Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Blaðsíða 14

Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Blaðsíða 14
JÓLABLÁÐ FRAMSÓKNARBLAÐSINS 1969 BREISABÓLSTAÐUR 1 FLJtíTSHLIÐ. Eftir Vigius Ouömundsson. Höfunaur bóKarinnar, V ig- iús Guðmundsson fæddist að Keldum á Rangárvölium 22. október 1668. Hann varð bú- fræðingur frá Hvanneyri 1894 og vann alla tíð að bún aðarmalum. Bóndi var hann að Haga í Gnúpverjahreppi og í Engey á árunum 1896 —1916. Vigfús var greindur mað- ur, gerhugull og nákvæmur rithöfundur. Eftir hann liggja meðal annars eftirtaldar bæk ur: Saga Oddastaðar. Ævi Hallgríms Péturssonar, Saga Eyrarbakka og Keldur á Rangárvöllum. í þessari bók fjallar Vig- fús um Breiðabólstað í Fljóts hlíð, gerir nákvæma grein fyrir ábúendum og prestum þeim, sem staðinn hafa setið, rekur sögu kirkjunnar og eigna hennar, og lýsir bæjar húsum og hjálendum. Kr. 350,00. . i i HIMNESK ER AÐ LIFA III. Áfram liffgja sporin. Þriðja bindi hinnar fróð- legu ævisögu Sigurbjörns Þorkelssonar í Vísi nær yfir tímabilið frá 1923 til 1933, og kemur þar fyrir fjöldi pers- óna. — Sagt er frá atburð- um bæði í lífi höfundar og einnig margt úr sögu þjóðar. innar. Yfr 200 myndir prýða bókina, og falla ,eins og í fyrri bindunum, yfirleitt alls- staðar að efni frásagnarinnar. Það má segja um þetta þriðja bindi, „Áfram liggja sporin“, eins og um hin fyrri, að „ekki svíkur Bjössi“, því frá- sögnin er jafn fjörleg og spennandi eins og áður. — Kr. 450,00. RITSAFN EINARS H. KVARAN. Þriðja og fjórða bindi eru nú komin í bókaverzlanir. — Ekki þarf að lýsa Einari H. Kvaran eða ritsnilld hans. Sögur hans eru kunnar hverj um manni, sem kominn er til vits og ára og flest verk hans lesin upp til agna. — Orðfæri Einars H. Kvaran er lifandi tungutak hins tal_ aða máls og lætur jafn eðli- lega í eyrum nú og fyrir 85 árum, þegar fyrsta ' sagan hans var rituð. II. og IV. bindi kosta í vönduðu bandi kr. 1107,00. í SVIPMYNDUM II. Síðara bindi bókar frú Steinunnar S. Briem ,sem hún nefnir MYNDBROT. í bók- inni eru viðtöl við 48 manns, fólk úr öllum stéttum þjóð- | félagsins. í þessum tveimur bókum eru því viðtöl við meira en 100 manns. (í fyrri bókinni birtust 55 viðtöl). Hér eru ævisögubrot fólks með hina fjölþættustu lífs- reynslu og ólík viðhorf. Stund um geta stutt viðtöl gefið dýpri innsýn í líf manna en löng ævisaga. — Þessa bók má gefa við öll tækifæri. Kr. 450,00. STRÁ Ljóðabók eftir Steingerði Guðmundsdóttur. Steingerður er dóttir Guðmundar heitins skólaskálds ,sem af flestum er talinn einn mesti ritsnill- ingur þjóðarinnar fyrr og síð ar. Ljóðflokkur hans „Frið- hefur ort mikið af gamanvís- um og skopkvæðum frá því hann fór úr skóla og fram til þessa dags. Kímnin er ríkur þáttur í fari hans og bregst honum ekki, þó að al- vara lífsins hafi löngum einn ig leitað fast á huga hans, eins og títt er um góða húm- orista. Gaman og alvara leik ast á eins og skin og skugg- ar. Þetta tvísæja viðhorf speglast í því úrvali af skáld skap Arnar Snorrasonar, sem birtist í þessari bók, í bundnu máli og óbundnu. Hin létt. stígu gamankvæði hafa marg an hlátur vakið og munu enn vekja, en alvaran er á næsta leiti í öðrum þætti. Höfund- ur á erindi við lesendur, hvora leiðina sem hann kem sögu Rangæinga á 19. öfd. — Kr. 370,00. PÉTUR MOST III. Pétur konungur. Sögurnar um danska dreng inn Pétur Most eru viðburða rikar og skemmtilegar. Hann fer ungur að heiman, fátæk- ur og vinalaus. En hann er hraustur og góður drengur og þess vegna ryður hann sér braut og kemst heill á sál og líkama gegnum margar þær hættur ,sem öðrum hefði orðið að fjörtjóni. í þessari sögu kynnist Pétur indversk- um höfðingja, fer með hon- um ‘ á tígrisdýraveiðar og lendir eins og vant er í margvíslegum ævintýrum. Þaðan heldur hann til hafs, Nýjar bækur írá Leiítid 1969 Vir á jörðu“ er meðal þess fegursta, sem ort hefur ver- ið á íslenzka tungu. — Ljóð Steingerðar eru fáguð og fög- ur. — Kr. 370,00. SYNDUGUR MAÐUR SEGIR FRÁ Sjálfsævisaga Magnúsar Magnússon, fyrrv. ritstjóra Storms. Magnús segir meðal annars í formála fyrir bókinni: Þrennt er það, sem ég tel að minningar manna eða ævisög ur þurfi að hafa til brunns að bera öllu öðru framar: Að þær séu sannar. Að þær hafi frá einhverju að segja. Að þær séu skemmtilegar eða að minnsta kosti læsi- legar. Vísvitandi- hef ég hvergi hallað réttu máli og látið það ganga fyrir öllu að segja satt frá, og staðið gegn þeirri freistingu að gera frásögnina litríkari og áhrifameiri með því að ýkja eða jafnvel skálda inn í hana. Margt hefur drifið á daga Magnúsar og mörgum hefur hann kynnzt. Og ekki mun þeim leiðast, sem lesa bókina Kr. 450,00. GAMANTREGI Eftir Örn Snorrason. Örn Snorrason hefur lagt gjörva hönd á margt. Hann ur til móts við þá. 370,00. Kr. GRETA Eftir Kristínu M. J. Björns- son. Gréta er ástarsaga. — Óli og Gréta voru jafnaldrar, nema hvað hann hafði bónda árið fram yfir hana. Snemma voru þau draumgestir hvort hjá öðru, því að fjölskyldur þeirra voru tengdar. — Bernskan leið brosandi og draumfögur. — Gréta og Óli voru svo ung og sæl, þau sáu ekki nein vandkvæði á að vera glöð og kát, enda var lífið þeim leikur. — Kr. 330,00. AUSTAN BLAKAR LAUFIÐ Höfundur bókarinnar, Þórð ur Tómasson, safnvörður frá Vallnatúni, segir í formála fyrir bókinni: Þessi bók er helguð vinum mínum, sem lifðu í fórn og kærleika, voru ríkir í fátækt, glötuðu aldrei barninu og gátu 'glaðzt af litlu. — Öld þeirra er liðin og minningar henn_ ar eru að hverfa í skugga og 'gleymsku. Hér er ekki sagt frá öðru en fábreyttu lífi al- þýðufólks, baráttu þess, sigr- um og ósigrum, við aðstæður sem okkur hrýs oft hugur I við. Frásagnir þessar eru ' jafnframt dálítið framlag til lendir í fellibyl og verður að- skila við skip sitt á ævintýra legan hátt. Hann ber að landi á ókunnri eyju og eft- ir stundardvöl þar kemst hann í kynni við sjálfa prins essu eyjarinnar, og greinir sagan nánar frá kynnum þeirra. — Kr. 175,00. KIM Þessi saga heitir „Sá hlær bezt ,sem síðast hlær“. Eins og vant er ,þá eru þau öll á ferðinni: Kim, Kata, Eiríkur og Billi og hafa í nógu að vasast eins og í fyrri KIM- bókunum, _ Kr. 160,00. BOB MORAN Tvær bækur um ævintýra- manninn og hetjuna Bob: Stál hákarlarnir og Vin „K“ svar ar ekki. Eins og lesendum Bob Moran bókanna er kunn ugt, þá eru þær svo spenn- andi, að því verður ekki með orðum lýst. Lesið þær og þið munuð sannfærast að lestri loknum, _ Kr. 175,00. frank og jói Þriðja og fjórða bókin um bræðurna Frank og Jóa: Leyndarmál gömlu myllunn- ar og Týndu félagarnir. Hér komast þeir bræður og félag ar þeirra á slóðir bófaflokks og ræningja, og tekst þeim með snarræði sínu og dugn- aði að koma í veg fyrir hættu legt ráðabrugg þeirra. Þeir þeysa um á mótorhjólum, bíl um og hraðbátum og hafa ærið nóg að starfa við mál sín. — Kr. 175,00 hvor bók. MARY POPPINS OPNAR DYRNAR Fjórða og síðasta bókin um Mary Poppins og öll þau undraævintýri, sem hún segir börnui|im, er nú komin út. Mary Poppir.s er ein allra vinsælasta barnabókin og fer siguríör um allan heim. — Kr. 175,00. NANCY Tvær bækur: Nancy og I gamla eikin og Nancy og draugahúsið. — Þarna er Nancy á ferðinni með stöll- um sínum og lendir í hinum ótrúlegustu ævintýrum eins og ávallt. — Kr. 175,00 hvor bók. VÖLUSKRÍN I Sögur handa börnurn og unglingum. Hróðmar Sigurðs son valdi sögurnar. Hróðmar segir: Það vakti fyrir mér, er ég tók saman þessa litlu bók, að gefa yngstu kynslóð. inni kost á að kynnast nokkru af því lestrarefni, er feður hennar og mæður ,afar og ömmur, glöddu sig við á æskuárum sínum og höfðu að vergarnesti út í lífið. — kr. 160,00. VÖLUSKRÍN II. Efnið í þessa bók valdi Hróðmar Sigurðsson einnig. Bækurnar eru hvor annarri skemmtilegri og við hæfi barna. — Ekki er ósennilegt að fleiri bækur komi með þessu nafni. — Kr. 160,00. MÚS OG KISA Skömmu fyrir síðustu jól kom út barnabók eftir Örn Snorrason. Bókin heitir Mús og kisa. Á nokkrum dögum seldist allt það af bókinni, sem hægt var að koma í band _ og svo liðu jólin. Nú er bókin komin aftur í verzlan- ir. _ Orn Snorrason hefur mikið fengizt við ritstörf og er landskunnur fyrir barna- bækur sínar og þýðingar á vinsælum barnabókum. — Kr. 60,00. STELPURNAR SEM STRUKU Þær voru tvíburar ,litlar og fallegar stelpur, sem höfðu alizt upp við fullmikið eftir_ læti. Faðir þeirra var vel efnaður en vegna atvinnu sinnsr var hann langdvölum erlendis ,og gat því ekki lit- ið til þeirra sem skyldi. Þær áttu því erfitt með að sætta sig við aga, þegar lífið barði að dyrum. — Bókin er fjör- lega skrifuð og sagan falleg og skemmtikg. _ Kr. 160,00.

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.