Morgunblaðið - 17.08.2010, Síða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2010
✝ RagnheiðurJóhannesdóttir
fæddist á Svínhóli
í Miðdölum, Dala-
sýslu 30. desem-
ber 1919. Hún lést
á deild 11G á
Landspítalanum
við Hringbraut,
miðvikudaginn 4.
ágúst 2010, eftir
skamma sjúkra-
húslegu.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jó-
hannes Ólafsson,
bóndi og kennari, f. 11. júlí
1885, d. 24. febrúar 1950 og
Halldóra Helgadóttir, hús-
móðir, f. 10. janúar 1885, d. 25.
ágúst 1956. Ragnheiður var ein
af 8 systkinum, en þau eru öll
látin. Þau voru: Guðný, f. 24.5.
1907, d. 29.12. 1975, Ólafur, f.
15.5. 1912, d. 28.8. 1996, Guð-
björg, f. 10.8. 1913, d. 27.8.
1981, Helgi, f. 11.10. 1915, d.
11.4. 2006, Jón, f. 6.10.1917, d.
22.10. 1996, Óskar, f. 30.12.
1921, d. 17.6. 1994, Kristín, f.
11.3. 1927, d. 5.12. 2005.
Ragnheiður giftist 21. sept-
ember 1950, Haraldi G. Sigfús-
syni, f. 21.9. 1925, leigu-
bifreiðarstjóra og
píanóstillingarmanni frá Stóru-
Hvalsá, Hrútafirði. Börn þeirra
orgelleik. Hún stundaði nám
við Húsmæðraskólann á Stað-
arfelli í tvo vetur 1940-1942,
seinni veturinn við kennslu og
viðbótarnám í vefnaði. Eftir
námið fór Ragnheiður til
Reykjavíkur og hóf störf á
saumastofu Haraldar Árnason-
ar í Austurstræti 22 (Harald-
arbúð) og starfaði þar til árs-
ins 1949. Árið 1948 kynntist
hún eftirlifandi eiginmanni sín-
um og keyptu þau sína fyrstu
íbúð á Grettisgötu 16b. Haustið
1958 fluttu þau inn í nýja íbúð
að Álfheimum 44 og bjó Ragn-
heiður þar, ásamt eiginmanni
sínum, til æviloka. Ragnheiður
var heimavinnandi meðan
börnin voru ung, en þegar þau
komust á legg hóf hún störf
við ræstingar í Langholtsskóla
og starfaði hún við það í um 30
ár, eða til 70 ára aldurs. Jafn-
framt ræstingarstörfunum
gætti hún margra barna-
barnanna um lengri eða
skemmri tíma. Ragnheiður var
mikil húsmóðir en saumaskap-
ur, matreiðsla og bakstur lék í
höndum hennar. Einnig hafði
hún unun af allri handavinnu,
sérstaklega útsaumi og prjóna-
skap, sem hún stundaði fram á
síðustu æviár.
Frá árinu 1998 var Ragn-
heiður í dagvistun í Hlíðabæ
og dvaldist hún þar fram á síð-
asta dag, ávallt í góðu yfirlæti.
Útför Ragnheiðar fer fram
frá Langholtskirkju í dag, 17.
ágúst 2010, og hefst athöfnin
kl. 13.
eru: 1) Hreinn
Haraldsson, f
.24.6. 1949, vega-
málastjóri, eig-
inkona hans er
Ólöf Erna Adams-
dóttir, f. 22.2.
1952, kennari.
Þau eiga þrjú
börn, Guðrúnu
Rögnu, f. 25.11.
1975, Hjördísi
Láru f. 18.2. 1979
og Hjalta Þór, f.
1.3. 1984. 2)
Hanna Dóra Har-
aldsdóttir, f. 30.1. 1951, bókari,
eiginmaður hennar er Bjarni
Jón Agnarsson, f. 25.4. 1950,
rafeindavirki. Þau eiga tvo
syni, Róbert Viðar, f. 19.7.
1972 og Harald Agnar f. 5.5.
1975. 3) Sigfús Birgir Haralds-
son, f. 18.8. 1954, bifvélavirki,
eiginkona hans er Hanna Jó-
hannsdóttir, f. 11.10. 1954,
sjúkraliði. Þau eiga þrjú börn,
Hafdísi Eddu, f. 5.11. 1974,
Heiðu Hrönn, f. 17.7. 1980 og
Harald Gísla, f. 14.8. 1989.
Langömmubörnin eru 8, fjórir
drengir og fjórar stúlkur á
aldrinum 6 vikna til 8 ára.
Ragnheiður ólst upp á Svín-
hóli við öll almenn sveitastörf
innan húss og utan. Árið 1937
fór hún til Borgarness að nema
Elsku mamma mín, ég mun alltaf
sakna þín því þú hefur verið minn
allra besti vinur gegnum ævina.
Þér hef ég getað treyst fyrir öllum
mínum hugsunum og varst þú alltaf
tilbúin að hlusta og gefa góð ráð.
Okkar samband hefur alltaf verið
náið og gott og í raun hefur það eflst
og aukist hin síðari ár. Þú gafst þér
alltaf tíma fyrir lítinn strák sem kom
grátandi inn ef eitthvað bjátaði á,
þurrkaðir tárin og komst með falleg
huggunarorð. Aldrei heyrði ég þig
tala illa um nokkurn mann og þú
reyndir alltaf að gera gott úr öllu og
varst alveg snillingur í að miðla mál-
um og finna farsælar lausnir á öllu.
Þín mikla guðstrú fannst mér alltaf
einkenna þig og koma kannski einna
sterkast fram í öllum þeim gömlu
bænarorðum og sálmum sem þú
kunnir ótrúlega vel og ég heyrði þig
syngja sálma og síðan gömlu íslensku
lögin alveg frá barnæsku og fram á
síðasta dag. Því miður söngst þú alltof
stutt í Breiðfirðingakórnum sem þú
talaðir svo oft um, en þú lést barna-
uppeldið ganga fyrir og þurftir því að
hætta í kórnum.
Væntumþykja mín til þín jókst í ár-
anna rás þegar ég sá og upplifði
hversu góð þú varst líka alla tíð við
börnin mín. Þú passaðir þau öll í
lengri og skemmri tíma bæði þegar
við hjónin vorum að vinna mikið á
kvöldin og um helgar, eins þegar við
fórum út fyrir landsteinana og börnin
ekki höfð með í för. Meira að segja
fluttum við inn á þig þegar við þetta
ung vorum komin með okkar fyrsta
barn og vorum þar í u.þ.b. ár þar til
við keyptum okkar fyrstu íbúð og var
það ómetanleg hjálp sem við fengum
þá frá þér og pabba. – Þú hefur verið
börnunum mínum mjög góð fyrir-
mynd í einu og öllu eins og mér og
munu minningar um þig ylja mér um
hjartarætur um ókomin ár.
Mikið eigum við fólkinu í Hlíðarbæ
að þakka hvað þá áttir þar góð ár og
má segja að síðustu 10 árin hafi verið
hrein viðbót við þitt líf því þar var svo
yndislegt fólk sem þú varst með á
daginn og gaf það lífinu tilgang að
mæta þar alla virka daga vikunnar.
Ragnheiður
Jóhannesdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku langamma, ég sakna
þín en núna líður þér betur en
þegar þú varst á spítalanum.
Það var gaman að vera með þér
í útlöndum. Þegar ég var lítil
fannst mér mjög gaman að
heimsækja þig. Ég lék mér allt-
af í trélestinni heima hjá þér.
Takk fyrir allar ullarhosurn-
ar sem þú prjónaðir á mig. Ég
mun aldrei gleyma stundunum
þegar við vorum saman.
Kolbrún Sara Haraldsdóttir.
✝ Bogi Ingimarssonfæddist 16. júní
1929 í Reykjavík.
Hann lést 4. ágúst síð-
astliðinn á hjúkr-
unarheimilinu Drop-
laugarstöðum.
Foreldrar Boga
voru Ingimar Brynj-
ólfsson, stór-
kaupmaður í Reykja-
vík, f. 19. ágúst 1892,
d. 25. desember 1976,
og Herborg Theodóra
Guðmundsdóttir, f. 6.
febrúar 1901, d. 5.
desember 1996.
Bogi kvæntist 20. ágúst 1960 Sig-
rúnu Sigurþórsdóttir, f. 20. ágúst
1935. Börn þeirra eru Sigurþór, f.
23. nóvember 1961 og Benedikt, f.
30. mars 1965. Benedikt er kvæntur
Úllu Káradóttur, f. 29. maí 1968.
Börn þeirra eru Þuríður, f. 12. febr-
úar 1994, Bogi, f. 12. júlí 1997, Kári
Steinn, f. 9. ágúst 2000, og Sigrún,
f. 20. desember 2004.
Bogi lauk lagaprófi
frá Háskóla Íslands
23. janúar 1954. Hann
stundaði síðan nám á
árunum 1954 til 1956
í Þýskalandi og Sviss.
Bogi fékk leyfi til
málflutnings fyrir
héraðsdómi 30. apríl
1958 og fyrir Hæsta-
rétti 27. janúar 1968.
Bogi var lögfræð-
ingur hjá Útvegs-
banka Íslands frá 9.
ágúst 1956 til 1. sept-
ember 1988. Eftir það
var hann lögmaður í Reykjavík þar
til hann lét af störfum.
Bogi starfaði um áratugaskeið
innan Sjálfstæðisflokksins og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum.
Hann sat meðal annars í stjórn Inn-
kaupastofnunar Reykjavík-
urborgar.
Bogi verður jarðsunginn frá Há-
teigskirkju í dag, þriðjudaginn 17.
ágúst 2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Við systur viljum minnast Boga
afabróður okkar með fáeinum orð-
um. Hugsað til Boga kemur fljótt
upp í hugann hvað hann var
skemmtilegur og glaður. Auk þess
var Bogi mikill matmaður og órag-
ur við að smakka. Má til dæmis
nefna að þegar sushi kom fyrst til
landsins þá smakkaði hann það
óhikað.
Minningar okkar um Boga tengj-
ast margar Þingvöllum. Þar áttu
amma og afi sumarbústað sem var
rétt fyrir neðan bústað Sigrúnar og
Boga. Við systur höfðum það fyrir
sið að arka upp brekkuna til þeirra.
Oft sættum við kríuárásum á leið-
inni okkur til mikillar skelfingar.
Yfirleitt byrjuðu heimsóknirnar í
eldhúsinu þar sem Sigrún bauð
okkur gos og með því. Þegar leið á
kvöldið færðist samkundan oft inn í
stofu þar sem Bogi sat í hásætinu
og horfði á sjónvarpið. Þá var oft
glatt á hjalla hjá litlum stelpum
sem fannst gaman að segja frænda
sínum brandara, oft við mikla kát-
ínu Boga. Einnig eru minnisstæðar
heimsóknir í Sigtún fyrir jól. Þar
var ávallt tekið vel á móti okkur og
foreldrum okkar á þeirra fallega
heimili. Gestrisnin var alltaf í há-
vegum höfð og veitingar á borðum
sem hefðu sæmt konungbornu fólki.
Elsku Sigrún, Sigurþór og Benni,
við erum afar þakklátar fyrir
stundirnar sem við höfum átt með
ykkur og Boga. Við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Anna Sigrún og Sólveig Björk
Ingimarsdætur.
Við sátum inni í eldhúsi á Flóka-
götunni á heimili Benna vinar míns.
Þetta var á menntaskólaárunum,
áratug eftir gos. Foreldrar hans,
Bogi og Sigrún, voru frammi að
stússa en við vinirnir borðuðum
niðursoðna danska skinku. Sigrún
móðir Benna er einstaklega hlý og
Bogi Ingimarsson
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
INGER ELISE SIGURÐSSON,
áður til heimilis að,
Safamýri 85,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
laugardaginn 14. ágúst.
Benedikt Bjarni Sigurðsson,
Ása Benediktsdóttir,
Jóhannes Benediktsson, Björg B. Pálmadóttir,
Anna María Benediktsdóttir,
Henny Petersen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástrík eiginkona, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTRÍÐUR SVEINSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
er lézt föstudaginn 6. ágúst, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 18. ágúst
kl. 15.00.
Jarðsett verður í Hafnarfirði.
Magnús Ingi Sigurðsson,
Helga Jóna Ólafsdóttir, Ásgeir Friðsteinsson,
Edda Ólafsdóttir,
Þóra Ólafsdóttir, Aad Groeneweg,
Sigríður Margrét Magnúsdóttir,Björn Jónsson,
Kristín María Magnúsdóttir, Jón Magnús Sveinsson,
Herta Maríanna Magnúsdóttir, Arthur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
JÓN EINARSSON
vélstjóri frá Siglufirði,
síðast til heimilis á,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést föstudaginn 6. ágúst.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
20. ágúst kl. 14.00.
Svana Jónsdóttir, Örn Ó. Helgason,
Halldór Fr. Jónsson, Kristín G. Jónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Páll Jónatan Pálsson,
Þórelfur Jónsdóttir,
Gunnar Þór Jónsson, Ingunn Sveinsdóttir,
Lovísa Jónsdóttir, Gísli Þorsteinsson,
Ólöf Jónsdóttir, Gylfi Lárusson,
Einar Jónsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Svanborg R. Jónsdóttir, Valdimar Jóhannsson,
Svanfríður Jónsdóttir, Kristófer Oliversson
og fjölskyldur.
✝
ÞÓRÐUR INGÓLFUR JÚLÍUSSON,
Vinaminni,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði sunnu-
daginn 15. ágúst.
Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
21. ágúst kl. 11.00
Þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna njóta þess.
Aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og vinur,
ADDÝ JÓNA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
Lækjasmára 6,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 12. ágúst.
Jarðsett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 28. ágúst kl. 15.00.
Marta Guðjóns, Jónas Þór Hreinsson,
Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir,
Sæþór Árni Hallgrímsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Berglind Halla Hallgrímsdóttir,
Jón Hermannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.