Morgunblaðið - 13.10.2010, Page 30
legt að ná að njóta svona mikillar
velgengni fyrir eitthvað sem þú
gerðir algjörlega á þínum eigin for-
sendum?
„Já, mjög svo. Að hafa fulla stjórn
á því sem maður er að gera og fá
svona góðar viðtökur er ótrúleg
upplifun.“
ekkert frá þér fyrr en „With Every
Heartbeat“ tíu árum seinna. Er
„Show Me Love“ gamla Robyn og
„With Every Heartbeat“ nýja Ro-
byn eða sérð þú þetta sem samfellda
þróun?
„Það er voðalega erfitt fyrir mig
að segja til um það. Það er frekar
hlutverk fjölmiðla og þeirra sem
hlusta á tónlistina að finna út úr
því. Fyrir mér hefur þetta verið
samfelld þróun og tónlistin í
dag væri ekki eins og hún er ef
ekki væri fyrir eldri tónlist-
ina. En það er í raun annarra
að segja til um það.“
– Það verða þarna
ákveðin kaflaskipti á ferl-
inum þegar þú stofnar
Konichiwa útgáfuna og
svo slær Robyn í gegn í
kjölfarið. Hvernig hefur
þetta gengið? Því nú var
þetta áhætta líka..?
„Þetta var al-
gjörlega nauðsyn-
legt. Þetta er eitt-
hvað sem ég varð að
gera til að geta hald-
ið áfram að búa til
tónlist. Þetta varð að
gerast á mínum eigin
forsendum. Og
þetta er mikið
frelsi. Að sjálf-
sögðu fylgdi
þessu líka
ákveðin áhætta
en það var ann-
að hvort þetta
eða að hætta að
búa til tónlist.“
– Það hlýtur
að hafa verið
mjög ánægju-
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Sænska poppstjarnan Robyn komst
fyrst á kortið árið 1997 þegar hún
kom lögunum „Show Me Love“ og
„Do You Know (What It Takes)“ af
plötunni Robyn Is Here á topp 10 á
bandaríska Billboard vinsælda-
listanum. Hún var þá aðeins 18 ára
gömul en var þegar orðin þekkt í
heimalandi sínu og tók m.a. þátt í
undankeppni Eurovision (sem laga-
höfundur) sama ár. Tvær plötur
fylgdu í kjölfarið en vinsældir þeirra
náðu lítt út fyrir Svíþjóð. Fjórða
platan, einfaldlega titluð Robyn,
skaut henni hins vegar aftur upp á
stjörnuhimininn svo um munaði en
hún var fyrsta platan sem gefin var
út undir merkjum Konichiwa Re-
cords, útgáfufyrirtækis sem Robyn
stofnaði til þess að losna undan
áhrifum stóru plötuútgáfanna.
Platan kom út 2005 í Svíþjóð,
tveimur árum seinna í Bretlandi og
2008 í Bandaríkjunum og lög eins og
„With Every Heartbeat,“ „Handle
Me“ og „Be Mine!“ klifruðu vin-
sældalista út um allan heim. Á eftir
fylgdu plöturnar Body Talk 1, sem
kom út í júní á þessu ári, og Body
Talk 2, sem kom út í september og
hafa báðar plöturnar fengið glimr-
andi dóma og heyrist víða hvíslað að
sænska súperstjarnan sé ókrýnd
prinsessa poppsins. Það má því telj-
ast víst að troðfullt verður út úr dyr-
um þegar hún tekur Airwaves með
trompi næstkomandi laugardag.
Annað hvort þetta eða að hætta
– Fyrsti smellurinn þinn hér á Ís-
landi og út um allan heim var „Show
me love“ og svo heyrum við í raun
– Nú hafa Robyn og Body Talk 1
og 2 fengið mjög góðar viðtökur. En
þú virðist stundum hafa tvíræðar til-
finningar gagnvart frægðinni..?
„Nei, ekki beint. Það er frábært
að sjá tónlistina fá svona góðar við-
tökur og að sjálfsögðu vil ég að plöt-
urnar gangi vel. En þetta snýst líka
um það; að fólk sé hrifið af tónlist-
inni. Þetta snýst ekki um að verða
einhver stórstjarna. Ég vil bara geta
verið ég og unnið eins og ég vil.“
Að standa fyrir utan og líta inn
– Textarnir þínir fjalla oft um
ástina og ástarsorg en mann-
eskjan á bak við þá virðist samt
alltaf vera mjög sjálfsörugg og
sterk. Sækir þú þá í persónu-
lega reynslu?
„Já ég sæki í persónulega
reynslu þegar ég er að semja
textana. En þetta snýst ekki
endilega bara um ástarsorgina
sem slíka þrátt fyrir að lögin fjalli
um það. Þetta snýst líka bara al-
mennt um að standa fyrir utan og
líta inn, að passa ekki í hópinn og fá
ekki endilega það sem maður vill en
að vera samt sterkur og vera þú
sjálfur. Þetta er gjarnan þemað í
popptónlistinni, að finna sjálfan sig
og þora að vera maður sjálfur.“
– Nú söngst þú „Hyperballad“
þegar Björk voru afhent Polar
tónlistarverðlaunin, ertu aðdáandi
hennar?
„Já, ég er mikill aðdáandi
hennar. Hún er búin að vera
einn mikilvægasti popptónlist-
armaðurinn síðastliðin 20 ár og
hefur haft mikil áhrif á marga.
Ég vil ekki beint kalla hana
fyrirmynd af því að það er
stimpill sem ég vil ekki
nota en tónlistin hennar
hefur haft mikil
áhrif.“
– Hvað er næst
á dagskrá eftir að
Body Talk 3
kemur út?
„Bara meiri
tónlist og tón-
leikar.“
– Þannig að þú
ert ekkert að fara í
frí? Við megum
eiga von á annarri
plötu fljótlega?
„Já, ég vil vinna
þetta svona, jafn-
óðum. Ekki hafa ein-
hver tímabil þar sem
allt er brjálað að gera
og svo tímabil þar
sem ég er ekki að gera
neitt.“
Gerir það sem hún vill
Sænska poppstjarnan Robyn kemur fram á Airwaves Hefur slegið í gegn út
um allan heim með lögum á borð við „With Every Heartbeat“ og „Handle Me“
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„Lifandi Útvarp“ er nýjung í dag-
skrárgerð Nemaforum Slippsalar og
felur í sér eins konar samruna flytj-
enda og áheyrenda. Í notalegri stof-
ustemmningu í samneyti við aðra
býðst gestum að meðtaka list- og
menningartengd málefni og sötra
kaffi, te og aðrar veigar í skammdeg-
inu.
„Lifandi Útvarp“ er lista- og menn-
ingarrás, efnið er ýmist flutt af fingr-
um fram eða leikið af bandi nema
hvort tveggja sé. Flytjendur eru
beintengdir áheyrendum sem eru á
sama hátt í beinni við flytjendur og
aðra gesti í sal. Hér skapast tilefni til
umræðna í kjölfar upplifunar á stofu-
gólfi hins „Lifandi Útvarps“.
Friður á jörð
Tveir fyrstu dagskrárliðir Lifandi
Útvarps tengjast Imagine Reykjavik
undir merkjum betra lífs og friðar á
jörð. Þannig hófst útsending síðast-
liðinn sunnudag með kynningu á nýju
íslensku tónverki, Heimsljósi, sálu-
messu eftir Tryggva M. Baldvinsson.
Tryggvi kynnti tengingu verksins við
bókmenntaverk Halldórs Laxnes og
greindi áheyrendum frá hvernig
hann valdi lykilkafla sem undirstöðu
tónverksins. Einstakt tónverk og
framsaga sem gáfu gestum nýja vídd
í verkið og magnþrungna tónlistar-
upplifun.
Bylting Lennons
Næsti dagskrárliður Lifandi Út-
varps verður síðan 23. október næst-
komandi. Þá munu þeir Ingólfur
Margeirsson og Valgeir Guðjónsson
rýna í arf John Lennons og hvernig
ofurrokkstjarnan tókst á við stríð og
ofbeldi af fáheyrðu hugrekki. Tón-
dæmi verða leikin, ýmist af hljóð-
ritum eða á staðnum. Gagnvirk miðl-
un verður í hávegum höfð með virkri
þátttöku hlustenda.
„Lifandi Útvarp“ í Slippsalnum
Lifandi Tryggvi M. Baldvinsson með útvarpsstjóranum Valgeiri Guðjónssyni.
Áhersla á samslátt og samneyti flytjenda og áheyrenda
www.nemforum.com
Robyn heitir í raun Robin Miriam Carlsson.
Hún er mjög heimakær og þrátt fyrir að túra mikið vill hún
líka fá að vera í friði heima í Svíþjóð.
Aðspurð er hún fljót að játa því að hún er gallharður femínisti.
Hún býr í fallegu húsi þar sem hún geymir líka alla leikmuni og
búninga úr tónlistarmyndböndunum sínum.
„Show Me Love“ var aðallagið í mynd Lukas Moodysson, Fucking
Åmål og myndin var látin heita eftir laginu þar sem hún kom út í
enskumælandi löndum.
Robyn er trúlofuð bardagamanninum Olof Inger.
Þrátt fyrir að margir flokki tónlist hennar sem töffaralegt elektró- og dans-
skotið popp kallar Robyn tónlist sína einfaldlega popptónlist og skammast
sín ekkert fyrir það.
Hún var sendiherra fyrir UNICEF árin 1999 og 2000.
Það sem þú vissir
ekki um Robyn
STAÐREYNDIR
Fólk
Farandklúbburinn Skyndilega
greip mig óstjórnleg löngun held-
ur s.k. „Queer Showcase“ á Bar-
böru við Laugaveg annað kvöld, 14.
október, í tengslum við tónlistarhá-
tíðina Iceland Airwaves sem hefst í
dag. Húsið verður opnað kl. 20 og
aðgangur ókeypis en fjörið byrjar
klukkustund síðar. Meðal þeirra
sem koma fram eru DJ Dauði, Miss
Daisy (aka. Agnes Erna) og Anna
Magga, Aðalbjörg Árnadóttir,
Adda, NOW ’94, DJ Cuntlove og DJ
Gorbatjov. Kynnir er uppistands-
drottningin Þórdís Nadia Semichat.
Í kynningu á farandklúbbnum
Skyndilega greip mig óstjórnleg
löngun segir: „Engin/n ætti að
skammast sín fyrir að vilja stund-
um...
…vera bæði svona og hinsegin,
eða hvorki né en þó jafnvel allt í
senn.
…ganga hina beinu braut en
bregða út af henni í öðru hvoru
skrefi.
…vera kona en gleyma því svo.
…valda kynusla í sínu nær-
umhverfi.
…fara með með ámálað skegg í
barnaafmæli.
…kefla diskókúluna á Barböru
...bara í eitt kvöld.“
„Queer“ tónlistarkvöld
farandklúbbs
Myndlistartímaritið BLATT
BLAÐ, nr. 58, er komið út en höf-
undur kápu þess að þessu sinni er
myndlistarmaðurinn Huginn Þór
Arason. Aðrir sem verk eiga í blað-
inu eru André Alder, Jóna Hlíf
Halldórsdóttir, Hlynur Hallsson,
Ómar Smári Kristinsson, Alexand-
er Steig, Volker Troche og Aðal-
steinn Þórsson. Blaðið er 16 síður í
A5 broti, upplag 100 eintök.
BLATT BLAÐ kom fyrst út 1994.
Það kostar 400 krónur og fæst í
versluninni Útúrdúr/Havarí í Aust-
urstræti 6 en þeir sem vilja fá það
sent sendi póst á hlynur@gmx.net.
BLATT BLAÐ nr. 58 með
kápu eftir Hugin Þór
Robyn Er án efa
stærsta númerið á
Airwaves í ár.