Morgunblaðið - 13.10.2010, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
✝ Ingibjörg (Inda)Finnsdóttir fædd-
ist á Sandbrekku
(Melagötu 15) í Nes-
kaupstað 5. júní 1927.
Hún andaðist að
hjúkrunarheimilinu í
Neskaupstað 5. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Finnur Sigfús Jóns-
son bátasmiður, f. 9.
október 1888, d. 22.
janúar 1962, og Mar-
grét Guðnadóttir frá
Vöðlum í Vöðlavík, f.
30. nóvember 1886, d. 28. sept-
ember 1968. Systkini Ingibjargar
voru Jón, f. 17. nóvember 1915, d. 3.
febrúar 1991; Anna Sigurborg, f.
21. febrúar 1918, d. 27. ágúst 2001,
og Guðni Þórarinn, f. 12. september
1923, d. 23. júní 1964.
Ingibjörg giftist Þórði Matthíasi
Þórðarsyni 25. desember 1948.
Hann fæddist 10. desember 1925.
Börn þeirra eru: Þórður, f. 18. októ-
ber 1948. Hann er kvæntur Önnu
Margréti Björnsdóttur og eiga þau
þrjár dætur og sex barnabörn.
Finnur, f. 26. desem-
ber 1949. Hann er
kvæntur Socorro Pe-
rez Þórðarson og eiga
þau eina dóttur, fyrir
á hann þrjú börn og
fjögur barnabörn.
Skúli, f. 10 apríl 1952,
d. 28. apríl 1991.
Sturla, f. 14. júlí 1956.
Hann er kvæntur
Rakel Halldórsdóttur
og eiga þau fjögur
börn.
Ingibjörg ólst upp á
Sandbrekku á Norð-
firði, yngst sinna systkina. Hún
vann við verslunarstörf á sínum
yngri árum, m.a. í PAN í mörg ár.
Hún var virk í íþróttafélaginu
Þrótti og stundaði m.a. handbolta.
Eftir að hún giftist var hún heima-
vinnandi og sinnti heimilinu þar til
strákarnir fóru að heiman en þá fór
hún að vinna hjá Pósti & síma og
vann þar uns hún hætti vegna ald-
urs.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag, 13. októ-
ber 2010, og hefst athöfnin kl. 14.
Inda amma var amma eins og þær
gerast bestar. Heima hjá Indu
ömmu og Lilla afa vorum við alltaf
velkomnar og þangað fórum við oft
einfaldlega bara til að vera þar. Það
þurfti enga ástæðu til að heimsækja
þau. Ef við höfðum þörf fyrir að hvíla
okkur hver á annarri eða okkur ein-
faldlega leiddist var alltaf hægt að
fara á Hólsgötuna og hanga þar.
Amma var alltaf heima og reglur
voru ekki til. Við gengum í ísinn sem
alltaf var til í frystinum og amma gaf
okkur kaffi með mjólk og sykri og við
dýfðum hörðum kringlum ofan í og
vissum að þetta mátti hvergi nema
hjá Indu ömmu. Það var ekki hægt
að láta sér leiðast á Hólsgötunni og
alltaf leyfði amma okkur að gista,
spurningin var aðeins um leyfi frá
mömmu og pabba. Eftir að hafa gist
á Hólsgötunni fórum við oft í sund
morguninn eftir með ömmu og þótti
okkur það sérstaklega spennandi.
Kompan við stigann á Hólsgötunni
er okkur öllum minnisstæð, það var
eins og að koma í annan heim að
koma þar inn. Anders And på dansk
var lesið í kompunni, gramsað í
gömlu dóti eða vasaljós notað og
skriðið eins langt inn og hægt var
þangað til við komum út á öðrum
stað.
Það voru margar hefðir hjá Indu
ömmu og Lilla afa. Jólaboðin á ann-
an í jólum, veislurnar eftir fótbolta-
leiki Þróttar og gamlársdagur var al-
veg einstakur. Þá fórum við systur á
Hólsgötuna til að horfa á Sirkus
Billy Smart í lit, en við áttum þá bara
svarthvítt sjónvarp. Það er alveg
vonlaust að horfa á Billy Smart í
svarthvítu eftir að hafa séð hann í lit.
Mikið var spilað á Hólsgötunni og
Skúli föðurbróðir okkar var óþreyt-
andi þegar kom að því að spila við
okkur krakkana. Amma greip svo í
spilin í neyð ef vantaði mann en yf-
irleitt sá hún um að færa okkur eitt-
hvað gott í gogginn meðan á spilun-
um stóð og ofdekraði okkur með alls
kyns góðgæti. Það er alveg víst að
við hefðum mátt vera duglegri við að
þakka fyrir okkur. Amma var alltaf
heima og við hikuðum ekki við að
koma með vinkonur okkar með okk-
ur í drekkutímann til ömmu. Eftir að
amma fór að vinna við að bera út
póstinn hjálpuðum við henni stund-
um á mesta annatímanum fyrir jólin.
Það var alltaf skemmtilegt að bera
út póstinn og klofa snjóskaflana með
ömmu í alls konar veðrum og hálku.
Þegar við urðum sjálfar mæður og
amma varð langaamma fór amma að
veikjast. Erfitt er til þess að hugsa
að okkar börn muna ekki eftir Indu
ömmu frískri en hún var þó stór hluti
af þeirra lífi og það er búið að horfa á
ófáa fótboltaleikina með henni und-
anfarin ár. Uppáhalds sjónvarpsefn-
ið hennar var án efa fótbolti og hún
var ótrúlega klár að þekkja leikmenn
og hennar lið var Chelsea. Eftir að
þau fluttu á Valsmýrina var oft mikið
fjör fyrir framan sjónvarpið um
helgar. Inda amma var yndisleg
amma og við erum afar þakklátar
fyrir að hafa átt hana.
Margrét, Ingibjörg og Þóra
Matthildur Þórðardætur.
Inda amma, eins og hún var alltaf
kölluð, er látin og eftir sitja ótal góð-
ar minningar. Minningar frá jólaboð-
unum þar sem alltaf var tekið upp
slideshowið og skoðaðar gamlar
myndir. Mikið var alltaf hlegið og þá
sérstaklega að tveimur myndum, af
þér á kameldýrinu á Spáni og svo af
þeim bræðrum á yngri árum. Þið afi
voruð alveg einstök við okkur barna-
börnin og alltaf var líf og fjör á Vals-
mýrinni. Mörg kvöldin kom ég upp
eftir til að spila við þig og afa og auð-
vitað var borðað góðgæti með. Marg-
ar voru heimsóknirnar og oft komu
vinkonurnar með, enda alltaf gaman
að koma til afa og ömmu. Amma átti
alltaf ís í kistunni handa barnabörn-
unum og var því stundum komið við
eftir útileikina og fengið sér hress-
ingu. Undanfarin ár hef ég búið fyrir
sunnan og því heimsóknirnar verið
færri. Afskaplega er ég þakklát fyrir
þennan tíma sem við áttum saman í
sumar. Þó svo að sjúkdómur hafi
hrjáð ömmu undanfarin ár þá var
alltaf stutt í hláturinn og fallega
brosið. Þegar ég hugsa til baka
finnst mér vera forréttindi að fá að
hafa alist upp með þér og afa. Elsku
afi, guð gefi þér styrk á sorgar-
stundu því missir þinn er mikill.
Þakka þér, elsku amma, fyrir allar
góðu stundirnar og hvíldu í friði.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Kveð þig með söknuði.
Anna Rósa.
Inda vinkona mín hefur kvatt
þessa jarðvist og minningar löngu
liðinna ára hrannast upp. Satt að
segja hefur Inda verið hluti af tilveru
minni frá fyrstu tíð. Stutt var á milli
æskuheimila okkar og í minningunni
var hún mætt alla morgna í Vík og
við tóku leikir daginn langan. Maja
systir mín stjórnaði lengi vel
ákveðnum leikjum og þá klæddum
við okkur í föt sem dagað hafði uppi í
Vík og í því safni voru meira að segja
brúðarskór einnar Viðfjarðarsystur-
innar. Stundum bauð leikstjórnand-
inn í ökuferð og þá settumst við Inda
upp í stóran kerrugarm og svo var
ekið af stað. Í einni slíkri ferð þurfti
Jonni bróðir hennar endilega að rek-
ast á ferðalangana og leist greinilega
ekki á, sagði systur sinni að fara úr
þessum druslum hið snarasta og
koma sér heim. Inda hlýddi að sjálf-
sögðu eldri bróður, en honum láðist
að nefna hvað hún átti að vera lengi
heima svo hún var mætt á ný eftir
stutta stund og leikurinn hélt áfram
og nú innandyra.
Eftir því sem árunum fjölgaði
Ingibjörg
Finnsdóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞORVALDUR GESTSSON
fyrrum bóndi á Krossi,
Túngötu 6,
Hofsósi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks laugardaginn 9. október.
Útförin fer fram frá Hofsóskirkju laugardaginn 16. október kl. 12.00.
Ingibjörg I. Ólafsdóttir,
Ólafía A. Þorvaldsdóttir, Jón T. Jökulsson,
Þorvaldur Ingi Guðjónsson,
Fríða Rún Guðjónsdóttir,
Karen Ósk Jónsdóttir,
Helgi Fannar Jónsson,
Guðjón Björgvinsson.
✝
Ástkær maðurinn minn, faðir og afi,
ELFAR SIGURÐSSON,
Hólmgarði 19,
áður til heimilis á,
Hellissandi,
lést á Grund miðvikudaginn 6. október.
Útför hans fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn
15. október kl. 13.00.
Guðrún Jóna Jóhannesdóttir,
Grétar Jón Elfarsson,
Saga Dröfn Grétarsdóttir,
Anton Már Grétarsson.
✝
Elsku dóttir okkar, ástkær tvíburasystir og frænka,
SANDRA MARIE REYNISDÓTTIR,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtudaginn
7. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
15. október kl. 13.00.
Reynir Marteinsson, Michelle A. Marteinsson,
Janet Nicole Reynisdóttir
og fjölskylda.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSA SÓLVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Barðastöðum 9,
Reykjavík,
lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans
við Hringbraut mánudaginn 11. október.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
19. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið.
María Guðmundsdóttir, Guðmundur Valur Sævarsson,
Áslaug Guðmundsdóttir,
Guðlaugur Guðmundsson, Þórey Birgisdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HELGA M. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Kóngsbakka 14,
Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 8. október.
Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 18. október kl. 13.00.
Bjarni Sigmar Kjartansson,
Svanfríður Anna Lárusdóttir,
Jónas Elí Bjarnason, Marina Kelly,
Kristín Ýr Bjarnadóttir, Brynjar Már Valdimarsson,
barnabörn, barnabarnabarn,
systkini, vinir og vandamenn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, systir og mágkona,
BJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
áður Unnarbraut 6,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu í Garðabæ laugardaginn
9. október.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 18. október kl. 15.00.
Margrét Pálsdóttir, Alfreð Bóasson,
Guðmundur Pálsson, Íris Dungal,
Magnús Pálsson, Laura Sch. Thorsteinsson,
Björg Pálsdóttir,
Hildur Pálsdóttir, Aðalsteinn Sigurþórsson,
Kristján Pálsson, Erna Kettler,
barnabörn, barnabarnabörn,
systur og mágkonur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR GUÐJÓNSSON,
Klapparhlíð 5,
Mosfellsbæ,
áður Grænuhlíð 11,
Reykjavík,
lést á heimili sínu mánudaginn 11. október.
Jarðsett verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
15. október kl. 13.00.
Hildur Rúna Hauksdóttir,
Hrefna Hauksdóttir, Mike Draper,
Sverrir Gísli Hauksson, Kristín Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.