Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fram fór skrifleg kosning um sak-
sóknara á Alþingi í gær vegna ákæru
á hendur Geir H. Haarde, fv. for-
sætisráðherra, fyrir landsdómi.
Atkvæði féllu þannig að 36 þing-
menn kusu Sigríði J. Friðjónsdóttur,
vararíkissaksóknara, sem saksóknara
en 16 þingmenn skiluðu auðu.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota, var með sama
hætti kosinn varasaksóknari í málinu
með 16 atkvæðum. Sextán þingmenn
skiluðu jafnframt auðu en 11 þing-
menn voru ekki viðstaddir atkvæða-
greiðsluna.
Áður en kosningin fór fram kvaddi
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sér hljóðs og lýsti því
yfir að sjálfstæðismenn myndu ekki
taka afstöðu í kjörinu. Gerði hann at-
hugasemd við að þingmönnum hefði
ekki verið gefinn tími til að kynna sér
svar forseta Alþingis, Ástu Ragnheið-
ar Jóhannesdóttur, við bréfi lög-
manns Geirs, Andra Árnasonar hrl.,
en Andri fékk svarbréfið í hendur í
gær, viku eftir að það var sent þing-
forseta.
Telur Andri að við ákvörðun þings-
ályktunar um ákæru á hendur Geir
hafi borið að kjósa saksóknara „sam-
stundis eða samtímis“, samkvæmt 13.
gr. laga um landsdóm frá árinu 1963.
Þar sem það hafi ekki verið gert á ný-
afstöðnu löggjafarþingi hefði málið
átt að falla niður, samkvæmt þing-
sköpum Alþingis.
Ekki eitt þingmál
Í svarbréfi þingforseta segir m.a.
að það verði ráðið af efnisskipan 13.
greinar að um sé að ræða þrjá sjálf-
stæða liði frekar en eitt og sama þing-
málið. „Verður þar annars vegar að
greina á milli ákvörðunar um máls-
höfðun, sem er sérstakt þingmál, og
hins vegar kosningar saksóknara og
þingmannanefndar, sem eru sjálf-
stæð atriði og ákveða verður sérstak-
lega,“ segir í svari forseta Alþingis,
sem telur að málsmeðferðin hafi sam-
rýmst þingsköpum Alþingis. Síðan
segir í lok svarbréfsins:
„Að öðru leyti ber að líta svo á að
það sé í valdi landsdóms að úrskurða
um þau atriði sem hér hafa verið
nefnd.“
Bjarni Benediktsson sagði að fyrir
þinginu hefðu átt að liggja lögfræði-
leg álitaefni í málinu og undraðist
hann það jafnframt að engin umræða
færi fram um málið í þingsölum.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður
VG, kvaddi sér einnig hljóðs og undr-
aðist málflutning Bjarna. Forseti Al-
þingis hefði kynnt svarbréf sitt og
bréf lögmannsins fyrir forsætisnefnd
og formönnum þingflokka.
Þá tóku Sigurður Kári Kristjáns-
son, Sjálfstæðisflokki, og Vigdís
Hauksdóttir, Framsóknarflokki, til
máls um kosninguna. Sig-
urður Kári taldi formgalla
málsins geta leitt til frá-
vísunar þess á síðari stig-
um, og Vigdís lýsti því yf-
ir að hún myndi sitja hjá í
kosningunni. Hinn
ákærði yrði látinn
njóta vafans sem
uppi væri um
málsmeðferðina.
Forseti Alþingis telur kjör
saksóknara sjálfstætt mál
Kosning saksóknara og varasaksóknara Aþingis samþykkt með 36 atkvæðum
Morgunblaðið/Golli
Saksókn Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir skila atkvæðum sínum í skriflegri kosningu um saksóknara Alþingis í gær.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég á ekki von á öðru en að á þetta
verði látið reyna, en jafn líklegt er að
landsdómur þurfi að taka afstöðu til
þess almennt hvort ákvörðun um
málshöfðun og kosningu saksóknara
hafi verið í samræmi við lög. Það
myndi dómurinn væntanlega gera
að eigin frumkvæði, án þess að unnt
sé að fullyrða um slíkt,“ segir Andri
Árnason, lögmaður Geirs H.
Haarde, fv. forsætisráðherra, spurð-
ur hvort hann muni halda kröfu sinni
til streitu fyrir landsdómi um að máli
Geirs verði vísað frá vegna ágalla á
málsmeðferð. Telur Andri að falla
eigi frá málshöfðun þar sem sak-
sóknarar hafi ekki verið kosnir á
sama þingi og samþykkt var að
ákæra Geir. Málsmeðferðin sam-
rýmist ekki 13. grein laga um lands-
dóm.
Eins og fram kemur hér að ofan
kaus Alþingi gær Sigríði Friðjóns-
dóttur sem saksóknara í máli fyrrum
forsætisráðherra og Helga Magnús
Gunnarsson saksóknara til vara.
Áður hafði Andri sent forseta
Alþingis bréf þar sem bent var á
ágalla í málsmeðferðinni, samkvæmt
lögum um landsdóm.
„Það getur verið slæmt for-
dæmi vegna hugsanlega komandi
landsdómsmála, ef engin tímamörk
eru á kosningu saksóknara, gagn-
stætt orðalagi ákvæðisins í lands-
dómslögunum. Þá gæti slík kosning
dregist, jafnvel um óskilgreindan
tíma,“ segir Andri.
Hann segir að jafnvel geti kom-
ið upp sú staða að kosning saksókn-
ara nái ekki fram að ganga en þá sé
óvíst um ályktun þingsins um máls-
höfðun, ef þetta sé ekki gert „sam-
tímis“ eða „jafnskjótt“ og slík álykt-
un sé gerð, eða ef litið sé á þetta sem
óskyld mál.
Lætur reyna áfram á
frávísun fyrir landsdómi
Forseti Alþingis hafnaði erindi lögmanns Geirs H. Haarde
Málshöfðun Ákæra á hendur Geir
H. Haarde er á leið fyrir landsdóm.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók á sunnudag karlmann í
tengslum við rannsókn á umfangs-
miklu fjársvikamáli. Maðurinn var í
kjölfarið úrskurðaður í gæslu-
varðhald fram á föstudag. Sex aðrir
hafa setið í gæsluvarðhaldi í
tengslum við rannsókn málsins.
Einum var sleppt í síðustu viku og
öðrum var sleppt á mánudag.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var framkvæmd húsleit í
tengslum við handtökuna sl. sunnu-
dag, en ekki fékkst uppgefið hvort
eitthvað hefði komið út úr henni.
Gæsluvarðhald fjögurra rennur
út í dag. Í gær var ekki búið að
taka ákvörðun um hvort farið yrði
fram á framlengingu. Fólkið er bú-
ið að vera í einangrun í fjórar vik-
ur, sem er hámark samkvæmt lög-
um. Rannsókn stendur enn yfir, en
um er að ræða mál þar sem talið er
að sviknar hafi verið 270 milljónir
króna út úr virðisaukaskattskerf-
inu.
Meðal þeirra sem eru grunaðir
um aðild að málinu er einn starfs-
maður embættis ríkisskattstjóra, sá
var ráðinn til starfa árið 2008, en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði ekki borið skugga á
störf hans.
Enn einn í
varðhaldi
í svikamáli
Varðhald fjögurra
rennur út í dag
Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og
landbún-
aðarráðherra,
hefur ráðið
Bjarna Harð-
arson í tímabund-
ið starf upplýs-
ingafulltrúa í
sjávarútvegs- og
landbún-
aðarráðuneytinu.
Samkvæmt því sem kemur fram á
vef ráðuneytisins var Bjarni valinn
úr hópi 29 umsækjenda. Hins vegar
kemur ekki fram á sama vef hvenær
starfið var auglýst né hverjir hinir
umsækjendurnir eru.
Bjarni er bóksali og fyrrverandi
alþingismaður, ritstjóri og blaða-
maður. Hann sat á þingi fyrir Fram-
sóknarflokkinn en hefur síðan geng-
ið í Vinstrihreyfinguna – grænt
framboð.
Hæfastur 29
umsækjenda
Bjarni
Harðarson
Þingmenn
skipaðir
SAKSÓKNARANEFND
Auk kjörs á saksóknara og vara-
saksóknara Alþingis í máli fyrr-
verandi forsætisráðherra var
einnig kjörin svonefnd saksókn-
aranefnd Alþingis, sem í sitja
fimm þingmenn, einn úr hverj-
um flokki. Í nefndina voru kjörin
Atli Gíslason, VG, Jónína Rós
Guðmundsdóttir,
Samfylkingu, Hösk-
uldur Þór Þór-
hallsson, Fram-
sóknarflokki,
Margrét Tryggva-
dóttir, Hreyfing-
unni, og Birgir Ár-
mannsson,
Sjálfstæð-
isflokki.
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Helgi Magnús
Gunnarsson
ódýrt og gott
Grillaður kjúklingur og
Pepsi eða Pepsi Max, 2 l
998kr.pk.