Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 tóku við nýir leikir, handboltinn, sundið og smá ferðalög ef færi gafst. Einn fagran sunnudagsmorgun fór- um við með fimm öðrum Norðfirð- ingum í gönguferð og komum við í Fannardal og þar bauð húsfreyja upp á pönnukökur sem ákveðið var að þiggja á heimleiðinni, en af því varð nú ekki, því við villtumst og komum að lokum niður í Eskifjörð. Aðra gönguferð man ég, en þá klöngruðumst við Inda tvær upp í Drangaskarð, en máttum þakka fyr- ir að ná heilar heim því frost var og hálka og útbúnaður ekki til fyrir- myndar. Hin ljúfu æskuár liðu. Við stofn- uðum heimili um svipað leyti og enn var stutt milli bæja. Inda giftist bekkjarbróður mínum og vini, hon- um Lilla Matt, þeim heiðursmanni og þau eignuðust fjóra skemmtilega og duglega stráka, sem sáu til þess að þau fengu góðar tengdadætur og afkomendur. Það varð vík milli vina þegar við fluttum frá Norðfirði, en við hittumst á hverju ári á ýmsum stöðum, öllum til mikillar ánægju, en skemmtilegast var þó að heimsækja þau hjón fyrir austan og njóta þar rómaðrar gestrisni þeirra. Þegar litið er til baka sé ég Indu fyrir mér eins og hún var alltaf, kát, skemmtileg, góður vinur og æðru- laus manneskja sem tók hlutunum eins og þeir voru, en sagði samt ef gekk fram af henni: „Þetta er meiri þvælan.“ Ég hitti hana fyrir rúmum mánuði, Alzheimers-sjúkdómurinn hafði tekið frá henni allt nærminni, en alla leiki bernskunnar mundi hún eins og gerst hefðu í gær. Ég þakka Indu vinkonu minni samverustund- irnar á lífsgöngunni og ævilanga tryggð. Aðstandendum öllum sendi ég samúðarkveðjur frá fjölskyld- unni. Anna Jónsdóttir. Það er með hlýju og þakklæti sem við kveðjum í dag Ingibjörgu Finns- dóttur eða Indu, æskuvinkonu móð- ur okkar. Það er margs að minnast þegar lit- ið er yfir farinn veg. Ferðir okkar í bernsku austur á Norðfjörð með for- eldrum okkar eru sveipaðar ævin- týraljóma. Farartækin og vegirnir voru öðruvísi í þá daga en með topp- grind á bílnum komst tjaldútbúnað- urinn fyrir og oftast vorum við börn- in þrjú í aftursætinu. Þegar komið var austur héldum við til hjá Indu og Lilla. Bæði þá og síðar þegar við fór- um að fara með okkar fjölskyldur í heimsókn mættu okkur höfðinglegar móttökur og gott viðmót sem við verðum ævinlega þakklátar fyrir. Inda var mikil húsmóðir, stjanaði við gestina meðan á dvöl þeirra stóð og var umhugað um að öllum liði vel. Okkur systrum fannst einstaklega gaman að spjalla við hana en hún hafði létta lund og sá oft spaugilegu hliðarnar á tilverunni. Sögumaðurinn Þórður var iðinn við að sýna okkur staðinn og segja frá þeim breytingum sem orðið höfðu á Norðfirði, hann sagði skemmtilega frá og vildi allt fyrir ferðafólkið gera. Önnur okkar systra minnist þess þegar hún sem ungling- ur dvaldi hjá þeim hjónum eina viku að sumri til og Lilli fór með hana í heimsókn á skrifstofu Bjarna Þórð- arsonar sem þá var bæjarstjóri í Neskaupstað. Hann vildi kynna dótt- ur Maju í Vík og að hún fengi að kynnast því hversu merkilegt það er að vera Norðfirðingur. Í nokkrar ferðir fór Inda með for- eldrum okkar ásamt Önnu og Óskari til Spánar. Við eigum margar skemmtilegar minningar tengdar því þegar Inda kom suður áður en lagt var af stað í slíkar ferðir. Spán- arlögin voru spiluð og sungin og þessu fylgdi mikil lífsgleði og gaman. María móðir okkar kveður nú æskuvinkonu sína og er þakklát fyrir ljúfar og skemmtilegar minningar allt frá æskuárunum austur á Norð- firði. Við fjölskyldan öll frá Keflavík þökkum ógleymanlegar samveru- stundir og vini okkar Þórði og fjöl- skyldunni allri sendum við samúðar- kveðjur. Megi minningin um góða konu lifa svo lengi sem við munum. Margrét Lilja Einarsdóttir. Sigurlaug Einarsdóttir. ✝ RagnhildurBragadóttir fædd- ist á Akureyri 1. febr- úar 1944. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 7. október 2010. Foreldrar henn- ar voru Bragi Sig- urjónsson, banka- útibússtjóri og alþingismaður, f. 9. nóvember 1910, d. 29. október 1995, og Helga Jónsdóttir hús- móðir, f. 28. janúar 1909, d. 18. ágúst 1996. Ragnhildur var næstyngst sex systkina. Elstur var Sigurjón banka- starfsmaður, f. 24. apríl 1937, d. 4. febrúar 1976; þá Hrafn hæstarétt- ardómari, f. 17. júní 1938, Þórunn deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu, f. 13. september 1940, Gunnhildur sjúkraliði, f. 5. desem- ber 1941, og yngstur Úlfar rann- skóla Akureyrar árið 1960. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmennta- skólanum á Akureyri 1990. Ragn- hildur vann hjá Landsímanum á Ak- ureyri, Bókabúð Jónasar á Akureyri, Útvegsbankanum á Ak- ureyri, Íslandsbanka og síðast sem fjármálastjóri Menntaskólans á Ak- ureyri uns hún fluttist suður til Reykjavíkur. Þar starfaði hún m.a. fyrir Rauða krossinn, Hugarafl og Háskóla Íslands. Á meðan Ragnhild- ur bjó á Akureyri starfaði hún að ýmsum félagsmálum, vann m.a. fyr- ir Kvennaframboðið og sat í bæj- armálanefndum fyrir það framboð. Þá sat hún í stjórn Ferðafélags Ak- ureyrar og vann á skrifstofu félags- ins. Hún starfaði lengi með Sorop- timistafélagi Íslands. Í Reykjavík vann hún að málefnum geðfatlaðra og var einn af stofnendum Hugar- afls. Ragnhildur verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, 13. október 2010, og hefst athöfnin kl. 11. sóknarprófessor, f. 22. apríl 1949. Ragnhildur giftist Ingvari Baldurssyni, f. 21. mars 1943, for- stöðumanni hjá Orku- veitu Reykjavíkur. Þau skildu. Börn þeirra eru 1) Helga sérfræðingur, f. 9. ágúst 1967, sam- býlismaður hennar var Sigurgeir Einarsson, rafeindavirki, f. 23. desember 1962, d. 2. maí 2004. Sonur þeirra er Elvar, háskólanemi, f. 11. október 1988; 2) Baldur, verk- efnastjóri, f. 21. júní 1971, eiginkona hans er Sigríður Hrund Péturs- dóttir, viðskiptafræðingur, f. 12. jan- úar 1974, synir þeirra eru tvíbur- arnir Kolbeinn Sturla og Starkaður Snorri, f. 4. október 2004, og Styrmir Snær, f. 2. júní 2010. Ragnhildur ólst upp á Akureyri og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- Elsku mamma. Um mitt sumar greindist þú með krabbamein og við lögðum af stað í baráttu sem við ætluðum að vinna. Áður en við gátum hafið meðferðina þá var baráttan töpuð. Síðustu vik- ur varstu orðin þreytt og varðst hvíldinni fegin og það var erfitt fyr- ir mig að sleppa, en væntumþykja mín til þín gaf mér styrk til þess. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín Helga. Það er sól og fuglarnir syngja í trjánum. Ómur af gleði og ærslum barnanna berst um garðana. Við sitjum tvær systur inni á sjúkra- stofu og rifjum upp gleði bernsk- unnar. Þá var sól í götu bernsk- unnar. Systir mín er að ljúka lífsgöngu sinni allt of fljótt. Ég hefði óskað henni notalegra daga ellinnar, líkt og við áttum með foreldrum okkar. „Sálir mannanna eru eins og reiki- stjörnur, sem himingeimur skilur og snúast um sameiginlega þungamiðju. En til er það líka, að þær líkjast hala- stjörnu, sem fylgir óvenjulegum lögum. Til er það, að sá, er lengst kemst í ná- munda við ljósið, kafar einnig lengst í afgrunn kuldans og myrkursins.“ (Úr Skriftamálum einsetumannsins eftir Sigurjón Friðjónsson.) Ég hugsa um myrkur síðustu ára, sem eru þó mörkuð sigrum og gleði upphafsára Hugarafls, þar sem margir hafa fengið kjark og þor á ný. Einnig systir mín, sem var ein af stofnendum þess. Ég minnist áranna okkar á Ak- ureyri. Við tvær eftir af systkinun- um. Tvær sjálfstæðar konur með börnin okkar og okkar góðu for- eldra. Ég minnist þess þegar börnin þín komu í heiminn. Nálægðar þinnar þegar sólargeislinn fæddist. Göngu þinnar með okkur mæðgum. Ég minnist funda um málefni fatlaðra. Áranna okkar í Kvenna- framboðinu. Þá var nú mikið fundað, talað og sungið. Þá ríkti gleðin ein. Og góðu árin þín í Ferðafélaginu eru ofarlega í huga. Fararstjórnin, vinnuferðirnar í Herðubreiðarlindir. Ánægjan yfir kyrrðinni og fegurð landsins okkar. „Liðnar hamingjustundir eru fastar við hjarta mannsins á sárri taug. Þegar hún slitnar verður eftir ör, sem lengi svíður. Þegar þú sýnir manninum í hillingu það, sem hann þráir mest og honum finnst jarðnesk hamingja og gróður sálar sinnar liggja við, og kippir því frá honum aftur – þá er erfitt að fylgja þér.“ (Sigurjón Friðjónsson) Síðan komu erfið ár hjá okkur báðum. Foreldrar okkar létust. Þú tókst þá ákvörðun að flytja suður til barnanna þinna. Við tóku ár myrkurs og baráttu við þunglyndi. Síðasta ár hefur einkennst af miklum veikindum jafnt til líkama og sálar. Samt koma endalokin mér í opna skjöldu. Þú kvaddir að morgni dags. Það var friður yfir þér. Sólin skín í götu bernskunnar, þrestirnir syngja í trjánum Eigðu góða heimkomu. Ég þakka fyrir mig og börnin mín og kveðja frá sólargeislanum. Gunnhildur Bragadóttir. Svo óvænt er komið að leiðarlok- um, gengin er móðursystir okkar Ragnhildur Bragadóttir, Systa. Skarð er höggvið í frændgarð okk- ar, sem ekki verður fyllt. Systa bjó lengst af á Akureyri og því var samgangur okkar bræðra við hana ekki ýkja mikill en hún var engu að síður stór hluti af þeirri upplifun að fara norður til afa og ömmu í höfuðból fjölskyldunnar í Bjarkarstíg. Þar var hún tíðum eins og aðrir úr fjölskyldunni. Um hugann flögra myndir af Systu í Bjarkarstígnum þar sem hún horfir út undan sér með stríðn- isglampa í augum og skýtur hnytt- inni athugasemd inn í umræðuna og á eftir fylgir dillandi hlátur. Þannig upplifðum við bræður Systu, sterka konu sem gat séð spaugilegu hliðina á lífinu og tilverunni og hafði ein- stakt lag á að gera góðlátlegt grín að öllu án þess að undan sviði. Þú áttir auð er aldrei brást, þú áttir eld í hjarta, sá auður þinn er heilög ást til alls hins góða og bjarta. Til meiri starfa Guðs um geim þú gengur ljóssins vegi. Þitt hlutverk er að hjálpa þeim er heilsa nýjum degi. (Hrefna Tynes) Söknuðurinn er sár en minningar um góða konu eru þó nokkur hugg- un. Við kveðjum Systu með djúpri virðingu og þökk. Megi Guð styrkja þá sem syrgja. Bragi Björnsson og Guðmundur Björnsson. Hugarafl kveður í dag einn af sínum kærustu meðlimum, Ragn- hildi Bragadóttur. Ragnhildur var einn af stofnendum Hugarafls. Bar- áttuandi var eitt af einkennum hennar og fóru þar saman hug- sjónir, dugnaður og þrautseigja. Segja má að allir kostir hennar lifi í Hugarafli í dag. Ragnhildur var fædd og uppalin á Akureyri og heyra mátti af tali hennar hversu vænt henni þótti um heimaslóðir sínar. En fyrir nokkr- um árum flutti hún til Reykjavíkur. Ragnhildur var margfróð og fróð- leiksleit hennar virtist vera ótak- mörkuð og vann hún að ýmsum málefnum. Við hjá Hugarafli þökk- um þessari stórmerku konu störf hennar í gegnum árin. Áfram – og alltaf heim, inn gegnum sundin blá. Guðirnir gefa þeim gleði, sem landið sjá. Loks eftir langan dag leit ég þig helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli eg inn Eyjafjörð (Davíð Stefánsson.) Fjölskyldu hennar sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. Hugarafls, Herdís Benediktsdóttir. Elsku Ragnhildur mín. Minningarnar eru margar og ým- islegt sem við höfum brallað saman, mín kæra. Ég starfaði í Geðhjálp þegar leiðir okkar lágu saman og við ákváðum að stofna hóp sem myndi hafa áhrif á geðheilbrigð- ismál og breyta nálgun í meðferð fólks með geðraskanir. Þegar við áttum ekki lengur samleið með Geðhjálp kom ekki til greina að gef- ast upp. Við stofnuðum Hugarafl árið 2003 í Grasagarðinum ásamt Garðari Jónassyni heitnum, Hall- grími Björgvinssyni sem lést nú í haust og Jóni Ara Arasyni. Við höfðum háleit markmið, stefndum á að nýta reynslu geðsjúkra til góðs og við vildum breyta áherslum í kerfinu og fara nýjar leiðir. Þannig vildum við efla virðingu, minnka fordóma og upplýsa almenning um þá staðreynd að það væri hægt að ná bata. Haustið hefur verið okkur mjög erfitt, elsku vinkona, við höfum horft á eftir tveimur öflugum bar- áttumönnum, Hallgrími og þér, og eftir situr mikill söknuður. En einn- ig dýrmætar minningar og mikil reynsla sem okkur ber að nýta og fylgja eftir og það munum við sann- arlega gera. Þú varst klettur í okk- ar starfi og þú lagðir ríka áherslu á að öllum liði vel. Einnig að virðing fyrir samferðafólki væri rík og já- kvæðni mætti öllum þeim sem kæmu til okkar. Þú fagnaðir alltaf nýliðum og lagðir sérstaka áherslu á að sá sem tæki skrefið og léti verða af því að ganga til liðs við hópinn, myndi ekki þurfa að bíða og myndi mæta hlýju og stuðningi. Þau verkefni sem þú tókst að þér voru viðamikil og þú tókst á við þau af æðruleysi og krafti. Fjáröflun var oft í þínum höndum, stefnumót- un og fræðsla í HÍ og víðar og að auki utanumhald á staðnum. Þú gekkst í þetta allt saman og meira til, án þess að mikið bæri á. Þú sagðir skoðun þína hiklaust og veittir okkur hinum þannig oft ómetanlega leiðbeiningu í starfinu og ákvarðantöku. Þú veittir mér og öðrum traust, ræddir við þá sem litu inn og gafst tíma í spjall. Við munum halda áfram í þínum og ykkar anda með öllu því góða fólki sem hefur bæst í okkar hóp, bretta upp ermar og gefast ekki upp. Verkefnin eru næg, við eigum enn eftir að stofna kaffihúsið okkar og auðvitað skjólshúsið sem þú barðist svo ötullega fyrir sem valmöguleika í veikindum í stað innlagna. Vinátta okkar var dýrmæt, kæra vinkona, og þú gafst mér mikið. Við áttum dýrmætar stundir, studdum hvor aðra og hlógum saman og grétum saman ef harðnaði á daln- um. Ég fékk að heyra um börnin þín, Baldur og Helgu, sem þú elsk- aðir svo mikið, ömmustrákana þína sem gáfu þér svo mikið, ég fékk að fylgjast með Elvari sem þú varst svo stolt af og yndislegu tvíbur- unum og Styrmi litla. Þú varst svo stolt af fólkinu þínu og deildir því gjarnan með mér og það hefur mér þótt ómetanlegt og þykir svo vænt um. Þrátt fyrir veikindi þín und- anfarna mánuði hefur þú fylgst vel með Hugaraflinu, ávallt spurt frétta og hvatt okkur áfram. Ég mun sakna þín mikið, mín kæra vinkona, og ég mun ávallt geyma minning- arnar í hjartanu. Ég votta aðstandendum og vinum mína dýpstu samúð. Auður Axelsdóttir. Ragnhildur Bragadóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma, þú verður alltaf með okkur í bænum okkar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Strákarnir þínir, Elvar, Kolbeinn Sturla, Starkaður Snorri og Styrmir Snær. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA EYGLÓ KARLSDÓTTIR, Lækjasmára 2, Kópavogi, lést mánudaginn 4. október á Landspítala við Hringbraut. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 15. október kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Stómasamtök Íslands. Ragna Gísladóttir, Bryngeir Vattnes, Karl Gunnar Gíslason, María Einarsdóttir, Ólafur Gunnar Gíslason, Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Jón Gunnar Gíslason, Margrét Árnadóttir, Gísli Gíslason, Anna Björg Haukdal, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.