Morgunblaðið - 13.10.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Stöð 2 hefur einstaka sinnum lát-ið þess getið þegar hún fjallar
um málefni eiganda síns, stærsta
skuldara Íslandssögunnar, að hann
sé einmitt eigandi stöðvarinnar.
Þetta er gert tilað leitast við að
fá á ný einhvern trú-
verðugleikablæ á
fréttir stöðvarinnar
um útrásarliðið.
Reyndar er þess aldrei getið aðskuldakóngurinn fékk sér-
staka fyrirgreiðslu hjá Landsbank-
anum í vikunum eftir hrun, afskrift
á milljörðum til að auðvelda honum
áframhaldandi eignarhald á fjöl-
miðlunum.
Og þegar stöðin þegir um fram-ferði útrásarkappanna, sem
algengast er eða þegar hún gerir
árásir á sérstaka „óvini“ eigandans,
þá er auðvitað sleppt með öllu að
rifja upp eignarhaldið á stöðinni.
Að undanförnu hefur stöðin ver-ið í sérstakri herferð við að
grafa undan áliti og trúverðugleika
slitastjórnar Glitnis og hefur geng-
ið mjög langt í þeim efnum. Hefur
ótrúlegustu brögðum og útúrsnún-
ingum verið beitt.
Slíkt myndu engir raunverulegirfréttamenn gera nema þeir
væru undir óbærilegum þrýstingi.
Og það er einnig áberandi aðþess er vendilega gætt á með-
an þessi sérstaka herferð stendur
yfir að „gleyma“ því jafnan að geta
þess að sá einstaklingur sem slit-
astjórnin virðist helst gruna um
græsku og eigandi Stöðvar 2 sé ein-
mitt einn og sami maðurinn.
Er það ekki merkilegt?
Stöð 2
Tvöföld Stöð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.10., kl. 18.00
Reykjavík 11 alskýjað
Bolungarvík 10 rigning
Akureyri 9 skýjað
Egilsstaðir 7 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 5 heiðskírt
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 10 þoka
London 15 léttskýjað
París 16 heiðskírt
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 8 léttskýjað
Vín 13 heiðskírt
Moskva 2 skýjað
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 17 skýjað
Barcelona 18 skýjað
Mallorca 18 skýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 21 skýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 10 skýjað
New York 18 skýjað
Chicago 20 skýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:13 18:17
ÍSAFJÖRÐUR 8:23 18:16
SIGLUFJÖRÐUR 8:06 17:59
DJÚPIVOGUR 7:43 17:45
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vart hefur orðið nokkurra tegunda
flækingsfugla hér á landi í haust eins
og flest haust á síðustu árum. Af
þeim sjaldgæfustu má nefna grímu-
skríkju og frænku hennar krúnu-
skríkjuna, sparrhaukur hefur sést,
einnig grænfinka og gulllóa, þyrni-,
sef- og seljusöngvarar að ógleymd-
um myndarlegum hópi sportittlinga
sem sáust fyrir um tveimur vikum í
Vestmannaeyjum. Skríkjurnar
koma frá Ameríku, en söngvararnir
frá Evrópu, en þessir fuglar bera
sama eftirnafn.
Brynjúlfur Brynjólfsson, fugla-
áhugamaður, segir merkilegast við
þessar heimsóknir að grænfinkur
hafi sést hér í fimmta og sjötta
skipti. Sparrhaukur sé ekki heldur
algengur og sá sem hafi verið í skóg-
ræktinni við Djúpavog sé í hópi inn-
an við tíu slíkra sem hér hafa sést.
Grímuskríkja hafi sést í Vest-
mannaeyjum og sé það aðeins í ann-
að skipti sem hún hafi sést hér á
landi. „Hún er að mínu mati
skemmtilegasti gesturinn á þessu
hausti,“ segir Brynjúlfur. Krúnu-
skríkjan sem hafi verið í um viku í
Þorlákshöfn sé sextándi fuglinn af
þeirri tegund hér á landi. Fleiri
fugla nefnir Brynjúlfur sem
skemmtilega gesti, t.d. ýmsa söngv-
ara og peðgrípa.
Hefði viljað fleiri lægðir
„Þetta haust hefur verið mikið
um heimsóknir flækingsfugla til
Vestmannaeyja, en annars sjást
þessir fuglar oftast á Suðaustur-
landi,“ segir Brynjúlfur. „Persónu-
lega finnst mér að það hefðu mátt
koma fleiri lægðir upp að landinu og
eins leifar fellibylja. Þá hefðum við
fengið enn fleiri gesti og meira hefði
verið að skoða fyrir okkur fugla-
áhugamenn.“
Sjaldgæfar skríkjur
heimsækja Ísland
Margir flækingar hafa sést í Eyjum
Ljósmynd/Ingvar A. Sigurðsson
Grímuskríkja Sjaldgæfur flækingur, sem gladdi Eyjamenn nýlega.
Ljósmynd/Örn Óskarsson
Krúnuskríkja Í heimsókn í bæjargarðinum í Þorlákshöfn í síðustu viku.
Ekki er útlit fyrir að hægt verði að
opna Landeyjahöfn að nýju fyrir
helgi. Dýpkunarskipið Perla hóf
dýpkun þar í gær.
Ekki hefur verið hægt að vinna að
dýpkun um tíma vegna bilunar í
skipinu og hefur Landeyjahöfn verið
lokuð frá 28. september vegna sand-
burðar. Herjólfur hefur siglt til Þor-
lákshafnar á meðan.
Reiknað er með því að það sé fjög-
urra sólarhringa vinna að gera höfn-
ina færa fyrir Herjólf. Spáð er vax-
andi öldu og að Perla verði að hætta
vinnu á fimmtudag. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Siglingastofnun mun
skipið ljúka verkinu um leið og að-
stæður batna. Ekki er séð hvenær
það verður.
Boðin hefur verið út viðhalds-
dýpkun í Landeyjahöfn næstu þrjá
vetur. Til þess þarf skip sem getur
unnið við verri aðstæður en Perla.
helgi@mbl.is
Ekki opnað fyrir helgi
Dýpkunarskipið Perla er byrjað að
dæla sandi úr Landeyjahöfn á nýjan leik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Af stað Dýpkunarskipið Perla er nú
að störfum í Landeyjahöfn.
fæst í
pósthúsum
um allt land