Hamar - 23.12.1958, Qupperneq 25
f
HAMAR
25
| jSnmHningur
V j==;...........:==:....
í ráðherratíð Jónasar frá Hriflu hitti
hann eitt sinn sr. Bjarna á götu og segir:
„Er það satt, sem ég hef heyrt, sr.
Bjarni, að þú sért hættur að biðja fyrir
stjórninni við messugerðir?“
„Nei, það er með öllu ósatt,“ svaraði
sr. Bjarni. „Mér hefur aldrei fundist
meiri þörf á því en einmitt núna.“
V - □ -
Sýslunefnd nokkur hafði vegalagn-
ingafrumvarp til meðferðar fyrir nokkr-
um árum.
Ein grein var um það að víkja skyldi
til vinstri er menn mættust á vegum.
Þá stendur einn af sýslunefndarmönn-
um upp með spekingssvip og mótmælir
því eindregið að víkja alltaf til sömu
^ bliðar.
„Slit veganna verður þá allt öðru meg-
in,“ sagði hann.
Jóhann bóndi var að spyrja son sinn,
sem var nýkominn heim af togara af
sjóferðinni. Sagðist sonurinn m. a. hafa
komið til Englands.
„Er það stór hreppur, England?"
spurði Jóhann.
- □ -
„Mér lízt alls ekki vel á konuna þína,
Jón minn!“ sagði læknirinn þegar hann
var búinn að skoða hana.
„Mér ekki heldur,“ sagði Jón, „en hún
er ágætis kona, matreiðir vel og hirðir
krakkana, svo ég á nú víst ekki að segja
mikið.
- □ -
Bóndi nokkur var eitt sinn að fara úr
veizlu, mikið kenndur. Honum gekk illa
að komast á bak. Þá mælti hann: „Háir
gerast nú hestar vorir.“
V
\
Starfsmannafél. Hafnarfjarðar
gefur bænum fagran grip
Þegar Hafnarfjarðarkaupstaður hélt upp á 50
ára afmæli sitt í sumar, bárust honum eins og
kunnugt er ýmsar góðar gjafir, og meðal annars
tilkynnti Starfsmannafélag Hafnarfjarðar að það
myndi gefa bænum vita, skorinn úr tré ,sem
Ríkharður Jónsson myndhöggvari væri að vinna
að. A síðasta bæjarstjórnarfundi afhenti svo form.
félagsins, Guðlaugur Þórarinsson, hinn fagra grip.
Vitinn, sem er eins og kunnugt er, merki Hafn-
arfjarðarkaupstaðar, er 80 cm hár og hinn feg-
ursti og vandaðasti í hvívetna. Er hugmyndin að
liann verði staðsettur í fundarsal bæjarstjómarinnar.
Stjórn Starfsmannafólags Hafnarfjarðar skipa
þeir Guðlaugur Þórarinsson formaður, Stefán Þor-
steinsson ritari, Garðar Benediktsson gjaldkeri, Jón
Guðmundsson varaformaður og Kristján Eyfjörð
meðstjórnandi.
Verðlaunakossgáta
Lárétt skýring: 1 Við fjarðarbotninn, 6 spotti, 7 tveir eins, 9 fæði, 10 auðæfi,
11 skammstöfun, 12 greinir, 13 harðræðið, 18 hið bezta, 19 kjark, 20 Evfópu-
búi, 23 dulan, 26 skammstöfun, 27 rám, 29 skammstöfun, 30 óákveðið fornafn,
31 sný, 32 ókunnur, 33 þingmann, 35 ljóð, 36 nágrannabyggð.
Lóðrétt skýming: 1 Mót, 2 viðbit, 3 galli, 4 geysilegur, 5 jurt, 14 burðar-
dýr, 15 stafur, 16 fangamark bóklialdara í Hafnarfirði, 17 duglegur, 20 klett,
21 lán, 22 á skipi, 24 hægur róður, 25 þröngvi, 27 ósoðna, 28 hvíldist, 34
fangamark lögregluþjóns í Hafnarfirði, 37 ánauð.
(Ekki gerður greinarmunur á grönnum og breiðum hljóðstöfum. A einum
stað V lesið sem F).
Verðlaun verða veitt fyrir rétta ráðningu á krossgátunni, kr. 100.00. Ráðn-
ing sendist í pósthólf 81 fyrir 5. janúar, merkt „Krossgáta.“ Berist fleiri en
ein rétt lausn, verður dregið um verðlaunin.
Jólatré úr Undirhlíðum
til Hafnarf jarðar
17. desember afhenti Skóg-
1 ræktarfélag Hafnarfjarðar Barna
skólanum veglegt jólatré að gjöf,
en það á allmerkilega sögu að
baki sér. Það voru sem sé skóla-
börn úr Barnaskóla Hafnarfjarð-
ar, sem gróðursettu allmikið af
plöntum á árunum 1937—1939
Séra Garðar Þorsteinsson, formaður
Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, af-
hendir Þorgeiri Ibsen, skólastjóra,
jólatréð.
í þriggja hektara reit uppi í
Undirhlíðum, og hafa þær dafn-
að þar allvel. Eru trén orðin
2—4 metra há og einstaka 5
metrar. Af þeim voru nú 10
felld og var eitt þeirra það,
sem barnaskólanum var afhent
í gær. Einnig voru báðum kirkj-
unum gefin tré, svo og kirkj-
unni á Bessastöðum og verða
þau sett upp fyrir utan þær.
Einnig verður eitt þessara trjáa
sett upp á Ráðhúsið.
Þessi fyrrnefndi reitur, sem
plantað var í, er nú í umsjá
Skógræktarfélagsins, en form.
þess er séra Garðar Þorsteins-
son.
Þorgeir Ibsen skólastjóri veitti
trénu móttöku og gat þess þá
meðal annars að hann vildi
gjarnan að skólarnir stæðu ein-
um rnánuði lengur fram á vor,
og yrði þá þessum mánuði var-
ið til skógræktar.
Er hér um merkilega hug-
mynd að ræða, sem mundi auka
áhuga æskunnar fyrir þessu
mikla máli framtíðarinnar.
Flj»tmælgi
Þessi leikur er í því fólginn að
þátttakendur geti talað og hugs-
að fljótt. Þeir eiga að nefna
eins mörg orð með sama upp-
hafsstaf og þeir geta á 30 sek-
úndum! Eins má láta nefna t.
d. spörfugla, spendýr, kaup-
staði, vindlingategundir o. s. frv.
Þennan leik er hægt að gera
mjög skemmtilegan með því að
stjórnandinn reynir að trufla
þann sem þylur í það og það
skiptið með því að hvetja hann
í sífellu og reyna að minna hann
á hvað tímanum líður.
UM ÁRAMÓTIN 1928—’'27
birti Brúin þessa auglýsingu frá
Akurgerði:
Sakar vart þó veturinn, vind og
frostið herði,
ef þú kaupir kæri minn, kol í
Akurgerði.
Hve marga hluti getið þér munað í einu. — Á myndinni eru
dregnir upp 40 hlutir, sem þér munuð auðveldlega kannast við.
En getið þér einnig munað þá? Horfið á myndina í tvær mín-
útur og leggið síðan frá yður blaðið. Takið blað og blýant og
skrifið niður á næstu fimm mínútum eins marga hluti og þér
mögulega munið. Þegar þér hafið skrifað í fimm mínútur takið
þér blaðið aftur og berið lista yðar saman við myndina. Ef þér
hafið munað 30 myndir, hafið þér mjög gott minni (yfir 30 er
afbragsgott), en 25 réttar bera vott um gott minni.