Morgunblaðið - 13.10.2010, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Skipulag Alþingismenn hafa sín sæti í Alþingishúsinu en þegar þeir mæta á fund í Þjóðmenningarhúsinu blasir annar veruleiki við og þá er ekki um annað að ræða en raða stólum upp á nýtt.
Golli
Undanfarið hefur mikið verið rætt um
eftirgjöf skulda, jafnt fyrirtækja sem
einstaklinga. Skattalega meðferð slíkrar
eftirgjafar hefur einnig borið á góma, þó
minna hafi farið fyrir þeim þætti máls-
ins. Samkvæmt meginreglunni telst slík
eftirgjöf að fullu til skattskyldra tekna
hjá þeim sem nýtur.
Þann 24. júní samþykkti Alþingi
bráðabirgðalög um skattalega meðferð á
eftirgjöf skulda. Lögin taka til eft-
irgjafar skulda einstaklinga og rekstr-
araðila (þ.e. einstaklinga og fyrirtækja í at-
vinnurekstri), sem kemur til vegna þess
óvenjulega ástands sem skapaðist á inn-
lendum lánamarkaði og ná til tekjuáranna
2009-2011. Hér verður stuttlega vikið að
ákvæðum laganna sem miða að því að tak-
marka skattaleg áhrif skuldaeftirgjafar hjá
rekstraraðilum.
Í stuttu máli gera lögin ráð fyrir að tekju-
færsla vegna eftirgjafar sé fyrst færð á móti
uppsöfnuðu rekstrartapi undanfarinna ára. Í
kjölfarið er rekstraraðilanum heimilt að tak-
marka tekjufærslu með því að færa aðeins
til tekna 50% af eftirgjöf allt að fjárhæð 50
m. kr. og 75% af eftirgjöf umfram 50 m. kr.
Þá er heimild til sérstakrar fyrningar
eigna á móti eftirstandandi tekjufærslu
vegna eftirgjafarinnar. Standi eitthvað eftir
er heimilt að dreifa tekjufærslunni jafnt á
næstu þrjú ár.
Afleiðingar niðurfelldrar
gengistryggingar
Í frumvarpinu er gerður greinarmunur á
eftirgjöf skulda eða myntbreytingu lána-
samninga, sem felur í sér höfuðstólslækkun.
Því er slegið föstu að slík skilmálabreyting
hafi ekki í för með sér skattskyldar tekjur,
sé breytingin gerð á málefnalegum for-
sendum og kjörin í samræmi við það sem er
almennt í boði. Rekstraraðila ber þó að leið-
rétta áður færðan fjármagnskostnað.
Hafa ber í huga að slík leiðrétting á fjár-
magnskostnaði getur haft umtalsverð áhrif
á skattstofna rekstraraðila. Ákvæðið vekur
tvær áleitnar spurningar. Í fyrsta lagi hvort
slík leiðrétting fari fram á tekjuárinu sem
niðurfelling á sér stað eða hvort framtöl
undanfarinna ára skuli leiðrétt. Lögin svara
þessu ekki með óyggjandi hætti en vegna
breytinga á skatthlutfalli getur það haft
misjöfn áhrif eftir því hvenær leiðrétting er
framkvæmd.
Í öðru lagi, teljast bæði gjaldfærðir vextir
og gengistap af lánum til fjármagnskostn-
aðar? Fjármagnskostnaður er ekki nánar
skilgreindur í lögum um tekjuskatt en geng-
ishagnaður telst til fjármagnstekna. Ætla
verður að gengistap teljist því til fjármagns-
kostnaðar, sé litið til tilgangs laganna og
ummæla í greinargerð.
Því mun leiðrétting fjármagnskostnaðar
sem inniheldur áður gjaldfært gengistap
leiða til þess að niðurfelling gengistryggðra
lána rekstraraðila telst nær öll til skatt-
skyldra tekna og hefur þannig töluverð
áhrif í skattskilum viðkomandi.
Verulegu máli skiptir hvernig útfærslu
endurskipulagningar er háttað, þar sem
skattaleg meðferð skuldaeftirgjafar og
myntbreytingar er mjög ólík. Hvorugt verð-
ur framkvæmt án skattalegra afleiðinga, en
þær geta verið mjög frábrugðnar eftir því
hvernig tæknilegri útfærslu er háttað.
Á meðfylgjandi mynd má sjá dæmi um
það hvernig myntbreyting lánssamning leið-
ir af sér höfuðstólslækkun sem nemur 15,7
m. kr. en leiðrétting fjármögnunarkostnaðar
leiðir af sér tekjufærslu sem nemur sömu
fjárhæð. Ef viðkomandi hefði fremur samið
um höfuðstólslækkun, hefðu skattaleg áhrif
líklega verið takmörkuð, þar sem viðkom-
andi á þá rétt á sérúrræðum laganna.
Áhrif dóms Hæstaréttar
Þegar þetta er ritað er ekki ljóst hvaða
áhrif dómur Hæstaréttar, í gengismálinu
sk., hefur á lánssamninga rekstraraðila.
Slíkir samningar hafa enn ekki verið teknir
fyrir hjá réttinum og ekki liggur fyrir skýr
afstaða fjármögnunarfyrirtækja. Efnahags-
og viðskiptaráðherra lýsti því yfir að von
væri á lögum sem tækju á gengistryggðum
lánum og hafa vangaveltur verið um hvort
þau muni að einhverju leyti ná til samninga
rekstraraðila. Við setningu og beitingu lag-
anna þarf að huga að skattalegum áhrifum
þeirra.
Hér er ekki verið að gagnrýna þau úrræði
sem gripið hefur verið til, í þeim tilgangi
leysa úr erfiðri stöðu íslensks efnahagslífs.
Tilgangur þessarar greinar er að minna á að
rekstraraðilar, ekki síður en löggjafinn,
þurfa að gefa því gaum hvaða afleiðingar
skuldaendurskipulagning hefur á skattskil.
Hætt er við því að þær hagsbætur sem
stefnt er að fari fyrir bí vegna skatt-
greiðslna morgundagsins.
Eftir Gunnar Egil Egilsson
og Sturlu Jónsson
» Leiðrétting fjármagns-
kostnaðar leiðir til þess að
niðurfelling gengistryggðra
lána telst nær öll til skatt-
skyldra tekna.
Gunnar Egill Egilsson
Gunnar Egill er lögmaður hjá Nordik Legal, Sturla
er löggiltur endurskoðandi hjá Nordic Finance.
Leiðrétting gengistryggðra lána skattskyld
Sturla Jónsson