Hamar - 13.12.1953, Blaðsíða 2
2
HAMAR
HAMAR
ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Páll V. Daníelsson.
(Símar 9228 - 9394).
AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29.
HAMAR kemur út annan hvern sunnudag.
PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU HAFNARFJARÐAR H.F.
Býður Bæjarútgerðin tjón?
Það er ekki að ástæðulausu, að bæjarbúar hafi litið nokkuð
tortryggnum augum á það samkrull, sem er hjá Bæjarútgerðinni
varðandi afgreiðslu og verkun afla Bjarna riddara. Það er að
sjálfsögðu hægt fyrir Bæjarútgerðina að taka að sér að annast
slíka fyrirgreiðslu fyrir aðra, ef um það er að ræða, að full
þóknun sé greidd fyrir þau störf og þau fyrirtæki, sem unnið er
fyrir séu ekki samtvinnuð hagsmunum þeirra manna, sem stjórna
Bæjarútgerðinni. En þannig er einmitt með þan fyrirtæki, sem
Bæjarútgerðin hefur annazt fyrirgreiðslú fyrir á undanförnum
árum. Þó væri hægt að hafa svo hreina reikninga í þessum efn-
um, að ekkert væri athugavert við það, en eigi að síður er alltaf
hætt við, að það valdi tortryggni eins og hér hefur orðið raunin á.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi voru reikningar Bæjarútgerðar-
innar til umræðu ásamt reikningum annarra fyrirtækja bæjarins,
svo og bæjarsjóðsins. Einn liðurinn teknamegin á aðalrekstrar-
reikningi Bæjarútgerðarinnar nefnist „hagnaður á vinnu“. Upp-
hæð þessi er kr. 110.726,06. Reikningum Bæjarútgerðarinnar
fylgja engar skýringar á þessum lið, hvernig hann er til orðinn
og mætti því ætla, að þeir, sem ekki þekktu til gætu álitið, að lið-
ur þessi væri eingöngu greiðsla frá þeim fyrirtækjum, sem Bæj-
arútgerðin hefur annazt fyrirgreiðslu fyrir. En svo er ekki. Þessi
hagnaður kemur fram í því, að 17% álag er lagt á alla vinnu við
stöðina, afgreiðsla skipa og verkun afla í landi. Þannig er ekki
nema lítill hluti af þessum hagnaði frá Bjarna riddara, lang stærsti
hlutinn er millifærsla á milli hinna ýmsu reikninga Bæjarútgerðar-
innar sjálfrar.
Þegar svo það er athugað að ýmsir sameiginlegir kostnaðar-
liðir eru nokkuð háir, þá verður ekki annað séð, en að nokkuð
vanti á að Bjarni riddari beri sinn hlut af þeim kostnaði, hvað þá
að Bæjarútgerðin hafi nokkurn eyri fyrir snúð sinn. Það er því
ekki að ástæðulausu, þó að nokkur tortryggni hafi komið fram
um það, að þessi viðskipti Bæjarútgerðarinnar hafi verið rekin
með hennar hag fyrst og fremst í huga, því svo lág virðist greiðsl-
an fyrir þessa þjónustu vera.
Þegar betur er litið á reikningana kemur það og í ljós, að
Bjarni riddari greiðir ekki nema kr. 10 þús. á ári í leigu fyrir
geymsluhúsnæði og kr. 2.400,oo á ári í leigu fyrir afnot af vask-
húsi við verkun á afla. Þessi leiga er svo broslega lág að engu
tali tekur. Og engin leiga kemur fram fyrir annað til Bæjarút-
gerðarinnar, svo sem þurrkhús, afnot af plönum og lóðum o. fl.
Það hefur af Alþýðublaði Hafnarfjarðar jafnan verið talinn
rógur um einstaka Alþýðuflokksmenn, að benda á staðreyndir
slíkar sem þessar og verður vafalaust ennþá. Að vísu segir blaðið
„að hófleg og skynsamleg gagnrýni sé nauðsynleg og sjálfsögð“,
en gagnrýni á framangreint samkrull hjá Bæjarútgerðinni verð-
ur sennilega hvorki talin skynsamleg né sjálfsögð af skriffinn-
um Alþýðublaðs Hafnarfjarðar, af þeirri einföldu ástæðu, að
þeir telja flokksmenn sína yfir það hafna, að störf þeirra séu
gagnrýnd á nokkurn hátt.
Þetta skilur fólk orðið, það skilur það, að nauðsynlegt er að
skýra frá málunum eins og þau liggja fyrir, svo að hægt sé að
taka afstöðu til þeirra. Og það er einmitt vegna þess, að Hamar
hefur gert það, sem hann hefur hlotið vinsældir meðal bæjarbúa
almennt, en jafnframt hatur þeirra manna, sem bænum ráða,
því þeir eru mjög reiðir því, að sannleikurinn verði opinber í
stjórn þeirra á málefnum bæjarins.
Hamar hefur þráfaldlega bent á það samkrull, sem fram
hefur farið á Bæjarútgerðinni og jafnframt vítt það, að starfs-
menn Bæjarútgerðarinnar rækju sín eigin fyrirtæki á sömu svið-
um og hún, í svo nánu samstarfi við Bæjarútgerðina, sem raun
er á. Reikningar Bæjarútgerðarinnar sína það líka, að allar líkur
benda til þess að hún hafi haft allverulegt beint tjón af þeim
viðskiptum, en erfitt verður að segja til um óbeina tjónið af því,
að sumir starfsmenn hennar eru með hálfan hugann við eigin
fyrirtæki.
Glæsileg árshátíð
Sjálfstæðisfélögin héldu árshátíð sína laugardaginn 5. des. s.
I. og þar sem vitað var að Sjálfstæðishúsið mundi verða of lítið
til að halda hana þar var Góðtemplarahúsið fengið. Það fór líka
svo, að árshátíðina sótti hátt á þriðja hundrað manns. Fór hún vel
fram og skemmti fólk sér hið bezta.
Árshátíðin hófst með sameig-
inlegri kaffidrykkju, og fóru
ræður og skemmtiatriði fram
undir borðum. Stefán Jónsson
setti árshátíðina með ræðu, en
aðrir ræðumenn voru alþingis-
mennirnir: Kjartan Jóhannsson,
Einar Ingimundarson og Ingólf-
ur Flygenring, einnig flutti frú
Jakobína Mathiesen ávarp. —
Skemmtiatriði voru þau, að
Smárakvartettinn söng og leik-
þátt fjuttu þau frú Jóhanna
Hjaltalín, Sigurður Kristinsson
og Friðleifur Guðmundsson.
Var ræðumönnum og skemmti-
atriðum mjög vel tekið. Að lok-
um var dansað af miklu fjöri.
Hækkun á launum
niðurjöfnunarnefndar
Á bæjarstjómarfundi s. 1.
þriðjudag var samþykkt tillaga
frá bæjarráði um hækkun á nið-
urjöfnunamefndarlaununum fyr
ir árið 1952 og greiddu þeir
niðurjöfnunarnefndarmennirn-
ir Ólafur Þ. Kristjánsson og
Helgi Hannesson atkvæði með
þessari hækkun til sjálfra sín.
Er með þessari samþykkt bæjar-
stjómar fengin full viðurkenn-.
ing á því, að óheimilt hafi verið
i að greiða uppbót þessa án sam-
þykkis bæjarstjómar.
Nafnakall var viðhaft um til-
lögu þessa og gerði Stefán Jóns-
son eftirfarandi grein fyrir at-
kvæði sínu:
„Ég tel að fjárveiting sú,
sem sett var á f járhagsáætlun
1952 sem þóknun fyrir störf
niðurjöfnunamefndar og bæj-
arráðs hafi verið bindandi,
enda fullnægjandi greiðsla
fyrir þessi störf og allsendis
óviðeigandi, að bæjarráð
sjálft taki hærri laun fyrir sín
störf eða samþykki hærri
launagreiðslur til annarra fyr
ir störf þessi, heldur en ákveð
ið var á fjárhagsáætlun, án
þess að leita samþykkis bæj-
arstjórnar áður en greiðsla
fór fram. Ég greiði því at-
kvæði á móti þessari tillögu,
er hér liggur fyrir og segi
nei.
Við athugun á reikningunum
fyrir árið 1952 kom í ljós, að
bæjarráði hafði verið bætt upp
launin um nálega kr. 5.000,oo
samtals og það án heimildar
frá bæjarstjórn, og var því borið
við um bæjarráðslaunin að vísi-
töluhækkunin hefði verið reikn-
uð á skakka grunntölu.
I sambandi við þessa hækkun
á launum bæjarráðs og niður-
jöfnunarnefndar bar Helgi S.
Guðmundsson fram svohljóð-
andi tillögu, sem vísað var til
bæjarráðs:
„Við umræður þær, er fram
fóru á bæjarstjómarfundi hinn
S. sept. s. 1. upplýstist, að þókn
un sú, sem niðurjöfnunamefnd
fær fyrir störf sín sé mjög há
miðað við starfstíma nefndar-
innar.
Bæjarstjórn samþykkir því,
að fyrir samningu næstu fjár-
hagsáætlunar verði endurskoð-
aðar greiðslur bæjarsjóðs fyrir
nefndarstörf með það fyrir
augum að stilla kostnaði við
þau svo í hóf, sem frekast er
unnt.“
Ósannindi Alþýðu
blaðs Hainarlj.
Alþýðublað Hafnarfjarðar
segir það hrein ósannindi, að
breyting hafi verið send á launa
miðum bæjarráðsmanna árið
1952. Sannleikurinn er sá að sú
breyting kom til niðurjöfnunar-
nefndar. Hins vegar voru hinir
breyttu launamiðar ekki sendir
til niðurjöfnunarnefndar, held-
ur til skattstofunnar og skatt-
stjórinn, sem átti sæti í niður-
jöfnunarnefnd lýsti þeirri breyt-
ingu á fundi nefndarinnar, enda
varð að breyta útsvari, að
minnsta kosti á einum bæjar-
ráðsmanna vegna þessarar leið-
réttingar. Þegar skattstjórinn
minntist á þessa breytingu við
bæjarstjórann svaraði sá síðar-
nefndi, að um einhvem mis-
skilning hefði verið að ræða. Sé
Alþýðublað Hafnarfjarðar í vafa
um sannleika þessara orða, þá
ætti það að snúa sér til bæjar-
gjaldkera og spyrja hann að því,
hvort hann hafi ekki sent breyt-
ingu á launamiðum bæjarráðs
fyrir árið 1951. Hamar hefur að
minnsta kosti ekki trú á því að
bæjargjaldkerinn láti nafn sitt
undir nema sanna yfirlýsingu í
þessum efnum og telji Alþbl.
Hafnarfjarðar sig fara með rétt
mál, ætti það að birta slíka yf-
irlýsingu.
Og ennþá er bæjarstjórinn
spurður að því, hvers vegna að
hærri launamiðar voru sendir til
skattstofunnar yfir laun bæjar-
ráðs en endanlega var greitt og
því launamiðarnir leiðréttir til
(Framhald á bls. 4)
VÖIS 1K
sem henta vel til
jólagjafa:
Skíði í miklu úrvali úr hikkori
og ask fyrir fullorðna og börn.
Skiðabindingar, margar tegundir.
Skíðastafir úr málmi og bambus,
margar stærðir.
Skíðaáburður, margar tegundir.
Skíðabuxur úr góðu cheviot,
svörtu og bláu fyrir dömur og
herra.
Skíðablússur.
Skíðavettlingar.
Hliðarpokar fyrir skiðafólk og
fleiri.
Bakpokar, 3 stærðir.
Svefnpokar, 2 stærðir.
Veiðistengur, margar tegundir.
Veiðihjól, línur og fl.
Kerrupokar, 2 tegundir.
Dinamóluktir fyrir hjól.
Skíðasleðar.
★
Jólatrésseríur fáum við að for-
fallalausu síðast í vikunni.
Plastick á hillur með laufaskurði,
6 gerðir.
Þrykkimyndir, margar gerðir.
Veggfóður í fjölbreyttu úrvali.
Gúmmímálningu (Spread) hvíta
og fleiri liti.
Hörpumálningu, marga liti.
Femisoliu, mjög ódýra.
Glimmer til skreytinga, margir
litir.
Ljósaperur, flestar stærðir.
Gullbronce og aluminíumbronce.
Glerhillur, Sápuskálar, Pappírs-
höldur, Vatnskrana og fl.
Dir-kleen hreinsiefnið, Vindol-
ene á gler, Silvo, Brasso, Glo-
Coat, fljótandi bón, og Wax.
Penslar, margar stærðir, Málingar-
rúllur með bakka.
Sagir og margs konar verkfæri.
Fljótandi trélim, þýzkt, mjög gott.
Olagað trélím, islenzkt, stórar og
litlar dósir.
Hurðarhúnar, margar gerðir.
Hurðarskrár, margar gerðir.
Hurðarrílar, Smekklásar, Hengi-
lásar,
Skáphöldur, Gluggakrækjur,
Gluggagormar o. fl.
Vasaljós, Gasluktir, Handlauktir
og fl.
★
Ógalvaniseraður saumur stifti 1"
til 6".
Pappasaumur, galvaniseraður.
Galvaniseraður bátasaumur.
Þaksaumur góður og fl.
★
Vélatvistur, Veedol smurningsolí-
ur og fl.
Garnol, Hrátjara, Koltjara, Black-
femis, Karbólin.
Tufflinmálning dönsk, Skrúfur,
boltar og fl.
★
Ymsar bílavörur, Dúnkraftar,
Hljóðkútar, Þrýstisprautur, Loft-
pumpusett með sprautu, Samlok-
ur, Ljósakastarar, Plastick há-
spennuvír, Kerti, Háspennukefli,
Frostlögur, Hurðarþéttir, Blöðkur,
og amiar, Ljósapemr og fl.
★
Það sparar tima að koma þangað
sem flestar vörutegundimar fást.
Skipasmíðastöð
Ilalnarfjarðar h.f.
Strandgötu 4 B. - Sími 9329.