Morgunblaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 5
Á VELLINUM
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Ég var alltaf í sigurliði á móti Hauk-
um í yngri flokkunum en mér hafði
ekki tekist að vinna þá eftir að ég fór
að spila í meistaraflokki fyrr en núna
loksins. Það var löngu kominn tími á
þetta og frábært að vinna svona glæsi-
legan sigur,“ sagði Logi Geirsson við
Morgunblaðið eftir sigurinn á Hauk-
um en Logi stjórnaði spili þeirra svart-
hvítu eins og herforingi og endurkoma
hans í FH-liðið hefur svo sannarlega
styrkt það en FH er spáð meistaratitl-
inum í vetur.
Einstaklega góð blanda
„Það er ótrúlegt að koma hingað á
Ásvelli og landa níu marka sigri. Það
er mikil pressa á okkar liði þar sem
arar en eru einstaklega góð blanda,“
sagði Logi.
Logi er hægt og bítandi að komast í
form eftir að hafa verið mikið frá vegna
meiðsla. Spurður hvort hann stefni á
endurkomu í landsliðið sagði afmæl-
isbarn gærdagsins: „Ég er ekki í lands-
liðsformi í dag en ég stefni á að komast
í HM-hópinn og reyna þar að verða
heimsmeistari. Ég get leyst hvaða
stöðu sem er í landsliðinu en nú held ég
áfram að vinna í því að fá mig góðan í
öxlinni,“ sagði Logi sem lét sér nægja
að skora 2 mörk en hann átti fjöldann
allan af stoðsendingum í leiknum.
„Mitt hlutverk í FH-liðinu er að
stjórna spilinu og halda ró í okkar leik.
Það geta ekki allir skorað 10 mörk. Óli
Guðmunds sér um þá hluti og ég reyni
að spila hann uppi. Við höfum unnið
mikið í liðsheildinni og þetta er frábær
hópur saman, bæði innan og utan vall-
ar.“
stöðu hjá okkur og við berum mikið
traust til Stjána og Einars í þjálfara-
störfunum. Þeir eru mjög ólíkir þjálf-
FH er spáð fyrsta titlinum í fjölda ára
en við erum alveg með lið til að fara
alla leið. Það er frábær maður í hverri
Logi stjórnaði FH-liðinu
í stórsigri gegn Haukum
Morgunblaðið/Ómar
Leiðtoginn Logi Geirsson sýndi fína takta sem leikstjórnandi FH-liðsins gegn Haukum á laugardag. Logi ætlar sér að komast á HM í Svíþjóð.
FH-ingurinn Logi Geirsson ætlar sér að komast í HM-hópinn sem fer til Svíþjóðar
í janúar og verða heimsmeistari Alltaf í sigurliði gegn Haukum í yngri flokkum
Ásvellir, úrvalsdeild karla, N1-deildin,
laugardaginn 9. október 2010.
Gangur leiksins: 0:2, 3:4, 3:9, 7:9,
9:12, 12:13, 12:20, 16:21, 16:26, 19:28.
Mörk Hauka: Guðmundur Árni Ólafs-
son 7/5, Björgvin Hólmgeirsson 4,
Freyr Brynjarsson 2, Þórður Rafn Guð-
mundsson 2, Stefán Rafn Sigurmanns-
son 2, Heimir Óli Heimisson 1, Tjörvi
Þorgeirsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 3
(þar af 2 til mótherja), Birkir Ívar Guð-
mundsson 15 (þar af 5 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk FH: Ólafur Guðmundsson 9, Ás-
björn Friðriksson 6/2, Benedikt Reynir
Kristinsson 4, Ari Magnús Þorgeirsson
2, Þorkell Magnússon 2, Atli Rúnar
Steinþórsson 2, Logi Geirsson 2/1, Sig-
urgeir Árni Ægisson 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 17 (þar
af 5 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf-
steinn Ingibergsson, fínir.
Áhorfendur: 1.900.
Haukar – FH 19:28
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2010
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Baráttan um Hafnarfjörðinn varð ójafnari en
nokkrum manni hefði líklega dottið í hug en um
tvö þúsund áhorfendur sem lögðu leið sína á Ás-
velli urðu vitni að stórsigri FH gegn Íslands- og
bikarmeisturum Hauka. FH-ingar léku við hvern
sinn fingur á meðan handhafar allra titla í ís-
lenskum handbolta voru á köflum eins og byrj-
endur í íþróttinni. Þegar var upp var staðið fögn-
uðu FH-ingar níu marka sigri, 28:19, og aðra eins
útreið hafa Haukarnir ekki fengið á Ásvöllum.
FH-ingar gáfu strax tóninn. Þeir mættu vel
stemmdir til leiks og náðu fljótlega undirtök-
unum í leiknum. Haukunum gekk illa að ráða við
framliggjandi vörn FH-liðsins og fyrir aftan hana
var Pálmar Pétursson í miklum ham. Eftir
stundarfjórðung höfðu FH-ingar náð sex marka
forskoti, 9:3, en góð innkoma Birkis Ívars Guð-
sigur FH-inga. Haukarnir áttu engin svör við
hreyfanlegri og framliggjandi vörn FH-liðsins og
Pálmar var í miklu stuði á mili stanganna. Bar-
áttan og leikgleðin skein út úr hverju andliti í her-
búðum FH og liðsheildin virkilega öflug. Logi
Geirsson stjórnaði sóknarleik FH eins og herfor-
ingi og ljóst er að endurkoma hans í liðið virkar
vel á samherja hans. Ólafur Guðmundsson steig
ekki feilspor og átti magnaðan leik og hinn lunkni
Ásbjörn Friðriksson átti virkilega góðan dag eins
og raun allt FH-liðið.
Haukarnir vilja gleyma þessum leik sem allra
fyrst. Baráttuleysi og andleysi var algjört í liði
meistaranna og mér er til efs að Haukarnir hafi
leikið jafn illa frá því þeir tóku völdin í íslenskum
karlahandbolta fyrir áratug. Leikmenn Hauka
hlupu hreinlega á vegg og ráðaleysi þeirra í sókn-
inni var algjört. Birkir Ívar Guðmundsson bjarg-
aði því sem bjargað varð og líklega bjargaði hann
sínum mönnum frá enn verri útreið.
mundssonar í mark Hauka og betri varnarleikur
af þeirra hálfu varð til þess að meistararnir náðu
að saxa jafnt og þétt á forskot FH og þegar fyrri
hálfleikur var allur var munurinn aðeins eitt
mark, 13:12.
Seinni hálfleikurinn lofaði því heldur betur
góðu og áhorfendur nýttu leikhléið til að und-
irbúa sig undir spennuþrungnar 30 mínútur. En
sú varð nú aldeilis ekki raunin. FH-ingar hrein-
lega kaffærðu erkifjendur sína á fyrstu mín-
útunum í hálfleiknum. Þeir skoruðu sjö fyrstu
mörkin í hálfleiknum og það var ekki fyrr en á 10.
mínútu í seinni hálfleik sem Björgvin Þór Hólm-
geirsson náði að skora fyrsta mark Hauka. Með
þessum frábæra leikkafla gerðu FH-ingar út um
leikinn og aðeins spurning hversu stór sigurinn
yrði. Haukarnir köstuðu hvíta handklæðinu inn á
völlinn og játuðu sig sigraða, bæði leikmenn og
stuðningsmenn liðsins.
Frábær vörn og markvarsla skóp öðru fremur
FH-ingar kaffærðu meistarana
Morgunblaðið/Ómar
Markahæstur Ólafur Guðmundsson skoraði 9
mörk fyrir FH gegn Haukum.
„Ég man ekki eftir annarri eins út-
reið hér á heimavelli og hef þó
bæði mætt liðum eins og Barcelona
og Kiel á Ásvöllum. Ég hef aldrei
séð aðra eins hörmung og við
sýndum í þessum leik,“ sagði Birk-
ir Ívar Guðmundsson, markvörður
Hauka, við Morgunblaðið eftir
skellinn gegn FH-ingum.
„Ég hélt að við myndum mæta
grimmir út í seinni hálfleikinn eft-
ir að hafa unnið okkur inn í leikinn
undir lok fyrri hálfleiksins en við
mættum bara ekki til leiks. Við
hættum að spila sem lið og
frammistaðan var hörmuleg en ég
tek það ekki frá FH-ingum að þeir
spiluðu virkilega vel. Það var engu
líkara en að þeir væru ríkjandi
Evrópumeistarar en við eins og lé-
legt 2. flokks lið. Við klikkuðum á
flestum sviðum handboltans og
gáfumst hreinlega upp löngu áður
en leikurinn var búinn,“ sagði
Birkir Ívar sem bjargaði sínum
mönnum frá enn stærra tapi.
„Það er vonum sérstaklega sárt
að tapa svona gegn FH. Vonandi
læra ungu strákarnir af þessum
leik og þeir átta sig vonandi á því
að heimurinn er ekki sigraður með
einum góðum leik. Þetta er stöðug
vinna og menn verða að leggja
hart að sér til að bæta sig,“ sagði
Birkir.
Kannski voru menn svona
spenntir að lesa bók Loga
Spurður út í andstæðinganna
sagði Birkir; „Á pappírunum er
FH með sterkasta hópinn en mótið
er langt og strangt. Við vorum
ansi gjafmildir og engu líkara en
að FH ætti afmæli og við værum
að færa liðinu fyrsta afmælispakk-
ann. Ég veit ekki hvort menn hafi
verið svo spenntir að lesa bókina
hans Loga að þeir gleymdu að
spila handbolta hér í dag,“ sagði
Birkir Ívar. gummih@mbl.is
Birkir: „Aldrei
séð aðra eins
hörmung“
Ósáttur Birkir Ívar Guðmundsson
var ekki sáttur í leikslok.
Morgunblaðið/Ómar