Hamar - 03.11.1950, Side 3
H A M A R
3
Vetrarstarf K. F. U. M.
og K. að hefjast
Skiðaskáli S.S.H. fullgerður
Um þessa rmundir er verið að
ljúka mjög gagngerðum endur-
bótum á húsi K.F.U.M. og K.
hér í bæ. Hefir endurbótum þess
um verið hagað þannig, að hugs-
að er jafnframt fyrir því að í fram
tíðinni verði byggt ofan á húsið.
Var því loft byggt úr járnbentri
steinsteypu, en áður var timbur-
loft í húsinu. Þá hefir húsið allt
verið múrhúðað að innan og
hreinlætisherbergjum komið fyr-
ir. í stað kolakyndingar er áður
var, er nú rafhitun. Eru ofnar frá
Rafha, en Raftækjaverzlunin
Ekko annaðist raflagnir. Yfir-
smiður var Gestur M. Gamalíels-
son. Múrverk annaðist Einar
Sigurðsson, málningu Sigurjón
Vilhjálmsson og pípulagningu
Vélsmiðjan Klettur.
Þá hefir sitthvað verið gert til
fegrunar salarkynna hússins, svo
að segja má með sanni að húsið
sé nú hið vistlegasta, enda hafa
félögin kappkostað að vanda svo
vel til alls sem kostur hefir verið,
þrátt fyrir það þó ekki hafi verið
um of fullar fjárhirslur að ræða,
en eins og kunnugt er eiga fé-
lögin marga unnendur, svo óhætt
er að fullyrða að skuldabyrði sú
sem óhjákvæmilega hefir mynd-
ast muni verða létt af fljótlega.
Næstk. laugardagskvöld verð-
ur húsið tekið í notkun á ný með
samkomu er haldin verður fyrir
almenning kl. 8,30 um kvöldið.
Mun séra Friðrik Friðriksson, dr.
theol. aðalframkvæmdastjóri K.
í síðasta tölubl. Alþýðublaðs
Hafnarfjarðar birtist ramma-
grein, sem heitir „ „Sigur“ íhalds-
ins í strætisvagnamálinu.“ Er þar
talað rnn aukin útgjöld fyrir hafn
firzka nemendur sem nemur um
kr. 40 þús. á ári. Blaðið slær því
fastri ákveðinni fjárupphæð, sem
að sjálfsögðu er blekkjandi þar
sem hún kemur til með að breyt
ast frá ári til árs vegna breyti-
legs nemendafjölda og væri æski
legt að blaðið gæfi upp nemenda
fjöldann, sem þessara hlunninda
liafa notið. Annars má í þessu
sambandi geta þess að tæplega er j
hægt að segja að sérleyfisleiðin!
sem slík hafi gefið nemendum
þennan afslátt, þar sem tapið á:
rekstri hennar nam hundruðum
þúsunda króna á ári hverju, held-
ur hefur ríkið orðið raunverulega
að leggja þetta beint fram.
En mætti þá spyrja Alþýðubl.
Hafnarfj., hvað bæjarstjórnin
hefur gert til að tala þessu máh
hafnfirzks skólafólks? Bæjaryfir-
völdin hafa ekki gert tilraun til
að ræða málið við sérleyfishaf-
F.U.M. og K. hreyfingarinnar í
landinu, lýsa húsið tekið í notkun
á ný, og afhenda það til afnota
fyrir það starf kirkjunnar er K.F.
U.M. og K. hafa á hendi í söfn-
uðunum — hið kristilega starf á
meðal æskulýðsins.
Síðastliðinn vetur lá starf fé-
laganna að nokkru niðri, en fyr-
ir sérstaka vinsemd sóknarprests
og sóknarnefndar Hafnarfjarðar-
kirkju var sunnudagaskóla félags
ins haldið uppi í kirkjunni og
starfaði séra Garðar Þorsteinss.
ásamt mörgum öðrum félögum í
K.F.U.M. og K. við skólann undir
stjórn form. K.F.U.M., Jóels Fr.
Ingvarssonar.
Þá má geta þess að unglinga-
deild K.F.U.K. fékk inni með sitt
starf í Flensborg fyrir einstak-
lega hjálpfýsi skólastj. Benedikts
Tómassonar. Starf fyrir telpur
var rekið í Góðtemplarahúsinu
og Kaldæingar fengu þar inni fyr
ir sína fundi. Þrátt fyrir það, þó
þetta gengi nú frekar vel á síðast-
liðnum vetri fagna félögin því
mjög að geta nú boðið eldri og
yngri Hafnfirðingum í sitt mjög
svo vistlega félagsheimili á Hverf
isgötu 15.
Að lokum skal það tekið fram
að allir eru velkomnir á samkom-
una á laugardagskvöld. Á sunnu-
dagskvöld er einnig almenn sam-
koma, en barnastarf félaganna
hefst með sunnud.sk. kl. 10 ár-
degis á sunnudag, og eru öll börn
velkomin.
•-----------
ana. Og við þá hefur ekki verið
rætt fyrr en nú fyrir skömmu að
nemendur gerðu það sjálfir og
hefur þegar orðið nokkur árang-
ur af þeim viðræðum og hefði
Alþýðublað Hafnarfjarðar getað
fengið upplýsingar um málið, ef
það hefði snúið sér til viðkom-
andi aðila. En áhugi blaðsins virð
ist ekki vera svo mikill fyrir sann-
leikanum, að hafa fyrir slíku,
heldur er rokið í að slá upp feit-
letraðri rammagrein um mál-
ið.
Það sannast því í þessu tilfelli
all áþreyfanlega málshátturinn:
„oft verður lítið úr því högginu,
sem hátt er reitt“, enda er það
skemmtilegra fyrir Alþ.bl. Hfj.,
þar sem höggið lenti á þess eig-
in mönnum.
Hamar mun fylgjast með því,
sem í málum þessum gerist og
skýra lesendum sínum frá því.
AuglýsiS
í Hamri
Framh. af bls. 1
Stærsta og veigamesta fram-
lag til skálans kemur þá fram í
hinum ósérplægna áhuga og
miklu vinnu, sem sjálfboða-
liðar hafa leyst af hendi við
byggingu skálans. Þeir örðug-
leikar og erfiði, er yfirstignir hafa
verið frá því bygging skálans
hófst, þar til lokatakmarkinu var
náð og skálinn fullgerður, verð-
ur vart metið að verðleikum, —
öðrum en gjaldi því er koma mun
fram í þeim áhuga, sem skíða-
skálinn á eftir að mynda meðal
Hafnfirðinga fyrir skíðaíþrótt-
inni, og þeirri hollustu og hreysti
er æska Hafnarfjarðar á kom-
andi árum á eftir að verða að-
njótandi af skíðaiðkununum við
skíðaskála SSH í Hveradölum.
Skíðaskáli SSH er 70 fermetrar
Innrétting skálans er þannig að
á neðri hæð hans er stórt and-
dyri, þar sem komið er fyrir hill-
um fyrir ytriklæðnað og skófatn-
að. Ur anddyrinu er gengið inn
í rúmgóða skíðageymslu, og inn
í forstofu, sem gengið er úr í
stóra setustofu, eldhús og upp á
efri hæð skálans, en þar er stórt
svefnpláss og stjórnarherbergi.
Skálinn er allur raflýstur og hitað
ur upp með olíuofnum. í setu-
stofu er einnig stærðar arineld-
stæði. Er setustofan hin vistleg-
asta björt og rúmgóð. Alls er
gert ráð fyrir að ef allt svefnrúm
er notað að skálinn geti hýst allt
að 100 manns.
Gestabók SSH skálans er bæði
vönduð og skrautleg. Innfærslur
í h'ana hefjast er skálinn var vígð
ur 21. nóv. 1948. Á titilblaði henn
ar er auk heiti skálans og vígslu-
dagsetningarinnar skrautletruð
nöfn stjórnarmeðlima SSH á ár-
inu sem skálinn var vígður en
þeir voru Víglundur Guðmunds-
son, form., Gunnlaugur Guð-
mundsson, ritari, Ólafur Gísla-
son, gjaldkeri, Þórður Reykdal
og Valgeir Óli Gíslason. Tvær
næstu síður bókarinnar eru auð-
ar, en þar er gert ráð fyrir að
verði skráð vígsluljóð skálans og
nöfn vígslugesta. Eg fletti bók-
inni og rendi augunum yfir nöfn
þau er þar voru að sjá. Kannaðist
ég við flest nöfnin, en áberandi
var hve oft komu fyrir sömu nöfn
in upp aftur og aftur, og báru
þannig augljóst merki um stærð
þess fjölda sem að staðaldri hefir
sótt skálann frá því hann var
vígður. Á þessu mátti enn frem
ur sjá hverjir það hefðu verið
sem drýgstan þátt höfðu átt í
að leggja skálabyggingunni lið,
þó það sé hvergi skráð með orð-
um. Fyrsta páskadvölin, sem
færð er í bókina eru páskarnir
1949, en dvalið hafði verið þó í
skálanum tvenna páska áður,
1947 og 1948. Samkvæmt gesta-
bókinni hefir fjölmenni verið
mest í skálanum á páskunum
1950, en þá gistu í honum
milli 50 og 60 manns.
Áhugi fyrir skíðaíþróttinni og
þeirri heilbrigði og skemmtun
sem hún getur veitt æskulýð
landsins, hefir farið ört vaxandi
á undanförnum árum. Hvert í-
þróttafélagið og einstakar deildir
þeirra, hafa hvert af öðru riðið
á vaðið og komið sér upp skíða-
skálum í góðum skíðalöndum.
Erfiði og örðugleikar hafa eigi
verið látnir verða að tálmunum,
því ákveðin, þróttmikil og fram-
sækin æska hefir verið að verki,
sem ekki vílar fyrir sér þótt sækja
þurfi á brattann, — því henni er
Ijóst hvað hinumegin býr.
Meðal Hafnfirðinga hefir þró-
unin orðið mjög svipuð. Áhugi
fyrir skíðaíþróttinni hefir farið
ört vaxandi meðal æskumanna
bæjarins, sem kjósa fremur að
njóta fegurðar hinnar stórfeng-
legu íslenzku vetrarnáttúru, við
iðkun hollrar og dásamlegrar í-
þróttagreinar, en að verja þeim
í bæjunum við þá innánhússstarf
semi, sem þeir hafa upp á að
bjóða.
Skíðaskálabygging SSH, sem
og starfsemi SSH yfir höfuð á
hvað ríkastan þátt í þessari já-
kvæðu þróun. — En stjórn SSH
hefur sett markið hærra. Með
byggingu hins stóra, vistlega og
í alla staði glæsilega skíðaskála,
hefir SSH boðið æsku Iíafnar-
fjarðar betri skilyrði til skíðaiðk-
ana, en flest önnur félög, þótt
með séu talin hin fjölmennu og
fjárhagslega sterku félög höfuð-
borgarinnar.
Bygging SSH skálans hefir
verið framkvæmd af tiltölulega
fámennum hóp manna, en þar
liafa verið menn að verki, er
kunna að meta gæði skíðaíþrótt-
arinnar og þýðingu hennar fyrir
hafnfirzka æsku. Launa fyrir hið
erfiða og mikla verk hefir ekki
verið krafizt, — aðeins tengd von
við að æska Hafnarfjarðar meti
starfið, með því að hagnýta sér
skálann og f jölmenna þangað, er
farnar eru skíðaferðir.
Hinar reglubundnu skíðaferð-
ir í skálann fara að hefjast hvað
úr hverju. Stjórn Skíða- og skauta
félagsins hefir það fyrir venju að
auglýsa ferðirnar og hafa áskrift
arlista fyrirliggjandi á einhverj-
um ákveðnum stað eða stöðum
hér í bænum, en að öðru leyti
mun hver stjórnarmeðlimur fé-
lagsins vera reiðubúinn til að
gefa allar þær upplýsingar sem
varða starfsemi félagsins og
skíðaferðir í skálann.
Stjórn SSH skipa nú Árni Jóns-
son, form., Valgeir Óli Gíslason,
Ólafur Pálsson Gunnlaugur Guð-
mundsson og Gunnlaugur Magn
ússon. Á. Á.
Nr. 45/1950.
TILK YNNING
Ákveðið hefur verið nýtt hámarksverð á smjörlíki sem
hér segir:
Niðurgreitt óniðurgreitt
Heildsöluv. án sölusk. kr. 4.76 pr. kg. kr. 10.58 pr. kg.
Heildsöluv. með sölusk. — 5.08 pr. kg. — 10.90 pr. kg.
Smásöluv. án sölusk. .. — 5.64 pr. kg. — 11.47 pr. kg.
Smásöluv. með sölusk. — 5.75 pr. kg. — 11.70 pr. kg.
Reijkjamk, 20. okt. 1950,
Fjctrhagsráð
REYKJAVÍK - HAFNARFJÖRDUR
Frá og með 1. nóv. verða ferðir frá Reykjavík á
tuttugu mínútna fresti frá kl. 13 til kl. 20 í stað 13,30
til 20,20 áður.
LANDLEIÐIR H.F.
NÆTUHSÍMI
H.afnarfjörður og nágrenni athugið!
Ncetursími Nýju híIstöðvarinnar er:
— 9 9»« —
Umhyggjan fyrir
skólafólkinu