Morgunblaðið - 17.08.2010, Síða 14
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Líkur á því að Norðurturninn ehf.
þurfi að lýsa yfir gjaldþroti hafa
aukist eftir að Hæstiréttur felldi
niður úrskurð héraðsdóms um
áframhaldandi greiðslustöðvun
fyrirtækisins. Stjórnarformaður
Norðurturnsins, Helgi Hólmar
Ófeigsson, segir að stjórn félagsins
muni þurfa að funda um málið og
hún muni gera það innan skamms.
„Þetta hefur hins vegar óneitanlega
þau áhrif að gjaldþrot er líklegra en
það var fyrir úrskurðinn,“ segir
hann. Norðurturninn ehf. á sam-
nefnda turnbyggingu við Smáralind
og hafði stærstur hluti kröfuhafa
samþykkt greiðslustöðvun félagsins
svo hægt væri að klára framkvæmd-
ir við turninn.
Sigurbjörn Þorbergsson, sem á
100 milljóna króna kröfu á Norður-
turn ehf. með fyrsta veðrétti í turn-
inum sjálfum, vildi hins vegar ekki
samþykkja áframhaldandi greiðslu-
stöðvun og kærði úrskurð héraðs-
dóms til Hæstaréttar.
Í úrskurði Hæstaréttar segir að
málatilbúnaði Norðurturns ehf. í
beiðnum um greiðslustöðvun og
áframhald hennar hafi verið í mörg-
um atriðum áfátt.
Í engu hafi verið getið um mark-
aðsverð fasteignarinnar, á hendur
hverjum kröfur Norðurturns væru
eða nánar hvert væri handbært fé.
Mjög hafi skort á að fram kæmi í
upphaflegri beiðni Norðurturns
ítarleg greinargerð um hvað ylli
verulegum fjárhagsörðugleikum fé-
lagsins, í hverju þeir fælust og
hvernig það hygðist leysa úr þeim.
Þá hafi yfirlýsing löggilts endur-
skoðanda um að bókhald Norður-
turns væri í lögboðnu formi fyrst
komið fram í málinu með greinar-
gerð fyrir Hæstarétti. Vegna þess-
ara annmarka á málatilbúnaði
Norðurturns taldi Hæstiréttur að
héraðsdómi hefði verið ófært að
meta hvort fyrirmæli laga kynnu að
standa í vegi fyrir því að Norður-
turni yrði veitt heimild til áfram-
haldandi greiðslustöðvunar.
Líkur hafa aukist á
gjaldþroti Norðurturns
Hæstiréttur felldi úr gildi úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi greiðslu-
stöðvun Norðurturnsins ehf. Stjórn félagsins mun funda um málið innan tíðar
Norðurturninn
» Norðurturninn ehf. var
dótturfélag Fasteignafélags Ís-
lands sem einnig átti Smára-
lind.
» Fasteignafélag Íslands var
að stærstum hluta í eigu Sax-
bygg, félags í eigu Saxhóls og
Byggingarfélags Gunnars og
Gylfa.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Turn Norðurturninn átti að verða 15 hæða verslunar- og skrifstofubygging.
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2010
Velta í dagvöruverslun dróst saman
um 2,4 prósent á föstu verðlagi í júlí
miðað við sama mánuð í fyrra en
jókst um 1,9 prósent á breytilegu
verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíða-
bundnum þáttum dróst velta dag-
vöruverslana saman í júlí um 1,9 pró-
sent frá sama mánuði árið áður. Verð
á dagvöru hækkaði um 4,4 prósent á
síðastliðnum 12 mánuðum.
Sala áfengis dróst saman um 3,4
prósent í júlí miðað við sama mánuð í
fyrra á föstu verðlagi en jókst um 2,7
prósent á breytilegu verðlagi. Leið-
rétt fyrir árstíðabundnum þáttum
nam samdráttur í veltu áfengis í júlí
3,8 prósentum frá sama mánuði í
fyrra. Verð á áfengi var 6,3 prósent-
um hærra í júlí síðastliðnum en í
sama mánuði í fyrra. Verð á fötum
hækkaði um 7,0 prósent, húsgögn
hækkuðu um 4,4 prósent og raftæki
hækkuðu um 2,0 prósent frá júlí
2009.
Velta minnkar
Sala áfengis dróst saman í júlí frá
2009 um 3,4 prósent á föstu verðlagi
Morgunblaðið/Heiddi
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Skuldabréfavísitala Gamma,
GAMMA: GBI, hækkaði um 0,1% í gær, í
9 milljarða króna viðskiptum. Verð-
tryggði hluti vísitölunnar, GAMMAi:
Verðtryggt, hækkaði um 0,1% í 2,5
milljarða króna veltu og óveðtryggða
vísitalan, GAMMAxi: Óverðtryggt,
lækkaði um 0,1% í 6,5 milljarða króna
viðskiptum.
Lítil breyting á vísitölu
● Undirritað hefur
verið samkomulag
um skipun nefndar
um fjármála-
stöðugleika. Að
grunni til byggist
samkomulagið og
starf nefndarinnar
á fyrra sam-
komulagi for-
sætis-, fjármála-,
efnahags- og viðskiptaráðherra,
Seðlabankans og FME frá árinu 2006
um samráð varðandi fjármálastöð-
ugleika og viðbúnað.
Nefnd um fjármálastöðugleika skal
vera vettvangur samráðs, upplýs-
ingaskipta og tillagnagerðar vegna fjár-
málastöðugleika og samhæfingar við-
búnaðar við hugsanlegu fjármálaáfalli.
Þá er nefndinni ætlað að stuðla að
gagnsæi um verkaskiptingu milli aðila
sem og samvinnu þeirra á milli.
Samkomulag um skipun
nefndar um stöðugleika
Seðlabankinn.
● Lausn sem hefur verið þróuð innan
Nýherja-samstæðunnar hefur á
skömmum tíma verið seld til nokkurra
velþekktra stórfyrirtækja í Bandaríkj-
unum, Bretlandi og Danmörku. Í til-
kynningu segir að um sé að ræða að-
gangsstýringarkerfi fyrir
SAP-viðskiptahugbúnað sem hafi verið
selt til Mercedes-Benz International,
General Electric Intelligent Solutions og
Warner Music Group í Bandaríkjunum.
Þá hafi Xerox í Bretlandi og Danfoss og
Louis Poulsen Lighting í Danmörku
einnig valið APM-lausnina.
APM-lausnin (Applicon Authorization
Process Manager) hefur verið þróuð hjá
Applicon Solutions í Danmörku, sem er
í eigu Nýherja. Hún er notuð til þess að
efla og samræma aðgangsstýringar í
SAP.
Benz og Warner velja
lausn frá Nýherja
Borgarfulltrúar Besta flokksins
munu á næstunni taka tillögu um
stofnun nýs banka til skoðunar.
Bankanum, sem yrði í eigu Reykja-
víkurborgar, yrði ætlað að að
lækka fjármagnskostnað borg-
arinnar með því að fá aðgang að
veðlánum hjá Seðlabanka Íslands,
sem síðan yrðu lánuð áfram. Þann-
ig gæti borgin endurfjármagnað
skuldir sínar á hagstæðari kjörum,
og sparað sér háar vaxtagreiðslur.
Fjármálafyrirtæki geta ein tekið
lán hjá Seðlabankanum.
Jón Þór Ólafsson, meðlimur í
vinnuhópi um endurbætur á fjár-
málakerfi Íslands, sem talað hefur
fyrir hugmyndinni, segir að frum-
skoðun bendi til þess að það sé bæði
„löglegt og arðbært fyrir borgina
að stofna banka.“ Auk sparnaðar-
ins sem hlytist af lægri fjármagns-
kostnaði myndi umsýslukostnaður
lækka. Kostnaðurinn við stofnsetn-
ingu bankans yrði jafnframt óveru-
legur - sex vikna laun þeirra sem
taka að sér verkið. Töluverður
fjöldi fólks, með þá menntun sem til
þarf, séu atvinnulausir og þá væri
hægt að ráða. Jón Þór leggur til að
borgarfulltrúar Besta flokksins
taki við keflinu og skipi starfshóp
sem fari formlega yfir kosti og
galla hugmyndarinnar. Umræðan
er enn á frumstigi innan Besta
flokksins, en ætlunin er að skoða
tillögurnar á næstunni.
Hugmyndir um „Besta
bankann“ til skoðunar
Umsvif Bankarekstur í ráðhúsinu?
Morgunblaðið/Júlíus
!"# $% " &'( )* '$*
++,-..
+/0-1.
++2-2+
31-4+0
+,-312
+0-140
++4-1+
+-.,./
+/1-20
+43-/4
++,-0+
+/0-2/
++2-54
31-450
+,-30+
+0-+1.
++4-..
+-.,5,
+/+
+4.-3/
315-253/
++,-/,
+/0-,.
++4-1,
31-0.0
+,-.+/
+0-+4
++4-04
+-213
+/+-42
+4.-5+
Menningarlífið á Íslandi stendur í blóma sem aldrei fyrr. Stórir jafnt sem smáir hafa verið ólatir a
landsmanna upp úr þungri kreppu og jafnt sumar sem vetur má finna menningu nánast í hverju s
Hvað má græða á menningun
Næstkomandi fimmtudag ætlar Viðskiptablað Morgunblaðsins að skoða menningarbransann og kryfja viðskiptavitið á bak við listirnar.
• Hvað þarf til að leikhús og tónleikahald slái í gegn um þessar mundir?
• Hvernig gengur að selja list, hvort sem hún er máluð, skrifuð eða sungin?
• Eða sagan og söfnin - er hægt að hafa tekjur af fortíðinni?
• Hvað verður það næsta stóra? Eru kvikmyndirnar að fara að skapa milljarða eða menningarvita?
Þetta og ótalmargt fleira í skemmtilegri og fræðandi úttekt 19. ágúst.
BókaVErslaNir - TóNlisTarVErslaNir - HljóðVEr - PrENTsMiðjur - kaffiHús - froNBókaBúðir
sTyrkTaraðilar - kVikMyNdagErð - úTVarP og sjóNVarP - óPEra - TóNlEikaHald - BarNa