Morgunblaðið - 22.10.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.10.2010, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ Lestur góðra bóka getur verið óskaplega hugguleg iðja í svartasta skammdeginu. Fátt er notalegra en að gleyma sér við lestur, jafn- vel við kertaljós, undir teppi með gott te í bolla. Að vanda kemur út fjöldi spennandi bóka fyrir jólin og því úr nógu að velja. Eitthvað er þegar komið út og annað væntanlegt. Hér getur að líta nokkrar spennandi bækur sem þegar eru komnar út. birta@mbl.is Skruddur í skammdeginu Blóðnætur eftir Åsu Lars- son. Lögfræðingurinn Re- becka Martinsson tekst á við flókið mál og reynir um leið að gera upp flókna fortíð sína. Fyrsta bók Larsson um Rebecku, Sól- gos, vakti mikla athygli. Arsenikturninn eftir Önnu B. Radge. Ný skáld- saga eftir höfundinn sem færði okkur sögurnar um Neshov fjölskylduna í þrí- leiknum sem hófst á Berlínaröspunum. Blóðhófnir eftir Gerði Kristný. Ljóðabók um jötunmeyna Gerði Gym- isdóttur sem Skírnir, skósveinn Freys, sótti til Jötunheima handa hús- bónda sínum. Svar við bréfi Helgu eftir Bersvein Birgisson. Hjart- skerandi ástarsaga sem gerist í sveit um miðja síð- ustu öld. Fyrirgefningin eftir Lilju Sig- urðardóttur. Önnur spennu- saga Lilju en bókin Spor hlaut góðar undirtektir í fyrra og útgáfurétturinn var nýlega seldur til þýska for- lagsins Rowohlt. Sýrópsmáninn eftir Eirík Guðmundsson. Þriðja skáldsaga Eiríks er skemmtileg og stundum svolítið furðuleg. Ertu Guð, afi? eftir Þor- grím Þráinsson. Höfund- urinn fékk nýverið Ís- lensku barnabóka- verðlaunin fyrir söguna, sem fjallar um samband hinnar 11 ára Emmu Soffíu við afa sinn. Maðurinn sem var ekki morðingi eftir Hjort Ro- senfeldt. Fyrsta bókin í spennuþríleik um rétt- arsálfræðinginn Sebast- ian Bergman. A ustfirsku Alparnir eru stað- ur sem hljómar eins og draumur allra skíða- og úti- vistarmanna. Og það er trúlega ekki fjarri lagi. Svæðið sem er kallað svo liggur milli Eski- fjarðar og Norðfjarðar og er í dag- legu tali nefnt Oddsskarð. Þar eru þrjár toglyftur og salíbuna frá efsta toppi skíðasvæðisins mælist 840 metrar. Fyrir börn og aðra óreyndari má svo æfa sig í Sól- skinsbrekkunni svokölluðu. Dagfinnur S. Ómarsson er for- stöðumaður skíðasvæðisins. Hann segir síðustu vetur hafa verið góða á svæðinu. „Frá árinu 2006 höfum við náð að hafa opið yfir 60 daga á ári og þeir hafa verið nær 80 síðustu tvö ár,“ segir hann. „Það eru mjög margir sem nýta sér þetta frábæra svæði. Til dæmis áttu 10% íbúa Fjarðabyggðar vetr- arkort í fyrra, sem tryggði þeim aðgang að svæðinu allan veturinn.“ Undanfarin þrjú ár hefur verið mikið um að vera á svæðinu yfir páskahelgina. „Við höfum flutt inn ekta Týróla- band frá Austurríki en þeir hafa haldið tónleika í brekkunni á laugardagskvöldinu um páskahelg- ina. Svo höfum við haft flug- eldasýningu í kjölfarið,“ segir Dag- finnur. Gisting í svefnpokaplássi Áður en skíðamiðstöðin í Odds- skarði var byggð hafði skíðadeild Þróttar í Neskaupstað þar yfir að ráða gömlum skíðaskála og æva- fornri togbraut. Almenn skíðaiðkun Norðfirðinga fór að mestu fram í Kúahjöllum ofan byggðar í Nes- kaupstað. Fyrsta lyftan í Oddsskarði var tekin til notkunar árið 1980 og tíu árum síðar var annarri bætt við. Ný barnalyfta var svo tekin í notk- un árið 1999 og leysti hún af hólmi gömu toglyftuna. Skíðaskálinn reis árið 1986 og í honum er veitingasala og möguleiki á gistingu í svefnpokaplássi fyrir allt að 35 manns. Troðari var fyrst notaður á svæðinu árið 1988 og flóðlýsingu var komið upp árið 1994, sam- kvæmt upplýsingum á vef Fjarða- byggðar. birta@mbl.is Fegurð Skíðasvæðið í Oddsskarði er fallegt og gaman að láta sig líða niður brekkurnar á góðum degi. Undirbúningur fyrir góðan vetur Skíðasvæðið í Oddsskarði er mikið notað af íbúum Fjarðabyggðar. Týrólaband heldur uppi fjöri á svæðinu um páskana. Gaman Fjör í toglyftunni. Flottir Austurríska Týrólabandið Wlad 3 leikur fyrir dansi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.