Morgunblaðið - 11.10.2010, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2010
Franska knattspyrnufélagið Marseille hefur í
hyggju að lögsækja hollenska landsliðsmann-
inn Nigel de Jong, sem leikur með Manchester
City, fyrir tæklinguna á Hatem Ben Arfa í við-
ureign City og Newcastle í ensku úrvalsdeild-
inni á dögunum.
Ben Arfa sem er í láni hjá Newcastle frá
Marseille tvíbrotnaði eftir tæklinguna harka-
legu og verður frá keppni í marga mánuði.
Jean-Claude Dassier, forseti Marseille, sagði í
viðtali í franska sjónvarpinu að til stæði að lög-
sækja Nigel de Jong.
De Jong, eða „sláttuvélin“ eins og hann er
kallaður, fékk ekki einu sinni gult spjald fyrir
brotið en hollenski landsliðsþjálfarinn brást
við með því að velja miðju-
manninn ekki í landsliðið
fyrir leiki í undankeppni
EM síðasta föstudag og
annað kvöld.
De Jong hefur áður kom-
ist í fréttir fyrir ljóta tækl-
ingu en hann braut gróflega
af sér í úrslitaleik heims-
meistaramótsins í sumar
þegar hann sparkaði í
brjóst Spánverjans Xabi
Alonso. Hann hefur þó aðeins einu sinni fengið
rautt spjald á ferlinum, en það var árið 2006
þegar hann lék með Hamburg. sindris@mbl.is
„Sláttuvélin“ lögsótt fyrir tæklingu?
Nigel de
Jong
Eftir að hafa valdið sárum vonbrigðum með
frammistöðu sinni á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu í sumar og tapað svo gegn
Hvíta-Rússlandi á heimavelli í fyrsta leik sín-
um í undankeppni EM 2012 virðast Frakkar
vera komnir aftur á beinu brautina. Þeir
unnu sterkt lið Rúmeníu 2:0 á laugardaginn
og eru því með sex stig á toppi D-riðils und-
ankeppninnar eftir þrjá leiki.
Laurent Blanc tók sem kunnugt er við sem
þjálfari franska liðsins eftir HM og hann hef-
ur hafið mikið „hreinsunarstarf“. Til marks
um það má nefna að fimm byrjunarliðsmenn
gegn Rúmeníu á laugardag voru ekki einu
sinni í leikmannahópnum sem fór til Suður-
Afríku í sumar. Varamað-
urinn Loic Rémy var ekki
heldur þar en hann kom
Frökkum yfir seint í leikn-
um. Yoann Gourcuff bætti
svo við seinna markinu í
uppbótartíma, en hann
hafði einnig komið inn á
sem varamaður.
Aðeins tveir leikir í und-
ankeppni EM fóru fram á
laugardag en föstudagar
og þriðjudagar eru nú orðnir aðalleikdagar. Í
hinum leiknum vann Króatía Ísrael 2:1 með
mörkum Niko Kranjcar. sindris@mbl.is
Hreinsunarstarf Blanc að heppnast?
Laurent
Blanc
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Kvennalið Keflavíkur byrjar leik-
tíðina af krafti í körfuknattleiknum
og hefur unnið Íslandsmeistara KR
tvívegis á skömmum tíma. Keflavík
vann KR í Lengjubikarnum á dög-
unum og aftur í deildinni um
helgina, 87:74. „Ég get nú ekki
sagt að þetta hafi verið öruggt. Við
þurftum að hafa fyrir þessu enda
gefur KR engin stig. Okkur tókst
að halda haus undir lokin þegar
þær gerðu áhlaup og þannig tókst
okkur að landa sigrinum. Það er
auðvitað ekki leiðinlegt að vinna
ríkjandi meistara, en ég hef nú
mikla trú á því að þær muni fá sér
erlendan leikmanna og að Signý
muni einnig snúa aftur,“ sagði
Birna Valgarðsdóttir þegar Morg-
unblaðið ræddi við hana og vísaði
til þess að miðherji KR, Signý Her-
mannsdóttir, leikur ekki með liðinu
sem stendur og óvíst hvort hún
mun halda áfram körfuknattleiks-
iðkun.
Birna skoraði 26 gegn KR
Birna átti flottan leik á laug-
ardaginn og skilaði 26 stigum. Hún
segir Keflavík vera með sterkara
lið en á síðustu leiktíð enda var lið-
inu spáð sigri í deildinni í árlegri
spá á dögunum. „Við höfum verið
mjög duglegar á undirbúnings-
tímabilinu og höfum fengið þrjá
leikmenn. Þær eru mjög öflugar en
Ingibjörg Elva á eftir að koma
meira inn í þetta en hún er að ná
sér af meiðslum. Auk þess fá yngri
leikmenn meiri ábyrgð í vetur,“
sagði Birna og hún segir banda-
ríska leikmanninn Jacquline
Adamshick vera mikinn happafeng
en hún skoraði 28 stig gegn KR og
tók 22 fráköst. „Við vorum mjög
heppnar með Kana. Hún er snill-
ingur á sínu sviði og er frábær kar-
akter hvort sem er innan vallar eða
utan. Hún er rosalega dugleg og
hættir aldrei. Hún er eiginlega
bara eins og Duracell-kanínan úti
um allan völl og ég hef bara ekki
kynnst svona leikmanni áður,“ út-
skýrði Birna og leyfði blaðamanni
að heyra hvernig hljóð slíkar kan-
ínur gefa frá sér. „Okkur hefur
vantað fleiri leikmenn í fráköstin
því Bryndís Guðmundsdóttir hefur
nánast þurft að sjá ein um þann
þátt. En nú kom þessi trukkur til
okkar og hún rífur niður fráköst-
in.“
Grindavík skoraði aðeins 36
stig gegn Haukum
Haukar áttu ekki í miklum vand-
ræðum með að leggja Grindavík á
laugardag. Grindavík náði aðeins
að skora 36 stig í leiknum en
Haukar skoruðu 60.
Ragna Margrét Brynjarsdóttir
og Íris Sverrisdóttir skoruðu 10
stig hvor fyrir Hauka. Charmaine
Clark skoraði 16 stig fyrir Grinda-
vík.
Hamar í vandræðum
Hamar sigraði nýliða Fjölni á
útivelli, 81:73. Hamar náði 20 stiga
forskoti eftir fyrsta leikhluta, 34:14,
en Fjölnir náði að laga stöðu sína
jafnt og þétt það sem eftir lifði
leiks. Margareth McCloskey skor-
aði 30 stig fyrir Fjölni og tók að
auki 7 fráköst. Jaleesa Butler skor-
aði 34 stig og tók 17 fráköst fyrir
Hamar.
Njarðvík vann góðan útisigur
gegn Snæfelli í Stykkishólmi. Snæ-
fell var með fimm stiga forskot fyr-
ir fjórða og síðasta leikhluta, 55:50,
en allt fór úrskeiðis í lokaleikhlut-
anum hjá heimaliðinu sem skoraði
aðeins 13 stig gegn 27 stigum
Njarðvíkur.
Adamshick er eins og
„Duracell“-kanínan
Birna Valgarðsdóttir segir að Keflvíkingar hafi dottið í lukkupottinn þegar liðið
fékk Jacquline Adamshick í sínar raðir Keflavík vann meistaralið KR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þaulreynd Birna Valgarðsdóttir er lykilmaður í Keflavíkurliðinu.
Knatt-spyrnumað-
urinn Gylfi Ein-
arsson, sem er á
mála hjá norska
úrvalsdeildarlið-
inu Brann, mun
ganga í raðir
sinna gömlu fé-
laga í Fylki.
Þetta kom fram í viðtali við hann á
vefnum fótbolti.net um helgina.
Gylfi hefur verið í atvinnumennsku
frá árinu 2000. Hann lék með Lille-
ström í Noregi, Leeds á Englandi
og hefur síðustu árin verið í her-
búðum Brann en hefur lítið fengið
að spreyta sig hjá Bergen-liðinu.
Hann verður Árbæjarliðinu gríð-
arlegur liðsstyrkur en Fylkismenn
hyggjast styrkja og stækka leik-
mannahóp sinn fyrir næstu leiktíð.
ThomasSörensen,
markvörður
enska úrvals-
deildarliðsins
Stoke City, mun
ekki verja mark
Dana þegar þeir
taka á móti Kýp-
verjum í und-
ankeppni Evrópumótsins í knatt-
spyrnu á morgun en þjóðirnar leika
í sama riðli og Íslendingar. Sören-
sen meiddist í leik Dana og Portú-
gala á föstudagskvöldið. Anders
Lindegaard leysir hann líklega af
hólmi.
Ísland sigraði Færeyjar með 98stigum gegn 80 í Landskeppni í
sundi sem fór fram í Laugardals-
laug um helgina. Þetta er annað ár-
ið í röð sem slík keppni er haldin
en í fyrra sigruðu Færeyingar á
sínum heimavelli. Ísland varð í 1.
sæti í 6 einstaklingsgreinum af tólf,
vann bæði 4x50 metra fjórsund
(boðsund) karla og kvenna en Fær-
eyjar unnu 8x50 metra skriðsund
(boðsund) þar sem konum og körl-
um var blandað í lið.
Stigahæstueinstakling-
arnir á mótinu
voru þau Ragn-
heiður Ragn-
arsdóttir með
808 FINA-stig
fyrir 100 metra
skriðsund og
Jakob Jóhann
Sveinsson með 816 stig fyrir 100
metra bringusund.
Íslenska liðið var skipað þeim
Antoni Sveini Mckee, Ágústi Júl-
íussyni, Bryndísi Rún Hansen,
Eygló Ósk Gústafsdóttur, Hrafni
Traustasyni, Hrafnhildi Lúth-
ersdóttur, Ingu Elínu Cryer, Ingi-
björgu Kristínu Jónsdóttur, Jakobi
Jóhanni Sveinssyni, Jóhönnu
Gerðu Gústafsdóttur, Kareni Sif
Vilhjálmsdóttur, Kolbeini Hrafn-
kelssyni, Njáli Þrastarsyni, Orra
Frey Guðmundssyni, Ragnheiði
Ragnarsdóttur og Sigurði Erni
Ragnarssyni. Þjálfari íslenska liðs-
ins var svo Jacky Pellerin.
Fólk sport@mbl.is
Sebastian Vettel hjá Red Bull
sigraði í japanska kappakstrinum
í Suzuka. Annar varð liðsfélagi
hans Mark Webber og þriðji
Fernando Alonso hjá Ferrari.
Maður mótsins var hins vegar
heimamaðurinn Kamui Kobayashi
hjá Sauber.
Vettel vann með þessu þriðja
sigurinn á árinu en síðast stóð
hann á efsta þrepi verðlaunapalls
í Evrópukappakstrinum í Val-
encia á Spáni í lok júní, eða fyrir
hálfum fjórða
mánuði.
Með sigrinum
komst Vettel og
upp um sæti í
keppninni um
heimsmeist-
aratitil ökuþóra,
er nú jafn
Alonso að stig-
um í þriðja sæti.
Alonso er annar á grundvelli
fleiri mótssigra, en báðir eru með
206 stig. Webber er enn efstur,
með 220 stig.
Kobayashi hóf keppni í 14. sæti
og vann sig upp um sjö sæti þar
sem hann lauk keppni í því sjö-
unda. Á leiðinni sýndi hann mikla
dirfsku og mikla útsjónarsemi og
tók fram úr hverjum ökumann-
inum á fætur öðrum.
Þótt keppni hafi verið lítil um
fremstu sæti átti stöðubarátta sér
stað aftar og sætaskipti áttu sér
stað vegna mismunandi keppn-
isáætlana. Michael Schumacher
elti liðsfélaga sinn Nico Rosberg
sem köttur á eftir mús en náði
aldrei að vinna sig fram úr. Und-
ir lokin brotnaði hjól undan
Mercedes-bíl Rosbergs sem snar-
snerist og hafnaði á öryggisvegg.
Schumacher sýndi í dag ein-
hverja bestu frammistöðu á árinu
og landi hans Nick Heidfeld stóð
sig vel í öðru móti með Sauber
þar sem hann lauk keppni í átt-
unda sæti.
Vettel sá fljótasti í Suzuka í Japan
Sigri Vettel hjá Red Bull aldrei ógnað Kobayashi hjá Sauber maður mótsins
Sebastian Vettel