndu því
nýtast betur og í því felst hagkvæmni Norðlingaöldu-
veitu. Hún er hvorki virkjun né miðlun. Hún er veita þar
sem vatni er beint í aðra átt en það rennur.
Upphaflega var áætlað tæplega 30 ferkílómetra lón,
sem hefði sökkt sex ferkílómetrum af friðlandi Þjórs-
árvera. Með úrskurði Jóns Kristjánssonar, setts um-
hverfisráðherra, í janúar 2003, varð hæsta leyfi-
lega lónhæð 575 m.y.s., sem færði lónið
út úr friðlandinu.
Flestir eru nú sammála um að
það hafi verið nauðsynleg aðgerð
en enn eru deildar meiningar um
það hvort friðlandið hafi náð
æskilegri stærð. Segja margir
að suðurmörk þess séu í raun
dregin þvert á gróður- og vot-
lendi Þjórsárvera. Þótt fyrir-
hugað veitulón sé nú utan
friðlandsins sé dýrmætt
gróðurlendi Þjórsárvera það
líka. Þess vegna eigi ekki að raska svæðinu, heldur
þvert á móti stækka friðlandið.
Norðlingaölduveita með lónhæð 575 m.y.s. fékk um-
hverfiseinkunn D í 1. áfanga rammaáætlunar, en hagn-
aðar- og arðsemiseinkunn B. Sem sagt slæma
einkunn. Áformin sem nú eru uppi og vísað var til í
Morgunblaðinu í gær, gera hins vegar ráð fyrir mun
minna lóni, eða allt að 567,5 metra lónhæð yfir sjávar-
máli og allt að fimm ferkílómetra lóni. Önnur enn
minni útfærsla miðar við 566 metra hæð og þriggja
ferkílómetra lón. Í þessari útfærslu eyðast samt sem
áður 20 hektarar af gróðurlendi Þjórsárvera,
utan friðlandsins, samkvæmt gögnum Lands-
virkjunar. Vatnið í fossinum Dynk minnkar
þá líka.
Áformin eru nú í bið skv. ákvörðun
stjórnar Landsvirkjunar. Hörður Arn-
arson, forstjóri Landsvirkjunar, vildi
ekki tjá sig um málið í gær, en sagði
stefnu stjórnvalda ráða því hvar
Landsvirkjun framkvæmdi. Stefna
ríkisstjórnarinnar, og reyndar ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar þar á undan líka, hefur verið
að stækka friðlandið, svo það nái yfir
hið sérstaka votlendi Þjórsárvera.
Utan friðlands en nær inn á gróðurlendið
ÁFORMIN VIÐ NORÐLINGAÖLDU HAFA MINNKAÐ MIKIÐ
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar
Stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur mun
marka stefnu um
gjaldskrá fyrir-
tækisins fyrir
næstu mán-
aðamót. Ekki
liggur fyrir
hversu miklar
breytingar verða
gerðar, en stjórn
OR ræddi fjár-
hagsúttekt á fyrirtækinu á fundi í
gær. Stjórnin fundar aftur um málið
í dag.
„Við ætlum ekki bara að hækka
gjaldskrána heldur samhliða að taka
á rekstrarkostnaði og öðrum þáttum
eins og kostur er,“ sagði Haraldur
Flosi Tryggvason, stjórnarformaður
OR. Hann sagðist gera ráð fyrir að
gerð yrði grein fyrir breytingum á
rekstri fyrirtækisins samhliða gjald-
skrárbreytingum.
Haraldur sagði að það væri flókið
mál að gera breytingar í þessa veru
og þess vegna þyrfti að fara vel yfir
fjárhag fyrirtækisins. Skoða þyrfti
tekjuhlið í samhengi við útgjöld.
Haraldur sagðist ekki geta svarað
því hvort gerðar yrðu breytingar á
gjaldskrá á bæði vatni og rafmagni.
Hann sagðist heldur ekki geta svar-
að því hversu miklar tekjur fyrir-
tækið þyrfti að fá með gjaldskrár-
hækkunum. Stjórnin ætti eftir að
fara betur yfir alla þætti málsins áð-
ur en endanlegar ákvarðanir yrðu
teknar, en þær yrðu tilkynntar á
næstu dögum. egol@mbl.is
Gjaldskrá
breytt um
mánaðamót
Haraldur Flosi
Tryggvason
Útgjöld OR verða
dregin saman
ódýrt fyrir heimilið
Del Castello spaghetti,
lasagne og fusilli
229 kr.pk.
Þótt mjög hafi
dregið úr virkni
eldstöðvarinnar í
Eyjafjallajökli
vilja vísinda-
menn ekki enn
lýsa yfir goslok-
um. Sigurlaug
Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur hjá
Veðurstofunni, segir að enn geti
liðið vikur eða mánuðir þar til slík
yfirlýsing verði gefin.
Sigurlaug segir við AP-
fréttastofuna að mesta hættan stafi
nú af eðjuflóðum vegna ösku sem er
á Eyjafjallajökli og í hlíðum hans.
Viðbúnaður var um helgina undir
Eyjafjöllum vegna þess að hætta
var talin á eðjuflóðum.
Ekki tilbúnir að lýsa
strax yfir goslokum