Hamar - 23.12.1958, Side 8
8
HAMAR
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýar!
Bifreiðastöð Hafnarfjarðar
Óskum öllum
viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
Lýsi hf., Reykjavík
Óskum öllum
viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsælt komandi árs.
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Hlutafélagið Hamar
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt komandi ár!
Iðnaðarmannafélag Hafnarfjarðar
Óska viðskiptamönnurh mínum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
með þökk fijrir viðskiptin á Uðandi ári.
Elías Ivarsson skósmiður
Strandgötu 43
GLEÐILEG JÓL!
Gott og farsælt mjtt ár.
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Sundhöll Hafnarfjarðar
k organisti Hjörleifur Zóphónías-
son, kennari.
— Hvað vildir þú helzt segja
um jólahátíðina og boðskap
hennar?
3
Kristinn J. Magnússon.
— Þesari spurningu er erfitt
að svara í stuttu máli, því boð-
skapur jólanna er mikill og
margbrotinn. Hann boðar okkur
frið á jörðu, og er fagnaðar-
erindi jólanna hinn bjarti Ijós-
geisli í skammdegismyrkrinu,
sem lýsir mönnunum til betri
vegar.
Það er ósk mín á jólahátíð-
inni, að kristin trú megi eflast
og verða mönnunum leiðarljós
til varanlegs friðar. Það er ósk
mín og von, að Fríkirkjan í Hafn
arfirði verði ætíð þeim vanda
vaxinn að útbreiða sem mest
boðskap Krists öllum til heilla
og blessunar, því að hvað sem
allri velgengni líður, þá er trúin
það bezta sem mennirnir eiga.
Hún er fjársjóður, sem ei verður
frá mönnunum tekin.
Að endingu óska ég öllum
Hafnfirðingum gleðilegra jóla.
Krists konungs Idrkja.
Sú kirkja, sem fæstir Hafn-
firðingar hafa komið í, er Krists-
kirkja eða kaþólska kirkjan
eins og hún er nefnd í
daglegu tali. Kaþólski söfnuð-
urinn í Hafnarfirði er ekki mjög
fjölmennur, en þrátt fyrir það
hefur hann sína eigin kirkju og
sérstakan prest. Er það séra
Gerhard Boots, sem er elzti
kaþólski presturinn hér á landi.
Til íslands kom hann frá Dan-
mörku árið 1921. Hafði hann
áður verið 4 ár í Danmörku,
sem aðstoðarprestur í Ringeted
að Hróarskeldu. Fyrstu árin eft-
ir hingað komu hans var hann
þjónandi prestur við kaþólsku
kirkjuna í Reykjavík, en kom
til Hafnarfjarðar árið 1938. Var
hann við kirkjuna hér til ársins
1941 og aftur árið 1948—1950,
þá fór hann til Stykkishólms. Til
Hafnarfjarðar kom hann aftur
árið 1956. Eftir að Karmel-
klaustrið tók til starfa hafa ver-
ið tveir kaþólskir prestar hér í
bæ og er annar þeirra þjónandi
prestur í klaustrinu. Nú er það
séra Vroomen (Marteinn Jak-
obsson).
— Hvenær hófst kaþólskt
safnaðarlíf hér- í bæ, séra Boots?
— Kaþólska kirjan var vígð
í Hafnarfirði árið 1926, það er
að segja, á því ári byrjaði hún
í stofu húss, sem stóð austan
við núverandi íbúðarhús á Jó-
friðarstöðum. Það hús hefur nú
verið rifið. Sjálf Krists-
kirkjan var byggð jafnhliða spí-
talanum, og var hún vígð í októ-
ber árið 1926. Fyrsti prestur-
inn hér var séra Dreesen og
þjónaði hann til ársins 1936, en
veiktist þá og fór utan. Séra
Marteinn Jakobsson var sóknar-
prestur frá 1936—1938. Séra
Liedekerken frá 1941—1949. —
Arið 1946 kom séra Dreesen aft-
ur til Islands og þjónaði í Kar-
melklaustrinu til dauða dags,
en hann lézt árið 1954. Tók séra
Marteinn þá við í klaustrinu og
séra Aarts varð sóknarprestur til
ársins 1956, þegar ég tók aftur
við. Margir Hafnfirðingar
þekkja séra Aarts, því hann var
bóndi á Jófriðarstöðum í 21 ár
og nefndist bróðir Jósef.
— Hvað heitir reglan ykkar
og hvenær tók hún til starfa
hér á landi?
— Reglan heitir Maríufélag
Montfortanar og erum við
Montfortsprestar. Heitir hún í
höfuðið á stofnandanum, sem
var franskur, Lúðvik María frá
Montfort. Hann lézt árið 1716.
Reglunni er skipt í margar
deildir eftir löndum og er hún
víða starfandi m. a. í Danmörku,
Hollandi, Frakklandi, Ítalíu,
Englandi og Ameríku, auk ís-
lands. Hún starfar undir æðstu
stjórn í Róm og munu um 1000
til 1100 prestar vera í reglunni.
Við, sem hér erum, tilheyrum
hollenzku deildinni.
Upphaf kaþólska trúboðsins,
sem nú starfar hér á landi, má
rekja til tveggja heimspresta,
Séra Gerliard Boots.
sem komu hingað frá Danmörku
árið 1895 og settust að í Landa- ^
koti í Reykjavík. Byggðu þeir
fyrstu kirkjuna og var hún úr
timbri. Fyrstu regluprestarnir
komu til Islands árið 1903 og
tóku þeir við af heimsprestun-
um.
Nú eru 4 trúboðsstöðvar hér,
í Reykjavík, Hafnarfirði, Stykk-
ishólmi og á Akureyri. Kirkj-
urnar eru þrjár og sömuleiðis J
spítalarnir og eru þessar stofn-
anir á þrem fyrst töldu stöðun-
um. Barnaskólar eru starfandi í
Reykjavík og Hafnarfirði. A öllu
landinu eru starfandi 9 kaþólsk-
ir prestar. Biskupinn, Jóhannes
Gunnarsson hefur aðsetur í
Reykjavík, en þar eru 4 prest-
ar, 2 eru í Hafnarfirði, 1 í Stykk-
ishólmi og 1 á Akureyri, Hákon
Loftsson heimsprestur. Einn ís-
lendingur, Sæmundur Fossdal,
er á prestaskóla í Rómaborg.
— Þér minntust á spítalann
og skólann, séra Boots, en þess-
ar stofnanir mirnu systur reka?
— Já, Hér á landi eru þrjár
systurreglur. Systur úr St. Jos-
ephsreglunni eru í Reykjavík og
Hafnarfirði. Sú regla er mjög
útbreidd í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð. Hún er upprunnin
frá Chanberry í Frakklandi og
var stofnuð fyrir tveim til þrem
öldum. I Stykkishólmi eru syst-
ur úr Fransiskusreglunni. Sú
regla var stofnuð í Frakklandi
Framh. á bls. 19
I
!
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt komandi ár.
Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári. *
Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar V
y
Aðfangadagskvöld jóla í Kristskirkju.