Morgunblaðið - 11.10.2010, Side 2

Morgunblaðið - 11.10.2010, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2010 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. „Ætli maður sé að fara að sofna fyr- ir miðnætti í kvöld? Ég held að það verði nokkuð seinna,“ sagði Ellert Arnarson, fyrrverandi KR-ingur en núverandi leikmaður Hamars í Hveragerði, en hann átti drjúgan þátt í að tryggja Hvergerðingum 87:82 sigur á KR í spennuleik í Ice- land Expres-deildinni í gærkvöldi. Ellert gerði 16 stig í leiknum, og skoraði meðal annars þriggja stiga körfu á lokamínútunni sem gerði útslagið gegn hans gömlu félögum. „Það var náttúrlega mjög skrýtið til að byrja með að spila á móti þeim, en maður hefur gert það í svo langan tíma á æfingum og svona þannig að eftir fyrstu tvær eða þrjár mínúturnar var stressið farið úr manni. Þá varð þetta bara venju- legur leikur,“ sagði Ellert sem kom til Hamars frá KR í sumar líkt og Darri Hilmarsson. Ellert á hins veg- ar ekki marga spilaða leiki að baki fyrir KR, þó hann sé fæddur 1987. Var þá ekki ansi sætt að leggja gömlu félagana að velli? „Ég var náttúrlega úti í fyrra og ekkert að spila, og árið þar áður voru Jón Arnór Stefánsson og Jak- ob Örn Sigurðsson í liðinu, þannig að það var alveg skiljanlegt að mað- ur spilaði lítið þá. Ég ber engan kala til KR, það er ekkert svoleiðis. Þetta eru allt góðir vinir mínir,“ sagði Ellert sem var ánægður með að Hamarsmenn skyldu sýna úr hverju þeir eru gerðir eftir tap fyr- ir nýliðum Hauka í fyrstu umferð. „Þetta kom okkur eiginlega ekki á óvart. Við vorum mjög fúlir eftir leikinn við Hauka því við spiluðum illa þar, og ætluðum að spila þenn- an leik eins og við spilum á æfing- um. Það gekk upp,“ sagði Ellert. sindris@mbl.is „Þetta eru allt góðir vinir mínir“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Tap Hrafn Kristjánsson þjálfari KR mátti sætta sig við tap í gær. Á VELLINUM Kristján Jónsson kris@mbl.is „Geitungurinn“ Ægir Þór Stein- arsson sló í gegn með Fjölni í fyrra en félagið var þá nýliði í Iceland Ex- press-deild karla í körfuknattleik. Þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamlir eru Ægir Þór og Tómas Tóm- asson burðarásar í liði Fjölnis og mik- ið mun mæða á þeim í vetur. Morg- unblaðið ræddi við Ægi í Garðabænum í gærkvöldi þar sem Fjölnir tapaði fyrir sterku liði Stjörn- unnar 69:86. Skoruðu ekki í sex mínútur Ægir byrjaði leikinn með látum og skoraði 7 stig á upphafsmínútunum. Fjölnismenn léku vel fram í þriðja leikhluta en þá tóku Garðbæingar öll völd á vellinum og lönduðu öruggum sigri. Stjarnan hélt Fjölni algerlega í skefjum í upphafi síðasta leikhluta og fékk þá ekki á sig stig fyrstu sex mín- úturnar. Þar með var spennan í leikn- um fyrir bí. „Satt besta segja veit ég ekki hvað gerðist á lokakaflanum. Vörnin féll og Stjörnumenn fóru að hitta vel úr sínum skotum. Við feng- um ágæt færi í sókninni en klúðr- uðum færum sem við erum vanir að klára. Ég held að það sé líklegasta skýringin ásamt ákveðnum mistökum í vörninni,“ sagði Ægir við Morg- unblaðið en hann er bjartsýnn á tíma- bilið fyrir höfn Fjölnismanna. „Ég hef engar áhyggjur af okkur. Við þurfum bara að byggja ofan á þetta og það er engin taugaveiklun í gangi. Við erum búnir að fá nýjan leikmann og það tekur smátíma fyrir hann að aðlagast,“ sagði Ægir en Fjölnir hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum á móti sterkum andstæð- ingum en fyrsti leikurinn var gegn Ís- lands- og bikarmeisturum Snæfells. Forréttindi að leiða liðið Ægir segist vera mjög ánægður með að ungu mennirnir skuli fá að vera í stórum hlutverkum í Graf- arvoginum og hann er reynslunni rík- ari eftir leiktíðina í fyrra. „Ég er í svipuðu hlutverki og í fyrra nema ég er árinu eldri. Við vorum einnig margir ungir leikmenn sem leiddum þetta lið í fyrra og það eru ákveðin forréttindi að fá tækifæri til þess svona ungir. Við þurfum hins vegar að vera allir á sömu blaðsíðu og vinna þetta sem heild. Við munum gera allt til þess að koma okkur í toppbarátt- una strax í vetur en við verðum samt sem áður að vera þolinmóðir,“ sagði Ægir ennfremur og segist vera gegn- heill Fjölnismaður enda hlustaði hann lítið eftir áhuga annarra liða eft- ir að hafa slegið í gegn á síðustu leik- tíð. „Það voru einhver lið sem höfðu áhuga en maður var ekkert að spá í það. Við vorum alltaf ákveðnir í því að halda áfram hjá Fjölni enda harðir Fjölnismenn. Oft á tíðum hefur ekki verið haldið nægilega vel utan um unga leikmenn hjá félaginu en það er ekki vandamál núna. Það er virkilega góð stjórn sem stendur á bak við okk- ur og hefur gert margt fyrir okkur sem er ómetanlegt,“ sagði Ægir sem spilar stöðu leikstjórnanda. Þraut- reyndur leikstjórnandi, Tómas Hol- ton, tók við þjálfun Fjölnis í sumar og Ægir er afar ánægður með sam- starfið við Tómas. Býr yfir gríðarlegri þekkingu „Það hjálpar mér að þjálfarinn skuli vera gamall leikstjórnandi. Hann er mjög duglegur að ræða við mig enda hefur hann þjálfað mig áð- ur. Hann var fyrstur til að setja mig í þessa stöðu í yngri flokkunum og þess vegna á ég Tómasi margt að þakka. Ég ber mikla virðingu fyrir Tómasi enda býr hann yfir gríð- arlegri þekkingu. Ég er því virkilega ánægður með að hann hafi tekið við liðinu,“ sagði Ægir sem skoraði 15 stig í gærkvöldi og gaf 5 stoðsend- ingar. Leikur Stjörnunnar minnti um margt á leik liðsins fyrir áramót í fyrra þegar liðinu gekk hvað best. Stigaskorið dreifðist vel og liðið tók góðar rispur þar sem stigin hrönn- uðust upp. Forvitnilegt verður að sjá liðið þegar Marvin Valdimarsson verður búinn að aðlagast því. Geitungurinn náði ekki að stinga Garðbæinga  Ægir er bjartsýnn þrátt fyrir tvö töp  Fjölnismenn gæla við toppbaráttu Morgunblaðið/Ómar Geitungurinn „Hann er gulur, snöggur og hann stingur,“ var sagt um Ægi í bloggheimum í vikunni. Grindvíkingum tókst að innbyrða sigur gegn sprækum Ísfirðingum í Grindavík í gærkvöldi, 96:87. Alla jafna myndi það nú ekki teljast til stórtíðinda, að Grindvíkingar vinni nýliða á heimavelli í körfuboltanum, en að þessu sinni þurftu þeir að leika án Páls Axels Vilbergssonar sem hefur verið þeirra helsta tromp ár- um saman. „Hann var slæmur í hásin í gær og hann hefur verið að glíma við þetta af og til. Ég ætla að vona að þetta sé bara smávægilegt en við ætlum að sjá til hvort við notum Pál í næsta leik,“ sagði Helgi Jónas Guðfinns- son, þjálfari Grindvíkinga, þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gærkvöldi. Mikill hraði hjá KFÍ Leikurinn var í járnum nánast all- an leikinn en Ármann Vilbergsson hélt uppi merkjum fjölskyldunnar og skoraði 11 stig fyrir Grindavík. Þeirra atkvæðamestur var Andre Smith með 28 stig. Craig Shoen var stigahæstur hjá KFÍ með 25 stig og gaf auk þess 9 stoðsendingar. „Þeir voru mjög sprækir. Mínir menn voru eiginlega ekki tilbúnir í þann hraða sem KFÍ spilaði á í byrj- un. Þá var vörnin mjög slök hjá okk- ur en við bættum okkur aðeins í seinni hálfleik. Þá small varnarleik- urinn saman hjá okkur sem sést best á því að KFÍ skoraði 55 stig í fyrri hálfleik en 32 í þeim síðari,“ sagði Helgi ennfremur við Morgunblaðið. Það var því sama formúlan á bak við sigur Grindvíkinga í þessum leik og í fyrsta leiknum gegn Njarðvík, þ.e.a.s öflugur varnarleikur. Byrjun beggja liða lofar góðu fyrir veturinn. Grindvíkingar hafa unnið báða sína leiki og KFÍ vann Tindastól í fyrstu umferð og var nú nálægt sigri gegn Grindavík á útivelli en KFÍ var yfir í hálfleik. kris@mbl.is Meiddur Páll Axel Vilbergsson lék ekki með Grindavík í gær. Góð byrjun Grindvíkinga í körfunni  Unnu KFÍ án Páls Axels Vilbergssonar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.