Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Blaðsíða 17

Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Blaðsíða 17
--JÓLABLAÐ FRAMSÓKNARBLAÐSINS 1969 Sigurgeir Kristjáusson í Eyjum 50 ára - Þann 30 .október 1919 opn- aði íslandsbanki útibú hér í Vestmannaeyjum. Slík banka starfsemi átti því fimmtíu ára afmaeli á s. 1. hausti. Þar se mhér er um merka stofnun að ræða, sem hefur átt drjúg an þátt í uppbyggingu byggð arlagsins vill Framsóknarblað ið minnast þessara tíma_ móta með nokkrum orðum. Stofnun útibúsins átti sér að sjálfsögðu nokkurn aðdrag anda. Sparisjóður Vest- mannaeyja (hinn fyrri) hafði þá strfað hér í rúman aldarfjórðung, en hann var stofnsettur 1893. Mun Jón Magnússon ,sýslumaður, síð- ar alþingismaður og forsæt- isráðherra, hafa átt frum- kvæðið að þeirri stofnun á- samt fleiri framfaramönnum byggðarlagsins. Starfsemi Sparisjóðsins var í smáum stíl. Má geta þess, að í árs- byrjun 1904 námu innstæð- ur aðeins kr. 11.258,00. Þótt gengi íslenzku krónunnar væri þá margfalt við það sem það er í dag, segir sig sjálft, að svo lítil fjárhæð orkaði litlu til að velta grettistök- um á brautum framfaranna. En þetta var á morgni ald- arinnar. Það var vor í lofti og það bjarmaði fyrir betri tímum hjá íslenzkri þjóð. Góðskáldin höfuð sett fram skínandi hugsjónir og hvatn- ingu í aldamótaljóðunum, Earaldur Viggó Björnsson sem þessi árin voru lærð og sungin inn í þjóðarsálina. „Sé ég í anda knörr og vagna knúna úr krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða, stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða stjórnfrjálsa þjóð með verzlun eigin búða.“ Svo kva ðHanne sHafstein. Einar Benediktsson segir hinsvegar m. a.: „Vissir þú hvað Frakkinn fékk til hlutar, fleytar. er of smá, sá grái er uta. Hve skal lengi dorga drengir dáðlaust upp við sand? Og Einar segir annarsstað- ar í Ijóðunum: „Hér er ekki stoð að stafkarlsins auð stórfé, hér dugar ei minna.“ Hér eru aðeins dregnar fram fáeinar línur úr hin- um draubjarta aldamótasöng Hannesar og herhvöt Einars, sem eru eins og smábrot frá þeirri miklu andlegu orku, sem brauzt fram um þetta leyti. og þa ðhlaut eitthvað mikið að vera í vændum, og þaci varð. Það var ðgjörbylting á at- isaiaur uiatsson. vinnusögu þjóðarinnar og þá ekki sízt Vestmannaeyja. Vél bátarnir leystu áraskipin af hólmi, og þeir skiluðu marg. földum afla. Þar með þurfti útgerðin og byggðarlagið á stórum meira fjármagni að halda . Það er vitað ,að kaupmenn hér í Vestmannaeyjum, Gísli J. Johnsen, J. P. T. Bryde o. fl. hjálpuðu mönnum til að eignast vélbáta á fyrstu tugum aldarinnar. Þorsteinn Jónsson í Laufási greinir frá því í bók sinni Aldahvörf í Eyjum, að hann ásamt fé- lögum sínum, haf keypt vél- bátinn Unni frá Danmörku fyrir milligöngu Ólafs Árna sonar kaupmanns á Stokks. eyri. Báturinn var 7,23 smá- lestir og kostaði tæpar 4 þús kr. Stjórn Sparisjóðsins var ljóst, að skortur á fjármagni stó ðútgerðinni og byggðar- laginu fyrir þrifum. Leituðu þeir því eftir lánsfé frá bönkunum í Reykjavík en fengu daufar undirtektir. Kom þá fram áhugi fyrir að stofna hér bankaútibú, með svipuðum hætti og þegar hafði verið gert á Akureyri, Isafirði og Seyðisfirði. Þrátt fyrir sókn af hálfu Sparisjóðsins í þessu máli drógst það á langinn. Á að- alfundi Sparisjóðsins 14. júní 1919 samþykktu ábyrgð armenn Sparisjóðsins að senda formann og gjaldkera sjóðsins, þá Gisla J. Johnsen og Árna Filippusson til Reykjavíkur á fund stjórnar íslandsbanka til að gera úrslitatilraun og fá úr því skorið, hvort sá banki hefði raunverulega hug á málinu. Þessi ferð bar árangur og var útibúið stofnsett og opn að 30. okt. 1919 eins og fyrr segir. Útibúið yfirtók eignir og skuldbindingar Spari- sjóðsins frá 1. janúar 1920. Útibú íslandsbanka starf- aði hér í 10 ár eða til 1930. Þá var íslandsbanka lokað, eins og kunnugt er og starf- semi hans lokið. Upp úr því var Útvegsbanki íslands stofnaður, fyrst sem hlutafé- lag, en var breytt í ríkis- banka 1937, enda átti ríkið frá upphafi mest af hluta- fénr. Landsbanki íslands rak útibúið hér til bráðabirgða framrn af árinu 1930, þar til 1. aríl, að Útvegsbanki ís- lands tekur til starfa ,en síð- an hefur útibúið verið rekið á hans vegum. Fyrstu húsakynni bankans JÓLIN OG LJÓSIÐ BRUNABÓTAFÉLAG fSLANDS LAUGAVEGI 103, SÍMI 24425 Umboðið í Vest- mannaeyjum er Kertaljósin eru fögur, en þau geta einnig verið hœttuleg. — Foreldrar, leiðbeinið börnum yð- ar um meðferð ó óbirgðu Ijósi. Um leið og vér beinum þessum tilmœlum til yðar, óskum vér yð- ur öllum GLEÐILEGRA JÓLA að Miðstræti 11. cr? m

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.