Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Blaðsíða 11

Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Blaðsíða 11
JÓLABLAÐ FRAMSÓKNARBLAÐSINS 1969 t88888S8888888S88S888S8S8SSSS8SSSSSSSS8SS88So8SS8SSSSSSS88SS888SSSS8SSS8S88SSS88S8888SS88 óskar öllum landsmönnum og farsœldar á komandi ári mannaeyjum fram til ársins 1837, er þær voru sameinað- ar. Urðu Vestmannaeyjar þá einmenningsprestakall, og hélzt svo til ársins 1956, en síðan starfa þar tveir prest- ar. Engin kirkja er í jafn bein um, órofa tengslum við upp- haf kristninnar á íslandi sem Landakirkja. Hún minnir sí- fellt á það, að í Vestmanna- eyjum er upphaf kirkjulifs í landinu, þótt það yrði ekki af eðlilegum ástæðum mið- stöð kristninnar. Um hartnær tveggja alda skeið hefur hin traustbyggða Landakirkja ver ið skjöldur og skjól í harðri lífsbaráttu í nálægð hins Landakirkja eftir breytingarnar hamslausa úthafs. Þangað hafa menn, konur og börn sótt huggun í harmi og þakk að Guði sínum fyrir hjálp og hlíf i hretviðrum. Og enn sækja þangað ungir og aldnir í tilbeiðslu og þakkargjörð, og enn er þar leitað huggun- ar, er skilur ó milli lífs og dauða. Kirkjan stendur á mótum Skólavegar og Kirkjuvegar, þar sem þessar tvær leiðir mætast. Úr barnaskólanum liggur leið æskunnar að alt- ari kristinnar kirkju til æðra náms og manndóms með veg- arnesti frá þeirri kirkju, sem er arftaki hins fyrsta guðshúss í kristni á íslandi. 1955-1959. Altarið í Landakirkju lífTRYGGIng er bexta gjb'fin. í önn dagsins vill oft gleymast aö hugsa um framtíö eiginkonu og öarna, ef fjölskyldufaöirinn fellur frá. VERÐTRYGGÐ LÍFTRYGGING hentar sérlega vél hér á landi, þar sem verö- bólga hefur komiö í veg fyrir eölilega starfsemv líftrygginga. Tryggingar- uyphæöin og iögjaldið hœkkar árlega eftir vísitölu framfœrslukostnaðar. IÐGJALD er mjög lágt, t. d. greiðir 25 ára gamáll maöur kr. 1.000.00 á-ári fyrir líftryggingu aö upphæð kr. 248.000,00. HringiS strax í síma 38500 eða í næsta umboðsmann og fáið nánari upp- lýsingar um þessa hagkvæmu líftryggingu. LlFTRVGGINGbVFÉLAGIÐ ANDVAKA

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.