Hamar - 16.06.1950, Qupperneq 4
4
HAM AR
Ný FISKÞVOTTAVEL
reynd í Hafnarfirði
Haraldur Kristjánsson slöklcvi
liðsstjóri í Hafnarfirði hefur einn
átt hugmyndina að því að smíða
mætti þá saltfiskþvottavél, sem
sýnd var að verki í gær hjá
Bæjarútgerð Hfj. og hefir tekizt,
að allra þeirra kunnugra manna
dómi, er séð hafa vélina starfa,
að sameina þá kosti er slík vél
þarf að hafa, svo að þvottur
saltfisksins verði eins góður og
á verður kosið.
Þó skal þess getið að ennþá
vantar þann hluta vélarinnar,
sem tekur himnu úr þunnildum
og blóð úr hnakka fisksins, en
undirbúningur að því er nú haf-
inn og gerir Haraldur sér von
um að geta tengt þann hluta við
véhna áður en langt um líður
og er þá ráð fyrir því gert að
vélin fullhreinsi og þvoi saltfisk-
inn.
Þvottavél þessi getur afkastað
rúmlega 2000 fiskum á klukku-
tima eða á sólarhring nálægt
50.000 fiskum. Sé fiskurinn vænn
mun láta nærri að hún geti
þannig afkastað að þvo á 24 klst.
450 til 500 skpd. Til samanburð-
ar má geta þess að þurfa mundi
20 til 25 stúlkur í minnst 5 daga
að afkasta eins sólarhrings af-
köstum vélarinnar. Vél þessi er
drifin með raforku og er orku-
eyðsla hverfandi lítill kostnaður
eða 40 til 50 kr. á sólarhring í
fullu starfi.
Haraldur Kristjánsson er nú
slökkviliðsstjóri í Hafnarfirði tók
við því starfi á s. 1. ári. Við
stofnun Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar gerðist hann starfsmað-
ur fyrirtækisins og síðar verk-
stjóri og var við það starf í 15
ár.
A þessum árum var venja að
verka mestan hluta saltfisksins
og fór þá Haraldur að brjóta heil
ann um, hvort eigi væri hægt
að smíða fullkomna saltfisk-
þvottavél, sem leyst gæti kven-
fólkið frá hinu mjög svo erfiða
starfi, sem fiskþvottur alltaf er,
sem og jafnframt að skapa betri
vinnuskilyrði fyrir verkafólkið á
fiskverkunarstöðvunum.
Eins og kunnugt er lagðist
saltfiskframleiðsla að miklu leyti
niður yfir stríðsárin og fyrstu ár-
in á eftir, en er nú aftur að auk-
ast allverulega. Var þá almennt
álitið að erfitt myndi verða að
fá þann fjölda af kvenfólki til
fiskþvottar, sem mikil saltfisk-
framleiðsla krefst. Sú hefur líka
orðið raunin á. Þá ákvað Har-
aldur að gera tilraun með að
láta smíða fullkomna saltfisk-
þvottavél, og hófst smíði henn-
ar í marz 1950. Á árinu 1949,
gerði Haraldur fullkomið model
að vélinni og sýndi það nokkrum
mönnum, sem hvöttu hann ein-
dregið til að smíða fullkomna
þvottavél.
Leitaði Haraldur stuðnings
stjórnar Fiskimálasjóðs um fjár-
framlag til að standast kostnað
af byggingu vélarinnar. Veitti
sjóðurinn loforð fyrir styrk í
þessu augnamiði, sem gerði það
kleift að kaupa efni og vinnu
við smíði vélarinnar. Ennfrem-
ur hafa hafnfirzkir útgerðar-
menn lagt fram fé í sama skyni.
Efni í vélina var allt fengið
frá Englandi. Vélsmiðja Hafnar-
fjarðar h.f. sá um smíði vélar-
innar undir verkstjóm Jóhanns
Ól. Jónssonar. Snæbjörn Bjarna-
son vélfr. í Hafnarfirði, sá um
allar teikningar við smíði vélar-
innar.
Áður mun aðeins ein vél hafa
verið reynd hér á íslandi við
fiskþvott og var liún erlend en
eigi reyndist hún þannig að hún
gæti hreinsað fiskinn undir ugg-
um, tekið himnu eða blóð úr
hnakka, en þessi vél lireinsar
fiskinn allan vel jafnt undir ugg-
um, sem annað er þvo þarf. En
eins og áður segir verður innan
skamms tengdur við vélina sá
hluti hennar, er bæði himnu-
Heimtaugar g j öld
Á bæjarstjórnarfundi 13. þ. m. var samþykkt eftirfar-
andi tillaga um framkvæmd 10. gr. reglugerðar Rafveitu
Hafnarfjarðar:
„Húseigandi skal greiða þann mismun, sem er
ó jarðlínu og loftlínuheimtaug, eins og sá mismun-
ur er í gjaldskrá, sem í gildi er þegar breytingin er
framkvæmd. Rafveitan skal hins vegar kosta breyt-
» ingu á stofntaug innanhúss, sem þessu verður sam-
fara, en ekki málningu eða rask, sem af þessu
kynni að stafa.
Sé mikill kostnaður við slíka breytingu, getur
stjórn rafveitunnar skyldað húseiganda til að taka
þátt í kostnaði stofntaugarinnar."
HÁTIDAHÖLDIN 17.
JÚNÍ í HAFNARFIRÐI
Hátíðahöldin hefjast kl. 1 við Ráðhúsið með leik Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
Kl. 1,30 verður boðhlaup, sem endar við ráðhúsið, að því loknu hefst skrúð-
ganga og verður gengið upp að Hörðuvöllum en þar fer fram aðal dagskrá
hátíðahaldanna:
1. Hátíðahöldin sett
2. Ræða: Emil Jónsson, alþingism.
3. Kórsöngur: „Þrestir" og Karlakór Reykjavíkur
4. Handknattleikur karla (F.H. og Haukar)
5. Fimleikasýning: Flokkur Þorgerðar Gísladóttur
6. Handknattleikur kvenna (F.H. og Haukar)
7. Reiptog (Bæjarstjórnin og Dröfn h.f.)
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur á milli atriða.
Um kvöldið kl. 8 leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar á Strandgötunni og Einar
Sturluson syngur einsöng. Að lokum verður dans stiginn fram eftir nóttu.
17. júní nefndin í Hafnarfirði.
dregur og hreinsar blóð úr
hnakka.
Vélin er vel færanleg milli
stöðva og því eigi staðbundin.
Mun hún alls vega nokkuð á 2.
tonn. Gólfpláss mun hún þurfa
10 til 12 fermetra fullsmíðuð.
Hreint vatn eða sjór dælist
inn á vélina við fiskþvottinn, en
óhreinindin og affall frá fiskin-
um rennur jafnóðum frá henni
í gegnum digran barka, sem
hægt er að láta vísa í frárennsli.
Eins og gefur að skilja mun
vél þessi, sem afkastar jafn mikl-
um fiskþvotti og að framan
greinir, geta þvegið saltfisk á
mörgum fiskverkunarstöðvum,
þar sem hún er vel færanleg
milli stöðvanna.
Geta má þess, að Haraldur
Kristjásnson ásamt Þorbirni Eyj-
ólfssyni, verkstj. fann upp borða
þvottavél fyrir togara, fyrir
nokkrum árum, sem reynzt hef-
ur prýðilega.
Þeir, sem sáu vélina vinna
undruðust hve vel hún þvoði og
hreinsaði hún m. a. alveg und-
an uggum. Er hér um merki-
lega nýjung að ræða, sem getur
gert byltingu í verkun saltfiskj-
arins og þannig skapað lands-
mönnum meiri möguleika en
áður til að verka fiskinn á þenn-
an hátt.
Gerist
áskirfendur
að HAMRI
Orlofs- og skemmfi-
ferðir Ferðaskrif-
sfofu ríkisins
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur
gefið út áætlun um orlofs- og
skemmtiferðir nú í sumar. Ferð-
irnar eru skipulagðar að segja
má um land allt og eru frá
þriggja til níu daga ferðir. í
ávarpi til ferðamanna segir m.
a.:
„Á þessu nýbyrjaða sumri
hyggst Ferðaskrifstofan að skipu
leggja fjölmargar ferðir um
byggðir landsins, og nú þegar
hafa verið ákveðnar og dagsettar
23 mismunandi ferðir, og er þess
vænzt, að sem flestir finni ein-
hverjar ferðir við sitt hæfi, en
að sjálfsögðu er skrifstofan jafn-
an reiðubúin að veita hverjum
og einum allar þær upplýsingar
og fyrirgreiðslu, sem hún getur
í té látið varðandi ferðalög ein-
staklinga og stærri hópa, gist-
ingu, aðbúnað o. fl.
Ferðir þær, sem að einhverju
leyti verða farnar sjóleiðis, verða
dagsettar og auglýstar nánar
síðar ,eða jafnskjótt og áætlanir
viðkomandi skipa verða birtar
Skemmtiferðir og aðrar styttri
ferðir, sem samkvæmt reynslu
verða eflaust fjölmargar, munu
auglýstar jafnóðum og verður
leitazt við að hafa fyrirvara á
þeim eins mikinn og frekast er
unnt.
Enn fremur standa vonir til
þess, að hægt verði að sldpu-
leggja orlofsferðir til útlanda á
svipaðan hátt og var á síðast-
liðnu sumri, en að svo komnu
máli er ekki hægt að segja um
það með vissu, og er beðið eftir
fullnaðarsamþykki ríkisstjórnar-
innar í þeim efnum.
Eins og undanfarið mun
Ferðaskrifstofan kappkosta að
senda í hverja ferð, sem farin
verður á hennar vegum, hæfa
leiðsögumenn, er munu í hví-
vetna reyna að verða þátttakend
um til aðstoðar, ef á þarf að
halda ,auk þess sem þeir munu
reyna að leysa úr fyrirspurnum
fólks og lýsa því, sem fyrir aug-
un ber í ferðunum.“
Þá er gert ráð fyrir helgar-
ferðum, eins til tveggja daga og
verða þær jafnan auglýstar með
nokkrum fyrirvara. Verður þann
ig hægt að komast til flesti-a
merkra staða í nágrenninu. Einn
ig er gert ráð fyrir kvöldferðum,
en aðeins þegar veður er gott.
Til berjaferða verður efnt og
einnig grasaferða.
Þá má geta þess að ætlun
Ferðaskrifstofunnar er að efna
til ferða frá Hafnarfirði og ætti
það að verða til mikils hagræðis
fyrir bæjarbúa.