Morgunblaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010
✝ Sigþrúður Guð-bjartsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 20. des-
ember 1913. Hún lést
á Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni 18. október
2010. Foreldrar henar
voru Guðbjartur Guð-
bjartsson vélstjóri, f.
10. júní 1877 á Læk í
Dýrafirði, d. 27. okt.
1954, og Halldóra Sal-
óme Sigmundsdóttir,
húsfreyja, f. 21. ágúst
1877 á Hrauni á Ingj-
aldssandi, d. 13. júlí
1939. Guðbjartur faðir Sigþrúðar
var einn fyrsti réttindavélstjóri á Ís-
landi, starfaði sem yfirvélstjóri á
varðskipunum og hlaut ridd-
arakrossinn fyrir störf sín.
Systkini Sigþrúðar voru 11 tals-
ins. Þau hétu: Sigurður Pétur, f. 10.
des. 1900, Marsibil, f. 15. apríl 1901,
Guðbjartur Páll, f. 28. júní 1904,
Þórey Sigurrós, f. 15.
okt. 1905, Halldóra
María, f. 17. sept.
1906, Sigmundur
Þórður, f. 10. ágúst
1908, Guðmar, f. 28.
jan. 1910, Marsibil
Guðbjörg, f. 29. júní
1911, Lára Mikkalína,
f. 10. ágúst 1912, Sig-
þrúður, f. 20. des.
1913, Guðni Jón, f. 29.
júní 1916, og Ingi-
björg Helga, f. 18. okt.
1918. Þau eru öll lát-
in.
Eiginmaður Sigþrúðar var Helgi
Marís Sigurðsson, f. 30. ágúst 1906,
d. 26. júlí 1981. Hann átti einn son,
Þórð Helgason, og kona hans er
Hulda Þórðardóttir, þau eiga fimm
börn.
Útför Sigþrúðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 27. október
2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Hjartahlý og elskuleg kona hefur
lokið langri lífsgöngu. Sússa frænka
var með stórt hjarta og stóran faðm
og það var gott að fá faðmlag frá
henni.
Sússa var afasystir fyrrverandi
eiginmanns míns og alltaf kölluð
Sússa frænka. Það er ógleymanlegt
þegar ég sá hana í fyrsta skipti. Út úr
litlum rauðum bíl steig myndarleg
kona í fallegri bleikri dragt með
rauðan hatt. Undir rauða hattinum
var silfrað hár, hún var með bleikar
lakkaðar neglur og bleikan varalit.
Þannig var Sússa. Hún var fagur-
keri, fallega klædd, bar skartgripi
einstaklega vel og lagði áherslu á að
vera fín. Og Sússa mín var fín, ástrík
og yndisleg kona. Hún sýndi mér
væntumþykju og hlýju frá fyrstu
stundu. Hún sýndi mér ástúð og
stuðning. Hún blés á gagnrýni í minn
garð, stappaði í mig stálinu og faðm-
aði mig enn meira og þéttar þegar ég
þurfti mest á því að halda. Sússa mín
hafði ákveðnar skoðanir á flestu.
Hún átti erfitt með að þola ósann-
girni. Hún þoldi ekki óstundvísi, var
sjálf hörkudugleg, vann mikið meðan
kraftar leyfðu og átti erfitt með að
skilja að einhverjir skiluðu ekki fullu
dagsverki. Ég aðstoðaði Sússu í
nokkur ár við þrif og heimilisstörf
meðan hún bjó enn í Stigahlíð. Nú
varðveiti ég dýrmætar minningarnar
frá þeim stundum sem við áttum
saman, við tvær, í eldhúsinu í Stiga-
hlíðinni. Þar ræddum við margt og
skiptumst á skoðunum. Við Sússa
vorum góðar vinkonur og mér þykir,
og mun alltaf þykja, mikið vænt um
þessa góðu og fallegu konu. Ég bið
almættið að varðveita fallegu sálina
hennar Sússu frænku, sjálf varðveiti
ég góðar og fallegar minningar um
einstaka konu. Ég og börnin mín
kveðjum Sússu með orðum Unu dótt-
ur minnar: „Minnist þín Sússa
frænka mín, megi guð og góðir engl-
ar vernda þig og færa þig á betri stað
þar sem þú getur gengið og þér líður
vel.“ Þín
Jóna, Una og Jón Máni.
Þegar ég minnist elskulegrar föð-
ursystur minnar og nöfnu, Sigþrúðar
Guðbjartsdóttur, sem lést í hárri elli
96 ára gömul hinn 18. október sl. á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni, hvarflar
hugurinn fyrst og fremst aftur til
uppvaxtaráranna heima á Ljósafossi,
þar sem við bjuggum 6 systkinin
ásamt foreldrum okkar Guðna Jóni
Guðbjartssyni og Ragnheiði Guð-
mundsdóttur.
Þegar eitthvað stóð til á heimilinu,
afmælis- eða fermingarveislur, var
Sússa frænka – eins og hún var ávallt
kölluð – alltaf til staðar, því að allt
sem laut að matargerð og veisluföng-
um lék í hennar höndum og hún hafði
mikla ánægju af því að hjálpa til á öll-
um sviðum.
Allar ferðir fjölskyldunnar til
Reykjavíkur tengdust Sússu frænku,
það var alltaf komið við í Skátabúð-
inni við Snorrabraut þar sem hún
starfaði og sá um verslunina. Það var
einfaldlega mikilvægur þáttur í kom-
unni til Reykjavíkur að hitta Sússu
frænku.
Seinna þegar ég var flutt til
Reykjavíkur og var búin að stofna
fjölskyldu, var Sússa frænka alltaf til
staðar. Hún hafði stóran faðm og
með sinni hlýju og elsku laðaði hún
alla til sín hvort heldur það voru börn
eða fullorðnir, allir sem kynntust
henni elskuðu hana.
Mér eru minnisstæð afmælisboðin
hennar í Stigahlíðinni þar sem hún
bjó lengst af, þar sem stórfjölskyldan
kom saman og naut veislufanganna
hennar Sússu frænku minnar, eftir
eina slíka veislu sagði dóttir mín sem
var þá rétt 6 ára og við vorum að búa
okkur til brottfarar, en skórnir henn-
ar voru eitthvað þröngir: „Mamma,
ég held að ég hafi bara stækkað eftir
þennan góða mat hjá henni Sússu
frænku því ég kemst ekki í skóna
mína.“
Eins og áður sagði starfaði Sússa
frænka í Skátabúðinni árum saman,
síðar gerðist hún matráðskona hjá
lögreglunni í Reykjavík við Hverfis-
götu og hjá Sambandinu á Kirkju-
sandi.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Blessuð veri minning minnar
elskulegu föðursystur.
Sigþrúður Þórhildur
Guðnadóttir.
Þann 18. október andaðist mín ást-
kæra frænka, Sússa eins og hún var
alltaf kölluð, í hárri elli, hún hefði
orðið 97 ára í desember. Hún var allt-
af boðin og búin að hjálpa til, ef eitt-
hvað stóð til og þegar veislur voru
haldnar var Sússa ómissandi. Hún
hafði menntað sig í Hússtjórnarskóla
Ísafjarðar og bjó að þeirri kunnáttu
og naut sín vel við matartilbúning og
veisluhöld. Hún starfaði mörg ár á
kaffistofu lögreglunnar í Reykjavík
og síðar í eldhúsi Sambandsins á
Kirkjusandi. Að ógleymdu starfi
hennar sem verslunarstjóri Skáta-
búðarinnar við Snorrabraut.
Hún sá til þessa að ég vann skáta-
heitið eins og það var kallað, ég fengi
skátabúning og allt sem til þurfti til
að vera skáti. Þess naut ég fyrir
hennar tilstilli öll mín unglingsár.
Einnig eru mér ógleymanlegar
stundirnar sem við áttum saman
þegar hún fór með mig í heimsókn í
Litlu-Brekku úti á Grímsstaðaholti.
Það var síðasti torfbærinn á Reykja-
víkursvæðinu. En þar bjó tengda-
fólkið hennar Sússu.
Á efri árum dreif hún sig í bílpróf
og keypti sér lítinn bíl, það veitti
henni mikið frelsi og þá gat hún
heimsótt ættingjana á sínum for-
sendum, það átti vel við hana. Sússa
eignaðist sína eigin íbúð í Stigahlíð,
það veitti henni mikið öryggi og
hamingju og ætlaði hún aldrei að
fara þaðan lifandi út. Það var í góðu
lagi á meðan hún komst niður stig-
ana, en engin lyfta er í húsinu. Í
mörg ár sat hún uppi á fjórðu hæð og
komst ekki út.
Í febrúar 2002 fékk Sússa pláss á
Sóltúni hjúkrunarheimili. Það upp-
fyllti allar hennar væntingar og ósk-
ir. Systir hennar Milla hafði flutt þar
inn nokkru áður. Þannig að Sóltún
veitti henni það öryggi og hamingju
sem hún hafði haldið að hvergi væri
að finna nema í Stigahlíð. Hún
þreyttist aldrei á að segja mér
hversu heppin hún væri og hversu
gott starfsfólkið væri henni.
Eftir að við höfðum haldið upp á 95
ára afmælið hennar sem tókst mjög
vel og margir heiðruðu hana með
heimsóknum, veiktist Sússa og hún
ákvað að nú væri nóg komið, „pabbi
hennar væri kominn að sækja hana.“
Hún kvaddi alla og sagðist ætla að
deyja. Þrem sólahringum seinna reis
hún upp, bað um kaffi og sagðist vera
„hætt við að deyja“. Þetta var henni
líkt.
Hún fékk tæp tvö ár til viðbótar,
sem mér finnst að hún hafi notið vel.
Fylgdist með fótbolta af áhuga, en
var farin að tala um að spennan væri
orðin of mikil fyrir sig í boltanum.
Fyrir þrem vikum tókst mér að
efna loforð við hana og taka hana
heim með mér og sýna henni íbúðina
sem ég hafði nýlega flutt inn í og
hana hafði langað til að sjá, því hún
lét sig það miklu varða hvernig ég
hefði það og hvernig ég byggi. Hún
var þreytt en sæl eftir þá ferð.
Nú hefur hún kvatt, minning
hennar lifir, kraftmikil, hugrökk og
hjartahlý, kona sem tókst að lifa í
sátt við aðstæður sínar til loka.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Sóltúns fyrir einstaka umönnun föð-
ursystur minnar Sússu.
Íris Bryndís Guðnadóttir.
Kveðja frá félagi
eldri kvenskáta
Í dag kveðjum við eldri kvenskát-
ar mikla vinkonu okkar og góða
skátasystur Sigþrúði Guðbjartsdótt-
ur eða Sússu eins og hún var alltaf
kölluð í okkar hópi. Sússa var einstök
heiðurskona, alltaf hjálpsöm, alltaf
glöð og eins og góðum skáta sæmir
alltaf viðbúin til að láta gott af sér
leiða. Fyrir alla þessa góðu eigin-
leika eignaðist hún því fjölmarga vini
og kunningja sem sóttust eftir að
njóta návistar hennar og góðs fé-
lagsskapar.
Meðan Skátaheimilið var við
Snorrabraut og rekin var þar versl-
un veitti Sússa henni forstöðu sem
verslunarstjóri um langt árabil. Á
þeim árum var Skátabúðin sam-
komustaður og eins konar félagsmið-
stöð, þar sem skátar hittust og voru
alltaf velkomnir. Einkum tók Sússa
öllum yngri skátum með einstakri
velvild. Það var því ekki að undra
þótt búðin yrði vinsæl og fjölsótt sem
samkomustaður, þar sem öllum þótti
gott að koma og fundu sig heima.
Sússa var alla tíð mjög félagslynd.
Á unga aldri starfaði hún í íþrótta-
félagi af miklum áhuga. Síðan gekk
hún í Kvenskátafélag Reykjavíkur
og var þar mjög virk og vann mikið
og gott starf um árabil. Löngu
seinna var hún svo með í félagsskap
eldri kvenskáta, þar sem unnið var
mikið starf og safnað fé til ýmissa
góðra málefna á vegum skátahreyf-
ingarinnar. Í þessum verkefnum lét
Sússa sig aldrei vanta og fyrir góð
störf hennar og dugnað skulu henni
nú færðar einlægar þakkir. Og að
leiðarlokum þökkum við þó sérstak-
lega fyrir alla þá hlýju og góðvild
sem hún beindi að samferðafólki sínu
á lífsleiðinni. Hún var kona sem
bætti heiminn og í návist hennar leið
öllum vel. Við kveðjum þig, kæra
Sússa, með kvöldsöngnum sem
Hrefna Tynes gaf okkur kvenskát-
um:
Sofnar drótt, nálgast nótt,
sveipast kvöldroða himinn og sær.
Allt er hljótt, hvíldu rótt.
Guð er nær.
(Kvöldsöngur skáta)
Guðrún Hjörleifsdóttir.
Sigþrúður
Guðbjartsdóttir
Elsku afi minn.
Nú þegar þú hefur
kvatt okkur hellast
yfir mig minningar
um samveru okkar. Þær eru marg-
ar og góðar, en helst minnist ég
söngs og óþrjótandi þolinmæði og
ástúð við trjárækt, bæði í lund-
inum þínum við Rauðavatn og í
Apavatnssveitinni, þar sem ég
eyddi nánast hverri helgi með ykk-
ur alla barnæsku mína. Gæska þín
við dýr er mér minnisstæð líka,
þrátt fyrir að kindur hafi ekki ver-
ið í uppáhaldi. Við þær áttirðu
þrotlaust stríð og gleymi ég aldrei
hversu sár þú varst í þau ófáu
skipti sem þú komst í sveitina til
að finna að þær höfðu komist í
trjáplönturnar þínar, sem voru þér
sem börnin þín.
Helst langar mig þó að rifja upp
uppáhaldsminningu mína um okk-
ur saman. Sú minning hefst í rosa-
lega stórum rauðum Econoline-bíl,
en það er allt svo stórt þegar mað-
ur er barn, á leiðinni út á Þjóð-
minjasafn þar sem þú starfaðir
sem umsjónarmaður safnsins um
tíma. Á safninu eyddi ég löngum
stundum með þér þar sem þú
leiddir mig um króka og kima ís-
lenskrar sögu og menningar. Þess-
ar ferðir enduðu svo ævinlega á
því að fara upp á háaloft safnsins
til þess að bjóða draugunum góða
Geir Austmann
Björnsson
✝ Geir AustmannBjörnsson fæddist
á Strjúgsstöðum,
Langadal, A-
Húnavatnssýslu, 20.
febrúar 1920.
Útför Geirs fór
fram frá Grens-
áskirkju 15. október
2010.
nótt, en síðan
slökkva ljósið og
bjóða kumli af konu
frá víkingaöld, sem lá
í glerbúri, góða nótt.
Amma átti til að
spauga með að hún
væri kærastan þín en
ég hef nú því miður
gleymt hvaða nafn þú
hafðir gefið henni.
En nú er víst kom-
inn tími til að slökkva
ljósin og bjóða þér
góða nótt, elsku afi
minn. Þakka fyrir
þær stundir sem við áttum saman
og minningar þessar, sem og allar
hinar sem lifa munu með mér og
mínum afkomendum um ókomna
tíð.
Mig langar til að bæta hér við
texta úr laginu Sumarkveðja, en
með því lagi man ég þig syngja í
hvert sinn sem það kom í útvarp-
inu og mun það ávallt minna mig á
þig.
Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin kvika’ á kinn,
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
og heim í sveitir sendirðu’ æ
úr suðri hlýjan blæ.
Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali’ og klæðir allt,
og gangirðu’ undir gerist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dali og hól,
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
(Páll Ólafsson)
Góða nótt, elsku afi minn.
Arnheiður Rós Ásgeirsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGURDRÍFU JÓHANNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Eir fyrir áralanga, frábæra umönnun.
Kristín Ólafsdóttir, Guðjón Heiðar Jónsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR SVANLAUGSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
20. október. Útförin fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 28. október kl. 13.00.
Þórarinn Sveinsson, Hildur Bernhöft,
Svanlaugur Sveinsson, Freyja Guðlaugsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkæra frænka okkar,
SIGÞRÚÐUR GUÐBJARTSDÓTTIR,
Sússa,
andaðist mánudaginn 18. október. Útför fer
fram frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn
27. október, kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra Kristín Arthursdóttir,
Íris Bryndís Guðnadóttir.