Eyjablaðið - 01.04.1953, Page 4
4
EYJABLAÐIÐ
UR BÆNUM
Landakirkja.
Messað á Skírdag kl. 5, altar-
isganga. Föstudagind langa kl.
2. Páskadag kl. 2 og kl. 5, skírn-
ir. Annan páskadag kl. 2.
Betel
Samkomur um páskana: Skír
dagskvöld kl. 8,30. Föstudaginn
langa kl. 4,30 og 8,30. Páskadag
4,30 og 8,30. Annan páskadag
4,30. — Margir ræðumenn, mik
ill söngur.
Utför
Kristins Aðalsteinssonar og
Guðna Rósmundssonar og minn
ingarathöfn um Óskar Eyjólfs-
son, Sigþór Guðnason og Elís
Hinriksson, sem fórust með v.b.
Guðrúnu 23. febr. s. 1., fór fram
laugardaginn 21. marz. — Mjög
var fjölmennt við athöfnina og
blöktu fánar hvarvetna í hálfa
stöng. — Þá fór fram í gær, 31.
marz, útför Óskars Eyjólfssonar
skipstjóra á v.b. Guðrúnu.
Jarðarför
Ingibjargar Jónsdóttur frá
Suðurgarði fór fram mánudag-
inn 30. þ. m.
Urðarmáninn
Svo nefnist nýr félagsskapur,
er hyggst láta til sín taka í
skemmtanalífinu hér. Fyrsta af-
rek félagsskaparins á þeim vett-
vangi er revýan Útsynningur,
sem frumsýnd verður í Sau*-
komuhúsinu í kvöld kl. 8, en
þar er fólki heitið miklum hlátri
sbr. auglýsingu.
Orgel á sjúkrahúsið.
Hjón, sem ekki vilja láta
nafns síns getið, hafa gefið kr.
500,00 sem stofnsjóð til kaupa á
orgeli í sjúkrahúsið.
Ætlun gefanda er, að þeir
sem hefðu áhuga fyrir þessu
máli ,legðu í þennan sjóð fé,
eftir því sem ástæður leyfðu.
Gjöfum til sjóðsins veitir
ráðsmaður sjúkrahússins hr.
Steinn, Ingvarsson móttöku.
Með þakklæti fyrir gjöfina.
Ól. Á. Kristjánsson
Málverkasýning.
í dag kl. 5 opnar Örlygur
Sigurðsson litsmálari (Guð-
mundssonar skólameistara frá
Akureyri) sýningu á verkuin sín
um í Akóges-húsinu. — Örlyg-
ur er löngu landskunnur list-
málari, þótt ungur sé, og vill
blaðið eindregið hvetja bæjar-
Sendikennari
Framhold af 2. síðu.
í ljós í námsflokkum Vestmanna
eyja, að þeir sem áður hafa lært
eitthvað í esperanto eiga auð-
veldar'a en aðrir með að læra
hin málin. Þetta er ekki óeðlilegt.
því esperanto er einskonar lyk-
ill að öðrum málum. Til sönn-
unar þessari staðhæfingu vil ég
nefna dæmi. Eitt af þeim fáu
erlendu málum, sem Englend-
ingar læra er franska. Læra þeir
í hinum æðri skólum frönsku í
5 ár. Prófdómari nokkur við
þessa skóla, er mikið álit hafði
á esperantó, fékk því til leiðar
komið, að í tveim þessara skóla
lærðu nemendur ekki frönsku,
heldur esperantó, fyrsta árið og
varð frönskunám þeirra ári
styttra en hinna. .
Eftir 5 ár kom í Ijós, að þeir
nemendur, er numið höfðu
frönsku aðeins í 4 ár, kunnu
áberandi meira í frönsku á prófi
en hinir, sem numið höfðu mál-
ið í 5 ár. Og svo höfðu þeir
auk þess lært esperanto.
Kennari sá, er nú kemur er
Pólverji, en er nú búsettur í
London. Hann er hagfræðingur
að menntun. Nam snemma
esperanto, hefur staðið fyrir
bréfaskóla í esperanto, og auk
þess bæði þýtt og frumsamið
gieinar á málinu.
Er hann sagður afbragðs
kennari og kennir eftir hinni
svokölluðu bóklausu aðferð. Fer
kennslan fram á esperanto, en
nemendur þurfa ekki að hafa
annað meðferðis en blýant og
blað.
Doktor Weisblum, en það er
nafn kennarans, tekur ekkert
fyrir kennslu sína. Aðeins þarf
að kosta uppihald hans hér og
ferðir frá Reykjavík. Verður
því námsgjald sennilega mjög
sanngjarnt. Hann hefur í
hyggju að kynnast sem bezt ís-
landi og íslenzku þjóðinni og
hyggst skrifa greinar um ísland
erlend blöð.
Þeir, sem hyggjast nota tæki-
færið og læra málið gjöri svo
vel að fylgjast með auglýsingum
i blöðum og útvarpi um tilhög'-
un kennslunnar.
Ó. H.
búa til að sjá sýningu þessa,
en hún mun verða opin yfir
páskana.
Athugið!
Minningarspjöld
Elliheimilisins fást
hjá Oddgeiri Kristj-
ánssyni
Söluumboð fyrir Vestmannaeyjar:
IIEILDVERZLUN GtSLI GtSLASON
A u g 1 ý s i n g
um bann við notkun örvaboga.
í 7. grein lögreglusamþykktar fyrir Vestmannaeyja frá 31. marz
1928 er bannað að skjóta af örvabogum á almannafæri.
Verður hér eftir ríkt gengið eftir því að ákvæði þessu verði
fylgt. Verða bogar og örvar þeirra er bannið brjóta teknir af þeim
og þeir auk þess sektaðir.
Hinsvegar er leyft að nota örvaboga utan við bæinn, enda sé
þess gætt að ekki sé valdið tjóni á fólki, fé eða eignum.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, 13. rnarz 1953.
TORFI JÓHANNSSON.
Utsynningur
F RU M SY NIN G
i kvöld klukkan 8. — Ólofaðir
aðgöngumiðar seldir i dag frá
klukkan 5 i Samkomuhúsinu.
Málverka-
sýning
örlygs Sigurðssonar
verður opnuð í dag (mið-
vikudaginn 1. apríl) kl- 5
síðdegis í Akóges-húsinu.