Morgunblaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2010
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Samkvæmt hinum merku boltagreinafræðum
þá er lífseig sú kenning að annað keppnis-
tímabilið í efstu deild geti reynst erfitt. Nýlið-
ar í efstu deild komast gjarnan langt á stemn-
ingunni, og viljanum til að sanna sig, en svo
getur orðið spennufall á öðru ári.
Hamar var nýliði í efstu deild í fyrra og stóð
sig vel. Liðið var samkeppnisfært og rúmlega
það. Með örlítilli heppni hefði liðið komist í úr-
slitakeppnina en rétt missti af því í óvenju
jafnri deild. Nú er því spurningin hvort Hamar
nái að taka næsta skref og komast í úr-
slitakeppnina eða hvort liðið muni þurfa að
berjast fyrir sæti sínu í deildinni. Leikstjórn-
andi liðsins, André Dabney, er þekkt stærð
eftir góða frammistöðu í fyrra. Þar sem miklar
breytingar urðu á liði Hamars þá er jákvætt að
þurfa ekki að setja nýjan mann inn í mikilvæga
stöðu leikstjórnandans. Dabney er öflugur
leikmaður og gefur samherjum sínum aukið
sjálfstraust með skemmtilegum tilþrifum.
Fyrirliðinn Svavar Páll Pálsson verður eftir
sem áður hjarta liðsins enda mjög traustur
leikmaður sem gerir fá mistök og á sjaldan
slaka leiki. Ragnar Nathanaelsson verður lyk-
ilmaður í vörninni og forvitnilegt verður að
fylgjast með hans framgangi. Darri Hilm-
arsson er búinn að sanna sig í deildinni sem
öflugur leikmaður og hann gæti sprungið út á
leiktíðinni. Hamri veitir ekki af því í sóknar-
leiknum því Marvin Valdimarsson var af-
skaplega drjúgur í stigaskorun í fyrra. Hans
skarð verður vandfyllt og spurningin er hversu
mikið framlag Hvergerðingar munu fá frá
Litháanum Nerijus Taraskus sem væntanlega
mun spila sem framherji.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari liðsins, er eng-
inn nýgræðingur í fræðunum og hefur lengi
verið einn efnilegasti þjálfari landsins. Ágúst
lifir og hrærist í körfuboltanum og engin
ástæða til að ætla annað en að honum takist að
púsla saman öflugu liði eins og í fyrra.
Morgunblaðið/Ómar
Þjálfarinn Ágúst Björgvinsson þjálfar bæði
karla - og kvennalið Hamars.
Taka leikmenn Hamars næsta skref?
Eftir ágættgengi á síð-
ustu leiktíð þar
sem Hamar rétt
missti af sæti í úr-
slitakeppninni,
varð liðið fyrir
mikilli blóðtöku í
sumar. Marvin
Valdimarsson
ákvað að ganga til liðs við Stjörnuna
en hann var einn stigahæsti leik-
maður deildarinnar á síðustu leiktíð.
Auk þess fór hinn bráðefnilegi Oddur
Ólafsson í nám til Bandaríkjanna.
Páll Helgason fór sömuleiðis utan og
Viðar Hafsteinsson hvarf einnig á
braut.
Hvergerðingarhafa þó
reynt að berja í
brestina og það
voru góðar fréttir
fyrir þá að mið-
herjinn Ragnar
Nathanaelsson
fór ekki til Banda-
ríkjanna eins og
til stóð í vor. Hamar krækti jafnframt
í tvo KR-inga í sumar, þá Darra
Hilmarsson og Ellert Arnarson. Þeir
hafa ekki fengið stór hlutverk hjá KR
og eru vafalaust hungraðir í að sanna
sig hjá nýju félagi. Kjartan Kárason
kom einnig frá FSu að ógleymdum
Nerijus Taraskus frá Litháen. Við
þetta má bæta að bandaríski leik-
stjórnandinn André Dabney er
áfram í Hveragerði en hann sýndi
lipra takta á síðustu leiktíð.
Hamar var nýliði í deildinni á síð-ustu leiktíð en átti möguleika á
sæti í úrslitakeppninni fram í síðustu
umferð og hafnaði að loknum í 10.
sæti. Ágúst Björgvinsson er við
stjórnvölinn hjá liðinu en hann kom
liðinu upp í úrvalsdeild þegar hann
tók við því fyrir tveimur árum.
Ragnar og er enn undir stjórn
Ágústs hjá Hamri. Ungir menn
sem eru á þriðja metra á hæð eiga
oft í tíðum í vandræðum með að ná
upp nægilegum vöðvamassa til að
samsvara sér en Ragnar hefur ekki
glímt við það vandamál.
Er ekki eins og tannstöngull
„Ég hef alltaf verið í þykkari
kantinum og langar ekki að vera
eins og tannstöngull. Ég borða
mikið og geri ýmsar æfingar til að
styrkja líkamann. Auk þess hef ég
gert aukaæfingar til að flýta fyrir
því að verða góður íþróttamaður.
Það tekur tíma að læra á líkamann
og ná stjórn á honum en ég hef
lagt talsvert á mig til þess að ná
framförum.“
Ragnar var í byrjunarliðinu hjá
Hamri í fyrra og á þessari leiktíð
má reikna með að hann verði í lyk-
ilhlutverki. „Ég hef bætt hraðann
hjá mér og styrkinn. Ég geri mér
grein fyrir því að ég er lykilmaður
í vörninni hjá Hamri og ég er bú-
inn að vinna að því á fullu að á
þessu keppnistímabili fari að sjást
meira í mig,“ sagði Ragnar og
komst þar skemmtilega að orði.
Hann er bjartsýnn á veturinn og
telur Hamar vera með sterkara lið
en á síðustu leiktíð.
Sterkara lið en í fyrra
„Ég myndi nú telja að við vær-
um aðeins sterkari en í fyrra. Við
erum búnir að fá bæði Darra og
Ellert sem eru báðir mjög sterkir
leikmenn. Auk þess kom Litháinn
Nerijus til okkar og hann styrkir
hópinn enda fjölhæfur leikmaður.
Mér líst því bara mjög vel á hóp-
inn.“ Okkar aðalmarkmið er að
komast í úrslitakeppnina og ein-
beitum okkur að því. Ef okkur
tekst það þá kíkjum við á ný mark-
mið en við teljum að við séum ekki
að setja of mikla pressu á okkur
með þessu.“
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Hoppar ekki Ragnar Nathanaelsson þarf ekki að stökkva til þess að verja
skotin undir körfunni - enda er hann 2.18 metrar á hæð en körfuhringurinn
er í 3.05 m hæð. Hér er Ragnar í baráttunni gegn Glen Robinsson, miðherja
Hauka, í fyrsta deildarleiknum í síðustu viku.
Ágúst
smitaði
Ragnar
Hinn 19 ára gamli Ragnar Nathana-
elsson í lykilhlutverki Hafði mikinn
áhuga á handbolta Er hávaxnasti
núlifandi Íslendingurinn ásamt Pétri G.
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ragnar Nathanaelsson, miðherji
Hamars, mun vafalaust láta til sín
taka í Iceland Express-deildinni.
Ragnar er 218 cm á hæð og hér
væri freistandi að nota alls kyns
samlíkingar eins og að Ragnar
gnæfi yfir keppinauta sína jafnt
sem samherja. Einfaldast er þó að
benda á þá einföldu staðreynd að
Ragnar er hávaxnasti núlifandi Ís-
lendingurinn ásamt Pétri Guð-
mundssyni, fyrrum leikmanni í
NBA-deildinni. Eru þeir næsthá-
vöxnustu Íslendingar í sögunni á
eftir Jóhanni Svarfdælingi eftir því
sem næst verður komist.
Stærri en kennararnir
Ragnar er 19 ára gamall og seg-
ist telja að hann sé hættur að
stækka. „Ég myndi kannski segja
það. Ég á kannski inni einn cm ef
ég verð heppinn,“ sagði Ragnar
léttur þegar Morgunblaðið tók
púlsinn á honum á laugardaginn.
„Ég hef verið hávaxnastur í mínum
vina- og kunningjahópi frá því ég
man eftir mér. Ég var alltaf verið
stærri en jafnaldrarnir í grunnskól-
anum og reyndar kennararnir
líka,“ rifjar Ragnar upp og segir að
sig hafi langað til þess að leika
handbolta áður en honum var bent
á körfuboltann. „Á yngri árum
hafði ég miklu meiri áhuga á hand-
boltanum og langaði meira að vera
í honum. Sú íþrótt var hins vegar
ekki þjálfuð eða kennd í Hvera-
gerði og þess vegna prófaði ég
körfuboltann. Þegar Ágúst Björg-
vinsson byrjaði að þjálfa í Hvera-
gerði ákvað ég að kíkja á æfingu
hjá honum og hann tók mig undir
sinn væng. Hann sá til þess að ég
mætti á æfingar og hann smitaði
mig af körfuboltaáhuganum,“ sagði
Andre Dabney 27 ára Bakvörður (1,85 m)
Bjarni Lárusson 20 ára Framherji (1,95 m)
Bjartmar Halldórsson 17 ára Bakvörður (1,75 m)
Ellert Arnarson 23 ára Bakvörður (1,80 m)
Emil F. Þorvaldsson 20 ára Bakvörður (1,82 m)
Kjartan Kárason 32 ára Bakvörður (1,88 m)
Mikael R. Kristjánsson 21 árs Framherji (1,93 m)
Ragnar Á. Nathanaelsson 19 ára Miðherji (2,18 m)
Snorri Þorvaldsson 21 árs Bakvörður (1,82 m)
Stefán Halldórsson 20 ára Bakvörður (1,80 m)
Svavar Páll Pálsson 19 ára Miðherji (2,01 m)
Eyþór Heimisson 16 ára Framherji (1,96 m)
Nerijus Taraskus
Leikmannahópurinn
HAMAR VETURINN 2010-2011
2.18 m. Ragnar Nathanaelsson,
miðherji á framtíðina fyrir sér.