Morgunblaðið - 13.10.2010, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Svipti sig lífi í beinni útsendingu
2. Portúgal hafði betur í Laugardalnum
3. Kúreki festist í fatasöfnunargámi
4. Svona gæði sér maður ekki oft
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Þetta er frábær bók, besti krimmi
sem ég hef lesið í nokkurn tíma,“
segir m.a. í gagnrýni um glæpasögu
Árna Þórarinssonar, Morgunengil,
sem fær fjóra og hálfa stjörnu af
fimm mögulegum. »28
Morgunengill Árna
frábær krimmi
Kínó klúbburinn
og Listasafn
Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi, bjóða
laugardaginn 16.
október, upp á
námskeið í gerð
kvikmynda án
notkunar mynda-
vélar, fyrir 8-15
ára börn. Börnin geta tekið með sér
verkfæri á borð við svampa, stimpla,
pensla og málningu. Frekari upplýs-
ingar á listasafnreykjavikur.is.
Kvikmyndagerð án
kvikmyndavélar
9. október sl. hófst vikulöng kvik-
myndahátíð í kamesinu í Borgar-
bókasafninu, Tryggvagötu. Safnið
býður upp á kvikmyndaupplifun í
formi klippimynda þýsku kvik-
myndagerðarkonunnar Lotte Reini-
ger sem sérhæfði sig í gerð klippi-
mynda í
anda kín-
verskrar
skugga-
leik-
hús-
hefðar.
Klippimyndir í anda
skuggaleikhúshefðar
Á fimmtudag Suðvestanátt, víða 8-13 m/s og skúrir, en hægari og úrkomulítið austan til
á landinu. Hiti 5 til 10 stig.
Á föstudag Hæg breytileg átt og skýjað en yfirleitt þurrt. Sunnan 8-13 og rigning sunn-
an- og vestanlands með kvöldinu. Hiti 3 til 10 stig, mildast suðvestan til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-8 og smáskúrir, en rigning síðdegis og í kvöld, fyrst
suðvestanlands. Hiti 5 til 13 stig.
VEÐUR
Ólafur Jóhannesson, lands-
liðsþjálfari í knattspyrnu,
segir engan bilbug á sér að
finna þrátt fyrir þrjá ósigra í
undankeppni EM og annað
sem á gekk fyrir leikinn gegn
Portúgal. „Ég ætla að
minnsta kosti að halda mínu
striki sem landsliðsþjálfari.
En auðvitað er leiðinlegt að
vera ekki kominn með ein-
hver stig vegna þess að við
höfum að mörgu leyti leikið
fínan fótbolta.“ »1
Engan bilbug á
Ólafi að finna
Wayne Rooney og félagar í enska
landsliðinu í knattspyrnu urðu að
gera sér að góðu 0:0 jafntefli gegn
Svartfjallalandi í undankeppni Evr-
ópumótsins í gærkvöld. Danir lögðu
Kýpurbúa 2:0 í riðli Ís-
lands, heimsmeistarar
Spánar knúðu fram
sigur í Skotlandi, 3:2,
og Þjóðverjar og
Frakkar unnu
sína leiki. »4
Danir lögðu Kýpur en
England með jafntefli
Valskonur taka í dag á móti spænsku
meisturunum Rayo Vallecano í Meist-
aradeild kvenna í fótbolta en leikur
liðanna hefst á Hlíðarenda klukkan
15.30. Valsliðið er í erfiðri stöðu eftir
0:3 tap í fyrri leiknum en Freyr Alex-
andersson þjálfari segir að mögu-
leikar séu fyrir hendi og lið sitt ætli
að gera allt sem mögulegt sé til að
vinna upp forskotið. »4
Slást við spænsku
meistarana í dag
ÍÞRÓTTIR
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Enginn Íslendingur hefur náð að
hlaupa jafn oft maraþon og hin 53
ára gamla hlaupadrottning Bryndís
Svavarsdóttir. Á laugardaginn lauk
hún sínu 123. hlaupi í Connecticut í
Bandaríkjunum og áætlar að hlaupa
tvisvar til viðbótar um næstu helgi.
Að því loknu hefur Bryndís náð þeim
glæsilega árangri að hlaupa mara-
þon í 49 ríkjum Bandaríkjanna.
„Mig langar til að klára öll ríkin
en þar sem þetta er orðið dýrt ætla
ég að láta mig hafa það að hlaupa
tvisvar um næstu helgi. Ég hleyp í
Indianapolis í Indiana á laugardag
og í Columbus í Ohio á sunnudag,“
segir Bryndís og bætir við að þá eigi
hún einungis Delaware-ríki eftir.
„Það ber gælunafnið „The first
State“ (e. Fyrsta ríkið) en það verð-
ur mitt síðasta. Ég hleyp þar 15. maí
2011 og held svakateiti þegar ég
kem heim.“
Bryndís hefur ávallt verið búsett
hér á landi og fer með flugi út í öll
þau maraþon sem hún tekur þátt í
erlendis. Hún segir eiginmann sinn
koma með í flestar ferðirnar en það
komi þó einstöku sinnum fyrir að
hún fari einsömul. Þá hafa foreldrar
hennar nokkrum sinnum slegist með
í för.
Allir geta hlaupið maraþon
Bryndís byrjaði að skokka árið
1991 og hljóp sitt fyrsta maraþon í
Stokkhólmi árið 1995. „Ég fór svo í
mitt fyrsta bandaríska maraþon í
New York árið 1996 í tilefni af fjöru-
tíu ára afmælinu mínu,“ segir Bryn-
dís og bætir við að það hafi ekki
hvarflað að henni á þeim tíma að hún
ætti eftir að hlaupa í öllum ríkjum
Bandaríkjanna.
Hún hleypur fyrir skemmtunina,
heilsuna og félagsskapinn, og á mjög
góðar hlaupavinkonur. Bryndís seg-
ist ætla að halda áfram að hlaupa
þegar 50 ríkja markinu verður náð.
Að hennar mati er ekkert mál að
hlaupa maraþon.
„Það geta allir hlaupið maraþon.
Það sem heftir marga er að þeir vilja
vera svo góðir en það er afrek að
komast vegalengdina.“
Óstöðvandi hlaupagarpur
Bryndís viðurkennir þó að hlaupin
hafi ekki alltaf verið dans á rósum.
„Ég æfði mjög vel fyrir fyrsta mara-
þonið mitt, en hljóp það síðan með
brest í lærleggnum. Eftir að ég náði
mér af því batnaði tíminn minn. Ég
hef svo hlaupið síðustu 10 til 12 ár
með grindarlos. Það stoppar mig
víst ekkert.“
Bryndís heldur úti bloggsíðunum
byndissvavars.blog.is og bylt-
ur.blog.is.
Íslandsmet í maraþonhlaupi
Stefnir á að
hlaupa í öllum
ríkjum BNA
Komin í mark Hlaupadrottningin Bryndís Svavarsdóttir hefur hlaupið í 47 ríkjum Bandaríkjanna. Hér sést hún
uppgefin eftir gott hlaup í Nýju Mexíkó árið 2007. Sjálf skýrði hún myndina „Takk Jesú“ á heimasíðu sinni.
Ánægð Bryndís sátt með verðlaunapeninginn sinn eftir hlaup í Miami.