Hamar - 13.12.1953, Page 4

Hamar - 13.12.1953, Page 4
4 HAMAR Hvernig fara bæjar- s t j órnarkosningarnar ? Síðasta sunnudaginn í janúar n. k. fara fram bæjarstjórnar- kosningar. Þann dag er hið liðna kjörtímabil kvatt og þeim mönn- um, sem farið hafa með völdin, þakkað eftir því sem þeir hafa bl unnið. Bæjarstjórnarkosningarnar munu verða mjög athyglisverðar í flestum kaupstöðum landsins og þá ekki hvað sízt hér í Hafn- arfirði. Þeir menn, sem með völdin hafa farið munu þá upp- skera eins og þeir hafa sáð og þeim mun verða þakkað að verð leikum. Það er því sérstaklega áríðandi við þau tímamót, sem nú fara í hönd, að kjósendur rifji upp atburði liðinna ára og geri sér sem gleggsta grein fyr- ir þeim málum semi á dagskrá liafa verið í Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar. Hér í Hafnarfirði hefur svo sem kunnugt er, meirihlutavald bæjarstjórnarinnar verið í hönd- um Alþýðuflokksmanna. Þeir einir hafa ráðið lögum og lofurn, ekki aðeins síðasta kjörtímabil, heldur um nokkurra ára bil. — Dómur kjósandans í bæjarstjórn arkosningunum er því fyrst og fremst úm þau verk og þær á- k.varðanir, sem Alþýðuflokks- meirihlutinn í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar hefur framkvæmt. Hafi mönnum fallið vel fram- kvæmdir Alþýðuflokksmeiri- hlutans, sem er harla ótrúlegt, þá munu þeir hinir sömu með atkvæði sínu á kjördag, gera misheppnaða tilraun til þess að I ra noimnni Surprise landaði 186 tonnum 16. nóv., Júní 233 tonnum 17. nóv., Keflvíkingur 230 tonnum 25. nóv., Júlí 264 tonnum 26. nóv., Röðull 214 tonnum 27. vóv., Surprise 265 tonnum 30. nóv., Júní 287 tonnum 1 des., Keflvíkingur 148 tonnum 5. des., Júlí 246 tonnum 6. des., Röðull 188 tonnum 7. des., Ágúst 209 tonnum 9. des. og Bjarni riddari 166 tonnum 10. des. Maria Dan tók hér saltsíld 19. nóv., Salling losaði kol til Bæj- arútgerðarinnar 19. nóv., 1533 tonnum. Þá tók Veslefrek 27. nóv. 221 tonn af lýsi, Vatnajök- ull tók frosinn fisk 2. des., Hvassafellið losaði hjallaefni 8. des. og Tungufoss var að lesta fiskimjöl í gær. Ósannindi Alþ.bl. Hfj. (Framhald af bls. 2) Jækkunar? Bæjarstjórinn getur upplýst þetta mál, ef hann vill. En einhvem veginn er það svo, að Emil og félagar óttist sann- leikann, ef hann kemur umbúða- laust fyrir almennings sjónir. tá þeim í hendur áframhaldandi einræðisvald í bæjarmálum Hafnarfjarðar. Séu menn hins vegar óánægðir með það hvern- ig Alþýðuflokksmeirihlutinn hef ur misnotað vald sitt í stjórn bæjarmálanna, en það mun vera rikjandi skoðun meðal bæjarbúa, þá munu þeir að sjálfsögðu greiða atkvæði sitt þeim flokki, sem verið hefur á öndverðum meið við Alþýðuflokkinn og haldið hefur uppi þrotlausri baráttu, fyrir því, að tekin væri upp ný og skynsamleg stefna í framkvæmd bæjarmálefna, sá flokkur er Sjálfstæðisflokkur- inn. I bæjarstjórnarkosningunum 1950 hlaut Alþýðuflokkurinn hreinan meirihluta og fékk þar sitt síðasta tækifæri til þess að sýna hversu hann væri megn- ugur um stjórn bæjarins. Kjós- endur vildu reyna þann galla- grip sem Alþýðuflokksmeirihl. hefur ætíð verið, eitt kjörtíma- bil enn, þrátt fyrir aðvörunarorð Sjálfstæðismanna, en sú reynsla varð dýrkeypt, svo sem við mátti búast. Sérhver ráðamað- ui í Alþýðuflokknum og Alþýðu flokkurinn í heild kepptust við að misnota þetta síðasta tæki- færi er hafnfirzkir kjósendur höfðu veitt þeim og afleiðing- arnar urðu eftir því. OIl saga Alþýðuflokksmeirihlutans síð- asta kjörtímabil er eitt hrópandi dæmi um misbeitingu valds þeirra manna, sem reyndust ekki vaxnir þeim vanda, er þeim var fyrir trúað. Séu tekin nokkur uppáhalds- málefni Alþýðuflokksins, sem hann hefur tekið alveg sérstöku ástfóstri við og lagt höfuðá- herzlu á að framkvæma, þá verð ur efst á blaði: Krýsuvíkuræv- intýrið víðfræga. Það fyrir- 1 iyggjuleysi Alþýðuflokksmeiri- hlutans að leggja í slíkt ævin- týr hefur nú þegar kostað hafn- firzka kjósendur margar milljón- ir króna. Annað aðal hugðarefni bæjar- stjórnarmeirihlutans hefur ver- ið styrkjastarfsemi við Helga Hannesson ennverandi bæjar- stjóra. Hefur bæjarstjórinn þeg- ið af sínu alkunna lítillæti það smáræði sem að honum hefur verið rétt, svo sem örlítinn húsa leigustyrk, lítilsháttar bílastyrk, auk dálitla vasapeninga fyrir sérstaka ósérplægni í nætur- vinnu niðurjöfnunarnefndar, auk ýmislegs annars, sem varla mun hafa hrokkið til mjólkur- kaupa. Þriðja aðalhugðarefni Alþýðu flokksins hefur verið ofsóknar- brjálæði á hendur fyrrverandi slökkviliðsstjóra, Haraldi Krist- jánssyni. Þeim 1 agsbræðrum, Emil Jónssyni og Helga Hann- essyni virðist seint ætla að skilj- ast, að með slíkum bolabrögð- um falla menn ætíð á sjálfs síns bragði. Ofríki þeirra í máli þessu mun landfrægt orðið og þeim til stórrar minnkunar. Engu síður munu þeir Al- þýðuflokksleiðtogar er að þess- um verkum hafa staðið koma fram fyrir kjósendur á kjördag og mælast eftir fylgi þeirra og trausti. Við þeirri ósanngjörnu bón eiga hafnfirzkir kjósendur aðeins eitt svar: Að svifta AI- þýðuflokkinn þeim völdum, sem hann hefur haft í málefnum þessa bæjarfélags og fá þau í hendur nýjum og þróttmiklum bæjarstjómarmeirihluta, Sjálf- stæðismanna. Hægt væri að halda áfram að telja upp hugðarefni Alþýðu- flokksmeirihlutans, en eigi skal þreyta lesendur um of með slíkri upptalningu. Oll eru þau hugð- arefni og framkvæmdir á eina bókina lærð, þar fara með völd- in menn sem engan veginn vita hvernig á skal halda. Þetta er óllum Hafnfirðingum að verða ljósara ineð hverjum degi sem líður. Alþingiskosningarnar í sumar eru gleggsti mælikvarðinn um álit fólksins á starfi og stefnu Alþýðuflokksmeirihlutans. í þeim kosningum tapaði Alþýðu flokkurinn á þriðja hundrað at- kvæðum frá bæjarstjórnarkosn- ingunum 1950, en Sjálfstæðis- flokkurinn jók hins vegar fylgi sitt um • um 250 atkvæði og er því í dag sá flokkur, sem flestir hafnfirzkir kjósendur fylgja. — Það er því öllum ljóst að valda- skeið Alþýðuflokksins er senn á enda. Það sigurmerki, sem Sjálf- scæðisflokkurinn reisti í alþing- iskosningunum í sumar stendur óhaggað og mun verða hafið enn hærra í bæjarstjórnarkosningun- um í janúar n. k. svo takast megi að vinna fullkominn sig- ur. Hafnfirzk æska átti sinn drjúga þátt í hinum gifturíka sigri Sjálfstæðisflokksins í al- þingiskosningunum í sumar og svo mun einnig vera nú: „Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtíðarvegi". Á. M. Býð: Ljósaperur mattar 220 v. Bjarni Ö. Jónasson Sími 9404. JÓLABÆKUR: Drekkingarhylur og Brimarhólmur Tíu dómsmálaþættir eftir Gils Guðmundsson. Allir endurspegla þessir þættir hugsun- arhátt og menningu liðinna tíma. Og sumir segja frá örlögum, sem verða munu les- andanum lengi minnisstæð. Um öll heimsins höf Endurminningar Karls Forsell skipstjóra, sem á að baki langa og ótrúlega ævintýra- ríka sjómannsævi. — Sannkölluð óskabók allra þeirra, sem unna sæförum, ævintýr- um og þrekraunum. Erfðaskrá hershöfðingjans Ný skáldsaga eftir hinn vinsæla og víðlesna höfund, Frank G. Slaughter. Skáldsögur hans eru einhverjar vinsælustu skáldsögur, sem nokkru sinni hafa verið þýddar á is- lenzku. Sumardansinn Sænsk verðlaunasaga eftir Per Olof Ekström, sem hlotið hefur einróma lof bókmennta- gagnrýnenda og ákafar vinsældir lesenda. Kvikmynd, sem gerð var eftir sögunni, hefur farið glæsta sigurför í Svíþjóð og annars staðar og alls staðar hlotið metað- sókn. Gestir i Miklagarði Bráðfyndin og skemmtileg skáldsaga eftir Erich Kastner, ein af hinum vinsælu gulu skáldsögum, og þar af leiðandi óskabók allra ungra stúlkna. Ævintýrahafið Spyrjið börnin og unglingana, hverjar séu skemmtilegustu bækurnar við þeirra hæfi, sem út eru gefnar hér á landi um þessar mundir. Þau munu svara einum rómi: Æv- intýrabækurnar. Nú er fjórða bókin í þessum flokki komin út. Hún heitir Ævintýra- hafið og er jafn skemmtileg og hinar fyrri — og þá er mikið sagt. • Þetta eru bækumar, sem lögreglan í Reykjavík gerði upptækar hjá forlaginu vegna pólitískrar ofsóknar fjármálaráðherra, Eysteins Jónssonar, gegn Valdimar Jóhannssyni. Þær fást enn í bókabúðum í Hafnarfirði og víðar. Draupnisútgáfan - Iðunnarútgáfan Skólavörðustíg 17 — Reykjavík — Sími 2923. HAGKPÆHU STE JÓLAOÍIVKAVPIIV FA8T IIJÁ 088

x

Hamar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.