Hamar - 01.04.1957, Blaðsíða 2

Hamar - 01.04.1957, Blaðsíða 2
2 HAMAR 1. apríl 1957 r HAMAR ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Ámi Grétar Finnsson. (Sími 9228) AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29. HAMAR kemur út hálfsmánaðarlega. Prentað í Prentsmiðju Ilafruirfjarðar h.f. FltA ARSÞINGI I.B.II. Tólfta ársþing Í.B.H. hófst fimmtudaginn 28. febrúar s. 1. Þingið sátu 17 fulltrúar frá 6 félögum. Auk þess voru mættir sem gestir þingsins, Benedikt G. Waage forseti Í.S.Í., Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi ríkisins og Hallsteinn Hinriks- son formaður íþróttarnefndar Hafnarfjarðar. Formaður Í.B.H. Þorgeir Ibsen skólastjóri, setti þingið og bauð fulltrúa og gesti þess velkomna, en síðan voru kosnir starfsmenn þingsins. Lögð var fram ársskýrsla bandalagsins, sem sýndi glögg- lega að starfsemi þess og félag- anna hefur verið allgóð á liðnu ári. Þorgeir Ibsen skýrði störf bandalagsins á árinu og gat þess m. a., að s. 1. ár hafi verið það sögulegasta í sögu íþrótt- anna hér í Hafnarfirði. Haldin voru fimm íslandsmót hér á árinu, en það voru: 4. fl. mót í knattspyrnu (A-riðill), 2. deild- ar mót í knattspyrnu (Suðvest- urland), karla- og kvennamót í utanhúss og Sundmeistaramót íslands. Þingið samþykkti ýmsar til- lögur og gerði ályktanir. Mun nánar sagt frá þinginu síðar. iiiiiii n i iii iiiiii i iii 11 ii iiin iiiii 111111111 iiiii iii iiiiiiiiu iii ii iiiiiiiui iii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiii 111111 in im iii iii ii iiiii n Kristján G. Gíslason h.f. fiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii uimiiiiiiiiiimmmmmmmmmmmmmimmmimmmimimmiiiiniiimmimmimiimmimiimiiiimimmi [ Hötum ávallt iynrliggjandi: LOFTLJÓS VEGGL A M P A BORÐLAMPA GÓLFLAMPA í fjölbreyttu úrvali. I ENNFREMUR: [ ? _ ÞVOTTAPOTTA BORÐELDAVÉLAR • og RYKSUGUR § i RAFVEITUBIJÐIA HAFN ARFIRÐI - SÍMI 9494 Aðsent bréf: FRÆGAR GÖTIJR Bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar hafa unnið sér margt til frægð- ar. Eitt af því er hin fádæma vegagerð í bænum. Slæmir vegir eru svo algeng- ir í Hafnarfirði,, og hafa svo lengi verið það, að sumir hætta að veita því athygli, og ihuga ekki hve langt við höfum dreg- ist aftur úr öðrum bæjum og byggðarlögum í þessum efnum. Við hrökkvum þó við, þegar aurbleytan þeytist upp í andlit okkar frá holum veganna, eða þegar við tökum loftköst í bif- reið, sem ekur eftir þeirri ó- færu, sem Alþýðuflokksmennirn ir nefna vegi. Um nær þrjá áratugi hafa sömu mennirnir stjórnað þess- um bæ, og það er furðulegt, hve þeim hefir tekist að halda sér utan við allar framfarir í vegagerð, enda er nú svo kom- ið að Hafnarfjörður er land- frægur orðinn fyrir afturhald og sofandahátt um verklegar framkvæmdir. Utanbæjarmenn reka strax augun í þennan ómenningar- brag og erlendir gestir hafa þannig orð á um okkur, að við hefðum helst kosið að þeir hefðu aldrei hingað komið. Ein af aðalumferðagötum bæjarins er Hverfisgata. Frá- gangur hennar er þannig að nær ófær er samtímis fyrir gang- andi fólk og bifreiðar. Alls staðar skaga hraundrangarnir fram í veginn, og stundum loka þeir honum til hálfs, og vel það. Gangandi fólk lendir í lífs- hættu þegar það mætir bifreið og verður þá ýmist að forða sér upp á kletta eða jafnvel flýja inn í hús. Gatnamót Hverfis- götu og Tjarnarbrautar eru nær lokuð með steinhúsi, sem leyft Var að byggja langt fram í Tjarnarbraut. Linnetsstígur er það mjór á köflum að aðeins er hægt með mestu varúð að láta bifreiðar mætast þar. Kostnaðarhtið er að lagfæra þetta, en svona hef- ir þetta verið frá ómunatíð, án þess að nokkuð væri að gert. Við Gunnarssund er djúþ gjóta upp af horni Austurgötu. Bifreiðar hafa þar oft runnið út af og slys hafa hlotist af. Mörgum sinnum hefir verið kvartað um þetta, en Kratarnir sofa sínum 30 ára væra svefni, á þessu sem öðru. Aðkeyrsla inn í Suðurgöt frá Lækjargötu er nær lokkið af kálgarði í eigu eins af gæðing- um Alþýðuflokksins. Heyrst hefur að hann hafi nú samþykkt að selja bæjarfé- laginu kálgarðinn, og ef til vill eru þau kaup.nú um garð geng- in, en kálgarðurinn er þarna enn, í stað vegar, og hindrar umferðina um Suðurgötu. Þegar bílstjórar, sem ekki eru gegnumkunnugir vegamálum Hafnarfjarðar, koma akandi suður Suðurgötu og ætla sér upp Illubrekku eða Selvogs- götu, þá lenda þeir í hreinasta vanda urn hvert aka skuli. Skákmóti Hafnarfjarðar lokið Skákmóti Hafnarfjarðar er nýlokið. Voru þátttakendur 19 og skiptust þeir þannig, að 13 tefldu í 2. flokki en 6 í meist- araflokki. Tveir Reykvikingar þeir Eggert Gilfeir og Bjöm Jóhannesson tefldu sem gestir á mótinu. í meistaraflokki varð efstur Eggert Gilfer með 8/á vinning, 2. varð Stígur Herlufsen með 6 vinninga,, 3. Björn Jóhannes- son 5 vinninga, 4. Jón Krist- jánsson 4M vinning, 5. Ólafur Stephensen 4 vinninga og 6 Ólafur Sigurðsson 2 vinninga. Þar sem Stígur Herlufsen er efstur Hafnfirðinganna að vinn ingatölu, þá hlýtur hann sæmd- arheitið „Skákmeistari Hafnar- fjarðar árið 1957.“ Geta má þess, að hann var áður skák- meistari ísafjarðar. — Stígur er dóttursonur Sigríðar og Stígs Sælands. í 2. flokki voru jafnir og efst- ir Hilmar Ágústsson og Ólafur Magnússon með 10 vinninga, næstir voru Guðmundur Jóh- annesson og Þorsteinn Jónsson með 8 vinninga. Blaðið birtir hér að þessu sinni eina af skákum hins ný- bakaða Hafnarfjarðarmeistara frá móti þessu, þar sem hann sigrar Björn Jóhannesson skák- meistara Taflfélags Reykjavík- ur á mjög glæsilegan hátt. Hvítt Svart Stígur Herlufsen Björn Jóh. Philadorsvörn. 1. e2—e4 e7—e5 2. Rgl—f3 d7—d6 3. d2—d4 (Bezt) Rg8-f6 (Bc8-g4? 4. dxf3. 5. Ddlxf3, d6 xe5, 6. Bfl—c4, Dd8-d7, ef 6... Rg8-f6, 7. Df3-b3!) 4. Bcl—g5 (Skemmtilegt er 4. Rbl—c3, Rb8 —c3, Rb8-d7. 5. Bfl-c4, Bfl-c4, Bf8-e7, 5. Rf3-g5, 0-0, 7. Be4xf7f, Hf8xf7, 8. Rg5-e6, Dd8-e8, 9. Re6 xc7, De8—d8, 10. Rc7xa8, b7—b6, 11. dxe5!, Rxe5, 12. f4, Rg6, 13. Be3, Bb7, 14. Rxb6, axb6, 15. Dd4 og hvítt hefur hrók og 3 peð fyrir ridd- ara og biskup og stendur betur.) 4 Rb8-d7 5. Bfl—c4 Bf8-e7 6. Rbl—c3 c7—06 7. 0-0 0-0 8. d4xe5 d6xe5 9. Ddl—e2 Dd8—c7 10. Rf3-h4 b7—b5 11. Rh4—f5! góður millileikur 11. Be7-d8 12. Bc4-b3 Rd7—c5 13. Rf5-g3? a7-a5! Svartur hefur greinilega verri stöðu, en með þessum leik hótar svartur að vinna mann með 15......... a4 og síðan 16........b4 og Ba6. — Svarta peðastaðan veikist hins vegar Þarna er ekkert vegasamband, að kalla megi, aðeins krákustíg- ar líkastir förum sem skepnur hafa upprunarlega myndað í leit að færustu leið milli fjalls og fjöru, krækjandi fyrir verstu ófæru. Sums staðar á Hellisgötu og Merkurgötu geta bifreiðar bók- staflega ekki mætzt. Kirkjuveg- urinn er ýmist tvíbreiður eða hálfbreiður. Aðalvegir í gegnum Hafnar- fjörð eru stundum taldir al- gjörlega ófærir, að dómi bif- reiðastjóra, sem þar þurfa að aka. Gangstíga vantar við nær alla vegi og stafar vitanlega af þessu hin mesta hætt, sérstaklega fyrir gamalmenni og mæður með börn sín. Við skulum sleppa útliverf- unum að sinni, en láta þetta nægja sem örlítið brot af þriggja tuga ára framkvæmdum Al- þýðufl. í Hafnarfirði með komm- ana í skutnum hin síðari ár. Þegar Hafnfirðingar ganga um götur bæjarins og fá for- ina skvettandi á föt sín eða blindandi í andlitið, þá er það kveðja frá Alþýðu- og Komm- úninstaflokknum, og þegar við í sumar fáum göturykið þyrl- andi í vit okkar, mökkurinn leggst kæfandi á tré og blóm, og húsmæðurnar hafa ekki við að þurrka þennan götuáburð af húsgögnum sínum, þá er það með hinnstu kveðju frá Kröt- um og Kommum. Kosningar fara í hönd og öll viðbrögð þeirra nú benda til þess, að þeir viti að valdatími þeirra sé nú senn á enda. Bílstjóri. mikið við þetta og hvítur notfærir sér þetta á lærdómsríkan hátt og er sýnilega við öllu búinn. 14. Gg5-e3 (Hvítur gefur skiftamun. Mögu- leiki var 14. De3, Rxb3, 15. axb3, h6, 16. Bxf6, Bxf6, 17. Rh5, Be7.) 14............... Rc5xb3 15. a2xb3 b5—b4 16. Rc3—a4 Bc—a6 17. De2-f3 Baöxfl 18. Halxfl (Svartur hefur skiftamun yfir en hvítur fær reitinn f5 og mikla sókn- armöguleika.) 18............... Rf6-d7 19. Rg3-f3 Kg8-h8 20. Hfl-dl! Hvítur bindur svartabiskupinn á d8, þar sem hann stendur illa og hindrar samspil svörtu mannanna. 20...... c6—c5 21. Df3-g4 g7—g6 22. Rf5-d6 (Svartur er í miklum vanda stadd- ur.) 22 .... Rd7-f6 Hvítur hótaði 23. Rb5 sem vinnur. 23. Dg4-f3 Hvitur leikur drottningunni á f3 aftur, en nú er svarta kóngsstaðan mjög veik. 23 .... Bd8-e7 24. Be3xc5 Ha8-d8? Tapar strax 24...Ha6, 25. Rb7, Db7, 26. Bd6! og svartur á úr vöndu að ráða t. d. 26....Hd8, 27. Rc5!, Bxb5, 28. Bxe7, Hxdlf og Dxdl og vinnur!) 25. Bc5-b6 Dc7xd6 26. Hdxd6 Hd8xd6 27. Bb6—c5 Hd6-d7 28. Bc5xe7 gefið (Skýringar eftir Sigurgeir Gísla- son). s * / (

x

Hamar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.