Morgunblaðið - 27.10.2010, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010
Indónesísk kona í þorpinu Kaliur-
ang á Jövu skýlir barninu sínu og
hleypur undan gosösku frá eldfjall-
inu Merapi sem byrjaði að gjósa í
gær. Þúsundir manna voru þegar í
stað fluttar frá hlíðum fjallsins,
þriggja mánaða barn dó er það
fékk ösku í lungun.
En Indónesar kljást ekki bara við
eldgos. Talið er nú að minnst 113
manns hafi týnt lífi þegar þriggja
metra flóðbylgja myndaðist eftir
7,7 stiga jarðskjálfta á hafsbotni við
vesturhluta Súmötru á mánudag og
skall á eyjaklasanum Mentawai.
Um tugur þorpa sópaðist á haf út
og óttast er að tala látinna eigi eftir
að hækka mikið. Um 200 manns
bjuggu í einu þorpinu og aðeins 40
var bjargað. Sumum tókst að klifra
upp í tré en grátandi foreldrar
lýstu því hvernig þeir misstu takið
á börnum sem hurfu í flóðvatnið. Reuters
Sjórinn
hrifsaði
börnin
Eldgos í fjallinu Merapi og flóðbylgja eftir jarðskjálfta valda miklu manntjóni í Indónesíu
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íranar gagnrýndu í gær harkalega
vefsíðuna WikiLeaks sem birt hefur
leynilegar upplýsingar Bandaríkja-
hers um stríðið í Írak. Þar er m.a.
lýst afskiptum íranskra stjórnvalda
af átökunum í Írak og hvernig þau
hafi vopnað og þjálfað uppreisnar-
menn sem börðust gegn ríkisstjórn-
inni í Bagdad og erlenda herliðinu.
Íranar segjast munu bregðast hart
við þessum „illgirnislegu“ aðgerðum
WikiLeaks.
„Það eru miklar efasemdir um það
hvaða hvatir liggi að baki þessum
grunsamlega leka á gögnum Wiki-
Leaks,“ sagði talsmaður íranska ut-
anríkisráðuneytisins, Ramin Mehm-
anparast. Hann sagði að um pólitíska
aðgerð væri að ræða þótt látið væri í
veðri vaka að WikiLeaks hefði tekið
sjálfstæða ákvörðun um að setja
gögnin á netið.
Íranar styðja Nuri al-Maliki, for-
sætisráðherra Íraks, er berst fyrir
því að halda völdum. Hann segir
gögnunum hafa verið lekið til að
koma á sig höggi en í þeim er m.a.
lýst hrottalegri meðferð íraskra ör-
yggissveita á föngum. Danskir ráða-
menn hyggjast nú láta rannsaka
hvort danskir hermenn hafi afhent
írösku lögreglunni yfir 60 íraska
andspyrnumenn þótt vitað væri að
þeir myndu sæta misþyrmingum og
pyntingum.
Bandaríkjamenn og talsmenn Atl-
antshafsbandalagsins hafa gagnrýnt
stjórnanda WikiLeaks, Julian
Assange, fyrir að leka umræddum
trúnaðarupplýsingum, lekinn geti
stofnað lífi bandarískra hermanna í
hættu.
Skipulögðu árás
á Græna hverfið
Fram kemur í gögnunum að Ír-
anar hafi skipulagt árás á Græna
hverfið svonefnda í Bagdad en þar
hafa íraska ríkisstjórnin og erlend
sendiráð aðsetur. Sagt er frá því
hvernig Íranar hafi þjálfað og vopn-
að herskáa sjía-múslíma í Írak, jafn-
vel með eiturgasi, til að gera árásir á
bandaríska hermenn og reyna
að drepa þá eða handsama.
Íranar eru flestir sjía-músl-
ímar eins og liðlega helming-
ur Íraka og hafa haft mikil
áhrif á bak við tjöldin í stjórn-
málum grannlandsins eftir að
Saddam Hussein
var hrakinn frá
völdum 2003.
Ráðamenn í Íran
gagnrýna WikiLeaks
Gögnin um Íraksstríðið sýna vel afskipti Írana af stríðinu
Hæstiréttur í
Írak dæmdi í gær
Tariq Aziz, fyrr-
verandi utanrík-
isráðherra lands-
ins og liðsmann
Saddams Huss-
eins, til dauða
fyrir aðild að
glæpum gegn
nokkrum stjórn-
málaflokkum sjía-múslíma.
Aziz er í fangelsi en hann hafði
áður verið dæmdur sekur um glæpi
gegn mannkyninu og hlaut þá 15
ára dóm. Aziz, sem er 74 ára gamall
og sagður mjög heilsuveill, varð
mjög þekktur á Vesturlöndum þar
sem hann var andlit Íraks út á við
og eini kristni maðurinn í stjórn
Saddams. Aziz ver enn einræð-
isherrann og segir að hann hafa
gætt vel hagsmuna þjóðarinnar.
Hægt er að áfrýja dauðadóm-
inum og sérstakt ráð, skipað for-
seta landsins og tveim varaforset-
anum, þarf að staðfesta hann áður
en honum verður fullnægt. kjon-
@mbl.is
Liðsmaður
Saddams
dæmdur til dauða
Tariq Aziz
Íranar byrjuðu í gær að setja
eldsneyti í fyrsta kjarnakljúf
landsins í Bushehr-verinu sem
reist var með aðstoð Rússa.
Verið hefur valdið miklum
áhyggjum hjá Vesturveldunum
sem álíta að stjórnvöld í Teher-
an hyggist koma sér upp kjarna-
vopnum. Íranar fullyrða að ein-
göngu sé ætlunin að nota verið í
friðsamlegum tilgangi en gert
er ráð fyrir að orkuframleiðsla
hefjist í Bushehr næsta ár.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur árangurslaust reynt
að fá Írana til að leyfa óhindr-
aðan aðgang alþjóðlegra eft-
irlitsmanna að kjarn-
orkustöðvum landsins.
Hefur ráðið reynt að
þrýsta á Írana með við-
skiptalegum refsiað-
gerðum.
Bushehr er
áhyggjuefni
KJARNAKLJÚFUR HLAÐINN
VIÐSKIPTATÆKIFÆRI Á GRÆNLANDI
Kaupstefna í Nuuk
15.–19. nóvember nk.
www.islandsstofa.is
Flugfélag Íslands flýgur nú til Nuuk á Grænlandi allan
ársins hring. Það gefur Íslendingum tækifæri til að efla
samskipti, verslun og viðskipti við þessa góðu granna
okkar í vestri. Grænlendingar hafa áhuga á að fá til sín
ferska matvöru með flugi frá Íslandi, útivistarfatnað,
varahluti, blóm o.fl.
Flugfélag Íslands og Íslandsstofa hyggjast efna til
kaupstefnu í Nuuk dagana 15.–19. nóvember,
þar sem fyrirtækjum býðst tækifæri til að kynna
vörur sínar og þjónustu. Kynningin mun fara fram
í menningarhúsinu í Nuuk, Katuaq.
Kostnaður vegna þátttöku er 120.000 kr. fyrir manninn.
(Innifalið er flug með sköttum, gisting á Hótel Hans
Egede í þrjár nætur og kynningaraðstaða). Það er von
okkar að með þátttöku nái þitt fyrirtæki forskoti á
þessum markaði sem nú opnast með reglulegu frakt-
og farþegaflugi til Nuuk.
Áhugasamir um þátttöku vinsamlega hafi samband
við Berglindi Steindórsdóttur, berglind@islandsstofa.is,
Aðalstein H. Sverrisson, adalsteinn@islandsstofa,
sími 511 4000 eða Vigfús Vigfússon, vigfusv@flugfelag.is,
sími 570 3406.
PA
R
PA
R
PA
R
PA
R
PA
RR
A
R
IP
A
RR
PA
R
PA
R
PA
RRR
PA
R
A
R
PA
R
PA
R
PA
RRR
IP
A
R
PA
RR
PA
R
P
PA
R
IP
A
R
A
R
PA
RRR
PAPA
R
AAAAPAAPAAPAAAAAPPPAPPPPPPPPPIPPP
P
IIPPIP
P
I
P
IIII
P
III
PPPPP
\T
B
W
AA
W
A
\T
B
W
AAAAA
\T
B
W
AA
\T
B
W
AAA
\T
B
W
A
W
AAAAA
\T
B
W
A
W
AAA
\T
B
W
A
\T
B
W
AA
W
A
W
AAAAA
\T
B
W
A
\T
B
W
A
\T
B
W
A
W
A
\T
B
W
A
\T
B
W
A
\T
B
W
\T
B
W
\T
B
W
A
\T
B
WWWW
\T
B
WWW
B
WWW
\T
B
W
TB
WW
B
W
\T
B
W
\T
B
WWW
\T
B
WW
B
W
TB
W
B
W
B
W
B
\T
BBBBBTBTBBBBT\T\\\
S
Í
S
Í
S
Í
•
SSS
•
S
••••••••••••••••••••••••
1111111
•
1
•
11
•••
A
•
A
•
A
•
A
••
AAAAAAAA
222222
27
0222
27
02
27
022
27
02
27
0270
2
27
0270
02
70
02
70
02
70
02
7027
0
02
707707
020022020202200
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Eitt af því sem kosið verður um í
Kaliforníu kosningadaginn mikla, 2.
nóvember, er tillaga númer 19 en í
henni er kveðið á um að leyft verði
með ákveðnum skilyrðum að rækta,
eiga og neyta maríjúana sem er
kannabisefni eins og hass. Að sögn
L.A. Times er ljóst að verði tillagan
samþykkt muni lagaleg óvissa verða
geysileg. Er m.a. bent á að eftir sem
áður muni fulltrúar alríkisstjórn-
arinnar í Washington framfylgja
lögum sem banna fíkniefni.
Kannanir gefa til kynna að
stuðningsmenn og andstæðingar séu
nú álíka margir og spennan er því
mikil. Hinir fyrrnefndu segja að
bannið gegn kannabis hafi ekki borið
árangur, allir sem vilji geti nálgast
efnið og nær að lögreglan verji tím-
anum í að stöðva alvarlegri glæpi.
Auk þess muni lögleiðing minnka
gróða eiturlyfjasala.
„Þetta er lagaleg martröð,“
segja andstæðingar tillögu 19. Verði
tillagan samþykkt muni hjúkr-
unarfræðingar í sjúkrahúsum ráfa
um í vímu og enn fleiri unglingar
sækja í efnin. Kalifornía á við mikinn
fjárhagsvanda að stríða og ein rökin
með tillögunni eru að hægt verði að
skattleggja viðskiptin með fíkniefn-
in. En deilt er um það hvort tekj-
urnar yrðu svo miklar að þær
myndu skipta umtalsverðu máli.
Tillaga um lögleiðingu mari-
júana sögð „lagaleg martröð“
Leyft til lækninga
» Árið 1996 samþykktu
kjósendur í Kaliforníu að sveit-
arfélög mættu leyfa notkun
kannabisefna til lækninga.
» Aðeins 10 sýslur af 58 og
37 borgir af alls 481 hafa nýtt
sér þessa heimild.
Julian Assange