Morgunblaðið - 22.10.2010, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13
S
njór og vetrarríki eru sögu-
svið bókarinnar. Á Siglufirði
er dimmt og snjóþungt yfir
veturna og sú tilfinning mun
vonandi skila sér til lesenda,“ segir
Ragnar Jónasson rithöfundur. Þessa
dagana er að koma út hjá forlaginu
Veröld bókin Snjóblinda, sem er önn-
ur bók Ragnars.
Grunsamlegur dauðdagi
Í Snjóblindu segir frá ungum nýút-
skrifuðum lögregluþjóni, Ara Þór
Arasyni, sem hefur ráðið sig til starfa
hjá lögreglunni á Siglufirði. Fljótlega
eftir að hann flytur norður deyr aldr-
aður rithöfundur á grunsamlegan
hátt á æfingu hjá áhugaleikfélagi
bæjarins, daginn fyrir frumsýningu.
Skömmu síðar finnst ung kona blóð-
ug og hálfnakin í snjónum, nær
dauða en lífi. Það er hlutverk Ara að
reyna að upplýsa þessi mál og kom-
ast að því hvað er satt og hvað er log-
ið í samfélagi þar sem hann veit ekki
hverjum hægt er að treysta.
Og það er í einangrun, myrkri og
snjónum á Siglufirði sem þrengir að
Ara, óttinn nær tökum á bæjarbúum
og gleymdir glæpir fortíðar koma
upp á yfirborðið.
Moka sig út úr húsinu
„Þetta er vetrarsaga sem gerist í
bæ þar sem einangrunin getur oft
verið mikil. Sögupersónurnar eru að
sjálfsögðu skáldaðar en umhverfið
ættu allir sem staðkunnugir eru að
þekkja og segja má að bærinn sjálf-
ur, Siglufjörður, sé í raun ein aðal-
söguhetjan,“ segir Ragnar Jónasson
sem á ættir sínar að rekja til Siglu-
fjarðar og hefur dvalist þar löngum.
Hann nefnir þá frásögn í bók sinni
að þegar lögreglumaðurinn ungi
kemur til Siglufjarðar og fær gamalt
hús til afnota fylgir húsinu skófla –
sem honum er afhent með þeim orð-
um að hún komi sér vel þegar hann
þurfi að moka sig út úr húsinu – eins
og í raunveruleikanum gerist oft í
þessum nyrsta bæ á Tröllaskaga.
sbs@mbl.is
Vetrarglæpir í snjóþungum bæ
Siglufjörður er sögusvið
glæpasögunnar Snjóblindu
eftir Ragnar Jónasson.
Vetrarríkið nyrðra setur
sterkan svip á sögu sem er
önnur bók höfundarins.
Rithöfundur Ragnar Jónasson með nýja glæpasögu sína sem gerist á Siglufirði.
Sundlaugar hér á landi eru mikið sótt-
ar allan ársins hring, og ekki síst á
góðviðrisdögum á sumrin.
Það þýðir þó ekki að það sé síður
notalegt að stunda stund yfir vetr-
armánuðina.
Gott er að byrja daginn á að taka
sundsprett í lauginni áður en haldið er
til vinnu. Tilhugsunin um kuldann á
sundlaugarbakkanum hjálpar kannski
ekki við að tosa mann undan sænginni
á morgnana og því er ráð að hafa vit
fyrir sjálfum sér og taka til sunddót
kvöldið áður. Ekki er verra að mæla
sér mót við vini eða vinnufélaga í laug-
inni á morgnana til að tryggja eigin
mætingu því flestir mæta á stefnu-
mót.
Einnig eru sundlaugarnar, og þá
ekki síst heitu pottarnir, kærkomin vin
eftir langan skóla- eða vinnudag. Ráð
er fyrir fjölskyldufólk að hafa með-
ferðis náttföt fyrir börnin. Það er afar
notalegt að fara í hrein og mjúk nátt-
föt að lokinni sundferð fyrir háttinn.
birta@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Vetur Fjör í Kópavogslaug.
Sund í myrkri